Bílar

Skyactive kerfi Mazda það grænasta

Skyactive vél í Mazda CX-5
Skyactive vél í Mazda CX-5
Nýir bílar Mazda, CX-5 og Mazda6 eru með Skyactive tækni.

Hinar ýmsu stofnanir og tímariti keppast við að verðlauna umhverfisvæna bíla framleiðendanna. Bílar eins og Chevrolet Volt, Nissan Leaf og Ford C-Max Energy hafa hlotið slík verðlaun.

Tímaritið Green Car Journal horfir á umhverfismálin í víðari skilningi og verðlaunaði fyrir skömmu þá heildarlausn framleiðendanna sem skilar mestum árangri í umhverfisvernd. Þau verðlaun hlaut Skyactive kerfi Mazda nú. Í því felast ekki bara einstaklega eyðslugrannar Skyactive vélar Mazda heldur einnig þróun léttbyggðra bíla með lága loftmótsstöðu.

Mazda hafði undir marga verðuga andstæðinga í þessu vali, meðal annars vélbúnað Fisker Karma og Tesla rafbílaframleiðandanna, Ford Energi plug-in hybrid kerfið, Fiat Multiair, Honda Eco Assist, Toyota RAV4 EV bílana og Nissan Easy-Fill Tire Alert, sem hjálpar ökumönnum að hafa ávallt réttan þrýsting í hjólbörðunum.

Green Car Journal veitir einnig verðlaun í nóvember ár hvert fyrir umhverfisvænansta bíla ársins og í fyrra hlaut Ford Fusion þau verðlaun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×