Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lovestar Andra Snæs tilnefnd Bókin Lovestar eftir Andra Snæ Magnason hefur verið tilnefnd í Bandaríkjunum til verðlauna sem kennd eru við Philip K. Dick. Þetta kemur fram á vefsíðu Forlagsins. Um ein helstu vísindaskáldsagnaverðlaunin þar í landi er að ræða, en Dick er einn þekktasti og áhrifamesti höfundur vísindaskáldsagna í heiminum. 11.1.2013 07:00
Þekktur barnaníðingur enn í haldi á Selfossi Þekktur barnaníðingur, Gunnar Jakobsson, sem lögreglan í Árnessýslu handtók í gær, er enn í vörslu lögreglu, en ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir honum. 11.1.2013 06:51
Brotist inn í apótek í Vesturborginni Tilkynnt var um innbrot í apótek í Vesturborginni á þriðja tímanum í nótt. Þjófurinn hafði brotið upp hurð og komist þannig inn. 11.1.2013 06:46
Eldur laus í dráttarvél á Rangárvöllum Eldur kom upp í dráttarvél, sem stóð við útihús á sveitabæ á Rangárvöllunum, í grennd við Hvolsvöll í nótt. 11.1.2013 06:44
Háhyrningarnir á Hudson flóa sluppu úr nauðum sínum Háhyrningarnir sem voru fastir við vök á Hudson flóa eru sloppnir úr prísund sinni. 11.1.2013 06:42
Ung stúlka slasaðist á spilakvöldi Ung stúlka slasaðist þegar hún féll innandyra í grunnskólanum í Hveragerði í gærkvöldi og fékk þungt höfuðhögg. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans. 11.1.2013 06:41
Tvær bílveltur vegna hálku fyrir norðan Tveir bílar ultu með skömmu millibili út af þjóðvegum á Norðurlandi Vestra, seint í gærkvöldi, en engin í þeim meiddist alvarlega. 11.1.2013 06:37
Komu í veg fyrir blóðbað í skóla í Kaliforníu Kennara og starfsmanni menntaskóla í bænum Taft í Kaliforníu tókst að koma í veg fyrir blóðbað þegar 16 ára nemandi í skólanum réðist þar inn vopnaður haglabyssu skaut einn bekkjarfélaga sinn í gær. 11.1.2013 06:34
Mikil snjókoma lamar athafnalíf í Jerúsalem Allt athafnalíf liggur meir og minna niðri í Jerúsalem borg í Ísrael eftir mestu snjókomu þar í borg undanfarin 20 ár. Borgin er öll hulin snjó. 11.1.2013 06:31
Flensufaraldur herjar í öllum hverfum New York borgar Borgaryfirvöld í New York hafa lýst því yfir að flensufaraldur herji nú í öllum hverfum borgarinnar. Jafnframt eru borgarbúar beðnir um að láta bólusetja sig gegn flensunni. 11.1.2013 06:28
Pia Kjærsgaard útilokuð frá Facebook í sólarhring Yfirmaður Facebook á Norðurlöndum hefur þurft að biðja Piu Kjærsgaard fyrrum formann Danska þjóðarflokksins afsökunar á því að Piu var hent út af samskiptavefnum í einn sólarhring. 11.1.2013 06:22
Kjarasamningar ekki skýring verðbólgu Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gefur lítið fyrir gagnrýni Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabankans, á gildandi kjarasamninga frá 2011. Gylfi segir þá ekki skýra verðbólgukúfinn á árunum 2011 og 2012, hvað þá veikt gengi krónu. 11.1.2013 06:00
Glötuðu tækifæri til að losna við bragga Isavia féll á tíma og missti af tækifæri til að losna við bragga sem félagið mátti rífa til að rýma fyrir vélaskemmu á Reykjavíkurflugvelli. Bragginn er nú sagður stríðsminjar. Á þeirri forsendu ætti að friða flugvöllinn sjálfan, segir talsmaður Isavia. 11.1.2013 06:00
Borgin byggir leiguhúsnæði á lóð UMFÍ við Tryggvagötu Reykjavíkurborg hefur leyst til sín lóð UMFÍ við Tryggvagötu. Greiðir félaginu 14 milljónir í útlagðan kostnað. Lóðin verður með í plönum um eflingu almenns leigumarkaðar. Starfshópur um húsnæðismál skipaður í gær. 11.1.2013 05:00
Dýr urðu ekki fyrir flúoreitrun Búfénaður í grennd við álverið á Reyðarfirði hefur ekki orðið fyrir skaða vegna bilunar í mengunarbúnaði álversins. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem dýralæknirinn Freydís Dana Sigurðardóttir gerði í samstarfi við nokkrar rannsóknarstofnanir. 11.1.2013 05:00
Risasmokkur náðist á mynd Vísindamenn og sjónvarpsfólk segjast í fyrsta sinn hafa náð upptökum af risasmokkfiski í sínu náttúrulega umhverfi. 10.1.2013 23:45
Stórtækasta mál sem Guðrún hjá Stígamótum hefur séð "Ég vildi að ég gæti sagt nei,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, aðspurð um hvort að símalínur samtakanna væru enn rauðglóandi eftir umfjöllun Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson. 10.1.2013 22:56
Útilokað að smástirnið Apófis skelli á jörðinni árið 2029 Smástirnið Apófis átti sögulegt en þó örstutt ástarævintýri við Jörðina í gær. Þá skaust þessi 320 metra breiði hnullungur framhjá Jörðinni á hátt í 30 þúsund kílómetra hraða. 10.1.2013 22:10
Hildur Lilliendahl í nærmynd "Hún er engin öfgamanneskja, er alltaf tilbúin að hlusta á hina hliðina en er hörð á sínu." Svona lýsa nákomnir Hildi Lilliendahl sem heldur baráttu sinni áfram þrátt fyrir að hafa verið hótað barsmíðum og jafnvel lífláti á netinu. 10.1.2013 21:28
Óskarsverðlaunadraumurinn enn á lífi Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks hlaut ekki tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í ár. Baltasar segir það vissulega vonbrigði að hljóta ekki tilnefningu en myndin hafi fengið mikla athygli fyrir að komast svona langt. 10.1.2013 20:51
Tilnefningar til Óskarsverðlauna Þær kvikmyndir sem hlotið hafa tilnefningu til Óskarsverðlauna voru kynntar í Bandaríkjunum í dag. Stórmynd Steven Spielbergs, Lincoln, fékk tólf tilnefningar. 10.1.2013 20:41
Stefnir í inflúensufarald hér á landi Fjöldi greindra tilfella inflúensu hefur tvöfaldast á fyrstu dögum þessa árs og segir sóttvarnarlæknir að nokkuð skæður inflúensufaraldur sé framundan. Hann hvetur fólk til að vera heima ef það finnur fyrir einkennum til að koma í veg fyrir smit. 10.1.2013 19:45
Fórnarlamb Karls Vignis óttaðist að vera barnaníðingur - þriðja kæran barst í dag Þrír hafa lagt fram kæru á hendur Karli Vigni Þorsteinssyni vegna kynferðisbrota. Þriðja kæran var lögð fram í dag. Maður sem Karl áreitti kynferðislega á níunda áratugnum kallar eftir málefnalegri umræðu um barnaníðinga til að þolendur þori að segja frá og þjóðfélagið sé í stakk búið til að takast á við frásagnir þeirra. 10.1.2013 19:11
Dagur hættir sem varaformaður Samfylkingarinnar Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ætlar ekki að sækjast áfram eftir embættinu á næsta landsfundi. 10.1.2013 18:44
Skotárás í menntaskóla í Kaliforníu Tveir eru sárir eftir skotárás í menntaskóla í Bakersfield í Kaliforníu á fimmta tímanum í dag. Breska ríkisútvarpið hefur eftir lögregluyfirvöldum á svæðinu að áverkar fórnarlambanna séu alvarlegir. Aldur þeirra liggur þó ekki fyrir. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa greint frá því að árásarmaðurinn sé nú í haldi lögreglu. 10.1.2013 18:38
Biskup segir Áskirkju ekki hafa fylgt siðareglum "Það er þyngra en tárum taki að slíkt skuli hafa viðgengist og það um áratugaskeið," segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, um mál Karls Vignis Þorsteinssonar, barnaníðings. 10.1.2013 18:15
Sportbíll ársins hjá Auto Bild Á hverju ári velja lesendur bílatímaritsins Auto Bild bíl ársins í hverjum flokki. Í flokki fjöldaframleiddra sportbíla fyrir árið 2012 völdu þeir Porsche Panamera GTS . Það merkilegasta við kosninguna er að um er að ræða fjögurra sæta fjölskyldubíl, eða forstjórabíl, sem telst óvenjulegt í sportbílaflokki. Það voru 72.500 lesendur sem nýttu rétt sinn til að kjósa og var þetta í ellefta sinn sem lesendaverðlaun Auto Bild Sportscars eru veitt. Porsche Panamera GTS er semsagt fernra dyra sportbíll. Í tungutaki Porsche stendur GTS fyrir Gran Turismo Sport og þessi merking hefur staðið fyrir ofuraflmiklum Porsche bílum allt frá hinum goðsagnakennda 904 Carrera GTS árið 1963. Panamera GTS er með aflmikilli 4,8 lítra, V8 vél sem er án forþjöppu en skilar 430 hestöflum. Hámarkstogið er 520 Nm. Veghæð bílsins er 10 mm lægri en hefðbundinn Panamera og sérhannaður sportundirvagninn er með stillanlegri loftpúðafjöðrun og Porsche Active Suspension Management (PASM). Þessi búnaðurinn gerir hann að hæfum keppnisbíl á keppnisbrautum án þess að nokkru þurfi að fórna í þægindum í daglegri notkun innan og utan borga og bæja. 10.1.2013 17:45
Ísland eina landið þar sem kynferðisbrot gegn börnum eru ófyrnanleg "Þetta mál sem nú tröllríður samfélaginu undirstrikar það hversu mikilvægt það var að ná lagabreytingum í gegn um afnám fyrningar í kynferðisbrotum gegn börnum,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og formaður allsherjarnefndar. 10.1.2013 17:37
Skrambi veit allt um málið Leiðréttingarforritið Skrambi er afrakstur nokkurra rannsóknarverkefna, meðal annars meistaraverkefnis Jóns Friðriks Daðasonar tölvunarfræðings. Skrambi hlaut Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2012. 10.1.2013 17:00
Semja um stuðning við afganskar flóttafjölskyldur Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Jón Gnarr borgarstjóri undirrituðu í dag samning sem kveður á um aðstoð og stuðning sem Reykjavíkurborg mun veita þremur afgönskum flóttafjölskyldum frá Íran sem komu til landsins í lok nýliðins árs. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá ráðuneytinu og borginni. 10.1.2013 16:42
Telja að álagið við vinnu hafi aukist Tveir þriðju hlutar félagsmanna BSRB telja að álag þeirra við vinnu hafi aukist síðasta árið. Þetta kemur fram í kjarakönnun bandalagsins. Í pistli um málið á vef BSRB segir að tölurnar sýni glöggt fram á að heilt yfir hafi álag á starfsfólk aukist til muna. Þetta útskýri efalítið hvers vegna greiðslur úr sjúkrasjóðum verkalýðsfélaganna hafi aukist svo mikið á allra síðustu árum. 10.1.2013 16:30
Með 1200 kannabisplöntur í tveimur iðnaðarhúsnæðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á tveimur stöðum í Hafnarfirði í gær. Við húsleitir fundust samanlagt um 1200 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 10.1.2013 16:30
Mazda6 frumsýndur Nýr Mazda6 verður kynntur á laugardaginn, kl. 12-16 hjá Brimborg í Reykjavík og hjá Brimborg á Akureyri. Fjölmargar nýjungar í spartækni og öryggi eru kynntar með nýjum Mazda6. Má þar nefna snjallhemlunarkerfi, blindspunktsaðvörunarkerfi og nýja og þýða sjálfskiptingu. Mazda notar um 20% meira af hástyrktarstáli í nýjan Mazda6 en í forvera hans og þrátt fyrir að vera stærri en fyrirrennarinn þá er nýi bíllinn léttari og öruggari. Nýr sjálfskiptur Mazda6 með nýjustu SkyActiv bensínvélinni er ríflega 20% sparneytnari en fyrri kynslóð. Það teljast góðar fréttir fyrir Íslendinga að bíllinn er hærri á vegi en fyrri Mazda6 þrátt fyrir að þyngdarpunkturinn hafa færst neðar. Bíllinn hefur hlotið góða dóma og erlendir bílablaðamenn hafa lofað aksturseiginleika og fádæma sparneytni nýja bílsins. Mazda6 er einnig í boði með nýjustu SkyActiv dísilvélinni frá Mazda. 10.1.2013 16:00
Stór vörubíll valt á Lækjargötu Bílvelta varð við N1 við Lækjargötu i Hafnarfirði um klukkan hálffjögur í dag. Þar fór stór vörubíll á hliðina með þeim afleiðingum að salt rann úr honum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni urðu sem betur fer engin slys á fólki en eins og sjá má á þessari mynd sem Verónika Sif Sigurðardóttir sendi Vísi fór töluvert magn af salti á götuna. Því var slökkviliðið fengið á staðinn til að hreinsa það upp og til að grípa til viðbragða ef olía læki. 10.1.2013 15:55
Töluverðar hækkanir á gjaldskrám leikskóla milli ára Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám leikskóla og fæði hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1. febrúar 2012 til 1. janúar 2013. 10.1.2013 15:48
Fíkniefni í jólapakkanum Tollgæslan í Reykjavík stöðvaði í nóvember og desember á nýliðnu ári, fimmtán sendingar, sem reyndust innihalda fíkniefni. 10.1.2013 15:09
Mynd Spielbergs með flestar tilnefningar Kvikmynd Stevens Spielberg, Lincoln, hlaut flestar tilnefningarnar til Óskarsverðlaunanna að þessu sinni. Alls voru það tólf tilnefningar. Life of Pi, mynd Angs Lee hlaut 11 tilnefningar og Silver Lining Playbook hlaut tilnefningar í sex helstu flokkum. 10.1.2013 15:05
Flensutilfellum fjölgar Inflúensutilfellum fer nú fjölgandi, segir á vef Landlæknis. Meðalaldur þeirra sem greinast er um fertugt og hefur flensan verið staðfest í öllum landshlutum nema í Vestmannaeyjum og á Vestfjörðum. 10.1.2013 14:56
Hobbitinn náði sjöunda sætinu á einni viku Kvikmyndin Hobbitinn er í sjöunda sæti yfir þær kvikmyndir sem fengu mesta aðsókn hér á landi samkvæmt tilkynningu frá Smáís. Athygli vekur að 35 þúsund manns sáu myndina á einni viku. Myndin þénaði þannig tæplega 45 milljónir á viku. 10.1.2013 14:28
Ásatrúarfélagið fagnar söfnun þjóðkirkjunnar Ásatrúarfélagið fangar fyrirhugaðri landsöfnun þjóðkirkjunnar og hvetur hana til góðra verka í ályktun sem samþykkt var á fundi lögréttu á þriðjudaginn í tilefni af umræðum um fyrirhugaða fjársöfnun þjóðkirkjunnar til tækjakaupa fyrir Landspítalann. 10.1.2013 13:58
Finnur auð bílastæði Einn notadrýgsti búnaður sem hugsast getur í bíl er vafalaust upplýsingar um hvar má finna laus bílastæði í fjölmennum borgum. Líklega er ekki langt að bíða slíks búnaðar í nýjum bílum því fyrirtækið Inrix hefur þegar þróað hann fyrir 18.000 bílastæði í Bandaríkjunum og 42.000 í 36 Evrópulöndum. Öll eru þessi stæði í bílastæðahúsum. Ekki er nóg með að búnaðurinn láti vita af hvar auð bílastæði er að finna heldur fylgja með upplýsingar um hve mörg þau eru, hvað það kostar að leggja í þau og hver opnunartími húsanna eru. Lausnin byggir á WiFi tengingu bílsins við gagnabanka Inrix sem fær rauntímaupplýsingar frá bílastæðahúsunum. Það fylgir ekki sögunni hvort einhver bílaframleiðandi hafi keypt þennan búnað nú þegar en vonandi verður það sem fyrst. 10.1.2013 13:55
Djúpið hlaut ekki tilnefningu til Óskarsins Íslenska myndin Djúpið er ekki á meðal þeirra fimm mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í flokknum besta erlenda myndin. Djúpið komst í hóp níu mynda sem komu til greina í tilnefningunum. Fimm myndir voru tilnefndar. 10.1.2013 13:47
Myndefnið óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar Myndefni, sem lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir jól, þar sem Karl Vignir Þorsteinsson viðurkennir kynferðisbrot var óljóst og krafðist ítarlegrar skoðunar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögreglan sendi frá sér í hádeginu. Með yfirlýsingunni bregst lögreglan við gagnrýni sem kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gær. Í yfirlýsingunni kemur fram að lögreglan sótti gögnin til RÚV fimmtudaginn 20. desember. Efnið hafi verið óklippt og tekið nokkurn tíma að yfirfara það allt, en það var að mestu gert á milli jóla og nýárs. 10.1.2013 12:26
Vonast eftir yfirvegaðri umræðu um kynferðisbrotamál "Það sem ég vona bara innilega er að þessi umræða sem hefur komið upp á þessum þremur dögum skili því að við sem samfélag getum farið að takast á við þetta," segir Gunnar Hansson leikari. Hann er einn þeirra sem hefur, í samtali við Kastljósið á RÚV, lýst brotum Karls Vignis Þorsteinssonar gegn sér. Um fátt hefur verið meira rætt í þessari viku en þá umfjöllun og kynferðisbrot Karls Vignis. "Viðbrögðin hafa verið 10.1.2013 12:17
Bein útsending - Fær Baltasar Óskarstilnefningu? Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi þegar tilnefningar til Óskarsverðlaunanna verða kynntar í dag klukkan 13.30. 10.1.2013 11:15
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent