Fleiri fréttir

Grunaðir innbrotsþjófar enn í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um að eiga aðild að fjölda innbrota og þjófnaða úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri, rennur út á morgun. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglunni sem mun taka ákvörðun á morgun um framlengingu á varðhaldinu. Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá 20. desember.

Hættustigi vegna snjóflóða aflétt á öllum Vestfjörðum

Ákveðið hefur verið að aflýsa hættustigi vegna snjóflóða á reit 9 á Ísafirði, Höfða, Kirkjubæ, og Funa, svo og Fremri-Breiðadal, Veðrará og Kirkjubóli í Önundarfirði. Þar með er hættustigi vegna snjóðflóða aflýst á öllum svæðum á Vestfjörðum, að því er segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

Arnór Hannibalsson látinn

Arnór K. Hannibalsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, andaðist að heimili sínu, Hreggnasa í Kjós, föstudaginn 28. desember síðastliðinn, 78 ára að aldri. Hann var kvæntur Nínu Sæunni Sveinsdóttur, fædd árið 1935, en þau skildu árið 1995. Börn þeirra eru Ari, Kjartan, Auðunn, Hrafn og Þóra.

Olíuborpallur strandaði við Alaska

Olíuborpallur í eigu Shell olíufélagsins er strandaður við Kodiak eyju í Alaska. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur bandarísku strandgæslunni ekki tekist að draga pallinn af strandstað.

Grænlendingar ákveða hvalveiðikvóta ársins

Heimastjórn Grænlands hefur ákveðið hvaða kvótar verða á hvalveiðum Grænlendinga á þessu ári. Ákvörðunin er í andstöðu við Alþjóðahvalveiðiráðið sem hingað til hefur gefið út hvalveiðikvótana fyrir Grænland.

Brenndist þegar gashylki sprakk

Starfsmaður á veitingahúsi brenndist á tíunda tímanum í gærkvöldi, þegar gashylki úr rjómasprautu sprakk framan í hann.

Rólegt á miðunum í upphafi ársins

Sjósókn fer óvenju hægt af stað eftir áramótin þrátt fyrir þokkalega spá á flestum miðum. Um klukkan sex í morgun voru innan við sextíu skip komin til veiða umhverfis landið, en þau fara upp undir þúsund á góðum dögum.

Yfir 40 Íslendingar eru 100 ára gamlir eða eldri

Um áramótin voru 42 Íslendingar á lífi sem hafa náð hundrað ára aldri, 36 konur og 6 karlar. Þetta er heldur lægri tala en fyrir ári. Hinsvegar eru nú mjög margir 99 ára, eða 27 alls og gætu þeir náð þessum áfanga á næsta ári. Í þeim hópi eru 7 karlar. Þetta kemur fram á facebooksíðunni langlífi.

Neil Armstrong sakaður um lygar

Þetta er lítið skref fyrir mann, en risaskref fyrir mannkynið, sagði Neil Armstrong sem var fyrsti maðurinn til að stíga niður fæti á tunglið. Það gerði hann þann 20. júlí 1969. Um er að ræða einhver fleygustu orð 20. aldarinnar. Í ævisögu sinni árið 2005 sagði Neil að honum hefði dottið þessi orð í hug rétt eftir að Appollo 11, flaugin sem flutti hann á tunglið, lenti þar. Nú er Neil Armstrong látinn, en í nýrri heimildarmynd sem BBC sýndi á sunnudag, þverneitar bróðir hans því að Neil hafi dottið þessi orð í hug eftir að hann var lentur á tunglinu. Dean, bróðir hans, segir að honum hafi dottið þessi orð í hug mörgum mánuðum áður en geimflaugin lenti.

Treysta ekki lögreglunni eftir hrottalega nauðgun

Hundruð kvenna í Delhi hafa síðastliðna daga sótt um byssuleyfi. Ástæðan er mikil umfjöllun um hrottalega nauðgun, þar sem sex karlmenn nauðguðu 23 ára gamalli konu og limlestu hana í síðasta mánuði. Breska blaðið Guardian segir að fréttirnar af þessum aukna byssuáhuga sýni hversu óöruggt fólk sé í þessari borg. Skortur á trausti gagnvart lögreglunni sé alger.

Flugeldasalan gekk vel í Reykjavík og á Akureyri

Björgunarsveitamenn telja að flugeldasala hafi gengið nokkuð vel nú fyrir áramótin. Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg segir að hjá flestum sveitum hafi salan verið á svipuðu róli og undanfarin ár, svo sem á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Egilsstöðum og víðar.

Segir gagnrýni forsetans koma of seint

Gagnrýni forsetans á frumvarp um nýja stjórnarskrá kemur of seint fram að mati Þorvalds Gylfason sem sat í stjórnlagaráði. Hann segir rangt að nýja stjórnarskráin auki völd forsetans.

Kirkjan vill leiða söfnun fyrir Landspítalann

Kirkjan vill vera leiðandi í söfnun til tækjakaupa á Landspítalanum í samráði við stjórnendur spítalans, sagði Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands í nýárspredikun sinni í dag. Hún benti á að undanfarið hafi verið vegið að öryggi landsmanna í heilbrigðismálum, bæði hér í höfuðborginni og út um landið.

Steingrímur segir glundroðakenninguna ekki ganga upp

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segir að ríkisstjórninni hafi tekist að lyfta Grettistaki á sviði ríkisfjármála. Tekist hafi að ljúka því verki í aðalatriðum þegar fjárlagafrumvarpið og tekjuöflunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar var klárað fyrir jól.

Ljósadýrð á áramótum

Það var víða glatt á hjalla þegar nýja árið gekk í garð. Baldur Hrafnkell Jónsson, myndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, var viðstaddur brennu og tók síðan upp myndir af ljósadýrðinni.

Tíu fengu fálkaorðuna

Tíu manns fengu afhenta fálkaorðuna í dag. Þar á meðal listamenn, íþróttaþjálfarar og vísindafólk. Forsetahjónin, þau Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mousieff, voru bæði viðstödd athöfnina á Bessastöðum þegar orðurnar voru veittar.

Edda Sif segir að Skaupið hefði mátt vera fyndnara

Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttamaður á RÚV og einn aðalkarakteranna úr Áramótaskaupinu, segir að sér hafi komið það á óvart að hve miklu leyti Skaupið hefði snúist um sig. Í Skaupinu voru fjölmörg atriði þar sem gert var grín að feðginunum Páli Magnússyni og Eddu.

Forsetinn segir umræðu um nýja stjórnarskrá komna í öngstræti

Umræðan um nýja stjórnarskrá er komin í öngstræti, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í nýársávarpi sínu, sem sjónvarpað var klukkan eitt í dag. Hann gerði loftslagsmál og stjórnskipunarmálið að aðalumræðuefni sínu. Oddvitar ríkisstjórnarinnar, þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon hafa sagt að stjórnarskrármálið væri mikilvægasta málið á nýju ári.

Með augnáverka á spítala eftir flugeldaslys

Karlmaður á fimmtugsaldri sem sem var fluttur á slysadeild eftir að hafa fengið flugeld í andlitið í nótt hlaut áverka á augum og liggur nú á sjúkrahúsi. Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir á Landspítalanum, segir flugeldaáverka ekki hafa verið áberandi í nótt og að forvarnir virðist eitthvað vera að skila sér. Nóttin hafi engu að síður verið mjög annasöm þar sem fjölmargir hafi leitað á slysadeildina meðal annars vegna slagsmála og ölvunar.

Enn snjóflóðahætta á Vestfjörðum

Snjóflóðahætta er enn á nokkrum stöðum á Vestfjörðum þó að veðrið sé að mikið gengið niður. Gríðarlegar skemmdir eru á rafmagnslínum og er unnið að viðgerðum í dag.

Um land allt

Kristján Már Unnarsson og Baldur Hrafnkell Jónsson kvikmyndatökumaður heimsóttu Norðurland, nánar tiltekið Skagafjörðinn.

Of Monsters and Men í Kryddsíld

Það er óhætt að segja að óskabarn íslensku þjóðarinnar hafi komið fram í þættinum Kryddsíld á Stöð 2 í gær, en hljómsveitin Of Monsters and Men flutti lagið Love Love Love.

Sérsveitin handtók haglabyssumann

Slagsmál brutust út í heimahúsi í Hafnarfirði á fimmta tímanum í nótt. Þegar lögreglumenn komu á vettvang kom í ljós að aðili í húsinu var vopnaður halgabyssu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð á staðinn og handtók hún manninn og var hann vistaður í fangageymslu lögreglunnar að Hverfisgötu. Halgabyssan reyndist óhlaðin, en einnig fannst á vettvangi riffill. Lögreglan lagði hald á vopnin og eru þau nú í vörslu hennar.

Ættu að slökkva á netinu um helgar

Fréttamaðurinn Þorbjörn Þórðarson og ritstjórinn Björk Eiðsdóttir létu jafnréttisumræður koma sér á óvart og fylgdust misvel með Landsdómi og komum fræga fólksins til Íslands á árinu sem er að líða. Þau settust á rökstóla og ræddu árið sem senn er liðið.

Íþróttafréttamaðurinn Edda Sif bregst við Skaupinu

"Fór alveg fram hjá mér að ég hafi verið aðalnúmerið á árinu!,“ sagði íþróttafréttamaðurinn Edda Sif Pálsdóttir á Twittersíðu sinni eftir að Áramótaskaupið var sýnt í gærkvöldi. Það er óhætt að fullyrða að engum hafi brugðið fyrir oftar í Áramótaskaupinu að þessu sinni en Eddu Sif og föður hennar Páli Magnússyni útvarpsstjóra.

23 banaslys á nýliðnu ári

Á nýliðnu ári létust 23 eintaklingar af slysförum, eða þremur fleiri en árið á undan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg sem heldur utan um banaslysatölur á Íslandi. Flestir létust í umferðarslysum, eða 10 manns. Heima- og frítímaslysum fjölgar töluvert, eru nú sex talsins en voru tvö árið 2010.

Réðst á lögreglu og sjúkraflutningamenn

Karlmaður réðst á sjúkraflutningamenn og sló lögreglukonu í Árbæjarhverfi um eittleytið í nótt. Sjúkrabíllinn hafði verið sendur í Árbæjarhverfið þar sem talið var að maður væri veikur. Þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn lét maðurinn til skarar skríða. Hann var umsvifalaust handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Á slysadeild eftir að hafa fengið flugeld í andlitið

Karlmaður á fimmtugsaldri fékk flugeld í andlitið á miðnætti í gær, þar sem hann var staddur í Garðabæ. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild, en ekki er vitað hvort hann sé alvarlega slasaður.

Sjá næstu 50 fréttir