Enn snjóflóðahætta á Vestfjörðum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 1. janúar 2013 12:00 Mokað á Vestfjörðum.
Snjóflóðahætta er enn á nokkrum stöðum á Vestfjörðum þó að veðrið sé að mikið gengið niður. Gríðarlegar skemmdir eru á rafmagnslínum og er unnið að viðgerðum í dag. Óveðrið sem farið hefur yfir landið síðustu daga er að mestu gengið niður og komið ágætisveður á flestum stöðum. Snjóflóðahætta er þó enn víða á Vestfjörðum og vegir ófærir. Víðir Reynisson er deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. „Vegagerðin er byrjuð að moka og það er verið að opna leiðina frá Akureyri á Dalvík og áfram á Ólafsfjörð og Siglufjarðarhlíðina. Einhverjar leiðir á Vestfjörðum er byrjað að moka. Það er ekki búið að taka ákvörðun um mokstur í Súðavíkurhlíð. Það er verið að fara yfir snjóflóðahættuna þar. Snjóflóðavakt Veðurstofunnar er að fara yfir og meta almennt um snjóflóðahættu hvort það sé hægt að aflétta þeim rýmingum og öðru sem enn þá eru í gildi." Rafmagn er víða komið á aftur en miklar skemmdir urðu á rafmagnslínum. „Starfsmenn Orkubús Vestfjarða, Rarik og Landsnets eru búnir að vinna sleitulaust eiginlega frá því að rafmagnið fór að til þess að koma hlutum í lag og áfram verður unnið að því í dag. Það er ekki búið að ljúka bilanagreiningu á öllum stöðum en þar sem það er búið eru viðgerðir hafnar eða eru að hefjast. Einhverjum viðgerðum lýkur í dag en það er ljóst að tjónið er gríðarlega mikið og það mun taka einhverja daga í viðbót að ná heildaryfirsýn og viðgerðum á öllu svæðinu," segir Víðir aðspurður út í málið. Víðir segir erfitt að segja til um hversu mikið tjónið sé. „Bara sem dæmi þá er sem sagt línan sem að skemmdist á Snæfellsnesi, svokölluð Ólafsfjarðarlína, þar eru 67 möstur, eða staurasamstæður, sem eru brotnar þar. Þannig að tjónið er alveg gríðarlegt," sagði Víðir Reynisson hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.
Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Sjá meira