Fleiri fréttir

Spennan vex með hverjum degi

Jafnt andstæðingar sem stuðningsmenn Mohammeds Morsi Egyptalandsforseta flykktust út á götur og torg Kaíró í gær og var óttast að til átaka kæmi.

Bretar trúa á Stjörnustríð

Jedi-riddarar eru fjölmennasti trúflokkurinn í Englandi og Wales í flokki „annarra trúarbragða“. Yfir 240 þúsund manns eru skráðir í slíka óskilgreinda trúflokka og eru Jedi-riddarar þar af um 175 þúsund, eða um 72 prósent af heildarfjöldanum.

Eyðni kom krabbameinssjúkri stúlku til bjargar

Krabbamein og eyðni eru á meðal verstu áfalla sem mannslíkaminn getur orðið fyrir. Ný, byltingarkennd krabbameinsmeðferð stefnir nú þessum hræðilegu sjúkdómum gegn hvor öðrum og hin sjö ára gamla Emma Whitehead er lifandi sönnun þess að gott getur sannarlega sprottið frá illu.

Beðið eftir Hobbitanum

Löng biðröð myndaðist fyrir utan verslunina Nexus á Herfisgötu í kvöld. Hátt í hundrað manns biðu þar óþreyjufullir eftir að tryggja sér miða á forsýningu kvikmyndarinnar The Hobbit sem frumsýnd verður 26. desember næstkomandi.

Innbrotafaraldur - þjófar fara inn um svefnherbergisglugga

Undanfarna daga hefur verið brotist inn í nokkur einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu. Í öllum tilvikum er aðferð þjófanna sú saman. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu brjóta þjófarnir upp stormjárn og fara inn um svefnherbergisglugga.

Reykjavík tekur slaginn í baráttunni við atvinnuleysi

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, undirrita á morgun samning um þátttöku sveitarfélagsins í þjóðarátakinu Vinna og virkni - átak gegn atvinnuleysi árið 2013.

„Það eina sem gerist 21. desember eru vetrarsólstöður“

"Það eru alltaf til þeir sem vilja hræða aðra og mögulega græða smá peninga í leiðinni,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi þar við þáttastjórnendur um meintan heimsendi þann 21. desember næstkomandi.

Safnar fyrir fimmta hjólinu

Fyrrverandi björgunarsveitamaður sem lamaðist í bílslysi fyrir neðan mitt fyrir um sjö árum hefur sett á fót söfnun fyrir fimmta hjólinu á hjólastólnum. Með því á hann auðveldara að stunda útivist, sem hann elskar, þar á meðal að fara í veiði og réttirnar.

Stjórnarmenn í Eir leituðu til sérstaks saksóknara

Þrír stjórnarmenn úr Eir funduðu í dag með fulltrúum sérstaks saksóknara og afhentu þeim gögn um rekstur heimilisins síðasta árið. Stefán Benediktsson, einn stjórnarmannanna, segir að þarna sé um að ræða fundargögn, gögn úr bókhaldi, minnisblöð og tölvupóstar sem rekji nokkuð vel þá atburðarrás sem stjórnarmenn hafa yfirsýn yfir síðastliðið ár.

Sterk staða kvenna skýrist af góðri menntun

Sú staðreynd að World Economic Forum fullyrti í ár að mesta jafnréttið í heiminum væri á Íslandi má skýra með mikilli og góðri menntun Íslendinga og með kosningu Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta. Þetta segir Vigdís sjálf í viðtali við BBC sem tekið var í tilefni af áttatíu ára afmæli BBC World Service. Talað var við nokkra einstaklinga sem hafa náð áttatíu ára aldri.

Engin sprengja á Strikinu

Ekkert reyndist vera sprengja í grunsamlegri tösku sem fannst við héraðsdóm Kaupmannahafnar á fimmta tímanum í dag.

Álftanesskóli fær spjaldtölvur til kennslu

Álftanesskóli, A4, Námsgagnastofnun og Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa undirritað samning um skólaþróunarverkefni sem felur í sér samvinnu um eflingu kennslu, hvatningu til aukins áhuga og námsárangurs í stærðfræði í 4. og 6. bekk skólans. Í samningnum felst að skólinn kaupi allt að 60 spjaldtölvur af gerðinni LearnPad 2 frá Avantis Systems Ltd, en A4 er dreifingaraðili þeirra hér á landi. Auk þess fær skólinn m.a. 22 forrit með hverri vél, 12 rafbækur, vefstjórnargátt ásamt ráðgjöf og kennslu frá sérfræðingi.

Nágrannar á Suðurnesjum ógna hvor öðrum með hnífi og hafnarboltakylfu

Heiftarlegar nágrannaerjur brutust út á Suðurnesjum um helgina. Þar áttust við tveir einstaklingar sem búa sitt á hvorri hæðinni. Íbúi á neðri hæð tilkynnti lögreglu að íbúinn á efri hæðinni væri að henda rusli, sígarettustubbum og hundaskít niður í garðinn sinn. Fyrir helgi hefði hann ógnað sér með hafnarboltakylfu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni sem fékk tilkynningu um málið.

Sigrúnu Mjöll hefði þótt mjög vænt um þennan sjóð

"Mér þykir mjög vænt um þennan sjóð, og ég held að Sigrúnu Mjöll hefði líka þótt vænt um hann. Þetta var það sem henni fannst vanta í meðferðarstarfið hér á landi - að efla skapandi verkefni unglinga sem eru í meðferð,“ segir Jóhannes Kr. Kristjánsson, sjónvarpsmaður og faðir Sigrúnar Mjallar, sem lést langt fyrir aldur fram af völdum fíkniefna í byrjun júní árið 2010.

Guðbjartur vill skoða þak á verðbætur

Hugmyndir um að setja þak á verðbætur verðtryggðra lána var kynnt á fundi Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra, með blaðamönnum í dag. Ásgeir Jónsson, doktor í hagfræði, hefur unnið skýrslu fyrir velferðarráðherra um málið.

Brenndist illa sem barn - er nú fyrirsæta fyrir Next

Stúlka sem brenndist illa í andliti og líkama þegar hún var átta ára gömul verður fyrirsæta fyrir fatarisann Next í Bretlandi. "Ég er ótrúlega þakklát fyrir tækifærið,“ segir hún.

Hilmar Leifsson stefnir ritstjórum DV

Hilmar Leifsson hefur stefnt Reyni Traustasyni ritstjóra DV og Jóni Trausta Reynissyni, fyrrverandi ritstjóra og núverandi framkvæmdastjóra útgáfufélags blaðsins, fyrir ærumeiðandi ummæli. Ummælin birtust í grein sem birtust í helgarblaði DV, fyrstu helgina í ágúst. Hans Aðalsteinn Helgason hefur einnig stefnt blaðinu.

Kíló af kannabisi fannst á heimili konu

Kona var dæmd í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa haft í vörslu sinni um 900 grömm af maríjúana, 370 grömm af kannabislaufi og um kíló af kannabisplöntum í febrúar í fyrra. Lögreglan fann efnin á heimili hennar í febrúar síðastliðnum. Konan játaði brot sitt. Hún hafði ekki áður gerst brotleg við lög svo vitað sé.

Íslendingar borða níu milljón mandarínur um jól

Hver Íslendingur borðar að meðaltali á bilinu 25 til 30 mandarínur í kringum jólin, sem gerir um níu milljónir í allt. Á tímabilinu frá lokum nóvember og fram til áramóta verða flutt um 800 tonn af mandarínum inn til landsins.

Hnúfubakar gera loðnusjómönnum erfitt fyrir

Stórir hnúfubakar í tuga- eða jafnvel hundraðtali gera loðnusjómönnum erfitt fyrir við veiðarnar og virðast hátækni hvalafælur hafa lítil sem engin áhrif á þá.

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna kynntar á morgun

Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna verða tilkynntar í Aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi á morgun klukkan fimm. Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna en þau eiga uppruna sinn að rekja til Góugleðinnar, bókmenntahátíðar kvenna, sem haldin var í fyrsta sinn vorið 2007 að frumkvæði hóps kvenna innan Rithöfundasambands Íslands.

Rasistamálið í Smáralind: Rannsókn enn í fullum gangi

Rannsókn lögreglunnar á kynþáttaníðsmáli í Smáralind í síðustu viku er enn í fullum gangi, að sögn Ómars Smára Ármannssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns. Stefnt er að því að ljúka málinu innan skamms.

Mandela með lungnasýkingu

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður Afríku, er með sýkingu í lungum. Mandela, sem er orðinn 94 ára, var ekið með sjúkrabíl á Pretoria spítalann á laugardag. Mac Maharaj, talsmaður forsetaskrifstofunnar, segir að niðurstöður rannsókna hafi leitt til þess að sýking í lungum hefði tekið sig upp aftur. Honum hefði verið veitt meðferð og hann svaraði henni vel.

Fengu góðar undirtektir í Jay Leno

Of Monsters and Men flutti lagið Mountain Sound þegar hljómsveitin kom fram í hinum feykivinsæla þætti Jay Leno á NBC sjónvarpsstöðinni í gær. Góður rómur var gerður að þeim og hrósaði Leno þeim mikið eftir sönginn og hér má sjá atriðið þeirra.

Lítil eyríki ósátt við loftslagsráðstefnu

Ýmis lítil eyríki, sem stafar mikil hætta af loftslagsbreytingum, eru ósátt við niðurstöður loftslagsráðstefnunnar í Doha. Samkomulagið verður til þess að hitastigið hækkar um allt að fimm gráður, segir forsvarsmaður eyríkjanna.

Kanna hvort Svalbarði nýtist olíuiðnaði

Norska ríkisstjórnin hefur falið Olíustofnun Noregs að leggja mat á hvort Svalbarði geti nýst olíuiðnaði. Það er í tengslum við hugsanlega umsókn um að Svalbarði fari á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna sem Olíustofnunin er beðin um að kanna hvaða áhrif slík staða eyjanna hefði á mögulega nýtingu þeirra sem bækistöðvar eða flutningamiðstöðvar, ef norðurhluti Barentshafs yrði opnaður til olíuleitar.

Vill efla Fornminjasjóð í næstu fjárlögum

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vill að Fornminjasjóður verði efldur í næstu fjárlögum. Ljóst sé að góðum umsóknum um styrki er varða fornleifarannsóknir hafi verið hafnað á undanförnum misserum og tiltölulega lágar fjárhæðir verið samþykktar samanborið við árin fyrir hrun.

Slegist um hótelherbergi í Serbíu vegna ótta um heimsendi

Slegist er um öll laus hótelherbergi í grennd við dularfullt fjall í Serbíu. Þeir sem að panta herbergin í gríð og erg telja að heimsendir sé í nánd, nánar tiltekið hann verði þann 21. desember þegar 5.125 ára gömlu dagatali Mayanna lýkur.

Rektor segir spegla bæta andrúmsloftið

Búið er að sækja um nýtt byggingarleyfi vegna glerveggs á austur- og vesturhlið Menntaskólans í Reykjavík. Rektor segir breytingarnar bæta aðstöðu í skólanum til muna. Leyfið var afturkallað í haust vegna óæskilegrar speglunar af veggnum.

Herjólfur kominn til Vestmannaeyja

Herjólfur kom til Vestmannaeyja seint í gærkvöldi, eftir að gert var við skemmdir sem urðu á skipinu í innsiglingunni í Landeyjahöfn í síðasta mánuði.

Ruby hjartaþjófur er horfin

Stúlkan sem er miðpunkturinn í málaferlunum gegn Silvio Berlusconi fyrrum forsætisráðherra Ítalíu er horfin.

Ríkisstjórn Möltu fallin

Ríkisstjórn Möltu féll í gærkvöldi þegar þingið felldi fjárlagafrumvarp hennar fyrir næsta ár.

Segir afsögn Monti vera til að hindra endurkomu Berlusconi

Afsögn Mario Monti sem forsætisráðherra Ítalíu hefur mælst illa fyrir allsstaðar í Evrópu. Tímaritið The Economist gefur í skyn að afsögnin hafi verið m.a. til að skera undan frekari framavonum Silvio Berlusconi í ítölskum stjórnmálum.

Sjá næstu 50 fréttir