Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Studdu ekki innleiðingu sænsku leiðarinnar hér á landi Réttarvörslukerfið studdi ekki innleiðingu sænsku leiðarinnar hér á landi á sínum tíma. Lagaprófessor sem fór yfir kosti og galla þessarar leiðar fyrir Alþingi og skrifaði sjálft frumvarpið segir reynsluna hafa staðfest efasemdir sínar. Formaður Landssambands lögreglumanna tekur í sama streng og telur nær ógjörning að fara eftir lögunum. 14.8.2012 18:39
Þurfa að taka á sig 15 prósenta tekjuskerðingu Hótelrekendur þurfa að taka á sig fimmtán prósenta tekjuskerðingu ætli þeir að halda verðum óbreyttum þrátt fyrir hærri virðisaukaskatt. Hótelhaldari segir að taka þurfi tillit samkeppnisaðstöðu íslenskra ferðaþjónustuaðila því erlendir ferðamenn hafi um margt annað að velja. 14.8.2012 18:31
Emma Watson elskar Of Monsters and Men Emma Watson er stödd hér á landi við tökur á myndinni Noah í leikstjórn Darren Aronofsky eins og flestum ætti að vera kunnugt. Hún hefur verið dugleg að segja vinum sínum á samskiptasíðunni Twitter frá dvöl sinni hér á landi. Nýjasta "tístið“ hennar snýr að íslensku tónlistarfólki. Nú síðdegis sagðist hún dýrka Of Monsters and Men, Sóley og Ólaf Arnalds við þetta setur hún merkið "#goiceland". 14.8.2012 17:54
Undirbúningur fyrir haustþingið hafinn Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er byrjaður að undirbúa sig af fullum krafti fyrir komandi þing sem verður sett þann 11. september næstkomandi. Á ríkisstjórnarfundi í morgun kynnti Ögmundur fjölda mála sem hann lagði fram til kynningar á síðastliðnu vorþingi. 14.8.2012 17:24
Vill ekki fyllerí Gestir Menningarnætur eru hvattir til að ganga fallega um Reykjavíkurborg, stilla áfengisdrykkju í hóf og henda rusli í þar til gerðar ruslatunnur. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag sem Jón Gnarr borgarstjóri, Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri og Einar Örn Benediktsson formaður stjórnar Menningarnætur héldu í dag. 14.8.2012 17:19
Burðardýr í tveggja og hálfs árs fangelsi Mareme Laye Diop var dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Hún kom með 402 grömm af alsæludufti innvortis í líkama sínum í flugi frá Berlín til Keflavíkur þann 15. maí síðastliðinn. Úr efninu er hægt að framleiða um 5500 alsælutöflur með um 80% styrkleika. Hún játaði brot sitt fyrir dómi og var litið til þess við ákvörðun refsingar en auk þess var litið til þess að hún var samvinnuþýð við lausn málsins. "Einnig er litið til þáttar ákærðu í brotinu, en rannsókn málsins hefur beinst að ákærðu sem svonefndu "burðardýri", en ekki sem skipuleggjanda brotsins. Loks er litið til þess að ákærða hefur ekki áður gerst sek um refsiverðan verknað svo kunnugt sé,“ segir í dómnum. 14.8.2012 17:14
Frumkvöðlar kynna afrakstur sumarsins Næstkomandi föstudag munu fyrirtækin tíu sem hafa tekið þátt í frumkvöðlaverkefninu Startup Reykjavík kynna fyrir fjárfestum hugmyndir sínar og viðskiptatækifæri. Markmið verkefnisins var að hjálpa sprotafyrirtækjum að komast eins langt með sínar viðskiptahugmyndir og hægt er á stuttum tíma. Hvert fyrirtæki hefur fengið tveggja milljóna króna fjárfestingu, skrifstofuaðstöðu og aðstoð og leiðbeiningar fyrir 6% eignarhlut Arion banka í hverju fyrirtæki. 14.8.2012 17:03
Munu kalla eftir geðheilbrigðisáætlun Tillaga um að unnin verði ný geðheilbrigðisáætlun fyrir fanga með geðraskanir verður lög fyrir Alþingi í haust. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, en nefndin mun í heild sinni leggja tillöguna fram. Nefndin fundaði í dag með forsvarsmönnum fangelsismála, heilbrigðisyfirvalda og Geðhjálpar í morgun. 14.8.2012 16:46
Björgunarsveitir leituðu ferðakonu við Glym Björgunarsveitir frá Akranesi og Borgarfirði voru kallaðar út í dag til leitar að ferðakonu sem saknað er við Glym í Hvalfirði. Einnig var björgunarsveitafólk af höfuðborgarsvæðinu í viðbragðsstöðu. Konan, sem er erlendur ferðamaður, varð viðskila við hóp sem gekk upp með fossinum. 14.8.2012 16:09
Fundu 5 kíló af fíkniefnum við leitina að Sigrid Þótt leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Schjetne í Osló hafi ekki skilað tilætluðum árangri, hefur hún ekki verið til einskis. Sigrid hefur verið saknað frá því aðfararnótt sunnudagsins í síðustu viku. Við leit að henni fundust fimm kíló af fíkniefnum sem eru tugmilljónavirði, að því er segir í norska blaðinu VG. 14.8.2012 15:53
Breski herinn verður lengi að jafna sig eftir Ólympíuleikana Það mun taka breska herinn um tvö ár að jafna sig eftir Ólympíuleikana í London. Um 18.000 hermenn voru fluttir fá stöðvum sínum og til Lundúna, sumir með stuttum fyrirvara. 14.8.2012 15:45
Barn klemmdist á milli dráttavélar og húsveggs Barn klemmdist á milli dráttarvélar og húsveggs nærri Hvolsvelli á sunnudag. Barnið missti meðvitund en komst fljótlega til meðvitundar aftur og munu meiðsli þess vera minniháttar miðað við aðstæður. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar kemur líka fram að á föstudag féll kona af hestbaki í Húsadal og brotnaði illa, meðal annars á handlegg. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti konuna og flutti til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Sama dag féll kona í Galtalæk og var flutt með sjúkrabifreið til aðhlynningar. Hún er ekki talin hafa slasast alvarlega. 14.8.2012 15:30
Ríkissaksóknari tekur ekki undir að heimildin sé ofnotuð "Ég skal ekki segja hvort heimildin er ofnotuð," segir Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, spurð út í ummæli sem birtust í gær í Úlfljóti, tímariti laganema, um að dómstólar beiti of oft heimild til að úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald með vísan til almannahagsmuna. 14.8.2012 14:55
Frítt í strætó á Menningarnótt Á Menningarnótt verður frítt í strætó. Auk þess verða allir vagnar strætó settir í að ferja fólk til síns heima eftir að dagskrá lýkur. "Þannig verður óhætt að skilja bílinn eftir heima,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á facebook síðu sinni. 14.8.2012 14:27
Vanhugsað að hækka gistináttaskatt Sú hugmynd að hækka gistináttarskatt úr 7% í 25,5% er vanhugsuð og hún mun hamla framþróun í ferðaþjónustu á komandi árum, segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins. 14.8.2012 14:10
Snædrekinn kominn til Reykjavíkur Kínverska rannsóknarskipið og ísbrjóturinn Snædrekinn liggur nú við Ytrihöfn í Kollafirði. Það lagðist að bryggju um níu leytið í morgun. 14.8.2012 13:57
Ólympíuleikarnir voru stærsti sjónvarpsviðburður Bandaríkjanna Ólympíuleikarnir í London voru stærsti sjónvarpsviðburður í Bandaríkjunum frá upphafi. Yfir 219 milljón bandarískir áhorfendur fylgdust með leikunum. 14.8.2012 13:24
Útlit fyrir metþátttöku í maraþoninu Útlit er fyrir metþátttöku í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og eru þátttakendur að hlaupa lengri vegalengdir en áður. 14.8.2012 13:17
Segir sænsku leiðina ekki virka Formaður Landssambands lögreglumanna telur sænsku leiðina ekki virka eins og henni var ætlað. Hann hvetur til þess að löggjöfin verði endurskoðuð og annarra leiða til að taka á vanda sem fylgir vændi verði leitað. 14.8.2012 13:09
Gestur í Bláa lóninu gripinn með hjartastuðtæki Gestur í Bláa lóninu var handtekinn í gærkvöld. Um er að ræða karlmann á þrítugsaldri sem grunaður var um vörslur fíkniefna. Hafði sígarettupakki fallið úr vasa á baðslopp mannsins á bakka lónsins og reyndist í honum vera glær poki. Í pokanum var grænt efni sem talið er vera kannabisefni. 14.8.2012 12:54
Líf að færast í skiptibókamarkaði Nú þegar styttist í skólasetningu í framhaldsskólum landsins fer líf að færast í skiptibókamarkaði. Í þessari viku byrjaði ásóknin smám saman að aukast og gera starfsmenn ráð fyrir undir lok vikunnar verði allt komið á fullt. 14.8.2012 12:07
Um 30 lítrum af málningu stolið í innbroti Brotist var inn í atvinnuhúsnæði í Garðabæ í nótt. Þar var stolið 30 lítrum af málningu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um málið um klukkan tuttugu mínútur í átta í morgun og rannsakar hún málið nú. 14.8.2012 11:51
Nýmæli í úthlutun listamannalauna Bryddað verður upp á nýmælum við úthlutun starfslauna listamanna fyrir árið 2013. Annars vegar geta fleiri en einn listamaður sótt um starfslaun vegna samstarfsverkefna. Hins vegar getur einn listamaður sótt um laun í mismunandi sjóði ef verkefnið fellur í fleiri sjóði en einn. Frá þessu er greint 14.8.2012 11:48
Stýrihópur starfar gegn lúpínunni Að frumkvæði umhverfisráðherra starfar nú stýrihópur sem hefur það hlutverk að finna leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum alaskalúpínu og skógarkerfils á náttúru Íslands. Þessar tegundir teljast ágengar, dreifa úr sér og ógna því lífríki sem fyrir er í vistkerfum. 14.8.2012 10:07
Bjart og gott veður á menningarnótt Útlit er fyrir bjartviðri og hlýtt veður í Reykjavík um helgina. Fólk ætti því að geta notið veðurblíðu á menningarnótt, sem er á laugardaginn. "Það er milt veður framundan, segir Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur á Veðurstofunni. 14.8.2012 09:54
Deilt um sumarhús í Heiðmörk Um tuttugu sumarhúsaeigendur við Elliðavatn og Helluvatn þurfa að yfirgefa húsin fyrir áramót eftir að Orkuveitan framlengdi ekki leigusamning. 14.8.2012 21:04
Strætóferðir milli Reykjavíkur og Selfoss vinsælar Að meðaltali fer 171 farþegi með Strætó á dag milli Reykjavíkur og Selfoss. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) héldu í gær. 14.8.2012 09:46
Sveitarstjórnarmenn rólegir yfir snjóflóðavarnargörðum Sveitarstjórnarmenn bæjarfélaga þar sem framkvæmdir við snjóflóðavarnir eru í kortunum sýna töfum fullan skilning. Allir bera Ofanflóðanefnd vel söguna. Yfir tugur milljarða fer í varnir á næstu árum. 14.8.2012 09:30
Assange bíður eftir svari Rafael Correa, forseti Ekvador, ætlar að tilkynna það fljótlega hvort hann muni veita Julian Assange pólitískt hæli. Correa sagði við ríkisfjölmiðla í landinu að það þyrfti að skoða mörg lagaleg álitamál áður en ákvörðun yrði tekin. Assange flúði í sendiráð Ekvadors í Lundúnum þann 19. júní síðastliðinn. Það gerði hann til að forðast það að verða framseldur til Svíþjóðar þar sem hann er eftirlýstur vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot. 14.8.2012 09:27
Hærri fasteignagjöld renna til borgarinnar Tekjur Reykjavíkurborgar af fasteignagjöldum Hörpu eru hærri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Beinir skattar á Hörpu rúmur hálfur milljarður. Borgarstjóri ítrekaði 2010 að ekki hefðu verið samþykkt hærri framlög til Hörpu. 14.8.2012 09:00
Risasnákur fannst í Flórída Stærsti búrmasnákur sem fundist hefur í Flórída fannst nýlega í Everglades þjóðgarðinum, segja vísindamenn í samtali við BBC fréttastöðina. Snákurinn er 5,18 metrar að lengd og vegur 74 kíló. Í snáknum fundust 87 egg, sem einnig er talið vera met. Búrmasnákar eru orðnir nokkuð algengir í Everglades þjóðgarðinum en þeim er kennt um að spendýrum í garðinum hefur fækkað þar að undanförnu. Snákurinn sem fannst var dauður og verður krufinn til að hægt verði að rannsaka á hverju hann nærist. 14.8.2012 08:35
Stór skjálfti við Rússland Jarðskjálfti sem mældist 7,7 stig varð við rússnesku eyjuna Sakhalin um eittleytið að staðartíma í nótt. Enginn lést í skjálftanum, að því er rússnesk yfirvöld greina frá. Upptök skjálftans voru á 373 mílna, eða um 600 kílómetra, dýpi. Almannavarnaráðuneyti Rússlands segir að enginn hætta sé á flóðbylgju og að litlar líkur séu á eftirskjálftum. Skjálftinn fannst á norðurhluta Japan, en þar í landi búast menn heldur ekki við að nein flóðbylgja verði. 14.8.2012 08:30
Hugleiða að skrá vélar sínar í Svíþjóð Félagar í Svifflugfélagi Íslands hugleiða að skrá svifflugvélar sínar í Svíþjóð. Þeir segja Flugmálastjórn Íslands fara offari í túlkun og framkvæmd nýrra Evrópureglna. Flugmálastjórn segist hafa fullvissu frá Evrópu um að rétt sé farið að. 14.8.2012 08:30
Íslensk löggjöf vekur athygli víða um heim Talskona Stígamóta hefur ferðast um allan heim til að kynna íslenska löggjöf er varðar vændi og mansal. Segir eftirfylgni lögreglu verulega ábótavant. Talskona vændisfólks í Skandinavíu segir löggjöfina ýta undir mansal og vændi. 14.8.2012 08:15
Bandarískir svindlarar í áratugalöng fangelsi Tveir bandarískir karlmenn hlutu í gær áratugalanga fangelsisdóma fyrir umfangsmikinn fjárdrátt á árunum 2006-2011. Mennirnir drógu sér því sem nemur sex milljörðum króna og fór svindlið fram í sex fylkjum í Bandaríkjunum. Annar mannanna var dæmdur í 27 ára fangelsi en hinn í 22 ára fangelsi. Mennirnir eru helstu forsprakkar stórs glæpahrings sem stóð að svindlinu, sem fólst meðal annars í því að starfsmenn banka komust yfir persónuupplýsingar viðskiptavina bankans og nýttu þær til að draga sér fé. Alls hafa 27 manns í glæpahringnum verið dæmdir eða játað sekt. 14.8.2012 08:11
Hælisleitendur handteknir við Grundartanga Lögregla handtók tvo hælisleitendur á hafnarsvæðinu við Grundartanga í gær og er talið fullvíst að þeir hafi ætlað að laumast um borð í millilandaskip. Annar er frá Marokkó og hinn frá Alsír og hafa þeir báðir gert ítrekaðar tilraunir áður til að laumast um borð skip, sem fara héðan til útlanda.- 14.8.2012 08:05
Stofnandi Cosmopolitan látin Helen Gurley Brown, fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Cosmopolitan og höfundur metsölubókarinnar Sex and the Single Girl, lést í gær. Brown skrifaði bókina árið 1962 og með henni vildi hún sýna fram á að konur gætu átt eigin starfsframa og um leið hamingjusamt hjónaband og gott kynlíf, en þetta þótti nokkuð framandi hugmynd á þeim tíma. Brown ritstýrði Cosmopolitan í meira en þrjá áratugi. Hún var níræð þegar hún lést. 14.8.2012 08:01
Hersveitir lentar með sex F-16 þotur Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins (NATO) hófst á ný í gær. Nú munu Portúgalar sinna verkefninu en ráðgert er að það verði unnið með sama fyrirkomulagi og áður hefur verið gert og í samræmi við samninga sem í gildi eru. Þá er áætlað að verkefninu ljúki um miðjan september. 14.8.2012 08:00
Réðst á lögreglumenn sem hugðust handtaka hann Æði rann á karlmann, þegar lögreglumenn ætluðu að handtaka hann fyrir einhverskonar húsbrot í miðborginni laust eftir miðnætti. Hann reyndi að sparka í lögreglumennina og hrækja á þá, en þeir náðu að yfirbuga hann. Ekki kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í hverju húsbrotið var fólgið, en maðurinn er vistaður í fangageymslu og á yfir höfði sér kæru, meðal annars fyrir brot gegn valdstjórninni.- 14.8.2012 07:04
Bifhjólamaður slasaðist á Vífilsstaðarvegi Ökumaður bifhjóls slasaðist þegar hann missti stjórn á hjólinu á Vífilsstaðavegi um tíu leitið í gærkvöldi. Talið er að hann hafi beinbrotnað og var hann fluttur á Slysadeild Landsspítalans. Tölur benda til að heldur færri bifhjólaslys hafi orðið í sumar, en undanfarin sumur.- 14.8.2012 07:00
Fjórir slösuðust við Hvolsvöll Fjórir slösuðust en tveir sluppu ómeiddir þegar bíll valt austan við Hvolsvöll upp úr miðnætti. Hinir slösuðu voru fluttir í tveimur sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans, en egnin þeirra er lífshættulega meiddur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en bíllinn valt á sjálfum veginum og lá þar á hvolfi þegar björgunarmenn og lögreglu bar að. 14.8.2012 07:00
Norskt dagblað vill Stoltenberg burt Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, ætti að segja af sér embætti vegna sannleiksskýrslunnar um hryðjuverkin í Noregi í fyrra, að mati leiðarahöfundar norska blaðsins Verdens Gang. 14.8.2012 07:00
Vilja banna nýnasistaflokkinn í Þýskalandi Komin er upp hávær krafa í Þýskalandi um að nýnasistaflokkurinn, NPD, verði bannaður með lögum þar í landi. Á vef danska ríkisútvarpsins segir að fjórir ríkisstjórar í Þýskalandi hafi að undanförnu farið fram á að flokkurinn verði bannaður og krefjast þess að bæði þýskir ráðherrar og þingmenn láti málið til sín taka. Torsten Albig, ríkisstjóri í Schleswig-Holsten, segir að flokkurinn berjist gegn gildum samfélagsins og við það sé ekki hægt að una. 14.8.2012 06:34
Gengur 300 kílómetra yfir England Kristinn H. Einarsson, formaður Blindrafélagsins freistar þess að ganga 300 kílómetra þvert yfir England á tíu dögum ásamt fleirum blindum og sjónskertum einstaklingum. 14.8.2012 06:30
Borgarskákmótið haldið í 27. sinn Borgarskákmótið verður haldið í 27. sinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag klukkan 16.00. Mótið var fyrst haldið á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar árið 1986 og hefur verið haldið ár hvert síðan þá. 14.8.2012 06:00