Fleiri fréttir

Breytinga að vænta á tryggingakerfinu

"Þetta er ekki beint hvetjandi kerfi. Þegar það breytir engu hvort að maður sé í fullri vinnu eða hálfri þá er ekkert skrýtið að fólk sé ekkert að hafa áhyggjur af því að vinna."

ÖSE samþykkir tillögu Péturs Blöndal

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu samþykkti í gær tillögur frá Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem miða að því að koma í veg fyrir hringferla peninga með raðeignarhaldi og innistæðulausri eignabólu fyrirtækja.

Segist ekki hafa séð sel

Ítalskan ferðalang sem sá ísbjörn við Vatnsnesið segist ekki hafa grunað hvaða atburðarás færi í gang þegar hann lét vita af birninum.

Mursi býður herforingjaráðinu birginn

Það stefnir í hart milli Mohammed Mursi, nýkjörins forseta Egyptalands, og herforingjaráðs landsins. Mursi hefur nú kallað þingið saman á ný, rúmum mánuði eftir að hershöfðingjarnir leystu það frá störfum.

Ingibjörg H. Bjarnason heiðruð á Alþingi

Í dag eru 90 ár liðin frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi. Hún var landskjörin alþingismaður á árunum 1922 til 1930.

Yfirheyrslum yfir hælisleitendum lokið

Búið er að yfirheyra tvo menn sem fundust um borð í flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í nótt. Vélin var á leið til Kaupmannahafnar og höfðu mennirnir læst sig inn á salerni vélarinnar.

Allir blása á Bestu útihátíðinni

Hver einasti ökumaður á Bestu útihátíðinni hefur verið látinn blása í áfengismæli lögreglunnar á Hvolsvelli. Á annan tug hafa verið teknir undir áhrifum.

Borgarahreyfingin greiðir ógoldin laun

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Borgarahreyfinguna til að greiða Herberti Sveinbjörnssyni og kvikmyndagerðarmanninum Gunnari Sigurðssyni tæpar 2.6 milljónir vegna vinnu sem þeir inntu af hendi við gerð kynningarmyndbanda fyrir flokkinn.

Þúsundir tapa internetaðgangi á morgun

Að minnsta 350 þúsund tölvur munu glata aðgangi sínum að veraldarvefnum á morgun. Þetta tilkynnti Alríkislögreglan í Bandaríkjunum fyrr í vikunni.

Of Monsters and Men þakka fyrir sig og kveðja

Hljómsveitin Of Monsters and Men stóð fyrir sannkölluðum stórtónleikum í Hljómskálagarðinum í gær. Talið er að um 18 þúsund manns hafi mætt á svæðið. Hljómsveitarmeðlimirnir eru afar sáttir með tónleikana og þakka Íslendingum fyrir stuðninginn.

Jarðskjálfti við Hveragerði

Jarðskjálfti varð á á Suðurlandi rétt eftir hádegi. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu var skjálftinn 2.7 til 2.9 að stærð en skjálftamiðja hans var norðarlega í Ingólfsfjalli eða um 6.6 kílómetrum norðaustur af Hveragerði. Upptök hans voru á 1.7 kílómetra dýpi.

Lokuðu sig inn á salerni flugvélar

Tveir ungir hælisleitendur fundust um borð í flugvél Icelandair á Keflavíkurflugvelli í nótt. Vélin var á leið til Kaupmannahafnar og höfðu piltarnir læst sig inn á salerni vélarinnar. Nokkur seinkun varð á fluginu og eru drengirnir nú í haldi lögreglu.

Kólera á Kúbu

Vísir að kólerufaraldri hefur greinst í Havana, höfuðborg Kúbu. Þrír létust af völdum sjúkdómsins í vikunni í bænum Manzanillo, að því er fram kemur á BBC.

Þetta er útsýnið á Mars

Rannsóknarvélmennið Opportunity hefur nú ferðast um sléttur Mars í 3 þúsund daga. Sendiförin átti upphaflega að taka 90 daga en litla vélmennið heldur þó ótrautt áfram.

Niðurstöðu beðið í Líbíu

Kjörsókn í kosningunum í Líbíu í gær var 60%. Þetta voru fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu í rúma hálfa öld en kosið var um bráðabirgðaþing sem á að velja forsætisráðherra og ríkisstjórn.

Afganistan fær milljarða í aðstoð

Nokkur af helstu iðnríkjum heims hafa heitið því að veita Afganistan rúmlega 16 milljarða dollara í þróunaraðstoð á næstu árum, eða það sem nemur 2.000 milljörðum íslenskra króna.

Tillaga Íslendinga felld á ársþingi ÖSE

Tillaga sem þeir Róbert Marshall og Björn Valur Gíslason, alþingismenn, fluttu um þátttökurétt Palestínumanna í Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu var felld með með sex atkvæða meirihluta í Mónakó nú um helgina.

Hamarshöllin risin

Nýja Hamarshöllin í Hveragerði er risin. Er þetta fyrsta loftborna íþróttahúsið á Íslandi.

Þjóðverjar treysta Merkel

Angela Merkel, Þýskalandskanslari, nýtur vaxandi trausts og vinsælda heimafyrir þótt mikið hafi mætt á henni í björgunaraðgerðum á evrusvæðinu að undanförnu og eftir að hafa legið undir harðri gagnrýni fyrir að hafa slakað að nokkru leyti á ströngum kröfum sem hún hafði sett fyrir fjárhagslegri aðstoð handa ríkjum í skuldavanda.

Læri gleymdist í ofni

Slökkviliðið á Selfossi var kallað út í hús við Kirkjuveg á Selfossi í gærkvöld eftir að nágrannar heyrðu í reykskynjara.

Hundrað mál á borði lögreglu í nótt

Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Í öðru tilfellinu var maður skorinn með brotinni flösku utan við skemmtistað í miðborginni og hlaust af þó nokkur blæðing. Talið er að upphaf megi rekja til ágreinings inni á staðnum milli aðila sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum. Þá var maður slegin í höfuð með glasi á dansgólfi á skemmtistað í Reykjavík og hlaut hann við það skurði í andlit og á hendi. Í báðum tilfellum voru aðilar fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild Landspítalans en ekki er um alvarlega áverka að ræða. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu.

Flóð í Rússlandi - 134 látnir

Að minnsta kosti 134 eru látnir eftir skyndiflóð í Krasnodar-héraðinu í suðurhluta Rússlands. Þetta ein skelfilegustu flóð í manna minnum á þessu svæði.

Bjargað út úr reykfylltri íbúð

Tilkynnt var um reyk út um glugga í Efstalandi 24 í Reykjavík í kvöld. Slökkvilið var kallað út og fóru reykkafarar inn.

Hestamennirnir komnir í Hrútafjörð

Hestamennirnir fjórir, sem fyrir viku lögðu upp í leiðangur milli Látrabjargs og Gerpis, vestasta og austasta odda Íslands, eru væntanlegir í Hrútafjörð í kvöld. Þar með hafa þeir riðið bæði um Vestfirði og Vesturland en í dag fara þeir úr Dalasýslu yfir í Strandasýslu. Fjórmenningarnir, þeir Magnús Pétursson, Pétur Óli Pétursson, Ólafur Finnbogason og Sigurður Sævar Sigurðsson, hafa sextán hesta til reiðar.

Ónákvæmni í lyfjagjöfum sjúklinga

Hátt í fimm hundruð tilvik komu upp á Landspítalanum í fyrra þar sem lyfjagjöf til sjúklinga var röng. Sérstök vinna er nú í gangi á spítalanum til að fækka slíkum tilfellum.

Fyrsti vinningur gekk út

Fyrsti vinningur í Lottóinu gekk út í kvöld. Vinningstölurnar voru 1, 5, 10, 13, 18 og bónustalan var 34.

Hugnast ekki hækkun eftirlaunaaldurs

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir það ekki koma til greina að eftirlaunaaldurinn á íslandi verði hækkaður eins Fjármálaeftirlitið hefur lagt til. Hún segir Íslendinga nú komast eina síðast Evrópuþjóða á eftirlaun og þá sé ekki tilefni til frekari hækkunar.

Vélhjólaslys og árekstur á Selfossi

Þetta hefur verið annasamur dagur hjá lögreglunni á Selfossi. Tveggja bíla árekstur varð á Austurvegi á Selfossi um hádegisbil í dag. Um aftanákeyrslu var að ræða.

Mikil stemning á Goslokahátíð

Fjölmenni er nú í Vestmannaeyjum en hin árlega Goslokahátíð stendur nú sem hæst. Hátíðin var formlega sett í gær en hún hefur að sögn skipuleggjenda gengið vonum framar.

Thelmu-hringurinn hjólaður

Helga Hrönn Melsteð hjólar nú hringinn í kringum landið. Ferðin er tileinkuð Thelmu Dís, 12 ára, sem nú berst við krabbamein.

Ferðalagið hófst með ósköpum

Ferðalag tveggja ferðamanna um Ísland hófst með ósköpum í dag. Stuttu eftir að hafa lent á Keflavíkurflugvelli og gengið frá sínum málum tóku þau jeppa á leigu.

Tala látinna í Rússlandi hækkar

Tala látinna í skyndiflóðunum í Krasnodar-héraðinu í suðurhluta Rússlands heldur áfram að hækka. Nú áætla yfirvöld á svæðinu að 87 manns hafi látist í flóðunum.

Styttist í tónleika Of Monsters and Men

Hljómsveitin Of Monsters and Men mun halda stórtónleika í Hljómskálagarði í kvöld. Sveitin hefur ekki spilað á tónleikum hér á landi síðan hún fór í tónleikaferðalag fyrir nokkrum mánuðum.

Sóldögg tryllti lýðinn á Bestu útihátíðinni

Um 6.000 manns eru nú saman komin á Gaddstaðaflötum við Hellu þar sem Besta útihátíðin fer fram. Mikið var um dýrðir í gær þegar nokkrar af þekktustu hljómveitum landsins stigu á stokk. Þar á meðal voru 200.000 Naglbítar og Sóldögg. Lítið hefur farið fyrir þeirri síðarnefndu síðustu ár en augljóst er að félagarnir hafa engu gleymt.

Gegndrepa Ólympíueldur

Ólympíueldurinn varð að engu þegar hann var fluttur niður brattar flúðir í Essex í Bretlandi í dag. Fimmtíu dagar eru liðnir síðan Ólympíueldurinn var tendraður í Grikklandi, síðan þá hefur hann ferðast um heiminn og nálgast nú Ólympíuleikvanginn í Lundúnum óðfluga.

Mikil kólnun í Eldfelli

Eldfell í Vestmannaeyjum hefur kólnað verulega á síðustu árum. Nýjar mælingar Náttúrufræðistofnunar Íslands og Náttúrustofu Suðurlands sýna að svæði með meira en 50 gráðu hita er nú aðeins 5.300 fermetrar en var tæplega 69 þúsund fermetrar árið 1990.

Sjá næstu 50 fréttir