Innlent

Segist ekki hafa séð sel

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Roberto Tozzi og fjölskylda.
Roberto Tozzi og fjölskylda.
Ítalskan ferðalang sem sá ísbjörn við Vatnsnesið segist ekki hafa grunað hvaða atburðarás færi í gang þegar hann lét vita af birninum.

Roberto Tozzi hafði verið á ferð um landið ásamt eiginkonu sinni og tíu ára tvíburasonum sínum þegar þau ákváðu að stoppa í Vatnsnesinu til að skoða seli. Þau notuðu sjónauka til að sjá selina betur. Eftir að hafa horft í nokkrar mínútur sáu að eitthvað annað var í sjónum en selirnir.

„Við eiginkona mín litum hvort á annað og sögðum: "En þetta er ekki selur, heldur hvítabjörn," segir Tozzi.

Roberto segir engan vafa í þeirra huga að um ísbjörn hafi verið að ræða.

„Vegna trýnisins og lögunar haussins. Þetta er gjörólíkt sel."

Þau tóku nokkrar myndir úr fjarlægð. Þar sem þær voru óskýrar ákvað hann að ganga niður í fjöru til að komast nær dýrinu. Þegar hann kom þangað þá hvarf dýrið.

Þau fóru að bænum Geitafelli og létu vita af birninum. Roberto segist ekki hafa grunað hvaða atburðarás færi þá í gang.

„Þegar ég sá bjarndýrið datt mér ekki í hug að fólki gæti stafað hætta af því. Þegar ég fór inn í veitingahúsið þarna nálægt ströndinni sagði ég þeim frá birninum. Í mínum huga var björn og selur það sama. Ég hugsaði ekkert um hættuna."

Í framhaldinu ræddi lögreglan við hann.

„Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef talað við lögreglu," segir Tozzi.

Fjölskyldan heldur heim til Rómar í kvöld en vonast til að heimsækja landið aftur eftir nokkur ár.

„Ég vonast til að koma aftur en ekki til að mæta öðrum hvítabirni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×