Fleiri fréttir

"Hennar hugsun var fyrst og fremst að bjarga pabba sínum"

"Lífið - frá upphafi til enda - það er það sem maður hugsar um." Þetta segir Jón Karl Jónsson en hann féll útbyrðis á Borgarfirði fyrr í vikunni ásamt dóttur sinni. Hrein heppni réði því að feðgingin björguðust. Þau höfðu rekið úr fjörðinn í þó nokkurn tíma áður en þeim var bjargað.

Andrea fékk þyngsta dóminn

Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn af þeim sem voru ákærðir fyrir árás á konu á höfuðborgarsvæðinu skömmu fyrir jól. Þetta er fullyrt á fréttavef DV, en heimildir Vísis herma það sama. Dómurinn, sem mun vera um 120 blaðsíður, hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna.

Sluppu með skrekkinn eftir bílveltu

Engin slys urðu á fólki þegar bíll valt í Lundarreykjadag fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi slapp fólkið með skrekkinn en bílinn fór á hvolf og hafnaði út í skurði.

Tekur tíma að fá viðtal hjá Stígamótum

Það getur tekið þó nokkurn tíma að fá viðtöl hjá Sígamótum. Anna Þóra Kristinsdóttir, starfskona Stígamóta, segir að biðin geti farið upp í tvær vikur í sumar vegna álags.

Solveig Lára vígslubiskup á Hólum

Solveig Lára Guðmundsdóttir verður vígslubiskup á Hólum, en atkvæði í síðar umferð kosninga til embættisins voru talin í dag. Tvö voru í kjöri í síðari umferð, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Atkvæði féllu þannig að sr. Kristján Björnsson fékk 70 atkvæði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fékk 96 atkvæði. Alls var 181 á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða 96 %. Þrjú atkvæði voru auð og fimm ógild.

Lögreglan leitar ökumanns sem stakk af

Ökumaður sem flúði vettvang þegar lögreglumaður féll af bifhjóli í gær er enn ófundinn. Lögreglan leitar vitna að atvikinu sem varð skömmu fyrir klukkan hálffjögur. Þar var lögreglumaður á bifhjóli að veita ökumanni á svörtu mótorhjóli eftirför. Lögreglumaðurinn, sem var á norðurleið, missti stjórn á hjólinu sínu á móts við Kópavogslæk og hafnaði utan vegar, austanmegin. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en reyndist ekki alvarlega slasaður.

Flestir treysta Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, nýtur meira fylgis en oddvitar allra hinna flokkanna í borginni. Könnunin var gerð af Capacent fyrir borgarstjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins.

Karlmaður bauð 7 ára stúlku upp í bíl

Karlmaður bauð 7 ára gamalli stúlku upp í bíl hjá sér í nágrenni Áslandsskóla í Hafnarfirði á mánudaginn var. Lögreglan í Hafnarfirði fékk málið til rannsóknar, fór á staðinn og tók skýrslu af stúlkunni.

Stefna að því að komast til Hafnar í dag

Slökkviliðsmennirnir sem lögðu af stað í hjólaferð hringinn í kringum landið á laugardagsmorgun stefna að því að komast til Hafnar í Hornafirði í dag. Slökkvilið Fjarðarbyggðar tók vel á móti þeim í gærkvöldi með 3 grilluð lambalæri og tilbúið gufubað sem kom sér vel því þó ferðin hafi almennt gengið að óskum er áreynslan gífurleg og upp hafa komið ýmis álagsmeiðsli.

Í vandræðum á skútu

Tveir menn lentu í vandræðum á skútu rétt undan Meðallandssandi rétt eftir klukkan tólf í dag. Björgunarveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suður- og Austurlandi og björgunarskipin á Höfn og Vestmannaeyjum voru kölluð út vegna skútu í vandræðum rétt undan Meðallandssandi. Skútan er með rifin segl en hefur þó einhverja stjórn.

Seifur er horfinn - frúin er miður sín

„Mig langar til þess að hvetja hvern þann sem veit um fuglinn eða hefur hann undir höndum að koma honum til skila," segir Jóhanna Björk Halldórsdóttir, eigandi páfagauksins Seifs sem hvarf aðfaranótt 17. júní, en talið er öruggt að einhver hafi tekinn hann ófrjálsri hendi. Hann er búsettur í dýragarðinum Slakka í Laugarási, skammt frá Skálholti, þaðan sem hann hvarf um helgina.

Fimmfaldur ræðukóngur segist sístur í málþófi

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, landaði titlinum ræðukóngur Alþingis í 5. sinn í röð þetta árið. Pétur talaði samtals í tæplega 33 klukkustundir og bætir þar með tímann sinn frá því í fyrra sem var 31 klukkustund og þrjú korter.

Svar Íslands: Rök ESB hefðu haft "fáránlegar afleiðingar“

Röksemdir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og ESA í Icesave-málinu halda engu vatni og sú leið sem Evrópusambandið vill fara hefði haft fáránlegar afleiðingar. Þetta kemur fram í harðorðu svari Íslands við stefnu framkvæmdastjórnar ESB sem sent verður til Brussel í dag.

Mörður sat einn hjá við afgreiðslu á þingskaparlögum

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sat einn hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarp um breytingu á þingsköpum Alþingis í gær. Enginn greiddi atkvæði gegn breytingunum. Mörður segir helstu ástæðuna hafa verið þá að breytingin hafi fengið litla umræðu. Breytingarnar feli þó margt gott í sér. Hann segir að breytingarnar séu tvennskonar.

Var handtekinn vegna morðs - fær 200 þúsund í bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmanni 200 þúsund krónur í miskabætur í síðustu viku en hann var handtekinn í tengslum við morðið á Hannes Þór Helgasyni, sem Gunnar Rúnar Sigurþórsson var dæmdur fyrir.

Yfirþyrmandi verkefni að stöðva brask með Ólympíumiða

Lögreglan í London stendur í ströngu við að fyrirbyggja svartamarkaðsbrask með miða á Ólympíuleikana. Þrjátíu vefsíður og næstum eitt þúsund einstaklingar eru skotmörk í aðgerðum lögreglu til að koma í veg fyrir ólöglega miðasölu og svindl.

Reykvíkingur ársins dauðkveið laxveiðinni

"Ég dauðkveið fyrir þessu því ég hef aldrei veitt annað en marhnút sem krakki," segir Theodóra Rafnsdóttir, sem var valin Reykvíkingur ársins og fékk fyrir vikið að opna Elliðaárnar í sumar.

Sjálfboðaliðar gera Þingvelli upp

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd munu vinna að endurbótum á göngustígum í Þingvallaþjóðgarði um Jónsmessuhelgina næstu helgi.

Reykvíkingur ársins veiddi Maríulaxinn í Elliðaánum

Theodóra Rafnsdóttir, Reykvíkingur ársins, landaði fyrsta laxinum úr Elliðaánum, eftir að veiðitímabilið hófst þar klukkan sjö í morgun. Sex punda laxinn beit á nánast strax eftir að beitan lenti á vatnsfletinum.

Mikil aukning í sjúkraflugi hjá Mýflugi

Sjúkraflugum Mýflugs til Grænlands fer fjölgandi og þannig sótti félagið tvo sjúklinga til Kulusuk í fyrradag og flutti þá á sjúkrahús í Reykjavík.

Kvartað undan öryggisvörðum Tom Cruise

Íslenskir öryggisverðir virðast fara offari í grennd við íverustað leikarans Toms Cruise að Hrafnabjörgum við Eyjafjörð, samkvæmt viðtölum DV við nokkra íbúa í grenndinni.

Assange vill hæli í Ekvador

Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur sótt um pólitískt hæli í Ekvador og var í sendiráði landsins í London í gærkvöldi. Þetta sagði utanríkisráðherra Ekvadors, Ricardo Patino, við breska ríkisútvarpið.

Alþingi greiðir líkamsrækt fyrir þingmenn

Alþingismenn munu fá greiddan ýmsan kostnað, svo sem við kaup á gleraugum eða heyrnartækjum, krabbameinsleit, líkamsrækt og fleira, samkvæmt frumvarpi að nýjum þingskapalögum sem samþykkt voru í gærkvöld. Í greinargerð með frumvarpinu segir að alþingismenn fái með þessu rétt sem er sambærilegur rétti embættismanna. Jafnframt felur þetta ákvæði í sér rétt alþingismanna til fæðingarstyrks eins og á við um embættismenn. Er fyrirhugað að forsætisnefnd Alþingis setji nánari reglur um hann.

Skrásetja hundruð eyðibýla

Ljóst er að mörg hundruð eyðibýli eru á Íslandi. 103 yfirgefin hús voru skrásett og könnuð í fyrra og heldur verkefnið áfram í sumar. Alltaf að færast í aukana að fólk geri upp hús, segir forsvarsmaður verkefnisins.

Skýra þarf lagaheimildir LHG

Ríkisendurskoðun telur að komast þurfi skýrar að orði um það í lögum en nú er að Landhelgisgæslunni sé heimilt að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila. Innanríkisráðuneytið þurfi að fylgjast með því að umsvif stofnunarinnar erlendis komi ekki í veg fyrir að hún geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu hér við land.

ÍLS sagður hlaupast frá samkomulagi

Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga sakar Íbúðalánasjóð um að standa ekki við samkomulag um niðurfellingu skulda Bolungarvíkur. Sjóðurinn segist ekki vera aðili samningsins. Bolungarvík krefst aðgerða innanríkisráðuneytis.

Grænt og blátt hagkerfi

Engar líkur eru á lagalega bindandi samkomulagi á ráðstefnu SÞ um sjálfbæra þróun sem hefst í dag. Tuttugu árum eftir loftslagsráðstefnuna í Ríó hefur útblástur gróðurhúsalofttegunda aldrei verið meiri.

Sex kærðir fyrir vörslu fíkniefna í nótt

Sex voru kærðir fyrir vörslu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þar af var einn farþegi í bíl, sem var stöðvaður þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Vélarbilun í tveimur strandveiðibátum

Vélarbilun varð í tveimur strandveiðibátum undir kvöld í gær. Annar var þá noðraustur af landinu og kom nálægur bátur bátsverjanum til hjálpar og dró bátinn inn til Bakkafjarðar.

Óvíst hvort Mubarak sé lífs eða liðinn

Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands liggur nú fyrir dauðanum á hersjúkrahúsi í Kaíró. Raunar hafa borist fréttir af því að Mubarak sé þegar látinn en þær hafa ekki fengist staðfestar.

Fordæmisgildi dóms gæti kostað milljarða

Dómur í máli Toyota gegn íslenska ríkinu í síðustu viku er fordæmisgefandi. Samkvæmt honum er vaxtakostnaður vegna öfugs samruna ekki frádráttarbær frá skatti. Tugir fyrirtækja hafa fengið sambærilega endurálagningu.

Gengur tíu sinnum á Esjuna

Gunnlaugur Júlíusson ætlar að fara tíu ferðir upp á topp Esjunnar og fagna þannig glæstum árangri Rótarýhreyfingarinnar í baráttunni gegn lömunarveiki í heiminum.

Veiðigjöld fara yfir 20 milljarða 2016/2017

Veiðigjöld munu skila ríkissjóði rúmlega 83 milljörðum króna á næstu fimm fiskveiðiárum, samkvæmt áætlun sjávarútvegsráðuneytisins. Strax á næsta fiskveiðiári, sem hefst 1. september, verða tekjurnar 12,8 milljarðar króna, en fiskveiðiárið 2016/2017 verða þær rúmir tuttugu milljarðar.

Fara langar leiðir til að sækja fisk á grillið

Fiskbúðin Sjávarkistan í Ólafsvík er eina fiskbúðin á Vesturlandi. Hún er aðeins rekin í þrjá mánuði á sumrin og verslar aðeins með fisk af Snæfellsnesinu. Sumarbústaðafólk leggur langa lykkju á leið sína til að komast í fiskbúð.

Eigendastefna um OR samþykkt

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti eigendastefnu fyrir Orkuveitu Reykjavíkur á fundi sínum í gær. Reykjavíkurborg á 94% hlut í fyrirtækinu en auk höfuðborgarinnar á Akranesbær fimm prósenta hlut og Borgarbyggð eitt prósent.

Bolungarvík krefst þess að ráðuneyti virði samninga

Bolungarvíkurkaupstaður hefur sent innanríkisráðuneytinu erindi og krafist niðurfellingar tugmilljóna skulda á félagslegu húsnæði. Samningur er til þar um. Íbúðalánasjóður hafnar niðurfellingunni.

Drasli fleygt við yfirgefna lóð

Nokkuð hefur borið á því að rusli og drasli sé fleygt við hlið gömlu starfsstöðvar Sorpu við Miðhraun í Garðabæ. Þar er engin starfsemi eins og stendur.Þegar ljósmyndara bar að garði síðdegis í gær stóð sófi á gangstéttinni við hliðið. Það er ekki fyrsta mublan sem þar hefur verið skilin eftir. Sorpa lokaði starfsstöðinni um áramótin 2009-2010 og hefur hún verið lokuð síðan. Þar er jafnframt skilti sem bendir rusleigendum á að ný starfsstöð Sorpu fyrir svæðið sé á Breiðhellu í Hafnarfirði.

Sjá næstu 50 fréttir