Mörður sat einn hjá við afgreiðslu á þingskaparlögum Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. júní 2012 11:39
Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sat einn hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarp um breytingu á þingsköpum Alþingis í gær. Enginn greiddi atkvæði gegn breytingunum. Mörður segir helstu ástæðuna hafa verið þá að breytingin hafi fengið litla umræðu. Breytingarnar feli þó margt gott í sér. Hann segir að breytingarnar séu tvennskonar. „Annars vegar eru almennar breytingar á þingsköpum sem sumar eru algerlega eðlilegar. Það er verið að taka svokallaðan septemberstubb," segir Mörður, en hingað til hefur þing komið saman í september í stutta stund áður en næsta þing er svo sett 1. október samkvæmt stjórnarskrá. Jafnframt sé þarna um að ræða smávægilegar breytingar, nánast prófarkalestur, á tillögum sem þegar höfðu verið samþykktar. „Það sem nefndin gafst upp við var hins vegar að hún tók ekki fyrir það sem í raun og veru var að í þingsköpum og atriði sem þarf að meta," segir Mörður. Málþófsreglur núna séu t.d. mun verri núna en þær voru. Einnig eru fleiri atriði sem Mörður hefði viljað ræða betur. „Hinn parturinn er sá að þarna var verið að bæta kjörin, með ýmsum breytingum sem kallaðar voru leiðréttingar og kjarabætur fyrir þingmenn og varaþingmenn," segir Mörður. Hann hefur efasemdir um að þetta væri rétti tíminn til þess að þingið fari sjálft í kjarabætur. „Ég var óánægður með það að ekki skyldi tekið mark á tillögu sem ég og Valgerður Bjarnadóttir fluttum," segir Mörður. Tillaga þeirra tveggja snýr að því að þau vilja að kjaradómur ákveði öll kjör þingmanna. Fyrirkomulagið núna er hins vegar þannig að kjaradómur ákveður þingfarakaup en Alþingi ákveður svo það sem kemur ofan á það. Þrátt fyrir að Mörður hafi ekki séð sér fært um að greiða atkvæði með frumvarpinu segist hann ekki leggjast mjög hart gegn þeim breytingum sem felast í því.
Tengdar fréttir Alþingi greiðir líkamsrækt fyrir þingmenn Alþingismenn munu fá greiddan ýmsan kostnað, svo sem við kaup á gleraugum eða heyrnartækjum, krabbameinsleit, líkamsrækt og fleira, samkvæmt frumvarpi að nýjum þingskapalögum sem samþykkt voru í gærkvöld. Í greinargerð með frumvarpinu segir að alþingismenn fái með þessu rétt sem er sambærilegur rétti embættismanna. Jafnframt felur þetta ákvæði í sér rétt alþingismanna til fæðingarstyrks eins og á við um embættismenn. Er fyrirhugað að forsætisnefnd Alþingis setji nánari reglur um hann. 20. júní 2012 10:11 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Sjá meira
Alþingi greiðir líkamsrækt fyrir þingmenn Alþingismenn munu fá greiddan ýmsan kostnað, svo sem við kaup á gleraugum eða heyrnartækjum, krabbameinsleit, líkamsrækt og fleira, samkvæmt frumvarpi að nýjum þingskapalögum sem samþykkt voru í gærkvöld. Í greinargerð með frumvarpinu segir að alþingismenn fái með þessu rétt sem er sambærilegur rétti embættismanna. Jafnframt felur þetta ákvæði í sér rétt alþingismanna til fæðingarstyrks eins og á við um embættismenn. Er fyrirhugað að forsætisnefnd Alþingis setji nánari reglur um hann. 20. júní 2012 10:11