Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn einum hnakknum stolið á Selfossi Brotist var inn í hesthús að Norðurtröð á Selfossi í morgun. Þaðan var stolið hnakk, reiðtygjum og brynningartæki. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við lögregluna á Selfossi. 11.6.2012 11:09
Kjálkabraut félaga sinn með barefli í sumarbústað Um klukkan tvö aðfaranótt laugardags var tilkynnt um meðvitundarlausan mann sem hafði orðið fyrir alvarlegri árás í sumarbústað í Grímsnesi. 11.6.2012 11:05
Seldu 113 reiðhjól Hundrað og þrettán hjól seldust á reiðhjólauppboði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem fór fram á laugardaginn. Barnahjólin seldust frá þúsund krónum og upp í fimmtán þúsund en fullorðinshjólin seldust á bilinu sex þúsund og upp í sextíu þúsund, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 11.6.2012 10:45
Skjálftahrina í Kötlu Jarðskjálftahrina hófst í Kötlu laust fyrir klukkan fimm í morgun. Milli klukkan fimm og sex mældust þar fjórtán smáskjálftar en síðan virðist hafa dregið úr hrinunni og milli klukkan sex og níu mældust þar sex skjálftar, samkvæmt skjálftavef Veðurstofunnar. Sá stærsti mældist 1,6 stig. 11.6.2012 10:30
Grundfirðingar veiða þorsk af bryggjunum Grundfirðingar þurfa ekki lengur að róa eftir þorski í soðið, þar sem góð veiði er af bryggjunum.Undanfarna daga hefur vænn þorskur, upp í að minnstakosti 4 kíló að þyngd, haldið sig við bryggjurnar og stundum er hann svo þéttur að það er eins og að horfa ofan í eldiskví, að horfa niður af bryggjunum, að sögn sjónarvotts. 11.6.2012 10:25
Vildi svigrúm til að semja um lausnir á veiðileyfagjaldinu Ásta R. Jóhannesdóttir forseti Alþingis segir að hún hafi tekið frumvarpið um veiðileyfagjaldið af dagskrá þingsins í dag til að skapa mönnum svigrúm til að finna lausnir á málinu. 11.6.2012 09:04
Þrjú ungmenni á spítala eftir bílveltu Þrjú ungmenni liggja enn á Landsspítalanum eftir að bíll þeirra valt út af útnesvegi á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Engin þeirra er þó í lífshættu, en tveir þeirra köstuðust út úr bílnum í veltunni. 11.6.2012 06:42
Vinstrimenn sigruðu í frönsku þingkosningunum Vinstrimenn í Frakklandi unnu sigur í fyrri umferð þingkosninganna þar í landi sem haldnar voru um helgina. 11.6.2012 06:20
Trúboð bannað í hafnfirskum skólum Trúar- og lífsskoðunarfélögum hefur nú verið bannað að stunda trúboð innan veggja leik- og grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar á skólatíma. Viðmiðunarreglur þess efnis voru samþykktar í morgun. Sóknarpresturinn kveðst þó ánægður með reglurnar og hrósar bæjarfélaginu fyrir gott samtal. 11.6.2012 20:00
Segir Hannes hafa komið á óvart - 2. kosningaþáttur Stöðvar 2 Þjóðin velur sér forseta næstu fjögur árin eftir tæpar þrjár vikur. Þá þurfum við að ákveða hver heldur utan um neyðarhemilinn, eða öryggisventilinn sem felst í málskotsréttinum, eins og fram kom í ítarlegri kosningaumfjöllun Stöðvar 2 sem birtist í gær. 11.6.2012 10:09
Rúmlega 80% Breta vilja þjóðaratkvæði um ESB aðild Rúmlega 80% Breta vilja halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildina að Evrópusambandinu í náinni framtíð. Þar af vilja 49% að slík atkvæðagreiðsla verði haldin strax í dag. 11.6.2012 08:05
Sala óhollustu hrundi eftir átak Neysla Vopnfirðinga á gosdrykkjum og sælgæti hefur dregist saman um tugi prósenta síðan í apríl, en sala á ávöxtum og grænmeti hefur aukist mikið á sama tíma. Heilsuátak á vegum sjávarútvegsfyrirtækisins HB Granda á staðnum er talið sennileg ástæða þessa. 11.6.2012 08:00
Stjórn Richard Nixon var mun verri en áður var talið Blaðamennirnir sem urðu þess valdandi að Richard Nixon varð að segja af sér embætti sem forseti Bandaríkjanna telja í dag að stjórn Nixon hafi verið mun verri en þeir skrifuðu um á sínum tíma. 11.6.2012 07:20
Slitastjórn vill rifta kaupum á eigin skuldabréfum Slitastjórn Kaupþings hefur sent út tugi riftunartilkynninga í tengslum við endurkaup Kaupþings á eigin skuldabréfum frá því á árinu 2008. Kaupin áttu sér stað síðustu sex mánuðina áður en Kaupþing féll og sum þeirra áttu sér stað mjög nálægt falli bankans, samkvæmt Feldísi 11.6.2012 07:00
Búið að taka veiðileyfagjaldið af dagskrá Alþingis Veiðileyfagjaldið hefur verið tekið af dagskrá Alþingis samkvæmt heimasíðu Alþingis, en umræðunni um frumvarpið, sem staðið hefur í sjö daga, er ekki lokið. 11.6.2012 06:49
Fundu töluvert magn af fíkniefnum Töluvert magn af fíkniefnum fannst í heimahúsi í vesturbæ Reykjavíkur þegar lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af íbúum þar upp úr miðnætti. Nánari upplýsingar er ekki að hafa af málinu. 11.6.2012 06:46
Óvenjumikill fjöldi báta og skipa á miðunum Yfir sjö hundruð skip og bátar voru að veiðum umhverfis landið um klukkan sex í morgun, sem er óvenju mikill fjöldi. Þar af voru nokkur hundruð strandveiðibátar, enda er nú gott sjóveður á öllum miðum. 11.6.2012 06:43
Berjast við mikla skógarelda í Colorado Yfir 250 slökkviliðsmenn berjast nú við mikla skógarelda í ríkinu Colorado í Bandaríkjunum. 11.6.2012 06:35
Bréf frá Napoleon Bonaparte slegið fyrir metfé Bréf sem Napoleon Bonaparte skrifaði á ensku var slegið á uppboði í París fyrir metfé eða um 50 milljónir króna. Þetta er fimmfalt það verið sem talið var að fengist fyrir bréfið. 11.6.2012 06:31
Öl er mun hollara en áður var talið Ný rannsókn sýnir að öl er mun hollara en áður var talið. Fjallað er um málið í Daily Mail en þar kemur fram að vítamín sem aðeins finnst í humlum og þar með öli og einstöku öðrum matvælum eins og mjólk, styrkir vöðva líkamans og kemur í veg fyrir fitumyndun. 11.6.2012 06:27
Óperutónlist er hjartastyrkjandi Vísindamenn í Tókýó í Japan hafa komist að því að óperutónlist getur verið hjartastyrkjandi, allavega hjá músum. 11.6.2012 06:23
Magntollur á sykur það eina sem virkar Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, segir að skattleggja þurfi óhollustuna burt eins og nágrannalöndin hafi gert. Leiðbeiningaskiltum um hóflegt magn komið fyrir við nammibari Krónunnar. Nammibarnum lokað hjá Víði. 11.6.2012 06:00
Ganga landshorna á milli í annað skipti Sex vaskar konur undirbúa nú göngu þvert yfir landið í annað sinn. Lagt verður af stað frá Hornvík á Vestfjörðum á miðvikudag og endað í Hornsvík á suðausturhorni landsins um miðjan júlí. Áætlað er að gengnir verði um það bil 650 kílómetrar. 11.6.2012 05:00
Vilja skýringu á boðsferð WOW Fulltrúar Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks í borgarráði hafa óskað eftir áliti innri endurskoðanda á boðsferð flugfélagsins WOW Air með hliðsjón af siðareglum og góðum starfsháttum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar. 11.6.2012 05:00
Búist við mikilli aðsókn í flug Gert er ráð fyrir því að um 2.500 ferðamenn muni í sumar nýta sér flugleið Icelandair á milli Akureyrar og Keflavíkur. Flugfélagið hóf flug á milli bæjanna í síðustu viku og verður flogið fjórum sinnum í viku út sumarið. Um er að ræða tilraunaverkefni Icelandair til að auðvelda Norðanmönnum að komast til útlanda sem og að bregðast við auknum vinsældum Norðurlands hjá erlendum ferðamönnum. 11.6.2012 04:00
Útiloka ekki hernaðaríhlutun William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist ekki geta útilokað hernaðar-íhlutun í Sýrlandi. Hann sagði jafnframt að ástandið þar væri farið að líkjast því sem var í Bosníu á níunda áratugnum. Hague sagði tíma alþjóðlegrar sendinefndar Kofi Annan vera að renna út. Sendinefndin reynir að semja um vopnahlé í Sýrlandi. 11.6.2012 04:00
Blandar metangasi við olíuna Tekinn hefur verið í notkun nýr flutningabíll sem gengur bæði fyrir dísilolíu og metangasi. Hann keyrir milli Reykjavíkur og Akureyrar og er fyrsti ?græni? trukkurinn í flota Landflutninga, að því er fram kemur í tilkynningu Landflutninga-Samskipa. 11.6.2012 03:15
Slösuðust í bílveltu Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir bílveltu á Útnesvegi á Snæfellsnesi í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á slysadeild Landspítalans er fólkið ekki í lífshættu en beinbrotið. Þremenningarnir verða á Landspítalanum í nótt að minnsta kosti. 10.6.2012 23:51
Flokkur Hollandes stærstur Búist er við því að Sósíalistaflokkur Francois Hollande, forseta Frakklands, nái meirihluta í þingkosningum sem þar fara fram þessa dagana. Fyrri umferð kosninganna var í dag og benda útgönguspár til þess að Sósíalistaflokkurinn og UMP flokkurinn séu jafnir með 35% atkvæða. Með stuðningi Græningja er Sósíalistaflokkurinn hins vegar með 40% fylgi. Önnur umferð fer fram eftir viku. 10.6.2012 23:34
Fjölmenni á tónleikum hjá Elvis Costello Elvis Costello hélt tónleika fyrir fullum Eldborgarsal í Hörpu í kvöld og hlaut góðar undirtektir viðstaddra. Hann tók alla sína helstu slagara. Upphaflega stóð til að Costello héldi tónleika sína í nóvember en hann frestaði þeim vegna mikilla veikinda föður síns. Faðir hans lést skömmu seinna. Costello hafði orð á því á tónleikunum hve góðar móttökur hann hefði fengið en þetta er í annað sinn sem hann kemur hingað til lands. 10.6.2012 23:17
Enn er barist vegna Pinochet Til átaka kom í Chile í dag vegna heimildamyndar um Pinochet. Lögregla notaði táragas til að leysa upp mótmæli sem fram fóru vegna sýningar myndarinnar. 10.6.2012 20:57
Risastórar "hamstrakúlur“ fyrir börn Nýtt skemmtitæki fyrir börn var tekið í notkun í Fjölskyldugarðinum um helgina. Skemmtitækið minnir á hlaupakúlur fyrir ofvaxna hamstra. Börn geta svo skriðið inn í kúlurnar og hlaupið innan í þeim yfir vatnstjörnina í garðinum. 10.6.2012 20:23
Búið að slökkva eldinn Eldsvoðinn við Ljósafossvirkjun reyndist minniháttar og slökkvilið hefur þegar ráðið niðurlögum hans. 10.6.2012 20:18
Eldur við Ljósafossvirkjun Eldur er laus í bílskúr við húsnæði við Ljósafossvirkjun. Dælubílar slökkviliðs eru á leiðinni á svæðið. Enn er hvorki nokkuð vitað um upptök eldsvoðans né hefur tekist að ráða niðurlögum hans. 10.6.2012 19:52
Enn ekki nákvæmar upplýsingar um skotárásina Skotárás varð við stúdentaíbúðir í Auburn í Alabama í Bandaríkjunum síðustu nótt. Fréttastofur af svæðinu hafa sagt að þrír hafi látið lífið og tveir aðrir slasast alvarlega. Það hefur ekki fengist staðfest með ótvíræðum hætti og lögregla hefur ekki gefið út yfirlýsingu vegna málsins. 10.6.2012 19:21
Þóra: Forseta má ekki þykja vænt um völd Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi telur ekki heppilegt að forseti sé manneskja sem þykir vænt um völd. Valdsvið embættisins hafi haldist óbreytt frá stofnun lýðveldisins og að ekki sé þörf á breytingum. 10.6.2012 19:00
Sósíalistar og samherjar efstir Útgönguspár frá Frakklandi benda til þess að Sósíalistaflokkur Francois Hollande fái svipað mikið fylgi og hægri flokkurinn UMP. Flokkarnir mælast nú með 35% hvor. 10.6.2012 18:52
Sjónarspil að sjá 430 manns hjóla af stað Bláalóns þrautin fór fram í dag þegar 430 manns hjóluðu saman frá Hafnarfirði og að Bláa Lóninu. Leiðin er 60 km. Ljósmyndarinn Vilhelm fór á stúfana og myndaði keppendur á leiðinni. 10.6.2012 18:32
"Ómaklegar, órökstuddar og feiknalega ósanngjarnar" Steingrímur J. Sigfússon segir ómaklegt og fáránlegt hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins að kenna núverandi ríkisstjórn um óvænt útgjöld vegna yfirtökunnar á Sparisjóðnum í Keflavík. Ríkið hafi þar fengið vanda í fangið sem skapaðist vegna þess hvernig sparisjóðnum var stýrt. 10.6.2012 18:30
Björgunarsveitir fylgja skemmtibáti í land Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út í dag þegar menn á skemmtibáti lentu í vandræðum skammt frá Kjalarnesi. Þrír menn voru á bátnum og áttu við gangtruflanir í vél að stríða. Bátur frá björgunarsveitunum var sendur út til móts við bátinn rétt fyrir klukkan fimm í dag. Honum var svo fylgt í land. 10.6.2012 17:38
Farsælasti forsetinn Kristjáni Eldjárn tókst hvort tveggja, að láta til sín taka á hinu pólitíska sviði þegar nauðsyn krafði en vera um leið sameiningartákn sem langflestir kunnu að meta. Guðni Th. Jóhannesson fjallar um farsælasta forseta lýðveldisins. 10.6.2012 12:55
Górillur fá líka hláturskast - myndband Með því að kitla apa hafa vísindamenn komist að þeirri niðurstöðu að hlátur mannfólksins hafi byrjað að þróast fyrir 10 til 16 milljón árum. 10.6.2012 12:47
Brotið blað í íslenskri flugsögu Í gær frumsýndi Þyrluþjónustan nýja þyrlu sem notuð verður í skoðunarferðir ferðamanna um Ísland. Þetta er í fyrsta sinn sem þyrla er keypt til landsins gagngert til farþegaflugs og því ákveðið skref sem Þyrluþjónustan steig með þessu uppátæki. 10.6.2012 12:02
Rússneskar fótboltabullur til rannsóknar UEFA mun beita agavaldi sínu vegna óviðeigandi hegðunar rússneskra stuðningsmanna á fótboltaleik landsliðsins gegn Tékkum síðasta föstudag. Fjórir starfsmenn á vellinum urðu fyrir árás stuðningsmannanna og voru sendir á spítala. Sömuleiðis voru þeir sakaðir um kynþáttafordóma sem beindust gegn tékkneska varnarmanninum Theodor Gebre Selassie, sem er svartur. Málið verður tekið til meðferðar næsta miðvikudag. 10.6.2012 11:30
Obama móðgaður vegna ásakana um leka Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir það móðgandi að gefa í skyn að Hvíta húsið sé á bak við leka um árásir mannlausra fjarstýrðra loftfara á bækistöðvar grunaðra hryðjuverkamanna í Mið-Austurlöndum en fréttir af þessum árásum að undanförnu hafa gert ríkisstjórn Obama berskjaldaða fyrir harðri gagnrýni frá bæði hægri og vinstri væng stjórnmálanna um leynd þessara aðgerða, sem þykja mjög umdeildar. Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skipað tvo lögmenn sem eiga að stýra rannsókn á því hvort leynilegum trúnaðargögnum stjórnvalda um þessar árásir hafi verið lekið til fjölmiðla, að því er fram kemur í Financial Times. 10.6.2012 11:15