Innlent

Þrjú ungmenni á spítala eftir bílveltu

Þrjú ungmenni liggja enn á Landsspítalanum eftir að bíll þeirra valt út af útnesvegi á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Engin þeirra er þó í lífshættu, en tveir þeirra köstuðust út úr bílnum í veltunni.

Kallað var á þyrlu Gæslunnar til að flytja fólkið á sjúkrahús. Skömmu síðar var aftur kallað á þyrluna eftir að maður á fjórhjóli slasaðist þegar hjól hans valt norður í Vatnsdal. Þyrlan var afturkölluð, en maðurinn fluttur í sjúkrabíl til Blönduóss, þar sem sjúkraflugvél tók við honum og flutti til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×