Magntollur á sykur það eina sem virkar 11. júní 2012 06:00 Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS. Mynd/Arnar Halldórsson „
Magntollar á sykur er það eina sem virkar til þess að stýra neyslunni þannig að hún minnki. Með magntolli skattleggur maður magnið af óhollustunni í vörunni. Virðisaukaskattur hvetur bara til kaupa á stærri einingu þar sem hún er hlutfallslega ódýrari en lítil eining.?" Þetta segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS, sem í leiðara í nýjasta tölublaði samtakanna bendir á að um leið og virðisaukaskattur á matvælum var lækkaður á Íslandi árið 2007 hafi verið felld niður vörugjöld af matvælum öðrum en sykri, sykurvörum og súkkulaðivörum. Við þessa aðgerð hafi virðisaukaskattur á gosdrykkjum lækkað úr 24,5 prósentum í 7 prósent og vörugjöld verið afnumin af þeim en hafi verið hækkuð á ný 2009. „Þótt Íslendingar séu opinberlega feitasta Norðurlandaþjóðin höfum við enn ekki tekið það skref að skattleggja óhollustuna sjálfa, eins og nágrannalöndin hafa gert," segir Guðmundur. Hann getur þess að í Danmörku hafi til dæmis svokallaður súkku-laðiskattur verið lagður á í allmörg ár. „Hann var upphaflega bara á sælgæti, gosdrykki og ís en nú á að útvíkka hann þannig að hann leggist almennt á viðbættan sykur. Danir eru að útvíkka þetta vegna þess að þeir telja að árangur af skattlagningunni hafi verið góður." Guðmundur vitnar í grein eftir lækna sem birtist í New England Journal of Medicine 2009. „Samkvæmt könnun sem þeir gerðu drógu þeir þá ályktun að sérstakur skattur á óhollar matvörur myndi draga úr neyslu þeirra um 10 prósent. Mat læknanna var að neyslustýring með sköttum virkaði betur en fræðsla." Vegna umræðunnar um of mikið sælgætisát íslenskra barna hafa verið sett upp skilti til leiðbeiningar um hóflegt magn af sælgæti fyrir ákveðna aldurshópa við nammibari í þremur verslunum Krónunnar. Skilti verða komin upp í öllum verslunum nú í vikunni, að sögn Kristins Skúlasonar rekstrarstjóra. „Við ákváðum að sýna þetta frumkvæði og gerðum þetta í samvinnu við næringarfræðing hjá Matís. Við munum sjá af sölutölum hvort þetta hefur áhrif." Kristinn segir að hvorki hafi komið til tals að hætta að bjóða helmingsafslátt á nammibarnum á föstudögum og laugardögum né að fjarlægja sælgæti frá afgreiðslukössunum. „Leiðbeiningaskiltin eru fyrsta skrefið," tekur hann fram. Setja á upp leiðbeiningaskilti við nammibari í verslunum Hagkaups. Í verslunum Víðis hefur nammibarnum verið lokað. „Þetta var gert að ósk viðskiptavina auk þess sem við ætlum að leggja meiri áherslu á hollar vörur í verslunum okkar," segir Matthías Eiríksson kaupmaður. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira