Fleiri fréttir

Skotárás við stúdentaíbúðir í Alabama

Nokkrir særðust í skotárás við stúdentaíbúðir í borginni Auburn í Alabamafylki í Bandaríkjunum. Skotárásin varð í nótt. Ekki er enn vitað um líðan fórnarlambanna né hve mörg þau voru, en lögregla hefur sagt að þau hafi verið fleiri en eitt.

Ari Trausti í fjallgöngu

Forsetaframbjóðandinn Ari Trausti bauð öllum áhugasömum með sér í fjallgöngu. Gangan hófst klukkan tíu í dag en göngutíminn verður alls um 3 klukkutímar.

Eitraður kræklingur við Ísland

Matvælastofnun varar við neyslu á kræklingi sem safnað er í Hvalfirði og Eyjafirði. Tekin voru sýni af sjó á þessum stöðum í síðustu viku til greiningar á eitruðum þörungum. Í Eyjafirði var PSP eitur yfir mörkum, en það getur valdið lömun, og í Hvalfirði mældist DSP eitur yfir mörkum, sem sem getur valdið uppköstum og niðurgangi.

Ráðherra lést í þyrluslysi

George Saitoti, öryggismálaráðherra Kenía, lést ásamt sex öðrum þegar þyrla brotlenti í skógi skammt frá höfuðborginni Nairobi. Kenísk yfirvöld greindu frá þessu í morgun. Ekki er vitað hvað olli slysinu að svo stöddu. Saitoti hugðist bjóða sig fram til forseta en næstu forsetakosningar í Kenía fara fram í mars á næsta ári.

Vill hernaðaríhlutun í Sýrlandi

Shaul Mofaz, forsætisráðherra Ísraels, sakaði sýrlensk yfirvöld um þjóðarmorð í útvarpsviðtali í morgun og hvatti alþjóðarsamfélagið til að grípa til hernaðaraðgerða í því skyni að stöðva blóðbaðið þar í landi. Hann gagnrýndi jafnframt helstu þjóðarleiðtoga heims fyrir aðgerðarleysi og var afar harðorður í garð Rússa fyrir að útvega Sýrlendingum vopn. Utanríkisráðherra Rússlands, ítrekaði í gær að hann væri mótfallið tilraunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um hernaðaríhlutun í Sýrlandi en kallaði eftir fundi með helstu leiðtogum heims til að ræða friðaráætlun Kofis Annans.

Tala eins og forsetaframbjóðendur í sitthvoru ríkinu

Það er stórhættulegt fyrir Ísland að losarabragur sé á hugmyndum forsetaframbjóðenda á valdsviði forseta, segir stjórnmálafræðingur sem rætt er við í öðrum þætti Stöðvar 2 um forsetakosningarnar.

Bílslys við Skipanes

Bílslys varð við Skipanes nálægt Borgarnesi seinnipartinn í dag. Tveir strákar voru í bílnum sem tók veltu og hafnaði utanvegar þegar ökumaður missti stjórn á honum. Hvorugur mannanna slasaðist alvarlega en þeir voru sendir á slysavaktstofuna á Akranesi til aðhlynningar. Grunur leikur á að bílstjórinn hafi verið undir áhrifum áfengis.

Stærsta hjólreiðakeppni ársins á morgun

Stærsta hjólreiðakeppni ársins, hin svonefnda Bláalóns-þraut, fer fram á morgun. Aðstandendur keppninnar segja hana vera stærsta hjólamót sem haldið hefur verið á Íslandi.

Hreyfihamlaður ofurhugi klífur Hvannadalshnjúk

Leifur Leifsson, ungur maður sem hefur verið bundinn við hjólastól alla ævi, hefur æft níu til tíu sinnum í viku síðastliðna mánuði og styrkt hendur sínar í því skyni að komast upp á hæsta tind landsins.

Vann yfir 73 milljónir í Lottó

Einn einstaklingur var með allar tölur réttar í Lottó í kvöld. Hann hlaut í vinning rúmar 73 milljónir króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Leirunesti við Leiruveg á Akureyri.

Bjargað naumlega undan flóðum

Um 150 manns var bjargað naumlega í dag þegar mikil flóð gengu yfir bæi og sumarleyfisstaði á vesturströnd Wales snemma í morgun. Þyrlur voru sendar á svæðið í björgunaraðgerðum nálægt bænum Aberystwyth eftir að tæplega 13 sentímetrar af regni féllu síðastliðinn sólarhring. Enginn slasaðist í flóðunum í morgun en þónokkurt tjón varð eins og myndirnar bera með sér.

Álver opnað á Reyðarfirði

Stærsta kersmiðjan í stærsta álveri landsins, álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði, var opnuð klukkan þrjú í dag að viðstöddum iðnaðarráðherra, þingmönnum og starfsmönnum fyrirtækisins. Kersmiðjan mun skapa 60 ný störf á Reyðafirði. Vinna hófst við smiðjuna á árinu 2010 en heildarfjárfesting vegna hennar nemur þremur og hálfum milljarði króna. Ker í álverum þarf að endurnýja á 5-7 ára fresti. Í nýju kersmiðjunni verður mögulegt að fóðra þrjú ker í einu, en opnun kersmiðjunnar er lokahnykkurinn í byggingu álversins sem var reist fyrir 5 árum.

Stúlkan fundin

Fríða Níelsdóttir, stúlkan sem lögreglan á suðurnesjum lýsti eftir fyrr í dag er fundin. Hún fannst heima hjá kærastanum í Ytri-Njarðvík. Þar hafði hún ætlað að vera yfir helgina.

Anonymous mótmælir í Indlandi

Hakkarar í hópnum Anonymous mótmæltu í dag ritskoðun á internetinu í Indlandi. Mótmælin fóru fram í 16 borgum.

Forseti fundaði með Google

Forseti átti í gær fund með sendinefnd frá Google sem heimsækir Ísland í boði hans. Tilgangur ferðarinnar er að kanna möguleika á samstarfi um ábyrgara eftirlit með veiðum á höfum heims. Einkum var litið til hvernig upplýsingatækni og reynsla Íslendinga nýtist í þessum efnum.

432 nemendur útskrifast frá HR

Í dag brautskráðust 432 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Á árinu hefur háskólinn útskrifað hátt í 900 nemendur samtals.

Stærsta kersmiðjan í stærsta álverinu vígð

Síðasta áfanganum í byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði er nú lokið en stærsta kersmiðjan í stærsta álveri á Íslandi var formlega vígð við hátíðlega athöfn í dag. Vinna hófst við kersmiðjuna á árinu 2010. Á meðan á framkvæmdunum stóð unnu að jafnaði um 70-80 manns við byggingunna en 160 þegar umsvifin voru í hámarki. Sagt er að smiðjan muni skapa aukalega 50-60 störf á Reyðarfirði. Heildarfjárfesting vegna hennar er um 3,5 milljarðar króna.

Týnd stúlka

Lögregla leitar nú að Fríðu Níelsdóttur, 14 ára stúlku úr Grindavík. Fríða er 162 cm á hæð og um 58 kg. Hún er með ljósbrúnt hár niður fyrir axlir og blá augu. Fríða var klædd í svarta hettuspeysu með nafninu hennar á bakinu, svörtum legging og bleikum Kawasaki skóm.

Fjölmenni á hjólauppboði

Um tvö til þrjú hundruð manns mættu á reiðhjólauppboð lögreglunnar í dag. Boðin voru upp reiðhjól sem fundist hafa á höfuðborgarsvæðinu og enginn hefur hirt um að sækja. Uppboðið fór fram í húsnæði Vöku í Skútuvogi.

Forsetaefnin skýra áherslur sínar

Forsetaframbjóðendurnir skýrðu afstöðu sína til fjögurra málefna sem varða hlutverk forseta í Fréttablaðinu í dag. Fram komu m.a. skoðanir frambjóðenda á siðareglum, málskotsréttinum og tengslum forseta við viðskiptalífið.

Forsetaefnin fjalla um stór pólitísk málefni

Forsetaefnin lýstu skoðun sinni á því hvort forseti ætti að taka afstöðu til stórra pólitískra mála í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Á forseti að lýsa yfir afstöðu sinni til stórra pólitískra deilumála á borð við umsókn um aðild að Evrópusambandinu?

Forsetaefnin fjalla um utanríkisstefnu forseta

Forsetaefnin fjölluðu um hlutverk forseta á alþjóðavettvangi í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Á forseti markvisst að lýsa eigin sjónarmiðum á alþjóðavettvangi, jafnvel þótt þau gangi gegn stefnu sitjandi ríkisstjórnar?

Forsetaefnin fjalla um málskotsréttinn

Forsetaefnin lýstu skoðunum sínum á málskotsréttinn í 26. gr. stjórnarskrárinnar í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Hver er afstaða þín til beitingar málskotsréttar forseta samkvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar?

Forsetaefnin fjalla um siðareglur forseta

Forsetaefnin skýrðu áherslur sínar varðandi siðareglur forseta og tengsl hans við viðskiptalífið í Fréttablaðinu í dag. Spurt var: Finnst þér að setja eigi siðareglur um samskipti forseta við viðskiptalífið? Hvernig á forsetinn að beita sér í þágu einstakra fyrirtækja og atvinnugreina?

Talíbanar drepa franska hermenn

Fjórir franskir hermenn létu lífið í sjálfsmorðstilræði í Afganistan í dag. Herskáir talíbanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni sem átti sér stað á Kapisa-svæðinu í austurhluta landsins. Nú eru tæplega 3.300 franskir hermenn í Afganistan en stefnan er að franskar hersveitir hafi yfirgefið landið í lok þessa árs.

Kalli í Pelsinum setur Apótekið á sölu

Karl J. Steingrímsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, hefur boðið Austurstræti 16 eða Apótekið til sölu eða leigu. Húsið er fimm hæðir auk kjallara og rishæðar, alls einir 2773 fermetrar.

Börnum bjargað úr ánauð níðinga

Átján börnum hefur verið bjargað úr ánauð níðinga í umfangsmikilli aðgerð bandarískra yfirvalda gegn barnaklámi. Hundrað og níutíu manns voru handteknir, flestir í Bandaríkjunum en handtökur áttu sér einnig stað á Spáni, Filippseyjum, Bretlandi, í Argentínu, Svíþjóð, Serbíu og Hollandi.

Aukin framlög til NATO

Íslendingar juku við framlög sín til Atlantshafsbandalagsins, NATO, í kjölfar þess að varnarsvæðinu á Suðurnesjum var lokað árið 2006. Þá ákvað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Ísland gerðist aðili að mannvirkjasjóði NATO.

Kínverjar út í geim

Kínverjar hafa ákveðið að senda mannað geimfar út í geim í þessum mánuði. Það yrði í fjórða sinn sem Kínverjar skjóta upp mönnuðu geimfari síðan árið 2008.

Hjólauppboð lögreglu í dag

Rúmlega hundrað reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Um er að ræða reiðhjól sem fundist hafa í umdæminu en enginn hefur hirt um að sækja.

Sprenging og átök í Sýrlandi

Sautján óbreyttir borgarar, þar á meðal tíu konur, féllu í sprengingu í suðurhluta sýrlensku borgarinnar Deraa í nótt. Átök brutust út á milli uppreisnarmanna og stjórnarherliða í kjölfarið og var aðalvegi frá Damascus höfuðborg landsins lokað með logandi dekkjum. Að minnsta kosti fjörutíu og fjórir sýrlenskir borgarar létust í gær og tuttugu og fimm hermenn.

Fundur fram á miðja nótt

Þingfundi lauk á fjórða tímanum í nótt, og voru þá enn þingmenn á mælendaskrá. Rætt var um ríkisstjórnarfrumvarp um veiðigjöld en sú umræða hefur staðið í sex daga. Ekkert samkomulag liggur fyrir um þinglok. Boðað hefur verið til þingfundar klukkan hálf ellefu og verður þá umræðu um veiðigjöld haldið áfram. Enn er um áttatíu málum ólokið á Alþingi, þar á meðal umdeilt frumvarp um breytingar á kvótakerfinu, rammaáætlun og fjármögnun Vaðlaheiðarganga.

Landsbyggðin tapar konum

Konur eru alls staðar á landsbyggðinni færri en karlar, en þær hafa í meira mæli flutt burt á síðustu árum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem gerð var fyrir Byggðastofnun.

Ískyggilegt ástand á ýsustofninum

Þorskveiði á næsta fiskveiðiári verður aukin um 19 þúsund tonn verði ráðgjöf fylgt. Innan seilingar er 250 þúsund tonna þorskkvóti verði haldið rétt á spilunum. Vondu fréttirnar eru hins vegar þær að ástand ýsustofnsins er ískyggilegt og veiðibann er ekki fjarlægur möguleiki.

70 milljóna lottóvinningur í kvöld

Vinningurinn er orðinn sjöfaldur og stefnir í yfir 70 milljónir króna í lottó í kvöld. Því er til mikils að vinna og margir hafa lagt leið sína í Happahúsið í Kringlunni og aðrar sjoppur í dag. Vinningar í lottó eru skattfrjálsir og arðurinn af getspánni rennur til góðra málefna eins og Öryrkjabandalagsins og íþróttahreyfingarinnar.

Ár síðan barkaígræðsla læknaði krabbamein

Í dag er eitt ár frá því að nemandi við Háskóla Íslands gekkst undir tímamótaaðgerð þegar plastbarki baðaður stoðfrumum var græddur í hann. Erítreubúinn Andemariam T. Beyene greindist með illvígt krabbamein í hálsi en fyrir nákvæmlega ári tókst að bjarga lífi hans með aðgerð á Karolinska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð.

Vilja ræða mögulega sameiningu

Bæjarstjórn sveitarfélagsins Garðs samþykkti á síðasta fundi sínum að verða við ósk frá fulltrúum Reykjanesbæjar um að funda um mögulega sameiningu sveitarfélaganna Garðs, Sandgerðis og Reykjanesbæjar.

Reykvískir víkingar ósáttir við borg sína

Víkingafélagið Einherjar í Reykjavík telur stuðning borgarinnar forsendu þess að hægt verði að setja upp víkingahátíð í ætt við þá sem haldin er í Hafnarfirði. Félagið fékk félagsheimili hjá borginni, en gæti misst það komist hátíðin ekki á.

Ný tækni í sýnatöku í brjóstholi

Hafin er söfnun fyrir berkjuómspeglunartæki fyrir Landspítalann. Um er að ræða tæki sem notað er til sýnatöku úr eitlum í brjóstholi.

Æfa viðbrögð við slysi á sjó

Almannavarnanefnd Þingeyinga og embætti Lögreglustjórans á Húsavík standa í dag, laugardag, fyrir sjóslysaæfingu á Skjálfanda og á Húsavík. Um samstarf við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna er að ræða.

Advania hyggst þjálfa upp nýja sérfræðinga

Upplýsingatæknifyrirtækið Advania hefur ákveðið að bregðast við skorti á fólki með þekkingu á bæði upplýsingatækni og viðskiptafræði með því að ráða til sín 10 til 20 reynsluminni einstaklinga sem verða fyrsta starfsár sitt þjálfaðir í að vinna ráðgjafastörf fyrir fyrirtækið.

Fransk-íslenska endurvakið

Fransk-íslenska viðskiptaráðið verður endurvakið á fundi næstkomandi þriðjudag. Samkvæmt tilkynningu er markmiðið að „auka viðskipti milli landanna og miðla þekkingu og upplýsingum um viðskiptatækifæri og viðskiptaumhverfi“.

Vill endurræsa tvo kjarnaofna

Yoshihiko Noda, forsætisráðherra Japans, segir nauðsynlegt að endurræsa tvo af 50 kjarnorkuofnum landsins til þess að efnahagur landsins og landsmanna fari ekki á hliðina.

Níðþunga bryggju rak á land

Íbúar í bænum Newport í Oregon á vesturströnd Bandaríkjanna ráku upp stór augu í vikunni þegar risastór flotbryggja úr stáli og steinsteypu var komin upp í fjöru.

Flúði nakinn frá Kristjaníu

Blaðamaður varð fyrir líkamsárás í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í fyrradag. Blaðamaðurinn var að taka ljósmyndir en slíkt er illa séð af sölumönnum í fríríkinu. Maðurinn var barinn, afklæddur og myndavélin tekin af honum. Hann náði að forða sér allsnakinn.

Sjá næstu 50 fréttir