Laufskrúð og byggð dregur úr vindinum 5. júní 2012 06:30 Í fossvogi Skjólgott hverfi þar sem trjágróðurinn hefur vaxið upp fyrir hæð húsanna. fréttablaðið/vilhelm
Lækkun ársmeðalvindhraða í Reykjavík er 0,1 m/s á áratug frá 1950. Mögulega enn meiri lækkun síðustu ár, að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Aukin trjárækt og byggð hefur dregið úr vindi í Reykjavík á undanförnum áratugum. Benda mælingar til þess að lækkun ársmeðalvindhraða geti numið 0,1 m/s á áratug frá því um 1950. Vera má að síðustu 10 árin eða svo hafi lækkunin verið enn meiri. Þetta kemur fram í grein Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings í 1. tbl. Skógræktarritsins á þessu ári. „Það kemur ekki á óvart að vindur skuli hafa farið minnkandi vegna aukinnar byggðar og trjágróðurs en það er ekki einfalt mál að meta það,“ segir Einar í viðtali við Fréttablaðið. Hann kveðst þess vegna hafa lagst yfir vindmælingar í Reykjavík. „Vindmælir hefur verið fluttur að minnsta kosti einu sinni auk þess sem breytt hefur verið um hæð hans og gerð. En með ákveðinni yfirlegu má ætla að dregið hafi talsvert úr vindi. Meðalvindurinn á ári frá 1961 til 1990 í Reykjavík er 5 til 5,5 m/s yfir árið þannig að minnkun um 0,1 m/s er talsverð. Á síðustu árum hefur vindhraðinn í Reykjavík verið að fara undir 3 m/s. Það hefur gerst nokkuð oft og bendir til þess að laufskrúðið sé farið að hafa veruleg áhrif í átt til bætts skjóls. Það er hins vegar ómögulegt að greina á milli áhrifa byggðarinnar sjálfrar og trjágróðursins en hann fer að brjóta upp vindinn þegar trén eru farin að mynda gisinn skóg í heilu hverfunum.“ Að sögn veðurfræðingsins er það fyrst og fremst þegar trén eru farin að ná upp fyrir húsþök sem þau mynda skjól. „En svo verður það að vera útsjónarsemi hvers og eins garðeiganda að gróðursetja tré þar sem það kemur ekki til með að mynda skugga í garðinum eða hjá nágrannanum.“ Einar tekur það fram að ekki megi gleyma skógræktinni í Heiðmörk sem hafi vafalítið markverð áhrif í að draga úr vindi, einkum í austlægum vindáttum sem séu ríkjandi á höfuðborgarsvæðinu. Í grein sinni segir Einar að Reykjavík teljist ekki vera vindasamur staður. Meðalvindhraði 2001 til 2010 mælist um 4,2 m/s og þykir lágt í íslensku samhengi. Til samanburðar getur hann þess að meðalvindur á ársgrundvelli á Keflavíkurflugvelli sé um 7,0 m/s. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Fleiri fréttir Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Arion hækkar vexti á ný Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Sjá meira