Farsímamarkaður að ná jafnvægi 5. júní 2012 06:00 Fréttablaðið greindi frá því í maí að Vodafone muni verða skráð á markað í haust. Það verður eina fjarskiptafyrirtæki landsins sem verður skráð þar gangi áformin eftir. Fréttablaðið/pjetur
Tíu þúsund áskriftir bættust við íslenskan farsímamarkað á síðasta ári. Hlutdeild Símans fór í fyrsta sinn niður fyrir 40 prósent og Vodafone fór niður fyrir 30 prósent. Nova og Tal bæta við sig. Samkeppnin jafnari frá næstu áramótum. Jafnvægi er að myndast á farsímamarkaði. Síminn og Vodafone tapa viðskiptavinum á milli ára en Nova og Tal bæta við sig. Þetta kemur fram í nýrri tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) um íslenskan fjarskiptamarkað á árinu 2011. Markaðurinn samanstendur af þeim sem eru í talþjónustu og þeim sem eru með 3G-nettengla (punga). Markaðshlutdeild Símans fór í fyrsta sinn undir 40 prósent á síðasta ári. Alls voru 153.191 manns með slíka þjónustu hjá fyrirtækinu um síðustu áramót. Í árslok 2007 var Síminn með um 60 prósenta markaðshlutdeild og drottnandi á markaðnum. Síðan hefur viðskiptavinum fyrirtækisins fækkað um yfir 30 þúsund auk þess sem Símanum hefur ekki tekist að ná inn þeim 75 þúsund viðskiptavinum sem hafa bæst við síðan þá. Staða Símans virðist þó vera að ná nokkru jafnvægi. Viðskiptavinum hans fækkaði einungis um rúmlega fimm þúsund frá lokum árs 2009 og fram að síðustu áramótum. Samdrátturinn hefur eðlilega haft áhrif á umfang starfsemi Símans og móðurfélags hans Skipta, sem tapaði 10,6 milljörðum króna á síðasta ári. Samhliða honum hefur verið ráðist í miklar hagræðingaraðgerðir innan samstæðunnar og í vikunni var 17 starfsmönnum sagt upp störfum. Eigandi Skipta er Klakki, sem áður hét Exista. Hlutdeild Vodafone á farsímamarkaði er komin rétt undir 30 prósent og hefur aldrei verið lægri. Fyrirtækið hefur samt sem áður verið að bæta við sig viðskiptavinum á undanförnum árum og hefur þeim fjölgað um rúmlega sex þúsund frá árslokum 2009. Viðskiptavinunum fækkaði þó um þrjú þúsund í fyrra auk þess sem fjölgun áskrifta á markaðnum skilaði Vodafone ekki auknum viðskiptum. Ætla á markað í haustStjórn Vodafone ákvað í maí að hefja undirbúning að skráningu á markað. Stefnt er að því að hún muni eiga sér stað í september eða október. Vodafone er sem stendur að mestu í eigu Framtakssjóðs Íslands (FSÍ). Félagið hagnaðist um 227 milljónir króna í fyrra, en það gekk í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu árið 2009. Vodafone hefur samt sem áður þurft að grípa til hagræðingaraðgerða. Í janúar var til að mynda 28 manns sagt upp störfum. Nova hélt áfram að auka við hlutdeild sína á síðasta ári. Viðskiptavinir félagsins voru 99.636 um síðustu áramót og sá 100 þúsundasti skilaði sér í hús í febrúar. Fjöldi þeirra hefur aukist um 36 þúsund á tveimur árum, sem er langmesta aukning allra farsímafyrirtækja. Markaðshlutdeild Nova er nú 25,8 prósent. Fyrirtækið skilaði 374 milljóna króna hagnaði í fyrra og er það í fyrsta sinn sem Nova skilar hagnaði frá því það hóf starfsemi í desember 2007. Tal lagaði stöðu sína á markaðinum lítillega á milli ára. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru nú 19.111 og fjölgaði um rúmlega tvö þúsund í fyrra. Markaðshlutdeild Tals er 5,0 prósent. Tal tapaði um 900 milljónum króna á árunum 2008 til 2010. Fyrirtækið hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2011. Viktor Ólason, forstjóri Tals, sagði í samtali við Fréttablaðið í febrúar að fyrirtækið hefði skilað hagnaði á því ári. Eigendur Tals eru Auður 1 fjárfestingasjóður og Kjartan Örn Ólafsson. Fimmta fyrirtækið á íslenska farsímamarkaðinum er Alterna, sem hóf starfsemi sína vorið 2010. Viðskiptavinum þess fækkaði um tvö þúsund í fyrra og voru einungis 1.091 um síðustu áramót. Eigandi Alterna er bandaríska fyrirtækið World Cell.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira