Grinda­vík - Njarð­vík 94-75 | Grinda­vík er einum sigri frá úrslitaeinvíginu

Kári Mímisson skrifar
Grindavík þarf einn sigur til viðbótar gegn Njarðvík.
Grindavík þarf einn sigur til viðbótar gegn Njarðvík. vísir

Grindavík er aðeins einum sigri frá úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna í körfubolta, eftir afar öruggan 94-75 sigur gegn Njarðvík í öðrum leik liðanna. 

Grindavík sótti sterkan sigur á útivelli í fyrsta leik liðanna og fagnaði síðan mjög öruggum sigri á heimavelli í kvöld. 

Njarðvík átti gott áhlaup í upphafi seinni hálfleiks og minnkaði muninn niður í tvö stig en svo brunaði Grindavík fram úr á ný og lokamínúturnar urðu lítið spennandi. 

Abby Beeman var stigahæst hjá Grindavík með 24 stig. 

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira