Fleiri fréttir

ASÍ íhugar að stefna LÍU

Alþýðusambandið telur útvegsmenn hafa farið langt út fyrir það sem skynsamlegt getur talist með ákvörðun sinn um binda flotann við bryggju. Ákall til stjórnvalda segir framkvæmdastjóri LÍÚ sem vonar að ekki þurfi að koma til frekari aðgerða.

Grímuklæddir þjófar lentu í átökum við starfsmann apóteks

Karlmaður og kona, með grímur fyrir andlitum sínum og vopnuð kúbeini, réðust inn í Akureyrarapótek í Kaupangi á Akureyri í hádeginu í gær. Til átaka kom á milli þessara aðila og starfsmanns apóteksins, sem hlaut minni háttar áverka á höfði, og reyndi maðurinn og konan síðan að flýja af vettvangi en voru handsömuð af vegfarendum sem leið áttu hjá og var þeim haldið þar til lögregla kom á vettvang. Um er að ræða einstaklinga á þrítugsaldri sem marg oft hafa komið við sögu lögreglu áður. Þau voru bæði í mjög annarlegu ástandi og fannst lítilræði af fíkniefnum á karlmanninum. Þau voru vistuð í fangageymslu og farið verður fram á gæsluvarðhald yfir þeim.

Dómari í Breivik málinu spilaði kapal í réttarsal

Dómari í Breivik málinu sást í dag leggja kapal í tölvunni sinni meðan á vitnaleiðslum stóð. Á mynd sem birtist í norskum fjölmiðlum sést Ernst Henning Eielsen, einn af fimm dómurum í málinu, leika sér í tölvukapalnum solitaire. "Fólk hefur mismunandi leiðir til að halda sér einbeittu," sagði talskona réttarins í fjölmiðlum í dag, en myndin hefur vakið töluverða athygli. "Dómararnir fylgjast gaumgæfilega með öllu því sem fram kemur fyrir réttinum."

Sjómenn styðja ákvörðun útgerðarmanna

Sjómenn styðja ákvörðun Landssambands íslenskra útvegsmanna um að halda skipum heima til þess að mótmæla frumvörpum stjórnvalda um auðlindagjald og fiskveiðistjórnunarkerfið.

Höfði opinn almenningi í allt sumar

Reykjavíkurborg hefur ákveðið að opna Höfða fyrir gestum og gangandi á morgun og verður húsið opið í allt sumar milli klukkan 11 og 16 virka daga. Húsið hefur verið notað sem vettvangur fyrir gestamóttökur á vegum borgarinnar og aðeins verið opið fyrir gesti á menningarnótt Reykjavíkurborgar. En nú verður breyting á og allir áhugasamir eiga þess kost að skoða húsið frítt en tekið er við frjálsum framlögum á staðnum.

Aratúnsmálið flutt fyrir Hæstarétti

Málflutningur fór fram í svokölluðu Aratúnsmáli fyrir Hæstarétti í dag. Í málinu er blaðamaður DV, Jón Bjarki Magnússon, krafinn um bætur vegna umfjöllunar hans um nágrannaerjur í Aratúni.

Sýslumaður synjar lögbannskröfu á Landsbankann

Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur synjað lögbannskröfu Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmanns neytenda gegn Landsbankanum. Í lögbannskröfunni var farið fram á að stöðvuð yrði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána, vegna þeirrar miklu óvissu sem uppi er varðandi lánin sem Hæstiréttur hefur dæmt ólögmæt, og endurútreikninga þeirra.

Eftirlýsti klámmyndaleikarinn sást í París

Kanadíski klámmyndaleikarinn sem grunaður er um hrottalegt morð er sagður hafa sést tvisvar sinnum í Frakklandi um helgina. Sömuleiðis hefur lögreglan numið merki úr farsíma hans og rakið þau til Parísar. Því bendir allt til þess að hann hafi flúið til Frakklands. Ekki er vitað hvort hann er enn staddur þar eða hvort hann hefur haldið áfram.

Alþjóðaflugvöllur í Líbíu umkringdur

Vopnaður flokkur umkringdi í dag millilandaflugvöll Líbíu í Tripolí. Hópurinn hefur krafist lausnar eins af leiðtogum sínum sem hvarf fyrir tveimur dögum. Aðgerðirnar eru hugsaðar til að vekja athygli á kröfunum. Fyrir vikið hefur öllu flugi verið beint á herflugvöll landsins.

Vistvænar byggingar ryðja sér til rúms hér á landi

Huga þarf betur að byggingarefni og hönnun til að þær uppfylli kröfur um vistvænar byggingar. Fyrirsjáanlegar eru breytingar í takt við Evrópureglugerðir. Nýr skóli í Mosfellsbæ verður vistvæn bygging.

Uppreisnarmenn fella 80 stjórnarliða

Um 80 stjórnarliðar létust í átökum í Sýrlandi um helgina. Það ku vera mesta mannfall sem stjórnarherinn hefur þolað í einu síðan uppreisnin hófst í mars árið 2011.

Tveir krúttlegir kópar

Tveir landselkópar svamla nú um í selalauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Tvær af þremur urtum garðsins kæptu sitt hvoru megin við sjómannadaginn.

Vilja ekki muna atburðina á Torgi hins himneska friðar

Nú eru 23 ár frá fjöldamorðunum í Kína á Torgi hins himneska friðar. Þá stöðvuðu kínversk stjórnvöld fjölmenn mótmæli með hervaldi. Í dag hafa stjórnvöld í Kína handtekið aðgerðarsinna og aukið alla gæslu til að koma í veg fyrir að minnt verði á atburðina.

Þrjátíu ökumenn stöðvaðir á nagladekkjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjátíu ökumenn um helgina sem voru á bílum á nagladekkjum. Það er óheimilt á þessum árstíma. Þeim verður gert að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur þetta verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum.

Hrædd um að ekkert samráð hafi verið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist hrædd um að ekki hafi verið haft samráð við sjómenn og landverkafólk þegar ákveðið var að gera hlé á veiðum. Útgerðarmenn séu í pólitísku verkfalli sem feli í sér ólögmæta árás á stjónvöld.

Síðasti góðviðrisdagurinn í bili

Síðasti góðviðrisdagurinn í bili virðist vera í dag. Á morgun kólnar hressilega. Einnig er útlit fyrir úrkomu og jafnvel slyddu á hálendinu. Dæmalaus blíða hefur leikið við Íslendinga að undanförnu. "Já, þessir síðustu dagar hafa verið sérlega góðir og óvenjulega heiðríkir," segir Einar Magnús Einarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann sér ekki fram á svipaðan kafla í bráð svo Íslendingar geta lagt sólgleraugun á hilluna í bili frá og með morgundeginum.

Starfsmenn fá greitt þótt skipin verði í landi

Útvegsmenn segja að allir, sem eigi rétt á launum í vikunni, fái þau greidd þótt skip liggi við land á næstu dögum. Þeir hafna því þeirri fullyrðingu Alþýðusambands Íslands að áform þeirra feli í sér ólöglegt verkbann.

Leita að Rebekku Rut

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rebekku Rut Baldvinsdóttur, 15 ára. Talið er að hún sé klædd í dökka hettupeysu, Rebekka, er 156 sentimetrar á hæð og samsvarar sér í vaxtarlagi, eins og lögreglan orðar það. Hún er með blá augu og sítt ljóst hár. Síðast er vitað um ferðir hennar í Grafarvogi þegar hún fór í skóla á föstudagsmorgun. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Rebekku eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.

ASÍ íhugar málshöfðun vegna aðgerða útgerðarmanna

Alþýðusamband Íslands áskilur sér rétt til að höfða mál gegn útgerðarmönnum láti þeir verða af fyrirhugaðri vinnustöðvun. Í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í morgun kemur fram að þetta eigi líka við um aðildarsamtök og einstaka félagsmenn. Til greina komi að krefjast skaðabóta og sekta ef aðgerðirnar koma til framkvæmda. Gylfi Arnbjörnsson sagði á laugardag að skildi hann ákvörðun LÍÚ rétt þá væri sambandið að beita Alþingi félagslegri aðgerð til þess að þvinga fram breytingar á áformum um breytingar á lögum. "Þetta gerðu þeir líka fyrir ári í tengslum við sömu deilu við gerð kjarasamninga," bætti Gylfi við.

Fjórir menn dæmdir fyrir að skipuleggja árás á JP

Dómstóll í Danmörku dæmdi í morgun fjóra menn seka um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárás á skrifstofur dagblaðsins Jyllands-Posten í Kaupmannahöfn. Mennirnir voru handteknir í árslok 2010. Fram kom í réttarhöldunum að mennirnir ætluðu sér að bana stórum hópi fólks til að hefna fyrir skrípamyndirnar sem blaðið birti af Múhameð spámanni árið 2005. Mennirnir voru allir múslimar sem búsettir voru í Svíþjóð. Refsing yfir þeim hefur ekki verið ákveðin en saksóknarar krefjast sextán ára fangelsis.

Áhöfn Bylgju fékk verðlaun frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg

Áhöfn Bylgju VE 75 hlaut viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í gær, á sjómannadaginn, fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Skipstjóri er Óskar Matthíasson og tók hann á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar frá Herði Má Harðarsyni formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viðurkenningin sem veitt er árlega er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkomandi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Áhöfnin á Bylgju VE hlaut viðurkenninguna einnig árið 2007.

Orkan og Atlantsolía lækkuðu verð

Orkan lækkaði bensínverð um tvær krónur í morgun og Atlantsolía um sömu upphæð skömmu síðar. Bensínlítrinn hjá þessum félögum kostar nú röskar 248 krónur. Verð á Dísilolíu er óbreytt hjá báðum félögunum og er það nú alveg álíka og bensínverðið. Félögin lækkuðu bensínverðið um þrjár krónur fyrir helgi þannig að það hefur lækkað um samtals fimm krónur á nokkrum dögum. Þessar lækkanir koma í kjölfar lækkunar á heimsmarkaði, en þær héldu enn áfram í morgun.

Réttað yfir Hauki í þriðja sinn í sama máli

Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ákæruvaldsins gegn Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þetta er í þriðja skiptið sem aðalmeðferð fer fram í málinu gegn honum, því Hæstiréttur hefur tvisvar sinnum vísað málinu heim í hérað.

Assad líkir stjórnarhernum við skurðlækni

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, líkir aðgerðum stjórnarhersins í landinu við tilraunir skurðlækna til að bjarga mannslífum. Herinn hefur staðið fyrir fjöldamorðum og pyndingum að undanförnu.

Par reyndi að ræna apótek á Akureyri

Ekki hefur enn verið hægt að yfirheyra karl og konu á þrítugsaldri, sem handtekinn voru eftir ránstilraun í apóteki á Akureyri í gær, þar sem fíkniefnavíma er ekki runnin af þeim.

Þyrla sótti slasaðan norskan togarasjómann

Þyrla Gæslunnar kom til Reykjavíkur um klukkan hálf níu í gærkvöldi með norskan sjómann, sem hafði slasast um borð í togara, þegar hann var að veiðum á Reykjaneshrygg.

Facebook skoðar kaup á Opera

Verð hlutabréfa í norska vafraframleiðandanum Opera rauk upp í kjölfar þess að tæknivefsíðan Pocket-Lint greindi frá því að Facebook hefði áhuga á að kaupa fyrirtækið. Fyrirtækið Opera Software var stofnað af hinum íslenskættaða Jóni S. Von Tetzchner árið 1994. Hann gegndi lengst af stöðu forstjóra en lét af störfum hjá fyrirtækinu á síðasta ári. Ríflega 200 milljónir manna nota Opera-vafrann.

Gefa dagþjónustu öryggiseftirlit

Dagþjónustunni fyrir fatlaða við Gylfaflöt í Grafarvogi hefur borist aðstoð víða að úr samfélaginu í kjölfar frétta um skemmdarverk í útivistargarði þjónustunnar.

Samningar að nást um hótel

Samningaviðræður við forsvarsmenn svissnesks fjárfestingafélags um byggingu hótelbyggingar við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu eru langt komnar, en Marriott-hótelið sem rísa mun á svæðinu verður langdýrasta hótel landsins.

Kirkjan í Grafarvogi skuldar 600 milljónir

Við borgum bara og borgum en lánin bara hækka,? segir Bjarni Kr. Grímsson, formaður sóknarnefndar Grafarvogskirkju um ríflega 600 milljóna króna skuld safnaðarins. Bjarni segir skuldina tilkomna vegna byggingar Grafavogskirkju sem var vígð árið 2000. Um sé að ræða verðtryggð lán sem hækkað hafi um 150 milljónir króna eftir hrunið 2008.

Siglir í sumar um Diskóflóa

Skipið Fram frá norska skipafélaginu Hurtigruten hafði viðkomu í Reykjavík á föstudag á leið sinni til Grænlands. Fram siglir í sumar um Diskóflóa undan vesturströnd Grænlands þar sem farþegar koma við í þorpum og öðrum athyglisverðum stöðum. Fram er sérútbúið til ferða á heimskautasvæðum og er nefnt eftir skipi landkönnuðarins Roalds Amundsen.- þj

Dúxinn úr MR með 9,83 í meðaleinkunn

„Ég hef notið þess öll árin í MR að vera með frábæra kennara sem hafa vakið áhuga á námsgreinunum og kennt þær vel,“ segir nýstúdentinn Hólmfríður Hannesdóttir, beðin um að uppljóstra leyndarmálinu að baki þeim árangri að útskrifast með 9,83 í meðaleinkunn af eðlisfræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík. Það er fjórða hæsta einkunn sem gefin hefur verið í sögu skólans. Til viðbótar við það að hafa góða kennara segir Hólmfríður árangurinn byggja á heldur einfaldri formúlu: Að skipuleggja sig og nýta tímann vel.

Sjá fyrir sér hagstofu atvinnulífsins

Meðal þess sem horft er til með sameiningu hagsmunasamtaka sem starfa fyrir atvinnulífið er að búa til öfluga hagdeild, nokkurs konar hagstofu atvinnulífsins. Samkvæmt heimildum blaðsins er í yfirstandandi viðræðum einna helst horft til þess að sameina með einhverjum hætti starfsemi Samtaka atvinnulífsins (SA) og Viðskiptaráðs Íslands (VÍ). Greint var frá því í blaðinu 10. þessa mánaðar að þreifingar hefðu átt sér stað á vettvangi samtakanna um nánara samstarf.

Gleymdi barni á þaki bílsins

Betur fór en á horfðist þegar hin nítján ára gamla Catalina Clouser frá Phoenix í Arizonaríki gleymdi fimm vikna gömlum syni sínum í bílstól uppi á þaki bíls síns áður en hún ók af stað, seint á föstudagskvöld.

Sjá næstu 50 fréttir