Innlent

Laxagöngur hafnar

Lax er víða farinn að ganga í helstu árnar, að því er fram kemur á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur, en veiðar hefjast í Norðurá á þriðjudagsmorgun. Nú þegar hefur sést til laxa í Elliðaánum, Laxá í kjós, Flókadalsá í Borgarfirði og neðarlega í Hvítá í Borgarfirði hefur sést heil torfa, sem líklega mun dreyfa sér í borgfirsku árnar. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar spá góðri veiði í sumar, þótt líklega verði þetta ekki met ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×