Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krísa í Hollywood Hollywood virðist hafa glatað sjarmanum á þessu ári. Ekki hafa færri heimsótt kvikmyndahús í Bandaríkjunum í 16 ár. 29.12.2011 21:15
Erfið færð á flestum vegum landsins Hálka og snjóþekja er á flestum vegum landsins um þessar mundir. Vegagerðin ræður fólki eindregið frá því að ráðast í ferðalög seint á kvöldin við svona aðstæður enda má búast við að flestir vegir teppist þegar líða tekur á kvöldið. Þjónusta er á ákveðnum vegum alla nóttina, til að mynda eru Reykjanesbrautin og Hellisheiðin ruddar reglulega. Þjónusta á öðrum vegum kann að leggjast niður yfir nóttina. 29.12.2011 20:52
Búast við norðurljósasýningu á næstu dögum Í kjölfar mikillar virkni á yfirborði sólarinnar er talið að fjarskiptakerfi jarðar verði fyrir röskunum á næstu dögum. Einnig má búast við norðurljósasýningu á norðurhveli jarðar. 29.12.2011 20:30
Rólegt hjá björgunarsveitum þrátt fyrir snjóinn Þó borgarbúar hafi mátt kljást við óvenju mikið fannfergi í dag og fólk setið pikkfast í sköflum víða var lítið um að vera hjá björgunarsveitum höfuðborgarsvæðisins þrátt fyrir það. Björgunarsveitarmenn voru kallaðir í eitt útkall niður í Neðstaleiti til að hreinsa af gömlum bílskúrsþökum sem voru við það að gefa sig undan snjóþunga. Annars leið dagurinn tíðindalaust. 29.12.2011 20:08
Aldrei of varlega farið með flugelda Ríflega fjörtíu manns, börn og fullorðnir, leituðu á bráðamóttöku Landspítalans síðustu nýársnótt eftir flugeldaslys. Yfirlæknir segir dæmi um að fólk hafi misst sjón og jafnvel augu. Mikilvægt sé að fólk hafi í huga að um eldfim sprengiefni sé að ræða sem þurfi að umgangast með virðingu. Gamlárskvöld er jafnan rólegt framan af á bráðamóttökunni en um leið og áramótaskaupið klárast byrjar fólk að leita á deildina með áverka eftir flugelda. Síðustu nýársnótt leituð að meðaltali fimm á klukkustund á deildina með slíka áverka. 29.12.2011 20:00
Langþráður áramótageisladiskur gefinn út Yfir hundrað og fjörutíu listamenn tóku þátt í að gera plötu sem inniheldur þekkt þrettánda- og áramótalög þjóðarinnar. Gamall draumur að rætast segir útgefandinn. Sigríði Önnu Einarsdóttur hefur lengi dreymt um að eiga áramóta og þrettándadisk til að hlusta á á þessum árstíma. Eftir nokkra bið eftir slíkum disk ákvað hún fyrir tveimur árum að ráðast í þetta verkefni sjálf og fékk yfir hundrað og fjörtíu manns í lið með sér til að gera drauminn að veruleika. 29.12.2011 19:38
RÚV skilar hagnaði Hagnaður varð af rekstri Ríkisútvarpsins ohf. á síðasta rekstrarári. Hagnaðurinn var 16 milljónir króna. Fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var hagnaðurinn metinn 553 milljónir. Þetta er annað rekstrarárið í röð sem rekstur RÚV skilar hagnaði. Þegar rekstrarforminu var breytt árið 2007 var sett að markmiði að ná jafnvægi í rekstri innan tveggja ára. Það markmið náðist og nú er haldið áfram á sömu braut. 29.12.2011 19:09
Kim Jong-un hylltur - myndband Kim Jong-un var miðpunktur allrar athygli á minningarathöfn sem fram fór í Norður Kóreu í dag vegna dauða föður hans. Athöfnin virtist í raun vera táknræn stund þar sem sonurinn tók við völdum, enda var hann hylltur sem "hinn stórkostlegi leiðtogi flokksins, ríkisins og hersins". 29.12.2011 17:47
Stjórnarflokkarnir undirbúa þingflokksfundi Bæði þingflokkur VG og þingflokkur Samfylkingarinar undirbúa sig undir það að halda þingflokksfundi á morgun. Fundurinn í þingflokki Samfylkinarinnar hefur þegar verið boðaður og samkvæmt heimildum fréttastofu hefur þingflokksformaður VG verið í sambandi við þingmenn flokksins til að kanna það hvort þeir geti mætt á fund á morgun ef með þarf. 29.12.2011 17:18
Þór Saari: Náðum ekki samkomulagi um stefnumál "Þetta voru bara fyrst og fremst óformlegar viðræður fremur en samningaviðræður,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar um viðræður sem þingmenn flokksins áttu við forystumenn í ríkisstjórninni um samstarf við stjórnina. 29.12.2011 16:27
Snjómokstur í allan dag Um tíma í dag var allur tiltækur mannskapur við snjóhreinsun í Reykjavík. Stofnleiðir, strætóleiðir og safngötur eru opnar og unnið hefur verið við snjóruðning í húsagötum í öllum hverfum, sem og snjóhreinsun af bílastæðum við leikskóla. 29.12.2011 16:02
Viltu skíra barnið þitt Sólín eða Gunnharða? Það má Mannanafnanefnd samþykkti tíu eiginnöfn. Nefndin hafnaði hinsvegar nafninu Emilia. Hér fyrir neðan má sjá nöfnin sem voru samþykkt: 29.12.2011 15:48
Íslenskir hestar nema land í Arabíu Fimm íslenskar hryssur og einn geldingur voru flutt frá Þýskalandi til Óman við Arabíuskagann í byrjun desember. Þetta eru fyrstu íslensku hestarnir sem hafa numið land í Mið-Austurlöndum, eftir því sem fram kemur á vef hestatímaritsins Eiðfaxa. 29.12.2011 15:38
Breytingar á akstri Strætó um áramótin Breytingar verða á akstri Strætó bs. um áramót, eins og jafnan á stórhátíðum. Á gamlársdag, laugardaginn 31. desember, verður ekið eins og á laugardegi til kl. u.þ.b. 14, en þá hætta vagnarnir akstri. 29.12.2011 15:28
Flugeldaþjófar fundnir Tveir unglingspiltar hafa játað að hafa brotist inn í geymslugám á Akranesi og stolið þaðan flugeldum sem voru í eigu knattspyrnufélags ÍA og Kiwanis á Akranesi. Lögreglunni barst ábending um málið undir hádegi í dag og leiddi það til þess að grunur féll á unglingana, sem samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru undir átján ára aldri. Unglingarnir hafa skilað til lögreglu megninu af því sem stolið var. Einhverju höfðu þeir þó skotið upp og hafa þeir í hyggju að greiða eigendum tjónið hið allra fyrsta. 29.12.2011 14:35
Hreyfingin beðin um að verja ríkisstjórnina falli Viðræður ríkisstjórnarinnar og Hreyfingarinnar standa enn yfir samkvæmt heimildum Vísis. Þreifingar hófust fyrir jól, en það voru þingmenn ríkisstjórnarinnar sem komu fyrst að máli við þingmenn Hreyfingarinnar. Í kjölfarið var komið á fundi á milli oddvita ríkisstjórnarinnar og þingmanna Hreyfingarinnar. Fyrsti fundur var á Þorláksmessu. Umræðuefnið var hvort Hreyfingin væri tilbúin að verja ríkisstjórnina falli kæmi til þess. 29.12.2011 14:06
Dekk sprakk á nefhjóli Það sprakk dekk á nefhjóli á flugvél í eigu Ernis í lendingu um eittleytið í dag. Flugvélin situr nú föst á flugbrautinni en slökkviliðsbíll var sendur út á brautina til að aðstoða við að koma vélinni út af brautinni. Enginn slasaðist við lendinguna. 29.12.2011 13:53
Hreyfingin átti í viðræðum við ríkisstjórnina Þingmenn Hreyfingarinnar hafa undanfarna daga átt í óformlegum viðræðum við oddvita ríkisstjórnarflokkana um helstu áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri og nýrri stjórnarskrá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokki Hreyfingarinnar. 29.12.2011 13:06
Illfært í Reykjavík sem annarsstaðar Það er illfært, eða jafnvel ófært, víðar en á höfuðborgarsvæðinu. Vegagerðin segir að hálka sé á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Ófært er á Mosfellsheiði. Á Suðurlandi er hálka á flestum leiðum þó er þæfingur og snjóþekja á fáfarnari leiðum. Snjóþekja og skafrenningur er við Vík. 29.12.2011 12:47
Borgin leitar að pólskumælandi ráðgjafa Mannréttindaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að ráðinn verði pólskumælandi ráðgjafi innflytjenda í fullt starf. 29.12.2011 12:43
Stálu flugeldum fyrir hundruð þúsunda Flugeldum fyrir nokkur hundruð þúsund krónur var stolið úr gámi á Akranesi í fyrrinótt. Flugeldarnir voru í eigu Kiwanisklúbbsins Þyrils og Íþróttabandalags Akraness. Framkvæmdastjóri ÍA segir þjófnaðinn dapurlegan. 29.12.2011 11:59
Aldrei snjóað jafn mikið á einum degi í desember Þeir sem muna ekki eftir annarri eins snjókomu í desember, hafa á réttu að standa, en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands mældist snjódýptin í morgun 33 sentímetrar. Það er semsagt met. 29.12.2011 11:12
Byrjað að moka í hverfunum "Ég er að horfa hérna út um gluggann. Það er eiginlega ömurlegt að horfa á þetta,“ segir Þorsteinn Birgisson, yfirmaður þjónustumiðstöðvar Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar. Um 50 gröfur og snjóruðningstæki eru að störfum víðsvegar um borgina vegna mikillar ofankomu. Snjórinn er um 40 sentímetra djúpur. 29.12.2011 10:54
Össur vill endurnýja forystu Samfylkingarinnar Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, telur að flokkurinn þurfi að endurnýja bæði forystu sína og hugmyndir sínar fyrir næstu kosningar. Þetta segir hann í samtali við Viðskiptablaðið í dag. 29.12.2011 09:44
Seinkun á innanlandsflugi Seinkun varð á innanlandsflugi hjá Flugfélagi Íslands í morgun vegna þess að ryðja þurfti snjó af flugbrautinni í Reykjavík. Hjá Flugfélaginu fengust þær upplýsingar að flugáætlun ætti að vera komin í eðlilegt horf um ellefuleytið. 29.12.2011 09:21
Björgunarsveitir í rúmlega níutíu útköll í nótt Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu hafa í alla nótt aðstoðað ökumenn á höfuðborgarsvæðinu þar sem færð er nú afleit. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að yfir 90 aðstoðarbeiðnir hafi borist og að í mörgum tilvikum hafi nokkrir bílar verið á bak við hverja tilkynningu. 29.12.2011 08:13
Snjókoma í borginni: Leit að 17 ára pilti og margir ökumenn fastir Mikil snjókoma hefur verið á höfuðborgarsvæðinu síðustu klukkutíma og hafa margir ökumenn fest bíla sína í snjósköflum. Nóg hefur verið að gera hjá björgunarsveitum í nótt. 29.12.2011 02:57
Bardot fékk á sig brot - Steve Irwin til hjálpar Brigitte Bardot, skip náttúruverndarsamtakanna Sea Shepherd, fékk á sig brotsjó í suðurhöfum þar sem það var að reyna að trufla veiðar japanskra hvalbáta. Gat kom á skipið en um tíu eru í áhöfnninni. Flaggskip Sea Shephard, Steve Irwin, er á leið til bjargar en reiknað er með því að það gæti tekið Irwin allt að tuttugu tíma að ná til Bardot. 29.12.2011 11:05
Opið víða á skíðasvæðum landsins Hlíðarfjall á Akureyri er opið í dag. Þar er fínt veður og færi, sjö gráðu frost og logn. Opið verður í fjallinu frá klukkan tíu til sjö í kvöld. 29.12.2011 09:52
Vilja að gistináttaskatti verði frestað eða hann afnuminn Samtök ferðaþjónustunnar skora á ríkisstjórn Íslands að beita sér fyrir því að fallið verði frá eða frestað gildistöku gistináttaskatts þar til raunhæfari lausn finnst. Þetta kemur fram í bréfi frá samtökunum sem hefur verið sent ríkisstjórninni. 29.12.2011 09:33
Óvenju mikið um sjúkraflutninga Óvenjumikið hefur verið að gera í sjúkraflutningum hjá slökkviliðið höfuðborgarsvæðisins frá því í gærkvöld. Frá því klukkan hálfátta í gærkvöld hefur verið farið í 35 sjúkraflutninga í borginni en á sólarhring er meðaltalið um 65 flutningar. Útköllin hafa flest verið vegna veikinda og tengjast ekkert hálku eða ófærðinni í borginni. Hún gerir sjúkraflutningamönnum hinsvegar erfitt fyrir eins og gefur að skilja. 29.12.2011 08:17
Mikið fannfergi í borginni: Ökumenn beðnir um að sýna þolinmæði Mikið snjóaði á höfuðborgarsvæðinu í nótt og beinir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þeim tilmælum til ökumanna að þeir sýni sérstaka tillitsemi og þolinmæði nú í morgunumferðinni. Þungfært er á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. 29.12.2011 06:44
Mesti snjóþungi í áratugi Mikill snjóþungi tók á móti Reykvíkingum í morgun og gerði mörgum erfitt fyrir. Bílar sátu fastir á víð og dreif um borgina og þurftu björgunarsveitarmenn að sinna yfir hundrað útköllum. Stöðumælaverðir og póstburðarmenn fóru ekki varhluta af ástandinu. Fréttastofa Stöðvar 2 tók púlsinn á borgarbúum. 29.12.2011 21:00
Forystumenn stýrðu viðræðum og hluti ríkisstjórnar vissi ekkert Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, stýrðu viðræðum við þingmenn Hreyfingarinnar. Fundirnir voru flestir í stjórnarráðshúsinu og hluti ríkisstjórnarinnar vissi ekkert og þingflokkarnir ekki heldur. 29.12.2011 19:22
Ráðherrabreytingar í bígerð Tillaga um breytingar á ráðherraliði ríkisstjórnarinnar verður lögð fram á þingflokksfundum stjórnarflokkanna á morgun. Helst er rætt um Árna Pál Árnason og Jón Bjarnason en bæði þingflokkar og stjórnir flokkanna þurfa að samþykkja breytingarnar. Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa rætt um það undanfarna daga hvort gera eigi breytingar á ráðherraskipan. Á gamlársdag verður haldinn ríkisráðsfundur, samkvæmt venju, en ráðherraskipti eru jafnan ákveðin formlega á slíkum fundum. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggjast því forystumenn stjórnarflokkana ráðast í breytingarnar á gamlársdag ef af þeim verður. Slíkar breytingar eru þó háðar samþykki þingflokka og flokksstjórna. 29.12.2011 18:39
Pósturinn tefst í dag Pósturinn biður íbúa að moka frá bréfalúgum og póstkössum svo að hægt sé að koma póstinum örugglega til skila í þessari færð sem er í dag. 29.12.2011 11:37
Kvartar til Persónuverndar vegna dagbókar Móðir unglingsstúlku hefur lagt fram kvörtun til Persónuverndar vegna birtingar dagbókar stúlkunnar í Héraðsdómi Norðurlands vestra. Dóttir konunnar kærði lögreglumann á Blönduósi fyrir að hafa káfað á sér innanklæða í fyrra, þegar hún var 15 ára. 29.12.2011 08:00
Snjóamet slegið í höfuðborginni Snjór hefur nú legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess samfleytt frá 26. nóvember. Aldrei áður frá upphafi mælinga hefur snjór verið samfleytt svo lengi á fyrri hluta vetrar, segir Trausti Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. 29.12.2011 07:00
Hæsta tilboð í endurskoðun fjórfalt hærra en lægsta boð Tilboð Deloitte hf. í endurskoðun Kópavogsbæjar árin 2011 og 2012 var nærri fjórum sinnum lægra en kostnaðaráætlun bæjarins og tilboð Ernst Young sem bauð hæst. 29.12.2011 07:00
Íslenskur arkitekt þéttir danska byggð Íslensk-danskt framlag fór með sigur úr býtum í samkeppni um endurskipulag 50 hektara svæðis í sveitarfélaginu Allerød í Danmörku, skammt norður af Kaupmannahöfn. Keppnin er haldin annað hvert ár undir merkjum Europan, en að henni standa 20 Evrópulönd. Þátt geta tekið arkitektar undir 40 ára aldri. Löndin leggja fram svæði sem þarfnast endurskipulagningar og leggja ungir arkitektar fram tillögur um úrvinnslu þeirra. 29.12.2011 06:30
Blaðakassar teknir niður Fréttablaðskassar verða teknir niður fyrir áramót og settir upp aftur á nýju ári. Þetta er gert til að koma í veg fyrir skemmdarverk, en undanfarin ár hefur borið á því að kassar séu sprengdir upp. 29.12.2011 06:00
Fæstar friðlýsingar eru á náttúruverndaráætlun Sjö svæði voru friðlýst á árinu 2011. Aðeins tvö þeirra voru á náttúruverndaráætlun sem samþykkt er af Alþingi. Sveitarfélög og landeigendur eiga frumkvæði að öðrum friðlýsingum. Til skoðunar er að breyta ferli friðlýsinga. 29.12.2011 05:00
Minni umferð um Víkurskarð Meðalumferð um Víkurskarð verður líklega 1.173 bílar á sólarhring á þessu ári, samkvæmt áætlun Vegagerðarinnar. 29.12.2011 04:00
Suðurstrandarvegur ruddur tvisvar í viku Nýr Suðurstrandarvegur hefur í nokkur skipti verið ófær síðan hann var opnaður í haust. Að sögn Vegagerðarinnar er það að hluta til vegna þess að menn voru ekki undir það búnir að þörf væri á mikilli vetrarþjónustu. Vegurinn hefur ekki verið inni á vetrarþjónustuáætlun Vegagerðarinnar til þessa en nú hefur verið bætt þar úr. 29.12.2011 03:30
Borga tæknifrjóvgun fullu verði Hætt verður að niðurgreiða fyrstu tæknifrjóvgun barnlausra para og einhleypra kvenna um áramót. Þá verður alfarið hætt að niðurgreiða tæknifrjóvgunarmeðferðir fyrir fólk sem á barn fyrir, en þátttaka Sjúkratrygginga í þeim tilvikum hefur verið 15 prósent af kostnaði. 29.12.2011 03:00