Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Opið hús í Höfða Dagana 13. - 15. október verður opið hús í Höfða í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá leiðtogafundi Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbatsjevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í húsinu árið 1986. 12.10.2011 14:06
Bænastund vegna umferðarslyssins Bænastund verður í Eskifjarðarkirkju klukkan í átta í kvöld vegna umferðarslyssins sem varð á Fagradal snemma í morgun. Stúlka á átjánda aldursári lést í slysinu og önnur flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll stúlknanna rakst á vörubifreið sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á heilsugæslu á Egilsstöðum minna slasaður. 12.10.2011 14:03
Hillary Clinton hlakkar til að hætta Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar að yfirgefa embætti sitt á næsta ári. Clinton sagðist þrá ró og næði, í núverandi starfi sínu sé slíkur munaður ekki til staðar. 12.10.2011 14:02
Mikið atvinnuleysi í Bretlandi David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segist vera afar vonsvikinn með nýjustu atvinnuleysistölur. Þær sýna 8.1% atvinnuleysi í Bretlandi. Hlutfallið hefur ekki verið jafn hátt í 17 ár. 12.10.2011 13:42
Ég hata þig ekki "Ég hata þig ekki. Ég vil miklu frekar elska þig.“ sagði Sigurður Guðmundsson, 88 ára, við þýska kafbátahermanninn Horst Koske þegar þeir hittust í sýningarskála Íslands á bókamessunni í Frankfurt í dag. Koske, sem er 84 ára, er eini eftirlifandi meðlimur áhafnar þýska U300 kafbáts nasista sem skaut á og sökkti Goðafossi út af Garðskaga hinn 10. nóvember 1944. Sigurður er einn af þeim fjórum úr áhöfn Goðafoss sem enn er á lífi. 12.10.2011 13:05
Brotist inn á flatbökustað Brotist var inn í Flatbökugerð Friðborgar á Þorlákshöfn aðfaranótt mánudags síðastliðins. Þaðan var stolið öllum bjór sem var í kössum, en bjórinn sem var í kæli var skilinn eftir. Þá var skiptimynt tekin úr sjóðsvél og 50" flatskjár var einnig tekinn. Innbrotsþjófarnir hafa ekki verið teknir, samkvæmt upplýsingum Vísis. 12.10.2011 13:03
Nubo fær enga forgangsmeðferð hjá Ögmundi Innanríkisráðherra segir það ekki óeðlilegt að ráðuneytið hafi beðið í fimm vikur með að óska eftir frekar upplýsingum um kínverska fjárfestinn Huang Nubo. Önnur mikilvægari verkefni hafi verið í forgangi í ráðuneytinu. 12.10.2011 12:23
Þýskir hryðjuverkamenn kenna sig við Heklu Þýska lögreglan kom í gær í veg fyrir árás á lestarteina í austur Berlín í gær. Sprengjum hafði verið komið fyrir á þremur stöðum á teinunum en starfsmaður lestakerfisins fann þær áður en þær sprungu og tókst lögreglu að aftengja þær í tíma. Þetta er í þriðja sinn á tveimur dögum sem gerðar eru tilraunir til að gera árásir á lestarkerfið í höfuðborg Þýskalands og röskuðust samgöngur í borginni í tvo tíma vegna málsins. 12.10.2011 12:10
1200 milljóna sparnaður vegna breytinga á fæðingarorlofi Gert er ráð fyrir að framlög ríkisins í Fæðingarorlofssjóð vegna fæðingarorlofs foreldra á vinnumarkaði verði rúmum 1200 milljónum krónum lægri en gert var ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið. 12.10.2011 11:56
iOs 5 uppfærslan kemur í dag Nýjasta stýrikerfis uppfærsla Apple lendir í dag. Uppfærslan, sem kallast iOs 5, hefur fengið góðar viðtökur og fagna notendur hinum 200 nýju möguleikum sem stýrikerfið býður upp á. 12.10.2011 11:53
Banaslys á Fagradal Banaslys varð á níunda tímanum í morgun á Fagradal skammt ofan við Grænafell þegar vörubifreið og fólksbifreið, sem voru að koma úr gagnstæðum áttum skullu saman. 12.10.2011 11:47
Bæjarstjórnin segir ólíðandi að OR framkalli jarðskjálfta Bæjarstjórn tekur undir áhyggjur íbúa vegna síendurtekinna jarðskjálftahrina sem orsakast af niðurdælingu affallsvatns frá Hellisheiðarvirkjun. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 um helgina og í gær ályktaði bæjarstjórnin að það væri með öllu ólíðandi að framkallaðir séu jarðskjálftar af mannavöldum, allt að 3,5 á Richter skala, með fyrrgreindum áhrifum á nærumhverfið. 12.10.2011 11:37
Fangaverðir mótmæla einsmanns vöktum Norrænir fangaverðir gagnrýna harðlega þann hátt sem víða er hafður á í fangelsum á Norðurlöndum að hafa fangaverði eina á vakt. Samtök Norrænna fangavarða halda í dag ráðstefnu í Stokkhólmi og þar voru þessi mál rædd en málið hefur komist í hámæli eftir að kvenfangavörður í Svíþjóð var barin til dauða af fanga. Konan, sem var 25 ára gömul, var alein á vaktinni þegar árásin átti sér stað. 12.10.2011 11:29
Réttargeðdeildinni að Sogni lokað Réttargeðdeildinni að Sogni verður lokað og starfsemi hennar færð á Kleppspítala í Reykjavík. Starfsmönnum var tilkynnt þetta í morgun. 12.10.2011 11:27
Forseti Ítalíu gagnrýnir ríkisstjórn Berlusconi Forseti Ítalíu, Giorgio Napolitano, lýsti í dag yfir áhyggjum sínum varðandi hæfni ríkisstjórnar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra. Napolitano velti því fyrir sér hvort að stjórn landsins geti tekist á við erfitt efnahagsástand Ítalíu. 12.10.2011 11:18
Margeir Pétursson sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Margeir Pétursson ehf,, eignarhaldsfélag Margeirs Péturssonar athafnamanns, af kröfu Arion banka um að félagið skyldi greiða bankanum 60 milljónir króna vegna yfirdráttarheimildar sem tekin var hjá Búnaðarbankanum, sem nú heitir Arion, árið 1995. Jafnframt var Margeir sjálfur sýknaður af kröfu um að hann skyldi greiða 50 milljónir króna vegna sjálfsskuldaábyrgð í tengslum við lánin. 12.10.2011 11:12
Búið að opna í Fagradal Vegurinn um Fagradal hefur verið opnaður fyrir umferð en þar varð í morgun alvarlegt umferðarslys þegar fólksbíll og vörubíll skullu saman. Í tilkynningu frá lögerglu segir að nokkrar tafi geti orðið á umferðinni enn um sinn þar sem lögregla er enn við vinnu á staðnum. Nánar verður greint frá tildrögum slyssins síðar. 12.10.2011 11:09
Beblawi dregur afsögn til baka Hazem el-Beblawi, fjármálaráðherra Egyptalands, hefur dregið til baka afsögn sína. Í gær tilkynnti hann ætlun sína um að segja stöðu sinni lausri, gerði hann þetta í mótmælaskyni við meðhöndlun herstjórnar Egyptalands vegna mótmæla á sunnudaginn þar sem 25 manns létu lífið. 12.10.2011 10:59
Vilhjálmur hársnyrtir látinn Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, hársnyrtir, er látinn 58 ára að aldri. Vilhjálmur fæddist í Reykjavík 6. janúar 1953. Foreldrar hans voru Valgerður Oddný Ágústsdóttir og Vilhjálmur Pálsson. 12.10.2011 10:45
Fólksbíll og vörubíll rákust saman Vegurinn um Fagradal er enn lokaður vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð á veginum á níunda tímanum í morgun. Slysið varð með þeim hætti að fólksbíll og vörubíll sem voru að koma úr gagnstæðri átt rákust saman. Mjög mikil hálka var á veginum þar sem slysið varð en ekki snjór. Lögregla og viðbragðsaðilar eru enn á vettvangi og ekki hafa fengist upplýsingar um hve margir voru í bílunum eða hve margir eu slasaðir. 12.10.2011 10:17
Mannskæðar árásir í Bagdad 23 hafa látist í röð sprengjuárása í Bagdad í dag. Árásirnar beindust aðallega að byggingum og starfsmönnum lögreglunnar í borginni. 12.10.2011 10:13
Össur fundaði með Guido Westerwelle í Frankfurt Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í gær fund með Guido Westerwelle utanríkisráðherra Þýskalands en fundurinn fór fram á Bókamessunni í Frankfurt þar sem Ísland er heiðursþjóð. 12.10.2011 10:07
Snjómaðurinn ógurlegi er í Síberíu Hópur vísindamanna kom saman í Kemerovo í Síberíu í síðustu viku. Markmiðið var að rannsaka nýjar vísbendingar sem komið hafa fram sem varpa nýju ljósi á hugsanlega tilvist snjómannsins ógurlega. Vísindamennirnir sögðust hafa fundið fótsport og hugsanlegt greni dýrsins, ásamt því að finna mikið af hárum. 12.10.2011 09:46
Óska eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Umsækjendur um stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins hafa óskað eftir rökstuðningi fyrir ráðningu Páls Magnússonar í stöðu forstjóra stofnunarinnar. Páll Magnússon, fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, var ráðinn í starfið en hann er með BA próf í guðfræði og meistarapróf í opinberri stjórnsýslu. Aðrir umsækjendur höfðu menntun sem var sérsniðnari að störfum í bankakerfinu. 12.10.2011 09:45
Romney sigurvegari í kappræðum í gær Kappræður voru haldnar í New Hampshire í gær. Átta frambjóðendur Repúblikana komu saman til að berjast um útnefningu flokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. 12.10.2011 09:34
Icesave atkvæðagreiðslan kostaði 245 milljónir Þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesavelögin þann 9. apríl í fyrra, eftir að forseti synjaði þeim í annað sinn, kostaði 245 milljónir króna. Þetta kemur fram í fjáraukalagafrumvarpi fyrir síðasta ári, sem dreift var á Alþingi í gær. 12.10.2011 09:15
Slys í Fagradal - vegurinn lokaður Bílslys varð á leiðinni á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun. Vegurinn um Fagradal er lokaður af þessum sökum. Að sögn lögreglu er ekki unnt að veita nánari upplýsingar um slysið eða tildrög þess að svo stöddu. 12.10.2011 09:13
Umræðan um hæð Sarkozy blossar upp að nýju Umræða um hæð Nicolas Sarkozy forseta Frakklands hefur blossað upp að nýju í Frakklandi en málið þykir afar viðkvæmt fyrir forsetann. 12.10.2011 08:16
Fangaskipti hjá Ísraelsmönnum og Hamas Stjórnvöld í Ísrael og Hamas samtökin hafa komist að samkomulagi um fangaskipti. Þau fela í sér að 1.000 palistínskir fangar verða látnir lausir úr fangelsum í Ísrael í skiptum fyrir einn ísraelskan hermann. 12.10.2011 08:14
Tveir handteknir eftir innbrot í Fossvogsskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handsamaði tvo karlmenn um tvítugt, eftir að þeir höfðu brotist inn í Fossvogsskóla og voru á leið þaðan. 12.10.2011 08:05
Skipstjórinn á Nýja Sjálandi handtekinn og ákærður Skipstjóri flutningaskipsins sem strandaði við Nýja Sjáland fyrir viku síðan hefur verið handtekinn og ákærður fyrir vítavert gáleysi við stjórn skipsins. 12.10.2011 08:03
Veðurstofan varar við stormi í dag Veðurstofan varar við suðaustan stormi, eða meira en 20 metrum á sekúndu og hvössum vindhviðum við fjöll suðvestanlands fram eftir degi. Jafnframt er spáð mikilli rigningu. 12.10.2011 07:55
Mótmælin gegn fjármálakerfinu breiðast út til London Mótmæli almennings gegn bönkum og fjármálastofnunum í Bandaríkjunum hafa breiðst út til Englands. Búið er að boða til svipaðra mótmæla fyrir utan kauphöllina í London á laugardaginn kemur. 12.10.2011 07:52
Aðstoðuðu vegfarendur á Fjarðarheiði Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða vegfarendur um Fjarðarheiði á milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar. þar var snjór, mikil hálka og óvanir erlendir ferðamenn á ferð á vanbúnum bílum. 12.10.2011 07:46
Leita að konu í höfninni í Kaupmannahöfn Umfangsmikil leit að konu í höfninni í Kaupmannahöfn hefst í birtingu en talið er að konan hafi stokkið í höfnina, nálægt Fisketorvet, seint í gærkvöldi. 12.10.2011 07:44
Tæp 90% telja ráðningu Páls Magnússonar óeðlilega 89 prósent þeirra landsmanna, sem tóku afstöðu, telja að óeðlilega hafi verið staðið að ráðningu Páls Magnússonar bæjarritara Kópavogsbæjar í stöðu forstjóra Bankasýslu ríkisins. 12.10.2011 07:39
Slóvakía hafnaði stækkun stöðugleikasjóðs ESB Þing Slóvakíu hafnaði í gærkvöldi tillögu um að stækka svokallaðan stöðugleikasjóð Evrópusambandsins. 12.10.2011 07:36
Íslendingar þykja harðir og óbilgjarnir í samningum við ESB Þeir Íslendingar sem semja um sjávarútvegsmál þykja harðir og óbilgjarnir í viðræðum sínum við Evrópusambandið. 12.10.2011 07:25
Þjóðlenduúrskurður á leið fyrir dómstóla Óbyggðanefnd hefur úrskurðað níu svæði á Tröllaskaga sem þjóðlendur og afrétt. Deilt var um fjórtán svæði. Nefndin segir eitt svæðanna að auki vera þjóðlendu og afrétt að hluta. Fjögur svæði séu hins vegar eignarlönd. 12.10.2011 06:00
Harmsaga að málinu hafi ekki verið svarað strax þjóðkirkjan Biskupsstofa sendi frá sér yfirlýsingu í gær í kjölfar viðtals við Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur á sunnudagskvöld. Karl Sigurbjörnsson biskup hefur ekki viljað svara spurningum fjölmiðla, hvorki fyrir né eftir að yfirlýsingarnar voru sendar út. 12.10.2011 06:00
Neitaði sök í manndrápsmáli Tæplega fertugur karlmaður, Redouane Naoui, neitaði sök við fyrirtöku máls í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni, þar sem hann er sakaður um manndráp. Naoui bar við minnisleysi um þá atburði sem áttu sér stað í júlí á veitingastaðnum Monte Carlo í Reykjavík, þar sem maður var stunginn með hnífi og lést síðan af völdum áverkanna. 12.10.2011 05:45
Karl að kjólameistara eftir hálfrar aldar hlé „Það kom mér á óvart en þannig er þetta víst,“ segir Kjartan Ágúst Pálsson sem útskrifast sem fyrsti íslenski karlkyns kjólameistarinn í 55 ár. 12.10.2011 05:30
Enn deila þingmenn um virkjanir og vernd - fréttaskýring Stjórnarandstaðan gagnrýndi ríkisstjórnina á þingi í gær fyrir aðgerðaleysi í virkjanamálum. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var málshefjandi og lagði til grundvallar skýrslu um efnahagsleg áhrif af rekstri og arðsemi Landsvirkjunar til ársins 2035. 12.10.2011 04:00
Þjóðverjar styðja hraðara ferli í viðræðum Íslendinga og ESB Allir kaflar í samningaviðræðum Íslands og Evrópusambandsins verða opnir til umræðu eða lokið um mitt næsta ár, ef óskir Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra ná fram að ganga. Hann ítrekaði þær við Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, á fundi í gær og tók sá síðarnefndi vel í þær hugmyndir. 12.10.2011 03:45
Sökuð um að stela sex milljónum Kona á fertugsaldri hefur verið ákærð fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir stórfelldan fjárdrátt. 12.10.2011 03:30
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent