Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kveiktu viljandi í fornri kirkju Fjögur ungmenni stóðu á bak við brunann þegar Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola í janúar síðastliðnum. Þetta upplýsti Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfirði, á bloggsíðu sinni í gær. Segir Þórhallur að ungmennin hafi farið til Krýsuvíkur í þeim eina tilgangi að kveikja í kirkjunni, sem var byggð árið 1857. 24.9.2010 05:00
Stjórnin enn með minnihluta Endanlegar niðurstöðutölur þingkosninganna í Svíþjóð skiluðu stjórnarflokkum Fredriks Reinfeldt forsætisráðherra samtals 173 þingsætum, en þá vantar tvö sæti upp á þingmeirihluta. 24.9.2010 04:15
Hótaði að skera börnin á háls Karlmaður um tvítugt hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í sjö mánaða fangelsi, þar af fjóra á skilorði, fyrir fjölda brota. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að hrækja á lögreglumann, hóta honum og öðrum lögreglumönnum lífláti og að skera börn þeirra á háls. 24.9.2010 04:00
Fékk blóðfall Skákmeistarinn Boris Spasskí fékk heilablóðfall um síðustu helgi og liggur alvarlega veikur á sjúkrahúsi í Moskvu, lamaður öðru megin. Rússneskir fjölmiðlar segja hann hafa fundist meðvitundarlítinn í rúminu í íbúð sinni í Moskvu síðastliðinn laugardag. 24.9.2010 03:15
Höfnuðu banni við olíuborun Evrópuríki höfnuðu í gær tillögu frá Þýskalandi um að bann yrði lagt við olíuborun á grunnsævi í Norður-Atlantshafinu. Tillagan var lögð fram á fundi umhverfisráðherra fimmtán Evrópuríkja með umhverfisstjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sem haldinn var í Osló í gær. Tilefni tillögunnar voru áhyggjur vegna olíulekans í Mexíkóflóa, sem stóð mánuðum saman í vor og sumar. - gb 24.9.2010 03:00
Danir setja hundrað milljónir í fyrstu mynd Rúnars Einsdæmi þykir að kvikmyndaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson fái hundrað og fjórar milljónir króna í styrk fyrir myndina The Volcano frá kvikmyndasjóðnum New Danish Screen, sem er stofnun innan dönsku kvikmyndamiðstöðvarinnar. 24.9.2010 00:01
Gengu út undir ræðu Ahmadinejads Fulltrúar Bandaríkjanna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu út þegar Mahmoud Ahmadinejad forseta Írans fullyrti að bandarísk stjórnvöld hafi staðið á bak við hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Níu ár eru liðin frá því að ráðist var á Tvíburaturnana í New York og varnarmálaráðuneytið í Pentagon með þeim afleiðingum að á þriðja þúsund óbreyttra borgara fórust. 23.9.2010 21:58
Sigmundur Ernir: Embættismenn eiga ekki að ráða „Embættismenn hafa ekki lýðræðislegt umboð og nema, að ég tel, síður hjartslátt þjóðarinnar en þingmenn. Embættismenn eiga ekki að ráða löggjöfinni. Framkvæmdavaldið má þó hafa tillögurétt að nýjum lögum. En ekki meir,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar. Hann hyggt leggja fram tillögu ásamt Pétri H. Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um aukið sjálfstæði Alþingis. 23.9.2010 20:45
Facebook í vandræðum Vegna bilanna komast fjölmargir notendur samskiptavefsins Facebook ekki inn á síðuna þessa stundina. Ekki liggur fyrir hvað orsakar vandræðin. 23.9.2010 20:40
Ráðherra fagnar áhuga Reykjavíkurborgar Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, fagnar áhuga Reykjavíkurborgar á samstarfi um útfærslu á þjónustu heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins enda sé það í samræmi við óskir hans um að heilsugæslan eigi samvinnu við borgina. 23.9.2010 20:15
Bjarni Ben opinn fyrir viðræðum um myndun nýs meirihluta á Alþingi Formaður Sjálfstæðisflokksins er opinn fyrir viðræðum um myndun nýs meirihluta á Alþingi og útilokar ekki samstarf við Samfylkinguna. Hann segist skynja óánægju meðal þingmanna stjórnarflokkanna en segir hins vegar engar viðræður hafa átt sér stað. 23.9.2010 18:30
„Peningar vaxa ekki á neinum trjám í Reykjavík“ Peningarnir vaxa ekki á trjánum í Reykjavík segir formaður velferðarráðs sem fyrr í vikunni felldi tillögu um að auka fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Sveitarfélagið eigi ekki eitt og sér að glíma við fátæktina. 23.9.2010 19:16
Tugir skattamála voru í biðstöðu vegna Jóns Ásgeirs og félaga Tugir skattamála sem hafa verið í biðstöðu á meðan beðið var dóms í skattamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessarsonar og viðskiptafélaga hans, komast aftur á skrið í dómskerfinu eftir að Hæstiréttur hafnaði að fella niður ákæru í málinu. Fjárhæðirnar í málunum hlaupa á tugum milljóna króna. 23.9.2010 19:02
Steingrímur J. bauð fram aðstoð við hugmyndafræðilega endurnýjun Viðskiptaráðs Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segir að samtökin hafi farið of geyst fyrir bankahrunið og verið of meðvirk með útrásarvíkingum. Fjármálaráðherra gagnrýnir samtökin fyrir að líta ekki í eigin barm og bauð fram aðstoð við hugmyndafræðilega endurnýjun samtakanna. 23.9.2010 18:45
Rússar vilja Drekann Þótt Ísland geri engar kröfur um yfirráð á Norðurheimskautinu gæti landið haft umtalsverðar tekjur af umsvifum sem þar verða á komandi árum. Pútín Rússlandsforseti lýsir áhuga rússneskra orkufyrirtækja á olíuleit á Drekasvæðinu. 23.9.2010 18:43
Upplýst um frambjóðendur í byrjun nóvember Landskjörstjórn mun upplýsa fyrir 3. nóvember næstkomandi hverjir bjóða sig fram til stjórnlagaþings en framboðsfrestur rennur út 18. október. Í tilkynningu frá dóms- og mannréttindaráðuneytinu kemur fram að þingið skuli skipað minnst 25 og mest 31 þjóðkjörnum og persónukjörnum fulltrúa. Þeir sem ætla að bjóða sig fram verða að vera með minnst 30 meðmælendur en kosið verður til þingsins þann 27. nóvember næstkomandi. 23.9.2010 18:28
Tíu keppa um að verða matreiðslumaður ársins Forkeppnin um hinn eftirsótta titil „Matreiðslumaður ársins 2010" hófst í morgun í Vetrargarðinum í Smáralind. Alls taka 10 keppendur þátt. 23.9.2010 18:12
Gjaldeyristekjurnar dafna í Dýrafirði Þrjúhundruð þúsund regnbogasilungar vaxa nú upp í sjókvíum á Dýrafirði, sem vonast er til að breytist í sex til sjöhundruð milljóna króna útflutningsverðmæti og skapi tíu störf á Þingeyri. 23.9.2010 18:05
Mugabe svæfði Össur Robert Mugabe, forseta Zimbabwe, tókst að svæfa Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og sendinefnd Íslands á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna þegar hann tók til máls í gær. Fjallað er um málið á þýska fréttavefnum Die Ziet en myndin sem birtist með fréttinni hefur vakið mikla athygli. 23.9.2010 17:49
Sjálfstæðismenn vilja ræða önnur mál Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sendi Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf í morgun þar ítrekuð var krafa formanns flokksins frá því í gær um að rædd verði áríðandi mál sem brenna á þjóðinni á meðan þingnefndir fjalla um þingsályktanir um málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Ásta hefur ekki svarað bréfinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. 23.9.2010 17:27
Barnaníðingur á áttræðisaldri í tveggja ára fangelsi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdómi yfir Sveinbirni Tryggvasyni fyrir að misnota stúlku frá fjórtán ára aldri til átján ára. 23.9.2010 16:37
Börn náttúrunnar sýnd í Malaví Börn náttúrunnar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, verður sýnd á kvikmyndahátíð í Malaví sem er að hefjast. Þetta er önnur kvikmyndahátíðin sem haldin er í landinu. 23.9.2010 16:18
Sjófugli fækkar við Ísland Sjófuglinum stuttnefju hefur fækkað um 44 prósent hér við land frá miðjum níunda áratugnum. Fýl og langvíu hefur á sama tíma fækkað um 30 prósent, álku um 18 prósent og ritu um 16 prósent. 23.9.2010 16:03
Makaskiptarar og striplingar í stríði Strandbærinn Cap d'Agde á suðurströnd Frakklands er stundum kallaður berrassaði bærinn vegna hins mikla fjölda striplara sem þangað sækja til þess að baða sig naktir og liggja í sólinni. 23.9.2010 15:44
Máttu greina frá aksturstíma og ökuleið í rannsóknarskýrslu Íslenska ríkið var sýknað af skaðabótakröfu karlmanns í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 23.9.2010 15:30
Bátur laus af strandstað Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt sunnan við Raufarhöfn. Björgunarsveitirnar Pólstjarnan frá Raufarhöfn og Hafliði frá Þórshöfn voru kallaðar út auk þess sem björgunarskip Landsbjargar, Gunnbjörg frá Raufarhöfn var á staðnum. 23.9.2010 14:31
Fidel Castro styður Ísraelsríki Fidel Castro fyrrverandi forseti Kúbu varði tilverurétt Ísraelsríkis í viðtali við bandaríska tímaritið The Atlantic. 23.9.2010 14:18
Forsetinn fundaði með Putin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fundaði í dag með Vladimir Putin, forsætisráðherra Rússlands, í Rússlandi í dag. Þar eru þeir staddir á Alþjóðaþingi um Norðurslóðir sem haldið er í Moskvu. 23.9.2010 14:10
Strandaði nálægt Raufarhöfn Bátur með fjóra í áhöfn strandaði í dag rétt fyrir utan höfnina í Raufarhöfn. Að sögn lögreglu er Landhelgisgæslan í viðbragðsstöðu og lögreglumaður er á leið á vettvang. Að því er fram kemur á mbl.is eru fjórir í áhöfn bátsins. 23.9.2010 13:36
Stígamót þurftu að loka á sex stöðum á landsbyggðinni Konur á landsbyggðinni hafa minni möguleika á að leita sér aðstoðar vegna ofbeldis í nánum samböndum en konur á höfuðborgarsvæðinu. Fjárhagur þeirra félaga sem aðstoða konur sem eru beittar ofbeldi er af mjög skornum skammti og fer minnkandi. 23.9.2010 13:35
Dæmdur fyrir að hóta að skera börn lögreglumanns á háls Tvítugur maður var dæmdur í sjö mánaða fangelsi meðal annars fyrir að hóta að skera börn lögreglumanns á háls. 23.9.2010 13:32
Steingrímur J: Ranghugmyndir hafa litað skattaumræðuna Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ranghugmyndir hafi litað umræðu um skatta á síðustu misserum. Að hans mati setja ranghugmyndirnar nokkuð mark sitt á tilllögur forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands í skattamálum. 23.9.2010 13:19
Bæjarstjóranum óheimilt að framsenda læknisvottorð starfsmanns Ásgerði Halldórsdóttur, bæjarastjóra Seltjarnarnesbæjar, var ekki heimilt að framsenda læknisvottorð starfsmanns sem sakar hana um einelti, á nokkra lykilstarfsmenn bæjarins að mati Persónuverndar. 23.9.2010 12:59
Jón Stóri gæti krafið ríkið um skaðabætur Fari svo að rannsókn á máli gegn Jóni Hilmari Hallgrímssyni, eða Jóni Stóra, verði látið niður falla eða hann sýknaður af ákæru um ofbeldi gegn kúbverskum feðgum getur hann átt skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Jón hefur verið sakaður um að hafa 23.9.2010 11:37
Íslendingar seinir þegar kemur að innleiðingu löggjafar Noregur og Liechtenstein eru á meðal þeirra sem standa sig best EES ríkjanna 30 þegar kemur að því að innleiða löggjöf á efnahagssvæðinu í löggjöf aðildarríkjanna. 23.9.2010 10:44
Fjöldamorð á fjölskyldu í Osló Norðmenn eru slegnir mjög yfir fjöldamorði á fjölskyldu í Osló í gær. Þar myrti fjölskyldufaðir eiginkonu sína og þrjár dætur og framdi svo sjálfsmorð. 23.9.2010 10:27
Smyglaði loftbyssu til Íslands og var rekinn úr skólanum Skoskur menntaskólapiltur er heldur betur í vandræðum eftir að hann flaug til Íslands vopnaður loftbyssu. 23.9.2010 10:24
Skortur á skimun fyrir ofbeldi gegn konum Hvergi í almenna heilbrigðiskerfinu eru spurningar um reynslu af ofbeldi hluti af almennum upplýsingum um skjólstæðinga. Þegar kemur að ákveðnum áhættuhópum, fyrst og fremst fíklum, þá er hins vegar spurt með reglubundnum hætti. Árvekni heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist gagnvart öðrum þekktum áhættuhópum svo sem konum af erlendum uppruna. 23.9.2010 10:14
Segir breytingar á skattkerfinu lýsa vanþekkingu á efnahagslífinu Þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur gert á skattkerfinu lýsa ótrúlega mikilli vanþekkingu á efnahagslífinu. Skattkerfið hafi verið fært áratugi aftur í tímann, einfaldleika þess og gagnsæi hafi verið fórnað. Þetta kom fram í ræðu Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á opnum fundi samtakanna og Viðskiptaráðs Íslands um skattamál fyrirtækja. 23.9.2010 09:41
Kúbversku feðgarnir koma heim á morgun - þora ekki aftur í íbúðina „Við erum mjög þakklát fyrir þann stuðning sem þjóðin, nágrannar og allir hafa sýnt okkur,“ segir sambýliskona kúbverska föðurins sem flúði land vegna meintra ofsókna þar síðustu helgi. Að hennar sögn snúa þeir feðgar aftur heim á morgun en þeir hafa verið í tæplega hálfan mánuð í útlöndum. 23.9.2010 09:37
Allsherjarverkfall aftur skollið á í Frakklandi Frönsk verkalýðsfélög efna aftur til allsherjarverkfalls í landinu í dag til að mótmæla áformum stjórnvalda um að hækka ellilífeyrisaldurinn úr 60 og í 62 ár. 23.9.2010 07:51
Reynt að bjarga 60 strönduðum grindhvölum á Nýja Sjálandi Tæplega 60 grindhvalir eiga á hættu að drepast eftir að þeir syntu á land á Nýja Sjálandi um 300 km norður af borginni Auckland.Þeir liggja nú á ströndinni við Spiritus flóann. 23.9.2010 07:46
Mesta bráðnun innlandsíssins á Grænlandi frá 1873 Innlandsísinn á Grænlandi hefur bráðnað gífurlega í sumar og raunar er bráðnunin talin sú mesta síðan hitamælingar hófust á Grænlandi árið 1873. 23.9.2010 07:43
Endurtalning atkvæða framundan í Svíþjóð Reiknað er með að endurtalningar verði krafist í tveimur kjördæmum í Svíþjóð eftir að talningu utankjörstaðaatkvæða lauk þar seint í gærkvöldi. 23.9.2010 07:27
Helmingur vændiskvenna í Danmörku af erlendum uppruna Nær helmingur af þeim 5.500 vændiskonum sem starfa í Danmörku er af erlendum uppruna. Flestar þeirra koma frá Taílandi. 23.9.2010 07:24