Fleiri fréttir

Ritalinneyslan líkist faraldri

Landlæknir segir að verið sé leita leiða til að draga úr mikilli misnotkun fullorðinna á lyfinu rítalíni. Yfirlæknir á Vogi líkir þróuninni við faraldur og segir lækna hafa ávísað lyfinu í óhófi. Heilbrigðisráðherra vill taka á málinu hið fyrsta.

Þyrlan aðstoðaði Breka

Leki kom að bátnum Stormur-Breki, sem er 70 tonna trébátur, laust fyrir klukkan fjögur í dag. Sjór var kominn í lest, vélarrými og framskip bátarins þar sem hann var staddur 8 sjómílur af Herdísarvík og stefndi til Þorlákshafnar.

Krónprinsinn alsæll yfir tvöföldu kraftaverki

Friðrik, krónprins Danmerkur, er alsæll yfir því að Mary Donaldson, eiginkona hans, gengur með tvíbura. Fyrir eiga þau hjónin tvö börn og því er ljóst að fjölskyldan verður hin myndarlegasta þegar Mary er orðin léttari í janúar.

Fjöldinn jafnmikill og í fyrra

Þúsundir eru saman komnar í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af gleðigöngu Hinsegin daga sem fram fór í dag. Lögreglumaður sem fréttastofa ræddi við sagðist ekki þora að fullyrða nákvæmlega um fjöldann en sagði að minnsta kosti óhætt að fullyrða að fjöldinn væri jafnmikill og í fyrra.

Castro varaði við kjarnorkustríði

Fidel Castro, fyrrverandi forseti Kúbu, hélt í dag fyrstu ræðu sína fyrir þinginu á Kúbu frá því að hann sagði af sér embætti fyrir fjórum árum síðan. Í ræðu sinni varaði hann við hættunni á kjarnorkustríði milli Bandaríkjanna og Írak. Raul Castro, bróðir Fidels, var viðstaddur þegar að hann hélt ræðu

Þúsundir á Dalvík

Þúsundir manna eru nú á Dalvík enda er fiskidagurinn haldinn hátíðlegur þar í dag. Lögreglumaður á Dalvík sem Vísir talaði við segir að allt gangi samkvæmt áætlun og engin óvænt tilvik komið upp samkvæmt sinni vitund.

Tekinn fyrir ólöglegar veiðar

Baldur, eftirlits- og sjómælingabátur Landhelgisgæslunnar stóð í morgun línubát að meintum ólöglegum veiðum innan bannsvæðis á Fljótagrunni.

Jón Gnarr á fyrsta vagni í gleðigöngunni

Gleðigangan hófst klukkan tvö en hún er hátindur Hinsegin daga. Gengið er frá Hlemmi niður Laugaveginn og lýkur göngunni við Arnarhól, þar sem ýmsir skemmtikraftar stíga á svið undir stjórn Páls Óskars.

„Pabbi, ég sit bara á gólfinu“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af yfirfullri rútu sem var á leið frá Selfossi til Reykjavíkur rétt fyrir hádegi í dag. Tilkynnt var um að minnsta kosti þrír farþegar væru sitjandi á gólfinu. Áhyggjufullur faðir hafði samband við fréttastofu í dag og sagði að strákurinn sinn sem er 11 ára gamall hefði hringt í sig og sagt: „Pabbi, ég sit bara á gólfinu.“

Aðgerðirnar skýrt verkfallsbrot

Annar hluti boðaðra verkfallsaðgerða Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fór fram í gær. Verkfallið stóð í sextán klukkutíma. Í þeim fólst meðal annars að varðstöðu á Akureyrarflugvelli var ekki sinnt og hamlaði flugi. Flugfélag Íslands brá þá það ráð að flýta tveimur fyrstu ferðum dagsins og aðrar ferðir voru færðar til Aðaldalsflugvallar á Húsavík.

Aurskriða undir Eyjafjöllum: „Auðvitað bregður manni“

„Við sáum þetta bara beint út um gluggann hjá okkur þegar við komum á fætur í morgun,“ segir Heiða Björg Scheving húsfreyja á bænum Krossafell. Aurskriða féll undir Eyjafjöllum í morgun. Heiða varð vör við skriðuna snemma í morgun og lét húsfreyjuna á bænum Steinar 4 vita, en sá bær er aðeins ofar í hlíðinni.

Innkoma Delta á flugmarkaðinn jákvæð tíðindi

Það eru jákvæð tíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu að bandaríska flugfélagið Delta ætli að hefja flug á milli New York og Íslands á næsta ári, segja forsvarsmenn Icelandair og Iceland Express. Express lítur ekki á Delta sem keppinaut. Aðrir ættu að hafa áhyggjur, segir framkvæmdastjóri Express.

Talibanar myrtu átta erlenda lækna

Talíbanar tóku tíu manns af lífi í Afganistan í nótt. Talið er að minnsta kosti átta af þessum tíu séu útlenskir læknar en talíbanarnir stöðvuðu ferð fóksins, rændu þau og stilltu þeim svo upp í röð þar sem þeir skutu þau svo eitt af öðru.

Endurskoða verður ávísun lækna á rítalín

Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann segja að tölulegar upplýsingar frá Vogi og könnun á örvandi vímuefnaneyslu sjúklinganna sýni að endurskoða verði ávísun lækna á lyfið rítalín.

Gleðigangan hefst klukkan tvö

Hinsegin dagar ná hámarki sínu í dag með gleðigöngu hinsegin fólks klukkan tvö síðdegis. Gangan fer frá Hlemmi og niður Laugaveginn og lýkur við Arnarhól, þar sem ýmsir skemmtikraftar stíga á svið á hinsegin hátíð undir stjórn Páls Óskars. Alls taka um 35 atriði þátt í göngunni, en það er svipaður fjöldi og undanfarin ár.

Trésmiðja brann í Sandgerði í nótt

Eldur kviknaði í Trésmiðjunni Mosfell í Sandgerði í nótt og var húsið alelda þegar boð um brunann barst um klukkan tvö í nótt. Húsið er gerónýtt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Gisti fangageymslu vegna líkamsárásar

Nóttin var mestu leyti róleg hjá lögregluembættum landsins. Karlmaður um tvítugt var tekinn grunaður um ölvunarakstur á Selfossi upp úr klukkan fjögur í nótt. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Bæjarhátíðin Sumar á Selfossi fer þar fram í dag og í kvöld og býst varðstjóri lögreglunnar í bænum við mikið af fólki.

Pústrar á Fiskideginum mikla

Margt fólk er á Fiskideginum mikla á Dalvík, en að sögn lögreglunnar á Akureyri fór allt vel fram þrátt fyrir talsverða ölvun í gærkvöldi og nótt. Eitthvað var um pústra, en engin líkamsárás hefur verið kærð.

Tekinn dópaður fyrir hraðakstur

Mikil umferð var í gegnum Borgarnes í gær. Samkvæmt lögreglunni í bænum var hraðinn ekki mikill en þó hafi einhverjir ökumenn kvartað yfir frammúrakstri ökumanna.

Vill setja veiðibann á svæðinu

Mun færri hreindýr eru nú á syðsta veiðisvæðinu, svokölluðu svæði 9, en reiknað var með þegar ákveðið var hversu mörg dýr ætti að veiða á svæðinu, segir Sigurður Guðjónsson, hreindýraleiðsögumaður á svæðinu. Hann segir að banna ætti veiðar alfarið til að stofninn nái sér á strik.

Kæfandi reykjarmökkur liggur yfir Moskvuborg

Skyggni í Moskvuborg mældist ekki nema nokkrir tugir metra í gær vegna reykmengunar frá skógareldunum. Ferðafólki tókst að ná dulúðugum myndum af helstu kennileitum, en stækjan var römm og framkallaði þrálátan hósta.

Sjóðurinn þolir myntkörfuskellinn

Fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar er lokið. Seðlabankinn leggur honum til 150 milljóna króna stofnfé og Byggðastofnun 240 milljóna króna víkjandi lán í skiptum fyrir 49 prósenta eignarhlut. Við það verður stofnfé sparisjóðsins rúmar 620 milljónir króna og verður eiginfjárhlutfall hans 22 prósent.

Vill ekki útiloka Hreyfinguna

Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, segir „algjörlega ótímabært“ að tala um hvort hún sameinist að einhverju leyti Hreyfingunni. Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, bauð þá flokksmenn VG sem vildu velkomna í sinn flokk í blaðinu í gær. Lilja segist finna fyrir miklum stuðningi almennra kjósenda VG og vilji ekki bregðast þeim nema nauðbeygð.

Afþakkar laun eftir uppsögn

Runólfur Ágústsson afþakkaði laun á uppsagnarfresti í bréfi til félagsmálaráðuneytisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Runólfur sendi frá sér í gær.

Evruhagkerfið sagt komið fyrir horn

Efnahagsbatinn á evrusvæðinu var snarpari á þriðja ársfjórðungi en áætlanir gerðu ráð fyrir og stöðugleiki að færast yfir. Aðstæður eru að skapast til að draga úr aðstoð við fjármálafyrirtæki á efnahagssvæðinu.

Festir í sessi fákeppni á mjólkurmarkaði

Samkeppniseftirlitið gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp um breytingar á búvörulögum sem lagt hefur verið fram. Í fréttatilkynningu um málið segir að með frumvarpinu sé fyrirhugað að lögfesta refsifyrirkomulag gagnvart tilteknum rekstraraðilum sem hafi hug á að framleiða mjólkurvörur fyrir íslenska neytendur.

Ekki hægt að útiloka neinar tillögur

Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir að fyrirfram sé ekki hægt að útiloka neinar tillögur í skattamálum. Í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem AGS vann að ósk fjármálaráðuneytisins, var lagt til að lægri skattþrep virðisaukaskattsins yrðu hækkuð upp í 25,5 prósent ef frá væru skildar matvörur sem yrðu með fjórtán prósenta virðisaukaskatt.

Geitungar áberandi þessa dagana

Sá tími ársins þegar geit­ungar eru mest áberandi er nú runninn upp. „Þetta gerist á svipuðum tíma á hverju ári. Þeir verða áberandi á þessum tíma þegar karldýr og nýjar drottningar myndast í búunum. Karldýrin frjóvga drottningarnar sem fljúga svo í burtu og dreifa sér,“ segir Þóra Hrafnsdóttir, sérfræðingur á Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Alcoa sagt slegið út af borðinu

Standi yfirlýsingar Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um að tekin verði ákvörðun um uppbygginu á Bakka fyrir 1. október, er ljóst að Alcoa hefur verið útilokað frá henni. Katrín lýsti þessu yfir í Kastljósi á fimmtudag.

Jón Gnarr í dragi - myndband

Uppátæki Jóns Gnarr, borgarstjóra, að mæta sem klæðskiptingur við setningu Hinsegin daga í gær vakti mikla lukku meðal viðstaddra og hefur einnig vakið athygli út fyrir landsteinana. BBC var meðal annars með frétt um Jón Gnarr á forsíðu bresku fréttastofunnar í dag. Hún var um tíma sjötta mest lesna fréttin.

Minntust látins forseta

Þingmenn minntust Lech Kaczinsky fyrrum forseta Póllands við hátíðlega athöfn í dag. Athöfnin fór fram áður en nýi forsetinn Bronislaw Komorowski var settur inn í embættið.

Bílvelta á sleipum vegi

Bíll valt á Þingvallavegi, rétt hjá þjónustumiðstöðinni á Þingvöllu, um klukkan fimm í dag. Kona á þrítugsaldri var í bílnum og hlúðu vegfarendur að henni þangað til að sjúkra- og lögreglubíll kom á staðinn. Mikil rigning var á svæðinu og samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Selfossi virðist vegurinn hafa verið gífurlega háll enda mikið rignt í dag.

Kanna heimildir um birtingu á lögfræðiáliti

Í tilkynningu sem Seðlabanki Íslands hefur sent fjölmiðlum segir að þegar að álit, um það hvort að gengistryggð lán væru hugsanlega ólögleg vorið 2009, var unnið hafði átt sér stað töluverð umræða á opinberum vettvangi um hugsanlegt ólögmæti gengistryggðra lána.

Lýsa áhyggjum af skipan Ástu Sigrúnar

Nokkur fjöldi fólks hefur haft samband við Hagsmunasamtök heimilanna og lýst yfir áhyggjum sínum vegna ráðningar Ástu Sigrúnar Helgadóttur í embætti umboðsmanns skuldara. Hún er gagnrýnd fyrir að hafa ekki tekið nægilega afgerandi afstöðu með skuldurum í störfum sínum sem forstjóri Ráðgjafastofu heimilanna.

Gagnrýnir framkomu stjórnvalda gagnvart erlendum fjárfestum

Framkoma íslenskra stjórnvalda við þau fáu erlendu fyrirtæki sem vilja fjárfesta hér á landi er algerlega óviðunandi að mati Samtaka iðnaðarins. Helgi Magnússon, formaður samtakanna, segir að framkoma stjórnvalda við fyrirtæki eins og Magma Energy og Alcoa á Íslandi sé með þeim hætti að orðspor þjóðarinnar út á við skaðist og líkur á samstarfi við erlenda fjárfesta minnki til mikilla muna einmitt á þeim tíma þegar við þurfum mest á öflugu og farsælu samstarfi við erlenda fjárfesta að halda.

Straw dregur sig í hlé

Jack Straw, þingmaður breska Verkamannaflokksins, ætlar að draga sig í hlé. Hann tilkynnti breskum fjölmiðlum þetta í dag. Jack Straw hefur átt farsælan stjórnmálaferil. Hann var meðal annars utanríkisráðherra í stjórn Tonys Blair og dómsmálaráðherra í stjórn Gordons Brown. Jack Straw hefur verið þingmaður fyrir Verkamannaflokkinn allt frá árinu 1979, eða í 31 ár.

Runólfur átti ekki frumkvæði að kaupum og er sagður „fórnarlamb“

Menn sem áttu frumkvæði að því að kaupa hluti Byrs og Spron í Sparisjóðabankanum höfðu samband við Runólf Ágústsson að fyrra bragði til að bjóða honum að fjárfesta, án nokkurrar áhættu. Einn þeirra segir Runólf „fórnarlamb." Runólfur hefur ákveðið að þiggja ekki laun fyrir hálfan dag í embætti umboðsmanns skuldara.

Lítið eftirlit með utangarðsfólkinu úti á Granda

Lítið sem ekkert eftirlit er með heimilislausum sem dveljast í smáhýsum á Granda. Unnin var skýrsla fyrir velferðarsvið borgarinnar á síðasta ári og var það niðurstaða hennar að efla þyrfti eftirlit, en það var ekki gert. Heimilislaus maður sem þar dvelst segir að reglulega brjótist út slagsmál meðal vistmanna.

Flutt á sjúkrahús eftir bílveltu

Fólksbíll valt við Öxará um fimmleytið í dag. Bíllinn endaði á hvolfi og skemmdist hann eitthvað að sögn lögreglu. Ein kona var í bílnum. Að sögn lögreglunnar kenndi hún sér ekki meins en var engu að síður flutt með hraði til skoðunar á sjúkrahús í Reykjavík.

Forsetinn sendi Medvedev samúðarkveðju

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, samúðarkveðju vegna hörmunganna sem orðið hafa í Rússlandi. Fjöldi landsmanna, bæði almennir borgarar og björgunarfólk, hefur látið lífið vegna hörmulegra elda sem herjað hafa á landið.

Jón Gnarr vekur athygli Breta

Það uppátæki Jóns Gnarr að mæta sem klæðskiptingur við upphaf Hinsegin daga í gær hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. Í það minnsta greinir fréttavefur BBC frá því í dag að hann hafi verið viðstaddur skemmtunina í gærkvöld. „Borgarstjórinn gat ekki mætt sjálfur,“ er haft eftir Jóni Gnarr á vefnum.

Sjá næstu 50 fréttir