Innlent

Vill setja veiðibann á svæðinu

Hreindýr sem talin eru á syðsta veiðisvæðinu að vetri halda ekki endilega til þar að sumri.Fréttablaðið/Vilhelm
Hreindýr sem talin eru á syðsta veiðisvæðinu að vetri halda ekki endilega til þar að sumri.Fréttablaðið/Vilhelm
Mun færri hreindýr eru nú á syðsta veiðisvæðinu, svokölluðu svæði 9, en reiknað var með þegar ákveðið var hversu mörg dýr ætti að veiða á svæðinu, segir Sigurður Guðjónsson, hreindýraleiðsögumaður á svæðinu. Hann segir að banna ætti veiðar alfarið til að stofninn nái sér á strik.

„Ég myndi stöðva veiðarnar, það er það eina sem hægt er að gera,“ segir Sigurður. „Ef offjölgun verður í kjölfarið er hægt að bjarga því strax með veiðum, en það er útilokað að lífga við dýr sem hafa verið drepin.“

Svæði níu er syðsta veiðisvæðið, en undir það falla Hornafjörður, Mýrar og Suðursveit.

Hreindýr eru talin yfir vetrartímann og segir Sigurður að sig gruni að dýr sem talin séu að vetri færi sig á milli svæða í meira mæli en áður hafi verið talið. Það leiði til þess að færri dýr séu eftir á svæðinu til að veiða upp í kvótann. Við það bætist að landeigendur heimila sumir ekki veiði og þá verði enn meira álag á skepnur sem eftir séu á veiðisvæðum. Miðað við síðustu talningu sé nú því til kvóti á fleiri dýr en séu á svæðinu.

Sigurður sendi bæjarráði Hornafjarðar erindi um málið, en því var vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar. - bj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×