Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Viðurkennir kunningjatengsl við framkvæmdastjórann Það er víðs fjarri að ferlið í aðdraganda að ráðningu nýs framkvæmdastjóra Íslandsstofu hafi verið eitthvað leikrit, segir Friðrik Pálsson, formaður stjórnar Íslandsstofu. Tilkynnt var fyrr í vikonnu að Jón Ásbergsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, hefði verið ráðinn í starfið. Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri, var á meðal umsækjanda um starfið en hann segir að umsóknarferlið hafi verið leikrit 6.8.2010 13:31
Moskvubúar hrynja niður Dánartíðni íbúa Moskvu hefur hækkað um þriðjung undanfarnar vikur. Það er rakið til hitabylgjunnar sem er hin versta sem komið hefur í borginni í meira en öld. 6.8.2010 13:06
Hann er lifandi -borgaðu Lággjaldaflugfélögin svokölluðu hala inn milljarða króna með allskonar aukagjöldum. 6.8.2010 12:34
Fyrrverandi ráðherra Saddams vill Bandaríkjamenn áfram Tariq Aziz fyrrverandi utanríkisráðherra Saddams Hussein segir að Bandaríkjamenn skilji Írak eftir hjá úlfunum þegar þeir draga herlið sitt frá landinu. 6.8.2010 12:13
Þórólfur Árna: „Ósmekklegt og taktlaust“ Nýráðinn framkvæmdastjóri Íslandsstofu skrifaði blaðagrein og titlaði sig framkvæmdastjóra stofnunarinnar áður en umsóknarfrestur um starfið var runninn út. Þórólfur Árnason, einn umsækjenda, segir umsóknarferlið leikrit og segir að stjórnarformaður Íslandsstofu kunni ekki að fara með opinbert fé. 6.8.2010 11:57
Breytingar á ferðum vegna gleðigöngunnar Talsverðar breytingar verða á akstri Strætó laugardaginn 7. ágúst vegna gleðigöngu Hinsegin daga og hátíðahalda í miðborginni. Gleðigangan hefst við Hlemm og endar með hátíðahöldum við Arnarhól og því þarf að breyta akstursleiðum og loka nokkrum stoppistöðvum á meðan á hátíðahöldunum stendur. 6.8.2010 11:39
Tvennt flutt á slysadeild Tvennt var flutt á slysadeild eftir harðan árekstur sem varð milli tveggja bíla á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar laust eftir klukkan tíu í morgun. Björgunarfólk beitti klippum til þess að ná öðru þeirra úr bílnum. Tveir dælubílar frá slökkviliðinu og fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang til aðstoðar við fólkið. Tildrög slyssins eru ókunn. 6.8.2010 11:18
Krefjast þess að öryggi verði tryggt Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skorar á sveitarfélög landsins að gera réttmæta leiðréttingu á launum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna til þess að neyðarþjónusta við íbúa landsins verði tryggð. Þetta segja þeir í áskorun sem birt var fulltrúum sveitastjórna á höfuðborgarsvæðinu, í Fjarðarbyggð, á Akureyri og á Suðurnesjum í morgun. 6.8.2010 11:04
Lömbin þagna Sauðaþjófur, eða þjófar eru enn á ferð á Vesturlandi því nú hafa fundist leifar af lambi í Noðrurárdal, þar sem búið var að hirða hrygg, læri og frampart, en verðminni hlutar skrokksins skildir eftir. 6.8.2010 10:44
Harður árekstur við Bústaðarveg Árekstur var milli tveggja bíla á gatnamótum Reykjanesbrautar laust eftir klukkan tíu í morgun. Björgunarfólk vinnur nú að því að ná einum manni úr öðrum bílnum með klippum. Á staðnum eru tveir dælubílar frá slökkviliðinu og fjórir sjúkrabílar. Ekki hafa fengist upplýsingar um það hvort fólk hafi slasast alvarlega í árekstrinum. 6.8.2010 10:41
LÍÚ: Ísland í fullum rétti til að veiða makríl „Ísland er í í fullum rétti til að veiða makríl innan íslenslu efnahagslögsögunnar, rétt eins og Norðmenn og aðildarríki Evrópusambandsins hafa rétt til makrílveiða innan sinna eigin efnahagslögsagna. Makrílveiðar Íslendinga eru því jafnlögmætar og makrílveiðar Noregs og Evrópusambandsríkjanna." 6.8.2010 10:23
Engir gargandi grislingar Nokkur leiguflugfélög eru að skoða möguleika á því að bjóða upp á barnlaus flug til vinsælla áfangastaða. 6.8.2010 10:03
Slökkviliðsmenn hitta Jón Gnarr Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn koma til fundar við Jón Gnarr, borgarstjóra í Reykjavík, núna klukkan tíu til þess að afhenda honum yfirlýsingu og minna á málstað sinn. 6.8.2010 09:57
Heimsmet á sjóstöng Þýskur sjóstangaveiðimaður veiddi í gær risastóra lúðu á Vestfjarðamiðum og er jafnvel talið að þetta sé stærsta lúða sem veiðst hefur á sjóstöng í heiminum til þessa, að því er segir á vefnum: Vikari.is. 6.8.2010 08:16
Vilja sama gjaldið áfram Þorlákshafnarbær krefst þess að fá áfram sömu hafnar- og þjónustugjöld og áður fyrir afnot af höfninni í Þorlákshöfn fyrir Herjólf. Höfnin er nú varahöfn fyrir skipið en var áður aðalhöfn þess. Um er að ræða rúmlega 1,7 milljónir króna á mánuði. 6.8.2010 08:00
Krefjast þess að Wikileaks skili aftur leyniskjölum Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur krafist þess af forráðamönnum vefsíðunnar Wikileaks að þeir skili aftur leyniskjölum þeim um stríðið í Afganistan sem nýlega voru birt á síðunni og samhliða í þremur alþjóðlegum fjölmiðlum. 6.8.2010 07:54
Stöðvuðu ökumann bifhjóls eftir ofshraða Lögreglumenn stöðvuðu ökumann bifhjóls seint í gærkvöldi eftir að hjólið hafði mælst á rösklega 170 kílómetra hraða skammt frá Dalvík. 6.8.2010 07:50
Forseti Pakistan í opinberri heimsókn í Bretlandi Zardari forseti Pakistan er kominn í opinbera heimsókn til Bretlands þar sem hann mun eiga viðræður við David Cameron forsætisráðherra Breta. 6.8.2010 07:49
Kjærsgaard vill banna innflytjendur í Danmörku Pia Kjærsgaard formaður Danska þjóðarflokksins vill að stjórnvöld banni innflytjendum sem ekki eru af vestrænum uppruna að setjast að í Danmörku. 6.8.2010 07:46
Í dag eru 65 ár frá kjarnorkusprengjunni í Hiroshima Í dag eru 65 ár liðin frá því að Bandaríkjamenn sprengdu kjarnorkusprengju yfir borginni Hiroshima í Japan. 6.8.2010 07:44
Yfirbugaður af öryggisverði Öryggisvörður á frívakt yfirbugaði tæplega þrítugan mann í fíkniefnavímu sem gengið hafði berserksgang á Laugavegi og nágrenni í gærmorgun og afhenti hann lögreglu. 6.8.2010 07:30
Gerist teiknimyndahetja Ali Imron, ungur múslimi sem tók þátt í að skipuleggja sprengjuárás á eyjunni Balí árið 2002, sem kostaði 202 menn lífið, er aðalhetja teiknimyndasögu sem dreift verður í skóla og bókasöfn um alla Indónesíu. 6.8.2010 07:30
Verkfall slökkviliðsmanna hefst klukkan átta Rúmlega átta klukkustunda samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við samninganefnd sveitarfélaganna lauk án árangur hjá ríkissáttasemjara um ellefu leitið í gærkvöldi og hefjast verkfallsaðgerðir þeirra fyrrnefndu klukkan átta og standa til miðnættis. 6.8.2010 07:13
Slysagildrur í nýju hverfi Það þarf ekki nema örlitla hálku á veginum til þess að steypast ofan í," segir Ástríður Sigvaldadóttir, íbúi í Gerplustræti í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, um risastóran húsgrunn í nágrenni heimili hennar. 6.8.2010 07:00
Bann við giftingum brýtur í bága við stjórnarskrá Vaughn Walker, dómari í Kaliforníu, felldi úr gildi bann við hjónaböndum samkynhneigðra í Kaliforníuríki. Walker taldi bannið, sem samþykkt var í atkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum, brjóta í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna. 6.8.2010 06:45
Kolólöglegur lánasamningur Lýsingar Neytendastofa telur að Lýsing hafi brotið ýmis ákvæði neytendalaga við gerð samnings um bílalán manns sem kvartaði við Neytendastofu. 6.8.2010 06:30
Stjórnvöld banna útflutning á hveiti Rússnesk stjórnvöld hafa bannað allan útflutning á korni til ársloka. Ástæðan er sú að tuttugu prósent af hveitiuppskeru landsins eyðilögðust í skógareldum. Bannið gæti framlengst telji stjórnvöld það nauðsynlegt. 6.8.2010 06:30
Andstæðingar fallast á úrslitin Íbúar í Keníu samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta nýja stjórnarskrá sem dregur mjög úr völdum forseta landsins. Andstæðingar nýju stjórnarskrárinnar segjast ætla að sætta sig við niðurstöðuna. 6.8.2010 06:15
Órólega deildin er velkomin Þingmaður Hreyfingarinnar, Þór Saari, segir að svokölluð óróleg deild í VG sé velkomin yfir í Hreyfinguna. Stefna þess fólks eigi nú meira sameiginlegt með stefnu Hreyfingarinnar en stefnu VG. Þetta þyrfti þó ekki að þýða stjórnarslit. 6.8.2010 06:00
Fjórir slösuðust í sprengjuárás á þjóðhátíð Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar sprengjur sprungu innan um gesti á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. 6.8.2010 06:00
Harpa verður ekki alveg tilbúin við opnun Menning Skemmdir sem uppgötvast hafa í stálvirki glerhjúps á suðurhlið tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu valda því að húsið verður ekki að fullu tilbúið við opnun þess næsta vor. 6.8.2010 05:00
Flogið til Svíþjóðar með frímerkjasafn Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að selja tvö frímerkjasöfn sem hafa verið í vörslu bæjarins í áratugi. 6.8.2010 04:00
Tryggði stöðu sína til hausts Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, tryggði stöðu sína á þinginu að minnsta kosti fram á haustið þegar stjórnarþingmenn felldu þingsályktunartillögu gegn aðstoðarráðherra í dómsmálaráðuneytinu, sem er flæktur í spillingarmál. 6.8.2010 03:00
Segja slökkviliðsstjóra fara með ósannindi Fulltrúar starfsmanna Slökkviliðs Akureyrar segja slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Akureyrar fara með ósannindi í viðtali við Fréttablaðið 30. júlí síðastliðinn þegar hann fullyrðir að slökkviliðsmenn nýti sér frítökurétt í formi fría. 5.8.2010 23:34
Halda sér vakandi á kaffinu Samninganefndir landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og launanefndar sveitarfélaga eru enn að funda í húsi ríkissáttasemjara. Þeir hafa fundað síðan klukkan 13:30 í dag en hafa þó tekið stutt hlé inn á milli. 5.8.2010 22:38
Jón Gnarr mætti í dragi á opnunarhátíð Gay Pride Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík birtist óvænt á opnunarhátíð Hinseigin daga í Íslensku óperunni í kvöld. Jón var ekki klæddur í jakkaföt heldur kom hann fram í kvenmannskjól og með kvenmannstösku. 5.8.2010 21:16
Útlendingar veiða sér til matar Fréttavefurinn Skessuhorn segir að í vikunni hafi í tvígang borið á sauðaþjófnaði í Borgarfirði og í Dölum. Í gær hafi fundist leifar af lambi í Norðurárdal í Borgarfirði og hafi kjötið verið hirt. Hræið hafi verið sambærilegt og það sem fannst undir brúnni yfir Miðá í Mið-Dölum á mánudaginn. 5.8.2010 21:06
Paul Allen fékk sér hamborgara á Búllunni Hamborgarabúlla Tómasar í Geirsgötu við höfnina í Reykjavík hefur fengið marga skipverja af Octopus, risasnekkju í eigu Pauls Allen auðkýfings, á staðinn til sín í dag. Þar hafa þeir borðað og drukkið ýmist, Coke eða Coke light. 5.8.2010 17:46
Bilun í ljósleiðara á Vopnafirði Bilun hefur komið upp í stofnneti Mílu á norð-austurlandi. Bilunin kom upp á Vopnafirði og virðist hún vera í búnaði á vegum fyrirtækisins. Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri lausna hjá Mílu, segir að bilunin hafi víðtæk áhrif. Alveg frá Vopnafirði til Kirkjubæjarklausturs. 5.8.2010 22:15
Ný framkvæmdastjóri Heimilis og skóla Nýr framkvæmdastjóri, Olga Hanna Mölller hefur hafið störf hjá Heimili og skóla - landssamtökum foreldra. Olga Hanna hóf störf þann 1. ágúst síðastliðinn. 5.8.2010 20:54
Hundrað krakkar á biðlista á BUGL Barnadeildin á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans eru nú lokuð vegna viðhalds, en þetta þýðir að lítil börn eru á sömu deild og unglingar. Um eitt hundrað börn og unglingar eru nú á biðlista um að komast að inn á göngudeild BUGL. 5.8.2010 18:45
„Hún hefði ekki þurft að deyja“ Ógæfumaður segir fordóma heilbrigðisyfirvalda hafa kostað vinkonu sína lífið. Hún lést í gær skömmu eftir að sjúkraflutningamenn höfðu yfirgefið heimili þeirra. 5.8.2010 18:42
Saka viðsemjendur um rangfærslur Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn saka Launanefnd sveitarfélaga um rangfærslur í umræðum um kjaramál þeirra. Segja þeir að þær launaupphæðir sem Launanefndin fullyrði að slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafi séu þeim sjálfum ókunnugar. Launatölur sem LSS hafi látið fjölmiðlum í té séu byggðar á tölum úr launaseðlum slökkviliðsmanna. 5.8.2010 17:03
Grindvíkingar saka ríkisstjórnina um vonda stjórnsýslu Meirihluti bæjarráðs Grindavíkur er reiðubúinn til viðræðna um að stytta leigutíma HS Orku á auðlindum sem fyrirtækið hefur til nýtingar á Suðurnesjum. Á fundi bæjarráðs Grindavíkur í gær var samþykkt ályktun þar sem hörmuð er sú óvissa sem nú ríkir um eignarhald HS Orku og fullyrt að hún stefndi atvinnuuppbyggingu á svæðinu í hættu. 5.8.2010 14:15
Á annað hundrað börn send árlega í fóstur Árlega eru á annað hundrað börn send í fóstur, segir Steinunn Bergmann félagsráðgjafi hjá Barnaverndastofu. Barnaverndarstofa hefur yfirumsjón með fósturmálum og metur hæfni fósturforeldra. 5.8.2010 13:30