Ekki hægt að útiloka neinar tillögur 7. ágúst 2010 05:00 Huginn Freyr Þorsteinsson
Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir að fyrirfram sé ekki hægt að útiloka neinar tillögur í skattamálum. Í skýrslu um íslenska skattkerfið, sem AGS vann að ósk fjármálaráðuneytisins, var lagt til að lægri skattþrep virðisaukaskattsins yrðu hækkuð upp í 25,5 prósent ef frá væru skildar matvörur sem yrðu með fjórtán prósenta virðisaukaskatt. Meðal vara sem eru í dag með lægri skattprósentu má nefna bækur og dagblöð en í Fréttablaðinu á mánudag lýstu bóksalar yfir þungum áhyggjum af þessum tillögum. „Ég held að við þær aðstæður sem eru uppi núna sé ekki hægt að útiloka neitt. Nefnd vinnur að tillögum í skattamálum og auðvitað reynum við að forgangsraða og velja tillögur sem skila mestu í framtíðartekjum án þess að hafa of neikvæð áhrif á hagkerfið,“ segir Huginn. Að sögn bóksala myndi hækkun á virðisaukaskatti á bækur í 25,5 prósent öll fara út í verðlagið sem myndi þýða rúmlega sautján prósenta hækkun á verði bóka. Slík hækkun kæmi sérstaklega illa við háskólanema og fjölskyldur framhaldsskólanema. Huginn segir að litið verði til slíkra sjónarmiða í skattavinnunni og að reynt verði að komast hjá því að leggjast í breytingar sem komi tekjulágum hópum illa. Hann segir þó að þessi tillaga AGS hafi ekki verið rædd sérstaklega í ráðuneytinu. - mþl
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði Sjá meira