Fleiri fréttir

Hræðileg aðkoma

Aðkoman að vettvangi þar sem bensínflutningabíll sprakk í loft upp í Kongó á föstudag var hræðileg. Í dag var byrjað að grafa þá 230 sem fórust í slysinu. Varað er við myndskeiðinu sem fylgir þessari frétt.

Spá verðhruni

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu á eftir að hrynja ef spár sérfræðinga Landsbankans ganga eftir. Sömu spár voru notaðar til að réttlæta allt að 75 prósent afslátt á fasteignalánum þegar þau voru færð úr gamla bankanum í þann nýja.

Foreldrar Madeleine fá fund með breskum ráðherra

Theresa May, innanríkisráðherra, hefur ákveðið að hitta foreldra Kate og Gerry McCann, foreldra Madeleine litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007. Foreldrar hafa að undanförnu lagt mikla áherslu að fá áheyrn hjá May eftir að hún tók við embætti innanríkismála í ríkisstjórn Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins. Talsmaður innanríkisráðuneytisins hefur staðfest að May muni hitta foreldranna á næstu dögum.

Biden hvetur til samstarfs

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, segir mikilvægt stjórnmálaleiðtogar í Írak myndi samsteypustjórn. Biden kom óvænt til Íraks í gær ásamt eiginkonu sinn Jill. Í ræddi hann um stöðuna meðal annars við Nuri al-Maliki, nýverandi forsætisráðherra, og Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra.

Umferðin farin að þyngjast

Umferð á Suðvesturhorninu hefur verið þétt í dag og gengið vel fyrir sig samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu.

Netanyahu á leið til Bandaríkjanna

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, er á leið til Bandaríkjanna til fundar við þarlenda ráðamenn. Hann mun eiga fund með Barack Obama, Bandaríkjaforseta, á þriðjudaginn. Þar verða friðarviðræðurnar milli Palestínumanna og Ísraela til umræðu.

Afrakstur þrotlausrar vinnu starfsmanna spítalans

„Við vitum að árangurinn er afrakstur þrotlausrar og óeigingjarnrar vinnu allra starfsmanna spítalans,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, um nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga.

Skaut lögregluþjón á flóttanum

Maðurinn sem myrti mann fáeinum klukkistundum eftir að eftir að hafa öðlast frelsi fyrir helgi er talinn hafa skotið lögreglumann í Newcastle í morgun.

Lögregla leitar að breiðleitum þjóf með gisnar tennur

Um klukkan sjö í gærmorgun var tilkynnt um innbrot í Gesthús á Selfossi. Vitni sá til ungs manns koma út úr húsinu og fara í burtu á reiðhjóli. Í ljós kom að búið var að taka nokkuð magn af áfengi sem fannst skömmu síðar falið skammt frá húsinu.

Nakinn maður á Suðurlandsvegi

Lögreglumenn á Selfossi hafa verið á miklum þeytingi milli staða og sinnt margvíslegum verkefnum um helgina. Um kvöldmatarleytið í gær barst lögreglu tilkynning um að nakinn maður væri að húkka sér far á Suðurlandsvegi við Selfoss. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var engan nakinn mann að sjá. Annað hvort hefur verið um gabb að ræða eða einhverjum vegfaranda litist vel á manninn og tekið hann upp, að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Fjölmörg atriði standa enn út af borðinu

Fjölmörg atriði standa enn út af borðinu í viðræðum um Icesave málið en samninganefnd íslenskra stjórnvalda fundaði fyrir helgi með þeim bresku og hollensku um framhald viðræðna. Stjórnarandstöðunni er haldið upplýstri um gang mála.

Mjótt á munum í Póllandi

Önnur umferð forsetakosninganna í Póllandi í dag. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt sé á munum á milli þeirra tveggja frambjóðenda sem flest atkvæði fengu í fyrri umferðinni.

Fimmtán fórust í rútuslysi

Fimmtán manns létust og 48 slösuðust þegar rúta ók á steinvegg í borginni Toledo á Filippseyjum í dag. Rútan var á leið niður brekku þegar bremsur hennar biluðu. Bílstjórinn greip þá til þess ráðs að aka utan í steinsteypta hindrun með þeim afleiðingum að rútan valt. Flestir farþeganna voru verkamenn á leið heim úr vinnu.

Alþjóðleg nefnd rannsakar banaslysið á Grundartanga

Alþjóðleg rannsóknarnefnd kemur til landsins á morgun til að rannsaka banaslysið sem varð í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga á þriðjudag. Forstjóri fyrirtækisins vonast til að fá betri upplýsingar um orsakir slysins þegar líður á vikuna.

Fyrrverandi Veðurstofustjóri vill bæjarstjórastól

22 umsóknir bárust um starf bæjarstjóra Vesturbyggðar. Starfið var auglýst laust til umsóknar í síðasta mánuði og rann umsóknarfrestur út 27. júní. Aðeins tveir umsækjendanna eru búsettir á Vestfjörðum þar af einn í Vesturbyggð en það er Ragnar Jörundsson, núverandi bæjarstjóri bæjarfélagsins.

Þrír stútar stöðvaðir í Galtalæk

Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna ölvunaraksturs í eða í grennd við Galtalæk í nótt en þar fór fram útihátíð um helgina. Einn ökumannanna var jafnframt talinn aka undir áhrifum fíkniefna. Talsverð ölvun var á svæðinu en skemmtanahald fór vel fram, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli.

Andlegur leiðtogi Hisbollah látinn

Leiðtogi sjía-múslima í Líbanon er látinn, 74 ára að aldri. Litið var á Mohammed Hussein Fadlallah sem andlegan leiðtoga Hisbollah hreyfingarinnar en hann spilaði stórt hlutverk í stofnun hennar árið 1982. Hann gagnrýndi Bandaríkin og hafði framsæknar hugmyndir um hlutverk kvenna í íslömsku samfélagi, segir í frétt BBC.

Pólverjar kjósa nýjan forseta

Seinni umferð forsetakosninganna í Póllandi hófst í morgun en kosið er á milli Jaroslaw Kaczynski, tvíburabróður fyrrverandi forseta landsins Lech Kaczynski sem lést í flugslysi í apríl og þess sem tók við keflinu eftir flugslysið, Bronislaw Komorowski. Fyrri umferðin fór fram 20. júní en þá fékk enginn frambjóðandi meirihluta atkvæða og því þurfti að kjósa á ný milli efstu tveggja.

Talsverður erill hjá lögreglu á Akranesi

Talsverður erill var hjá lögreglunni Akranesi í nótt en þar fór fram um helgina helginabæjarhátíðin Írskir dagar. Í heildina fór skemmtanahald vel fram, að sögn lögreglu en nokkrir þurftu þó að gista í fangageymslum sökum ölvunar. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um ölvunarakstur og þá var annar ökumaður stöðvður undir morgun en sá var talinn hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.

Syntu fullir yfir Hvítá

Þrír ungir menn syntu ölvaðir yfir Hvítá í Árnessýslu á fjórða tímanum í nótt. Þeir höfðu verið að skemmta sér á tjaldstæðinu í Laugarási þegar tóku þá ákvörðun að frá sér sundsprett. Félagar þeirra tóku að ókyrrast og höfðu samband við lögreguna á Selfossi sem ræsti út auka mannskap og björgunarsveitarmenn. Útkallið var afturkallað tæpum hálftíma síðar þegar mennirnir komu í leitirnar. Þeir höfðu þá synt yfir í Hrunamannahrepp skammt frá bænum Auðsholti og gengið til baka með fram ánni. Að sögn lögreglu voru mennirnir blautir og kaldir en að öðru leyti varð þeim ekki meint af.

Sjálfboðaliðar hunsaðir

107 tilboð frá 44 þjóðum hafa borist um aðstoð vegna olíulekans í Mexíkó­flóa samkvæmt landhelgisgæslu Bandaríkjanna. Olíufélagið BP og bandaríska ríkisstjórnin eru vænd um aðgerðaleysi í málinu en 2000 bátar muni vera komnir á staðinn. Þeir geti hins vegar ekki aðhafst fyrr en þau fái heimild frá yfirvöldum.

Óánægður faðir: Viðbrögð lögreglu eftir bílveltu fáránleg

„Hvað vita þeir um innvortis meiðsl?“ segir Sigurður Gísli Þorsteinsson, faðir 17 ára stúlku, sem lenti í bílslysi skammt frá Galtalæk í gær. Hann er afar óánægður með viðbrögð lögreglunnar á Hvolsvelli sem að hans mati voru fáránleg. Lögreglan tjáir sem ekki málið að svo stöddu.

Paris Hilton laus allra mála

Hótelerfinginn Paris Hilton er laus allra mála eftir að lögreglan í Suður-Afríku ákvað að ákæra hana ekki fyrir vörslu fíkniefna.

Verkefnin að klárast

Verktakaiðnaðurinn sér fram á auðn þegar helstu verkefni í mannvirkjagerð og jarðvinnu klárast hvert af öðru í sumar og haust. Fjögur fyrirtæki í greininni gripu til fjöldauppsagna nú um mánaðamótin.

„Ég vona bara að unga fólkið skapi betri heim“

Fordómar mega aldrei stjórna fólki. Það er mikilvægasta lexían sem mannkynið getur dregið af helförinni. Þetta segir maður sem ungur að árum slapp lifandi úr útrýmingarbúðunum í Auschwitz. Hann hélt í vikunni fyrirlestur í Háskóla Íslands þar sem hann deildi reynslu sinni með gestum og afkomendum sem hann á hér á landi.

Hungur og vonleysi

Hungur og vonleysi bíður fjölskyldna sem hafa þurft að reiða sig á matargjafir en hjálparsamtök sem gefa slíkar gjafir eru komin í sumarfrí. Þetta segir öryrki sem nær ekki endum saman á bótunum sem hún fær frá hinu opinbera.

Fellibylurinn Alex: Sex fórust í Mexíkó

Að minnsta kosti sex manns létust í flóðum af völdum fellibylsins Alex sem fór yfir Mexíkó í gær. Mest voru flóðin í nágrenni við borgina Monterrey. Miklar rigningar urðu til þess að Santa Catarina áin flæddi yfir bakka sína. Brýr eyðilögðust, vegir fóru í sundur og rafmagnsstaurar gáfu sig. Fyrr í vikunni hafði fellibyrlurinn Alex valdið tjóni í Gvatemala og í El Salvador en hann fjaraði svo út á fimmtudag.

Guðbergur sýnir áróður

Guðbergur Bergsson rithöfundur hefur opnað áróðurssýningu í Saltfisksetrinu í Grindavík og sýnir gömul áróðursveggspjöld frá einræðisherrum og stjórnmálaforingjum. Þetta er ekki fyrsta áróðurssýningin sem Guðbergur heldur. Hann var með sambærilega sýningu fyrir 35 árum í Súmmsalnum í Reykjavík.

Bílaleigur skila bílum

Bílaleigufyrirtækið Hertz neyddist til að skila hundrað af tæplega fjögur hundruð bifreiðum sem félagið keypti af Toyota umboðinu á Íslandi, vegna samdráttar á bílaleigumarkaði. Pantanir hafa dregist saman um fimmtung miðað við árið í fyrra.

Níu langreyðar skotnar á tæpri viku

Níu langreyðar hafa nú verið skotnar á þeirri tæpri viku sem liðin er frá því að stórhvalaveiðar hófust í ár. Hvalbátarnir tveir, Hvalur átta og níu, komu með fyrstu þrjá hvalina að landi í Hvalfirði á þriðjudagskvöld. Á fimmtudag komu þeir með tvo hvali hvor, áttundi hvalurinn var svo dreginn upp í hvalstöðina í dag og von er á þeim níunda í nótt. Heimilt er að veiða 175 langreyðar í ár.

Bílvelta á Hellisheiði

Bifreið valt út af veginum um Hellisheiði skömmu eftir klukkan fimm í dag. Slysið varð rétt vestan við Kambana, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Selfossi. Ökumaðurinn er ekki talinn mikið slasaður en bifreiðinn er mikið skemmd. Ökumaðurinn verður að öllum líkindum fluttur á slysadeild í Reykjavík til aðhlynningar.

Tungulækur í Landbroti flæðir yfir bakka sína

Tungulækur í Landbroti sunnan Kirkjubæjarklausturs flæðir nú yfir bakka sína og Grenlækur er bakkafullur, að sögn Björgvins Harðarsonar, bónda á Hunkubökkum. Ástæðuna má rekja til hlaupsins í Skaftá, sem náði hámarki fyrr í vikunni, en það veldur nú flóðum í ám og vötnum sem renna undan Eldhrauni.

Hlýindi í uppsveitum Suðurlands

Hlýindi hafa verið í uppsveitum Suðurlands í dag og hiti víða mælst um 20 gráður, eins og á Hjarðarlandi í Biskupstungum, í Þjórsárdal og í Landssveit. Á sama tíma hefur verið svalt fyrir norðan og austan og hitastig við ströndina aðeins náð átta til níu gráðum, eins og á Siglufirði og í Neskaupstað.

Myrti mann fáeinum klukkustundum eftir að hafa öðlast frelsi

Víðtæk leit fer nú fram í norðausturhluta Bretlands af karlmanni sem talinn er hafa myrt mann og sært konu lífshættulega í bænum Gateshead í nótt. Maðurinn heitir Raoul Thomas Moat sat í fangelsi allt þar til í gær þegar hann öðlaðist frelsi. Hann er fyrrverandi kærasti konunnar.

Veltu bílnum á Bláfellshálsi

Erlend hjón veltu bílaleigubíl á veginum um Bláfellsháls við Bláfell á Kjalvegi skömmu eftir hádegi í dag. Fólkið slasaðist ekki, að sögn lögreglunnar á Selfossi. Hjónin fengu far með ferðamönnum sem höfðu ekið um Kjöl á Gullfosskaffi við Gullfoss til að bíða eftir nýjum bílaleigubíl svo þau gætu haldið ferðalaginu áfram.

Bílvelta skammt frá Galtalæk

Fólksbifreið valt á veginum milli Landvegamóta og Galtalækjar á þriðja tímanum í dag. Enginn slys urðu á fólki, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni á Hvolsvelli. Lögreglan áætlar að í Galtalæk séu á bilinu þrjú til fimm þúsund manns á útihátíð en erfitt sé að meta fjöldann í kjarrinu.

Makrílveiðar ganga vel

Makrílveiðar íslenskra skipa innan íslensku fiskveiðilögsögunnar ganga vel þessa dagana. Um tíu skip eru að veiðum í dag eða á leið á miðin eða á landleið með afla.

Á þriðja hundrað látnir í Kongó

Óttast er að allt að 270 manns hafi látist þegar olíuflutningabíll sprakk í litlu þorpi í Kongó í nótt. Mikið eldhaf myndaðist þegar eldsneyti lak úr bílnum. Olíubíllinn var á leið með eldsneyti frá Tansaníu en fór út af veginum í þorpinu Sange, sem er skammt frá landamærunum að Rúanda. Eldsneyti flæddi úr bílnum þegar hann valt og kveiknaði í olíunni þegar hún hafði lekið um hluta þorpsins. Margir þeirra þorpsbúa sem fórust höfðu safnast saman þar sem olían lak í nótt og reynt að verða sér úti um eldsneyti.

Ísland hafnaði í fjórða sæti

Íslendingar höfnuðu í fjórða sæti á Evrópumótinu í bridds sem lauk fyrir stundu í Belgíu. Íslendingar spiluðu sinn síðasta leik við Rússa og unnu þá 19-11. Ítalir urðu Evrópumeistarar að þessu sinni, Pólverjar lentu í öðru sæti og Íraelar í því þriðja.

Kátur kanslari

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er meðal þeirra fyrirmenna sem fylgjast með leik Þjóðverja og Argentínumanna í átta liða úrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Merkel er annálaður knattspyrnuáhugamaður og eins og sést á meðfylgjandi mynd fagnaði hún innilega þegar Thomas Müller kom Þjóðverjum yfir strax á annarri mínútu.

Þyrlan lent með sjómanninn

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Reykjavíkurflugvelli klukkan rúmlega hálf tvö í dag með alvarlega veikan sjómann. Gæslunni barst fyrir hádegi aðstoðarbeiðni frá skipinu Jóhönnu Gísladóttur sem var statt um 120 sjómílur vestnorðvestur af Garðskaga. Sjómaðurinn var fluttur með hraði á spítala með sjúkrabifreið, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.

Þingmaður hyggst mótmæla við Stjórnarráðið

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, hvetur til mótmæla við Stjórnarráðið á bloggsíðu sinni. Um er að ræða mótmæli vegna tilmæla Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna dóms Hæstaréttar um ólögmæti gengislána. „Ég ætla að mæta,“ segir Birgitta.

Parhús á Þingeyri selt á 75 þúsund krónur

Ísafjarðarbær hyggst selja 130 fermetra parhús á Þingeyri fyrir 75 þúsund krónur. Bærinn eignaðist húsið á uppboði, auglýsti svo í vor eftir kauptilboðum og samþykkti bæjarráð fyrr í vikunni að leggja til við bæjarstjórn að eina tilboðinu sem barst, upp á 75 þúsund krónur, yrði tekið. Samkvæmt lýsingu er húsið Fjarðargata 35a steypt parhús, byggt árið 1923. Fasteignamat hljóðar upp á 3,8 milljónir króna en brunabótamat hússins er 18,4 milljónir króna. Þorleifur Pálsson, bæjarritari Ísafjarðarbæjar, skýrir þetta lága verð með því að húsið sé í hörmulegu ástandi og þarfnist viðgerða upp á milljónir króna.

Sjá næstu 50 fréttir