Innlent

Walesverjar rannsaka gjósku

Alex McGregor, sjálfboðaliði hjá CCW, safnar sýnum á Snowdon. Llyn Llydow í baksýn.
Alex McGregor, sjálfboðaliði hjá CCW, safnar sýnum á Snowdon. Llyn Llydow í baksýn. mynd/Daily post

Rannsóknir á ösku frá Eyjafjallajökli eru nú stundaðar í Snowdon þjóðgarðinum í Wales sem dregur nafn sitt af hæsta fjalli landsins. Vísindamenn safna þar gras- og regnvatnssýnum í þeim tilgangi að meta umhverfisáhrif öskufallsins á svæðinu.

Dylan Lloyd, sérfræðingur hjá umhverfisskrifstofunni CCW, segir í viðtali við dagblaðið Daily Post að ekkert bendi til þess að öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hafi haft skaðleg áhrif þar á bæ. Hins vegar sé rannsóknin skammt á veg komin og of snemmt að fullyrða nokkuð um áhrifin.

Vísindamennirnir sjá rannsóknina ekki síst sem undirbúning frekari náttúruhamfara hér á landi.

„Ef annað eldgos verður og annað eldfjall í næsta nágrenni er mjög virkt, þá höfum við aflað mikil­vægra gagna til að meta áhrif þess,“ segir Alex Turner, einn vísindamanna CCW.

Vísindamennirnir eru ekki síst að mæla magn flúors í jarðveginum, en eins og komið hefur fram í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli getur það haft neikvæð áhrif á skepnur.

Rannsóknamiðstöðin stendur hátt yfir stöðuvatninu Llyn Llydow, í austurhlíðum Snowdon-fjallsins. Þar hafa rannsóknir á loftslagsáhrifum verið stundaðar undanfarin ár. Öskurannsóknirnar eru því viðbót við hefðbundin rannsóknastörf hópsins, eins og plöntu- og snjólagarannsóknir. - shá



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×