Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungliðar vilja að Guðmundur segi af sér þingmennsku Ummæli Guðmundar Steingrímssonar þingmanns Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi hafa vakið viðbrögð flokksfélaga hans í Skagafirði og í Húnavatnssýslum. Guðmundur gagnrýndi nokkuð forystu flokksins í viðtölum eftir kosningar og segja flokksfélagar hans í yfirlýsingum að hann hafi ýjað að því að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður framsóknar ætti að víkja. 31.5.2010 06:57
Hundruð farast í hitabylgju á Indlandi Mesta hitabylgja síðan mælingar hófust herjar nú á Indlandi. Hundruð landsmanna hafa farist í hitanum og þúsundir þjást af ýmsum fylgikvillum hitabylgjunnar. 31.5.2010 06:56
Þyrla sótti veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA lenti við Landspítalann í Fossvogi rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi með skipverja af þýska togaranum Kiel sem var að veiðum við A-Grænland eða um 480 sml frá Garðskaga þegar skipverjinn fékk slæman brjóstverk síðdegis á laugardag. 31.5.2010 06:54
Dagur og Jón funda um samstarf í dag Samfylkingin og Besti flokkurinn hófu í gær viðræður um myndun meirihluta um stjórn Reykjavíkur. Fulltrúar flokkanna munu hittast aftur í dag. Besti flokkurinn hafði í gærkvöldi ekkert formlegt samband haft við Sjálfstæðisflokkinn og engir fundir voru fyrirhugaðir á milli þeirra. 31.5.2010 06:30
Allir flokkarnir tapa fylgi Útkoma allra fjögurra stóru flokkanna í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag er lakari en úr sveitarstjórnarkosningunum 2006, samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins. Miðað er við meðaltal atkvæða flokkanna í öllum sveitarfélögum sem þeir buðu fram í undir eigin nafni. 31.5.2010 06:00
Vilja alla flokka í meirihlutasamstarf Fulltrúar þeirra þriggja flokka sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hittust á óformlegum fundum í gær. Heimildir Fréttablaðsins herma að Vinstri græn hafi stungið upp á að komið yrði á fót stjórn allra flokkanna. 31.5.2010 06:00
Vill viðhalda íslömskum einkennum Sulaiman Abdullah Alshiddi í Sádi Arabíu og Hussein Al Daoudi í Svíþjóð hafa sett á laggirnar sjálfseignarstofnunina The Islamic Endowment in Iceland. 31.5.2010 05:30
Gagnrýnir forystu Framsóknarflokks Guðmundur Steingrímsson þingmaður Framsóknarflokksins segir forystu Framsóknarflokksins bera verulega ábyrgð á slöku gengi flokksins á höfuðborgarsvæðinu. Flokkurinn náði einungis manni inn í Kópavogi og á Álftanesi. 31.5.2010 04:00
Þriðjungur landsmanna er í skóla Um þriðjungur landsmanna er í skóla af einhverju tagi, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Alls eru 107.012 nemendur á landinu öllu, en landsmenn eru 317.593. 31.5.2010 03:45
Kannanirnar ofmátu fylgi Besta flokksins Skoðanakönnun Capacent Gallup sem birt var í Ríkissjónvarpinu á föstudag komst næst úrslitum sveitarstjórnarkosninganna í Reykjavík af þeim könnunum sem birtar voru opinberlega dagana fyrir kosningarnar. 31.5.2010 03:30
Erum að þessu fyrir fólkið en ekki listann „Á miðvikudaginn bjóst ég við að þetta færi svona. Þá datt af mér stressið og ég beið rólegur eftir kjördegi. Ég bjóst hins vegar ekki við þessu í janúar þegar ég ákvað að fara í þriðja sætið. Þá ætluðum við að vinna stórsigur og ná þeim gamla inn.“ Þetta segir Oddur Helgi Halldórsson, forvígismaður L-listans sem fékk meirihluta bæjarfulltrúa á Akureyri, sex af ellefu. 31.5.2010 03:00
M-listinn fékk mann Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hélt meirihluta sínum og bætti við sig manni og er nú með fimm menn í bæjarstjórn. M-listi fólksins í bænum náði Ragnýju Þóru Guðjohnsen inn í bæjarstjórn en hún hefur verið varabæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í tvö kjörtímabil. Samfylkingin náði einum manni inn en Framsókn engum. 31.5.2010 02:15
Ánægður í ljósi atlögu ráðherra VG Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta og sjö bæjarfulltrúum af ellefu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar eftir kosningarnar á laugardag. „Við erum mjög ánægð með þessa niðurstöðu í ljósi þeirrar hörðu atlögu sem við urðum fyrir á síðustu vikum,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna. 31.5.2010 02:00
Undirbúin fyrir hið versta Olíulekinn í Mexíkóflóa er versta umhverfisslys í sögu Bandaríkjanna, segir Carol Browner, orkumálaráðgjafi Hvíta hússins. 31.5.2010 02:00
Hommum gefið frelsi Tveimur samkynhneigðum karlmönnum frá Malaví hefur verið sleppt lausum eftir að hafa verið dæmdir í fjórtán ára fangelsi fyrir kynheigð sína. Málið vakti gríðarlega mikla athygli um allan heim og voru stjórnvöld í Malaví gagnrýnd harðlega fyrir afstöðu sína gagnvart samkynhneigðum. 30.5.2010 22:00
Besti flokkurinn og Samfylkingin eru byrjuð í samningaviðræðum Besti flokkurinn og Samfylkingin eru byrjuð í samningaviðræðum um meirihlutasamstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. 30.5.2010 18:56
Virkjunarsinnar sigruðu í Árnessýslu Tekist var á um virkjanir í neðri Þjórsá í kosningum í tveimur sveitahreppum í Árnessýslu, í Flóahreppi og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, og hlutu framboð, sem sérstaklega voru stofnuð gegn áformuðum virkjunum, aðeins einn fulltrúa í hvoru sveitarfélagi. 30.5.2010 18:54
Óformlegar þreifingar í Hafnarfirði Óformlegar þreifingar hafa verið í gangi í Hafnarfirði í dag um myndun nýs meirihluta en oddviti Vinstri grænna vill engu svara um hvort flokkurinn leiti til Sjálfstæðismanna eða Samfylkingar. 30.5.2010 18:46
Þreifingar byrjaðar í Reykjavík Eftir söguleg úrslit kosninganna í gær með sex kjörna fulltrúa hefur Besti flokkurinn framtíð Reykjavíkurborgar í hendi sér, en alls óvíst er hvort myndaður verði meirihluti. 30.5.2010 18:34
Vongóður um að meirihlutasamstarf náist í Kópavogi Viðræðum á milli Næst besta flokksins í Kópavogi, Lista kópavogsbúa, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna er lokið en fyrirhugað er að halda annan fund í kvöld. 30.5.2010 18:04
Nýr meirihluti myndaður á Akranesi Búið er að handsala samkomulag á milli Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar á Akranesi, um að stefna að myndun nýs meirihluta þar í bæ. Fyrst þarf þó að komast að samkomulagi um málefnasamning og eftir að flokkarnir hafa sæst á slíkan samning þá er hægt að tilkynna formlega nýjan meirihluta. 30.5.2010 17:31
Langflestar útstrikanir hjá Sjálfstæðisflokknum Alls strikuðu 4471 kjósandi út nöfn á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eða breyttu sætaskipan. Það voru alls 6915 breytingar gerðar á kjörseðlum í kosningunum í gær. Þannig að rúmlega 64 prósent breyttra kjörseðla tilheyra Sjálfstæðisflokknum. 30.5.2010 17:08
Þýski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu Flugsveit frá þýska flughernum sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 7.-25. júní . Sveitin verður hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. 30.5.2010 15:00
Jón er með hjartað á réttum stað - myndband Þorsteinn Guðmundsson skipar 14.sæti á lista Besta Flokksins. Við hittum hann á kosningavöku flokksins í gærkvöldi rétt eftir að Jón Gnarr kom í hús. Hann sagðist ekki hafa fylgst með fyrstu tölum og hann hefði engann áhuga á að sitja í nefndum fyrir flokkinn. Hann sagði fólk hafa kosið Jón vegna þess að það treysti honum. Hann segir að Jón verði öðruvísi borgarstjóri. 30.5.2010 14:34
Besti flokkurinn fundar um næstu skref Besti flokkurinn er að fara að funda um næstu skref í borgarstjórn en flokkurinn stendur óvænt með pálmann í höndunum eða sex borgarfulltrúa kjörna. Í Silfri Egils í hádeginu sagði Jón Gnarr, oddviti flokksins, að hann þyrfti að tala við sína flokksmenn áður en næstu skref yrðu ákveðin en sá fundur hófst fyrir stundu. 30.5.2010 14:31
Talning á útstrikunum hafin - töluvert um breytingar Talning hófst á breyttum kjörseðlum klukkan tvö í dag að sögn formanns kjörstjórnar sem er Kristín Edwald. 30.5.2010 15:56
Hanna Birna ætlar ekki í formannsframboð Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, segist ekki ætla bjóða sig fram til formanns á aðalafundi Sjálfstæðisflokksins í júní. Þetta sagði hún í Silfri Egils. 30.5.2010 14:11
Dagur gerir ekki kröfu um borgarstjórastólinn Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, er ekki á leið úr borgarstjórnarpólitíkinni þrátt fyrir að flokkur hans hafi beðið afhroð. Hann gerir fastlega ráð fyrir því að ræða við Jón Gnarr í dag um meirihlutasamstarf og gerir ekki kröfu um borgarsstjórastólinn. 30.5.2010 13:45
Meirihlutaviðræður hafnar á Akranesi án Sjálfstæðisflokks Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Vinstri grænir á Akranesi munu hittast í dag klukkan tvö og reyna að mynda meirihlutasamstarf. 30.5.2010 13:37
Sigrún Björk segir árangur L-listans glæsilegan „Mín fyrstu viðbrögð eru bara hamingjuóskir til l listans,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. „Þetta var glæsileg kosning og flottur sigur hjá þeim,“ segir Sigrún Björk í samtali við Vísi. L-listinn fékk 6 menn kjörna á meðan að önnur framboð fengu einn mann hver. 30.5.2010 13:29
Vill fá sér latte áður en næstu skref verða ákveðin „Ég þarf bara að tala við Óttar og Einar og fá mér Latte áður,“ sagði Jón Gnarr í Silfri Egils spurður hver næstu skref Besta flokksins verða í borgarstjórn en eins og kunnugt er hlaut flokkurinn flesta borgarfulltrúa eða sex talsins. Hann áréttaði þó það sem hann hefur alltaf sagt, Besti flokkurinn er til í að vinna með öllum. 30.5.2010 13:06
Meirihlutaviðræður hafnar í Kópavogi Meirihlutaviðræður í Kópavogi eru þegar hafnar án aðkomu framsóknarmanna og Sjálfstæðisflokks. Oddvitar Samfylkingarinnar og Næst besta flokksins segja nauðsynlegt að gefa Sjálfstæðisflokknum frí frá bæjarstjórn. 30.5.2010 12:32
Einar Skúlason: „Ætla að einbeita mér að því að vera ástfanginn“ „Þetta er náttúrulega áfall fyrir mig persónulega og flokkinn,“ segir Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, en Framsóknarflokkurinn náði ekki endurkjöri í borgarstjórn í gær. Framboðið skilaði honum hinsvegar ástinni. 30.5.2010 11:46
Sjálfstæðismenn mega vel við una í þéttbýliskjörnunum Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi og bæjarfulltrúum í helstu þéttbýliskjörum landsins á meðan Samfylkingin tapar mönnum víða. Í Hafnarfirði eru Sjálfstæðismenn að bæta við sig tveimur mönnum á meðan Samfylkingin fer úr sjö bæjarfulltrúum í fimm. Því eru flokkarnir jafn stórir þó svo að Samfylkingin hafi hlotið betr kjörfylgi. 30.5.2010 11:25
Vegagerðin minnir ökumenn á að fara varlega vegna ösku Vegagerðin vill minna fólk á að en er þó nokkuð öskulag á vegum í kringum gossvæðið. 30.5.2010 10:24
Sjónvarpsfréttir í hádeginu Vegna kosninganna verður auka fréttatími í hádeginu á Stöð 2 í dag. Fréttirnir hefjast á slaginu tólf. Farið verður yfir úrslit kosninganna og rætt við stjórnmálaleiðtogana. 30.5.2010 10:13
Kosningarnar upphafið að endalokum fjórflokksins Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á kosningavöku ríkissjónvarpsins í gær, að hún teldi kosninganiðurstöðurnar í raun og veru upphafið að endalokum fjórflokksins. Hún sagði Samfylkinguna taka þessi skilaboð mjög alvarlega en flokknum gekk ekki mjög vel á landsvísu. 30.5.2010 09:41
Meirihlutar féllu víða Mynda þarf nýja meirihluta í mörgum af helstu sveitarfélögum á landinu. Meirihluti sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í Reykjavík kolféll. Hið sama má segja um meirihluta Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar á Akureyri. Þá féll meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Kópavogi. Einnig féll meirihluti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi. 30.5.2010 09:24
Tveir ölvaðir menn stálu ökutækjum Tvö umferðaróhöpp urðu í nótt. Í báðum tilfellum voru ökumenn grunaðir um að hafa stolið farartækjunum og ekið undir áhrifum áfengis. 30.5.2010 08:37
Allir nýir borgarfulltrúar koma af Æ-lista Sex nýir borgarfulltrúar taka sæti í borgarstjórn Reykjavíkur að loknum kosningum sem fram fóru í gær. Þeir eru allir af lista Besta flokksins. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs sátu allir í borgarstjórn á liðnu kjörtímabili. 30.5.2010 08:21
Besti flokkurinn sigurvegari - talningu lokið í Reykjavík Besti flokkurinn er með sex borgarfulltrúa kjörna, þegar búið er að telja öll atkvæði í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn er með fimm borgarfulltrúa kjörna. Samfylkingin er með þrjá borgarfulltrúa og VG einn. Aðrir flokkar ná ekki inn kjörnum fulltrúum. 30.5.2010 03:54
Vill aukið samstarf í borgarstjórn „Ég er að hugsa hvort það þarf að vera meirihluti, sagði Jón Gnarr þegar að fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis spurði hann hvort hann væri farinn að hugsa eitthvað um myndun meirihluta í Reykjavík eftir kosningarna. „Er ekki hægt að breyta þessu eitthvað? Þarf að vera meirihluti og minnihluti?“ 30.5.2010 02:47
Lokatölur í Keflavík: Meirihlutinn heldur Lokatölur eru komnar í Reykjanesbæ og þar heldur Sjálfstæðisflokkurinn meirihluta sínum þrátt fyrir að dala um nokkur prósentustig. Flokkurinn fær sjö bæjarfulltrúa, Samfylkingin er með þrjá og Framsókn er með einn bæjarfulltrúa. Rúm sjö prósent skiluðu auðu, sem er nokkuð yfir meðaltali á á landsvísu. 30.5.2010 02:27
Samfylkingin ætlar að ræða við VG Samfylkingarmenn í Hafnarfirði ætla að ræða við VG um myndun meirihluta í bænum. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri ætlar að taka þátt í myndun þess meirihluta þó að hann hafi ekki náð kjöri sem bæjarfulltrúi. 30.5.2010 01:44
Sóley Tómasdóttir komin inn - Samfylkingin missir einn Sóley Tómasdóttir er borgarfulltrúi eftir að búið er að telja 43408 atkvæði í Reykjavík. Besti flokkurinn er með sex menn kjörna líkt og þegar fyrstu tölur voru kynntar, Sjálfstæðisflokkurinn er með 5 menn kjörna og Samfylkingin er með 3 menn kjörna. 30.5.2010 01:24