Innlent

Þýski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu

Flugsveit frá þýska flughernum sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi frá 7.-25. júní . Sveitin verður hér stödd í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Um 140 liðsmenn þýska flughersins verða staddir á Íslandi vegna verkefnisins, sem að þessu sinni verður sinnt með sex F-4 Phantom orrustuþotum. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar sinna loftrýmisgæslu hér á landi.

Orrustuþotur þýska flughersins lenda á Keflavíkurflugvelli 1.júní.

2. til 6. júní mun flugsveitin kynna sér aðstæður hér á landi, æfa lendingar á Keflavíkurflugvelli og aðflug að Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×