Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Innbrotsþjófur á hjóli Brotist var inn í veitingastað í miðborginni undir morgun og komst þjófurinn undan á reiðhjóli. Lögregla hafði hinsvegar uppi á honum nokkru síðar og er nú verið að yfirheyra hann.- 3.3.2010 08:31
Peningum handa hungruðum varið í striðsrekstur Komið hefur í ljós að milljónum bandaríkjadala, sem átti að verja til hjálpar hungruðum heimi í Eþíópíu um miðjan níunda áratug síðustu aldar, var varið í vopnakaup. Þetta fullyrðir fréttastofa BBC. 3.3.2010 08:03
Campbell sleppur við kæru Lögreglan í New York segir að bílstjóri ofurfyrirsætunnar Naomi Campbell ætli ekki að kæra hana þrátt fyrir að hafa sakað hana um að lemja sig. 3.3.2010 07:59
Töluvert tjón í eldsvoða í Hveragerði Töluvert tjón varð þegar eldur kviknaði í þúsund fermetra iðnaðarhúsnæði í Hveragerði um eitt leitið í nótt. Öryggisvörður, sem átti leið hjá, fann reykjarlykt frá húsinu og kallaði á slökkvilið og var húsið fullt af reyk þegar það kom á vettvang og mikill hiti var orðinn þar innandyra. 3.3.2010 07:12
Ráðist á leigubílstjóra Ráðist var á leigubílstjóra í austurborginni undir morgun og gerð tilraun til að ræna hann. Bílstjórinn slapp nær ómeiddur og gat gefið greinagóða lýsingu á árásarmanninum, sem leiddi til þess að hann var handtekinn skömmu síðar. Hann á afbrotaferil að baki. 3.3.2010 07:07
Clinton kom færandi hendi til Chile Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, færði stjórnvöldum í Chile 25 gervihnattasíma að gjöf í örstuttri heimsókn sinni til landsins í gær. Hún hét jafnframt enn frekari stuðningi við landið. 3.3.2010 07:00
Morðingi Bulgers litla aftur í steininn Jon Venables, sem dæmdur var fyrir að myrða hinn tveggja ára gamla James Bulger árið 1993, hefur verið handtekinn að nýju. Hann er grunaður um að hafa rofið skilorð. 3.3.2010 07:00
Barnaverndayfirvöld hafa afskipti af börnum Jacksons Barnaverndayfirvöld í Los Angeles ætla að kanna aðstæður hjá fjölskyldu Michaels Jacksons heitins. Grunur leikur á að Jaafar Jackson, þrettán ára bróðursonur Michaels, hafi ógnað sonum Michaels með rafbyssu í síðustu viku. 3.3.2010 07:00
Staða Grikklands lýsir stríðsástandi Gríski forsætisráðherrann, George Papandreou, segir að staða ríkissjóðs Grikklands sé eins og að stríðsástand vari. 3.3.2010 06:34
Þrjár úðamyndir í undirgöng Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að úða með úðabrúsum á vegg í undirgöngum undir Miklubraut við Lönguhlíð í Reykjavík. 3.3.2010 06:00
Reynt að funda um nýjan samning í dag Bretar og Hollendingar fóru í gær yfir tilboð Íslendinga um nýja lausn á Icesave. Tveir fundir voru með íslensku sendinefndinni sem er ytra. Hún er þar enn og er reiknað með frekari samtölum í dag. Óvíst er hvort um formlega fundi verður að ræða. Ákvörðun um heimför nefndarinnar bíður viðbragðanna. 3.3.2010 06:00
Segir KFC vera kærkomna viðbót í bæinn Skipulagsnefnd Akureyrar frestaði afgreiðslu erindis þar sem farið var fram á lóð til handa skyndibitastaðnum KFC í bænum vegna þess að ónógar upplýsingar fylgdu erindinu. Í yfirlýsingu sem Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri Akureyrar, sendi Fréttablaðinu kemur jafnframt fram að skipulagsstjóra bæjarins hafi verið falið að afla frekari upplýsinga. 3.3.2010 06:00
Óttast erfðasjúkdóm og fer í skimun í dag Heilu fjölskyldurnar í Færeyjum þjást af arfgenga sjúkdómnum CTD. Dæmi eru um að systkini deyja með stuttu millibili. 3.3.2010 06:00
Kallar skilanefndir fyrir Efnahags- og skattanefnd Alþingis hyggst kalla skilanefndir bankanna til fundar við sig á föstudag og ræða samskipti þeirra við skattrannsóknarstjóra. 3.3.2010 06:00
Vill setja skuldsett félög í þrot „Við tryggjum ekki atvinnu og velferð í landinu nema við hættum að tipla á tánum í kringum kröfuhafa og útrásarvíkinga," sagði Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, í umræðum á Alþingi í gær. 3.3.2010 06:00
Allt fullt af síld í Grundarfirði Allt er nú fullt af síld í Grundarfirði, að sögn vestlenska fréttablaðsins Skessuhorns. Telja heimildarmenn blaðsins að allt að hálf milljón tonn af síld sé þar að finna. 3.3.2010 06:00
Ölvaður á hesti hrækti á löggu Ríkissaksóknari hefur ákært rúmlega tvítugan mann fyrir að vera drukkinn á hesti og hrækja síðan á lögregluvarðstjóra. 3.3.2010 06:00
Tveir tókust á við útidyr konu Ein líkamsárás var nýverið kærð til lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Hún átti sér stað fyrir utan heimahús. 3.3.2010 05:45
Áhrif á íslenska heilbrigðiskerfið metin Meta þarf hvort og þá hvaða áhrif starfsemi einkarekins spítala á Ásbrú (gamla varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli) hefur á íslenska heilbrigðiskerfið. Þetta segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. 3.3.2010 05:00
Leita botnfisks á 600 stöðum Vorrall Hafrannsóknastofnunar, eins og stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum er jafnan kölluð, hófst síðustu helgina í febrúar og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu: þrjú togskip auk rannsóknaskipa Hafró. Alls verður togað á um 600 stöðvum vítt og breitt á landgrunninu á 20 til 500 metra dýpi. 3.3.2010 04:30
Starfsmönnum deildarinnar ekki fjölgað Aðeins var brugðist við einni af fjórum ábendingum sem Ríkisendurskoðun gerði vegna starfsemi efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra (RLS) í stjórnsýsluúttekt árið 2006, samkvæmt eftirfylgni stofnunarinnar sem upplýst var um í gær. 3.3.2010 04:30
Sjálfstraust atvinnulausra byggt upp Virkir og óvirkir atvinnuleitendur eru leiddir saman í nýju verkefni Rauða krossins sem ber heitið Félagsvinir atvinnuleitenda. Markmið verkefnisins er að virkja þá sem hafa verið atvinnulausir lengi. 3.3.2010 04:30
Þarf ekki að skerða þjónustu Strætó bs. hagnaðist um 296 milljónir króna á síðasta ári eftir fjármagnsliði. Verulegur viðsnúningur hefur orðið á neikvæðri stöðu eigin fjár, samkvæmt tilkynningu á vef fyrirtækisins. 3.3.2010 04:15
Flóðbylgjur skullu á strandbyggðunum Svo virðist sem dregið hafi verulega úr gripdeildum í Concepcion í Chile, næststærstu borg landsins, en hún varð einna verst úti í jarðskjálftanum á laugardag. 3.3.2010 04:15
Domus og hótel áfram óafgreitt Afgreiðslu leyfa fyrir tvær umdeildar framkvæmdir á Heilsuverndarreitnum við Barónsstíg og Egilsgötu var frestað á síðasta fundi skipulagsráðs Reykjavíkur. 3.3.2010 04:00
Fékk fjórar milljónir í framlög vegna prófkjörs Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk alls fjórar milljónir og 250 þúsund krónur í framlög vegna prófkjörs fyrir alþingiskosningarnar 2007, þar af hálfa milljón króna frá Baugi Group ehf. Önnur framlög lögaðila námu 2.750.000 krónum, undir hálfri milljón hvert og eitt. Ein milljón kom frá einstaklingum. Ragnheiður reiddi svo fram tæpar 2,5 milljónir úr eigin vasa. 3.3.2010 04:00
Kosið um breytingu á lögum Í fyrsta skipti á lýðveldistímanum gefst þjóðinni færi á að kjósa um tiltekið mál í beinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Málið sem liggur fyrir er hvort lög um breytingar á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave taki gildi. 3.3.2010 03:45
Umfjöllun erlendis skilar ferðamönnum Alls komu 3.600 gestir í Upplýsingamiðstöð ferðamanna vikuna 14. til 20. febrúar síðastliðinn. Þetta er um 25 prósent fjölgun miðað við venjulega febrúarviku samkvæmt upplýsingum frá Höfuðborgarstofu. 3.3.2010 03:15
Ísland sett í öndvegi í Mílanó Ljósmyndir frá Íslandi prýða nú eina fjölförnustu göngugötu Mílanóborgar, Corso Vittorio Emanuele. Ljósmyndasýningin var opnuð á Íslandsdegi í Mílanó síðastliðinn föstudag, af þeim Kristjáni L. Möller samgönguráðherra og Massimiliano Orsatti, yfirmanni markaðs- og ferðamála borgarinnar. 3.3.2010 03:15
Eftirlitsnefnd sveitarfélaga fær upplýsingar Frumvarp sem veitir eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga skýra heimild til að kalla eftir ársfjórðungslegum reikningsskilum frá sveitarfélögum var samþykkt í ríkisstjórn í gær. 3.3.2010 03:00
Icesave varðar við lög og rétt „Icesave-deilan varðar lög og rétt,“ segir í tilkynningu nýrra samtaka sem nefnast Þjóðarheiður – samtök gegn Icesave. 3.3.2010 02:15
Ekki þvælast fyrir framkvæmdum Þingmenn stjórnarandstöðunnar hentu á lofti yfirlýsingu stjórnarþingmannsins Sigmundar Ernis Rúnarssonar, Samfylkingu, um að atvinnuleysið í landinu væri „áfellisdómur yfir stjórnvöldum þessa lands“. 3.3.2010 02:00
Of langt liðið frá skjálftanum Alþjóðabjörgunarsveit Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður ekki send á skjálftasvæðið í Chile. Ástæðan er sú að of langt er liðið frá skjálftanum og fjarlægðir miklar, samkvæmt tilkynningu á heimasíðu Landsbjargar. 3.3.2010 01:45
Segir fjöldamorð uppspuna Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtogi Bosníu-Serba, segir að fjöldamorðin í Srebrenica og 44 mánaða umsátur um borgina Sarajevo séu einber uppspuni. Allur málatilbúnaður á hendur sér vegna stríðsglæpa sé byggður á fölsunum. 3.3.2010 01:00
52.000 króna útgjöld á ári Venjuleg fjölskylda þarf 100.000 króna heildartekjur til að standa undir hækkunum á bensínverði undanfarið ár. Þetta staðhæfði Ásbjörn Óttarsson, Sjálfstæðisflokki, á Alþingi í gær. 3.3.2010 01:00
Dregur úr umsvifum sínum Breska ríkisútvarpið BBC ætlar að leggja niður tvær af sérhæfðari útvarpsrásum sínum og fækka vefsíðum til að ná fram hagræðingu í rekstri. Einnig verður dregið úr kaupum á amerísku sjónvarpsefni. 3.3.2010 00:45
Gömul raftæki valda skaða á umhverfinu Umhverfinu er hætta búin af gömlum raftækjum sem safnast upp, einkum í þriðja heiminum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn umhverfisráðs Sameinuðu þjóðanna (UNEP). 3.3.2010 00:30
Bannar allar sjálfsvígsárásir Muhammad Tahir-ul-Qadri, leiðtogi alþjóðlegra samtaka múslima, hefur gefið út trúaryfirlýsingu, svokallaða ‚fatwa', sem bannar sjálfsvígsárásir. 3.3.2010 00:30
Leyniskýrslur um hvarf Madeleine Foreldrum bresku telpunnar Madeleine McCann er mjög brugðið við fréttir um að hjá portúgölsku lögreglunni eru til leyniskýrslur um hvarf hennar upp á mörghundruð blaðsíður. 3.3.2010 09:57
Stjórnarandstaðan kom í veg fyrir nýtt Icesave-tilboð í kvöld Tilboðið sem átti að leggja fyrir hollensku og bresku samninganefndirnar í kvöld var ekki lagt fram vegna þess að stjórnarandstaðan lagðist gegn því. Þeim þótti tilboðið bæði lélegt og vanhugsað. 2.3.2010 22:08
Ríkir Grikkir aðstoða stjórnvöld í baráttunni við kreppuna Gríska ríkið, sem á í gríðarlegum fjárhagsvandræðum þessa daganna, hefur biðlað til ríkra Grikkja um að leggjast á sveif með ríkinu og aðstoða það við að vinna úr þeim ógöngum sem ríkið stendur frammi fyrir eftir efnahagshrun. 2.3.2010 21:24
Ákærður fyrir að verða veiðimanni að bana með flugvélahreyfli Réttað var yfir Bryan Griffiths í dag í Birmingham í Bretlandi en hann hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Fyrir um ári síðan varð hann veiðimanninum Trevor Morse að bana við heldur undarlegar aðstæður. Hreyfill í smáflugvél sem Bryan stjórnaði fór í höfuðið á Morse og klauf í sundur. 2.3.2010 20:05
Fengu fótboltalúxus að láni Björgólfur Guðmundsson skilur eftir sig 30 milljóna króna skuld hjá knattspyrnufélaginu West Ham vegna lúxusmeðferðar Landsbankamanna á heimaleikjum félagsins. 2.3.2010 19:30
Catalína ákærð fyrir mansal, hótanir og líkamsárásir Héraðsdómur Reykjaness tók í dag fyrir mál ákæruvaldsins gegn Catalínu M. Ncogo. Dómari ákvað að þinghaldið yrði lokað. 2.3.2010 19:15
Flugumferðarstjórar boða til verkfalls Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boða til vinnustöðvunar félagsmanna sinna dagana 10. mars til 19. mars 2010, alls fimm sinnum í fjórar klukkustundir samfellt í hvert skipti. „Félagið leggur þannig áherslu á kröfur sínar í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning, þar sem hvorki gengur né rekur,“ segir í tilkynningu frá félaginu. 2.3.2010 16:40