Fleiri fréttir

Tvenn verðlaun til Fréttablaðsins

Anton Brink Hansen og Valgarður Gíslason, ljósmyndarar Fréttablaðsins, hlutu á laugardaginn verðlaun fyrir bestu ljósmyndir ársins í flokki íþróttamynda og daglegs lífs í blaðaljósmyndarakeppninni Myndir ársins. Myndirnar voru báðar birtar í helgarblaði Fréttablaðsins. Rakel Ósk Sigurðardóttir, ljósmyndari DV, hlaut verðlaun fyrir mynd ársins.

Kannar hvort biðin hafi lengst

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra ætlar að kanna hvort bið fólks sem sjúkratryggt er hér á landi eftir frjósemismeðferð hafi lengst vegna aukinnar ásóknar útlendinga í þjónustuna hér á landi.

Karl fékk Tékkneska ljónið

Karl Óskarsson var útnefndur kvikmyndatökumaður ársins á kvikmyndahátíðinni Tékkneska ljóninu sem var haldin í Prag á laugardag. Verðlaunin hlaut hann fyrir töku á myndinni 3 sezony v pekle (Þrjár árstíðir í helvíti), sem var frumsýnd í Tékklandi fyrir jól. „Þetta er frekar stór mynd á tékkneskan mælikvarða. Hún var tilnefnd til ellefu ljóna og fékk verðlaun fyrir aðalleik, kvikmyndatöku og hljóð,“ segir Karl.

Nemendur HÍ bestir á lögmannsprófum

Lögfræðingar frá lagadeild Háskóla Íslands skara fram úr lögfræðingum frá öðrum lagadeildum í prófum til að öðlast réttindi sem héraðsdómslögmaður.

Tilkynning frá landskjörstjórn

Landskjörstjórn hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Samkvæmt skýrslum yfirkjörstjórna voru 229.977 kjósendur á kjörskrá við þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010, sem fram fór laugardaginn 6. mars 2010, og greiddu 144.231 manns atkvæði.

Þingkosningar í skugga hryðjuverka

Þingkosningarnar í Írak fara fram í skugga hryðjuverkaárása, en að minnsta 30 hafa látið lífið og á sjötta tug manna særst í sprengjuárásum í Írak í morgun eftir að kjörstaðir opnuðu.

Þingmenn VG vilja AGS út

Nokkrir þingmenn vinstri grænna íhuga að styðja þingsályktunartillögu Framsóknar og Hreyfingarinnar um að samstarfi við AGS verði slitið. A.m.k þrír þingmenn Vinstri grænna vilja endurskoða samstarfið. Fyrrverandi ráðherra vill slíta því.

Opið í Bláfjöllum

Opið er í Bláfjöllum í dag til kukkan fimm. Þar er hiti við frostmark og fremur hægur vindur.

Allt tiltækt slökkvilið kallað upp í Grafarvog

Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað að fjölbýlishúsi í Sóleyjarrima Grafarvogi vegna tilkynningar um reyk. Engar upplýsingar fengust þegar haft var samband við slökkviliðsmenn á vettvangi en þeirra er að vænta von bráðar.

Viðhald í Smáralindinni

Sýningi Viðhald 2010 hófst í gær í Vetrargarðinum í Smáralind. Sýningin er hugsuð út frá þörfum húseigenda sem vilja nálgast viðhald eigna sinna á faglegan máta. Þar verða veitt svör við spurningum um flest það sem lýtur að viðhaldsmálum. Sýningin stendur í dag frá kl. 11 - 17 og er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Helmingi minni kjörsókn í Kópavogi

Um það bil 1,65 prósent höfðu kosið í Kópavogi klukkan tíu í morgun. Það er rúmlega helmingi minna en fyrir alþingiskosningarnar árið 2009 en þá höfðu 2,84 prósent greitt atkvæði á sama tíma.

Nýtt Ísland ætlar að vekja Jóhönnu og Steingrím

Vakningalest Nýs Íslands fór af stað klukkan níu í morgun. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum er verkefni morgunsins að vekja og minna forsætisráðherra og fjármálaráðherra á kosningarétt sinn. Svo verður haldið uppboð á Fríkirkjuvegi 11 klukkan 11:00.

Allir sammála um ósanngirni laganna

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segir þá ákvörðun sína að skjóta Icesave-málinu til þjóðarinnar hafa skilað þeim árangri að allir séu nú sammála um það að Icesave-samkomulagið sem gert var í fyrra hafi verið ósanngjarnt.

Aukinn viðbúnaður eftir flótta

„Hér eftir munum við láta landamæraeftirlit vita af dagsleyfum fanga,“ segir Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við flótta Guðbjarna Traustasonar, fanga á Litla-Hrauni.

Saksóknari í deilu við dómarann

Hæstiréttur mun á næstunni eyða óvissu um það hvort eðlilegt sé að brot gegn lögreglumönnum séu rannsökuð af samstarfsmönnum þeirra hjá sama embætti. Hæstiréttur hefur kveðið upp fjóra misvísandi dóma um þetta atriði og fór ríkissaksóknari vegna þess fram á að fimm manna dómur myndi dæma í enn einu slíku máli til að fyrir liggi skýr afstaða réttarins í eitt skipti fyrir öll.

Ríkið gæti skapað sér bótaskyldu

Stjórnvöld verða, líkt og aðrir, að bíða niðurstöðu Hæstaréttar um lögmæti gengisbundinna lána, að sögn Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. „Það er eitthvað hægt að liðka fyrir niðurstöðu, en það er ekkert til sem heitir flýtimeðferð fyrir Hæstarétti," segir hann og kveður því svigrúm til að flýta niðurstöðu afar takmarkað.

Kosið um virkjun í Flóahreppi í vor

Líklegt þykir að stuðningur sitjandi sveitarstjórnar við fyrirhugaða Urriðafossvirkjun í Þjórsá verði stærsta kosningamálið í sveitarstjórnarkosningum í Flóahreppi í vor, enda verður virkjunin vart komin á aðalskipulag fyrir kosningar.

Óvissa um fjármögnun tefur

„Staða mála á Íslandi er nokkurn veginn óbreytt frá því sem verið hefur. Viðræður halda áfram,“ sagði Caroline Atkinson, forstöðumaður ytri samskipta hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) á reglubundnum upplýsingafundi í vikulokin.

Landsmótið verður í Reykjavík

„Ég vona að þetta verði til góðs fyrir hestamennskuna í landinu,“ segir Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga.

Flóð kvartana frá foreldrum

Leikskólaráð Reykjavíkurborgar mun endurskoða ákvörðun sína um að afnema systkinaforgang á leikskólum borgarinnar. Er þetta gert að tillögu Oddnýjar Sturludóttur, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Sérsveitarmenn sóttu Ramos

Brasilískir sérsveitarmenn sóttu gæsluvarðhaldsfangann Hosmany Ramos hingað til lands í gær. Þeir fylgdu honum til Brasilíu þar sem hann heldur áfram afplánun á ellefu árum sem hann á eftir af 25 ára fangelsisvist sem hann var dæmdur til á sínum tíma fyrir mannrán, rán og fleiri alvarleg brot.

Um 140 milljarðar króna í mútur

Spilling er enn útbreidd í Grikklandi, þrátt fyrir nærri þriggja áratuga aðild þess að Evrópu­sambandinu. Samtökin Transparency International, sem fylgjast með spillingu í ríkjum heims, halda því fram að almenningur í Grikklandi hafi árið 2009 greitt nærri 800 milljónir evra í mútur, eða hátt í 140 milljarða íslenskra króna.

Stórt skref stigið í réttlætisátt

„Ég hef tekið af öll tvímæli með nýrri reglugerð að þessi hópur á rétt á 95 prósenta endurgreiðslu frá ríkinu,“ segir Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sem undirritaði í gær nýja reglugerð um aukna þátttöku sjúkratrygginga í nauðsynlegum tannlækninga- og tannréttingakostnaði vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa.

Sjóræningjar taka norskt olíuskip

Sjóræningjar náðu í dag valdi á norsku olíuflutningaskipi undan strönd Madagaskar og er því nú siglt í átt að Sómalíu. Skipið heitir UBT Ocean og var það á leiðinni frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum til Tanzaníu að því er talsmaður Brovigtank skipafélagsins segir í samtali við Reuters fréttastofuna.

Bretar og Hollendingar til í viðræður í næstu viku

Bretar og Hollendingar hafa lýst sig reiðubúna til þess að halda viðræðum í Icesave-málinu áfram í næstu viku. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í Kastljósi í kvöld.

Vatnavextir í Ísafjarðardjúpi

Vegagerðin varar ökumenn við að fara veginn um Ísafjarðardjúp vegna mikilla vatnavaxta. Vegir eru greiðfærir Á Suður- og Suðausturlandi og sama má segja um Vesturland. Þar er þó óveður í Kolgrafafirði.

Ólafur kýs klukkan hálfellefu í fyrramálið

Þrátt fyrir að forystumenn ríkisstjórnarinnar séu óánægðir með komandi þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave-málinu ætlar sá sem var þess valdandi að kosningunni var komið á ekki að sitja heima.

Erlendir blaðamenn furða sig á skeytingarleysi gagnvart lýðræðinu

Ólafur Elíasson, einn forsvarsmanna InDefense hópsins segist hafa orðið var við það síðustu daga að erlendir fjölmiðlamenn furði sig á því skeytingarleysi sem forystumenn ríkisstjórnarinnar sýni þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fer á morgun. Mikill fjöldi erlendra blaðamanna er nú staddur hér til þess að fylgjast með atkvæðagreiðslunni og segir Ólafur að hann og hans menn hafi farið í yfir 200 viðtöl frá því forseti synjaði lögunum.

Góð kjörsókn styrkir samningsstöðuna

Stjórnarandstaðan leggur mikið upp úr góðri kjörsókn í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun og segir hana styrkja samningsstöðu Íslendinga í Icesave málinu.

Blönduóslöggan tálguð í spýtu

Hin landsfræga Blönduóslögga er orðin uppspretta minjagripaframleiðslu. Listakona í bænum tálgar út lögreglumenn fyrir ökumenn til að hengja í baksýnisspegilinn.

Vona að viðræður haldi áfram eftir helgi

Leiðtogar stjórnarflokkanna telja að verulega hafi dregið saman með Íslendingum og viðsemjendum þeirra í Icesave deilunni og vona að samningaviðræður geti haldið áfram strax eftir helgina.

„Mottu-merki“ seld á kjörstað

„Mottu-mars," mánaðarlangt átak Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein hefur farið vel af stað en fjölmargir karlmenn hafa sýnt átakinu stuðning með því að safna yfirvaraskeggi og skrá sig á vefsíðu átaksins.

Enn skelfur jörð undir Eyjafjallajökli

Enn skelfur undir Eyjafjallajökli og hafa síðustu klukkutíma orðið á bilinu 20 til 30 jarðskjálftar á klukkustund, að sögn Steinunnar Jakobsdóttur jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands. Hún segir að enginn skjálftanna hafi náð stærðinni tveir á Richter.

Forstjóri Flugstoða verður prófessor

Þorgeir Pálsson, forstjóri Flugstoða, tekur við stöðu prófessors í flugleiðsögutækni við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, þegar hann lætur af starfi forstjóra Flugstoða í lok apríl. Hann verður jafnframt starfsmaður Flug-Kef ohf., hins nýja sameinaða fyrirtækis, sem tekur við starfsemi Flugstoða og Keflavíkurflugvallar.

Undirrituðu samkomulag um Landsmót hestamanna

Hestamannafélagið Fákur og Landssamband hestamannafélaga undirrituðu í dag samstarfssamning um að Landsmót hestamanna árið 2012 verði haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík.

Lögreglumenn lýsa yfir þungum áhyggjum

Lögreglufélag Þingeyinga lýsir yfir þungum áhyggjum og megnri óánægju með seinagang og áhugaleysi í samningaviðræðum samninganefndar ríkisins við Landssamband lögreglumanna. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins fyrr í dag.

ASÍ skoðar vinnulag bankanna

Á síðasta fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands var ákveðið að skipa tvo þriggja manna starfshópa, auk sérfræðinga sambandsins, sem fara munu í saumana á aðkomu bankanna að endurskipulagningu á fjárhag heimila og fyrirtækja. Frá þessu er greint á vef ASÍ.

Tæplega 11 þúsund búnir að kjósa

Skömmu eftir klukkan þrjú dag höfðu 10.614 greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave lögin. Þar af höfðu 6525 greitt atkvæði í Laugarhaldshöllinni, að sögn Bergþóru Sigmundsdóttur deildarstjóra hjá Sýslumanninum í Reykjavík. Meira en hálftíma biðröð myndaðist seinnipartinn í dag við Laugardalshöllina en það er svipað því sem verið hefur undanfarin ár.

Prinsessa í einelti

Aiko prinsessa í Japan hefur misst úr nokkra daga í skóla vegna eineltis, að sögn japönsku hirðarinnar. Prinsessan er átta ára gömul.

Frumvarp um hópmálsóknir verði afgreitt sem fyrst

Neytendasamtökin telja brýnt að frumvarp sem heimilar hópmálsóknir fái skjóta meðferð á Alþingi. Þingmenn allra flokka standa að frumvarpinu sem vísað var til annarrar umræðu í gær. Neytendasamtökin hafa á undangegnum árum vakið athygli á því að hér á landi skorti heimild til hópmálsóknar og því vona samtökin að frumvarpið verði að lögum sem fyrst.

Sjá næstu 50 fréttir