Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rannsóknin verði fyrir opnum tjöldum Í væntanlegri tillögu um rannsókn á því hvers vegna Ísland var á lista viljugra þjóða, þegar ráðist var inn í Írak 2003, verður kveðið á um að yfirheyrslur fari fram fyrir opnum tjöldum. 2.2.2010 03:30
Framtíðarsýn spítala og háskóla samofin Nýtt klínískt rannsóknasetur Landspítalans og Háskóla Íslands var opnað á dögunum. Setrið er áfangi í að auka samstarf stofnananna tveggja en framtíðarsýn forstjóra LSH er að heilbrigðismenntun færist meira og minna til spítalans. 2.2.2010 03:00
Skólaráð mun láta í sér heyra „Skólaráði Seljaskóla finnst að því komi sá niðurskurður við, sem skólinn verður fyrir, og boðar að það muni láta í sér heyra.“ Þetta segir Þórður Kristjánsson, skólastjóri Seljaskóla, spurður um nýlega ályktun skólaráðs skólans. 2.2.2010 02:30
Dagbók Mengele boðin upp Búist er við því að safnarar sem sérhæfa sig í munum tengdum nasistum og Þriðja ríkinu berjist hart um að eiga hæsta boð í dagbók og bréf Joseph Mengele, sem kallaður var engill dauðans þegar hann var læknir í útrýmingabúðunum í Auscwhitz í Seinni heimstyrjöldinni. Bækurnar gætu farið á allt að 40 þúsund pund, eðarúmar átta milljónir íslenskra króna. 1.2.2010 22:50
Íslenskir menntaskólanemar sigra í alþjóðlegri olíuleitarkeppni Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu sigraði á dögunum í alþjóðlegu olíuleitarkepninni 2009 og er þetta annað árið í röð sem skólinn fer með sigur af hólmi í þessari keppni. Þegar keppninni lauk á laugardag stóð lið FAS uppi sem sigurvegari og þá höfðu strákarnir sem tóku þátt bæði fundið arðbærar olíulindir sem gáfu ágætlega af sér og eins náðu þeir að gera hagstæða viðskiptasamninga við önnur lið. Sigurliðið sem heitir Puulsa er skipað þeim Jóhannesi Óðinssyni, Ottó Marvin Gunnarssyni og Sigfinni Björnssyni. 1.2.2010 22:07
Tveir breskir hermenn féllu í Afganistan Tveir breskir hermenn létust í Afganistan í dag þegar tvær sprengjur sprungu í vegarkanti en þeir voru fótgangandi í eftirlitsferð í Helmand héraði. 253 breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá því herleiðangurinn í Afganistan hófst árið 2001. 1.2.2010 21:00
Alþingi opnar upplýsingasíðu um ríkisábyrgð á Icesave Síða með lögum, þingsályktun og efni sem tengist ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi hefur verið opnuð á vef Alþingis. Þar gefst væntanlegum þáttakendum í þjóðaratkvæðagreiðslu um ríkisábyrgð á Icesave reikningum Landsbankans kostur á að kynna sér málið til hlítar áður en ákvörðun er tekin um að samþykkja lög um ríkisábyrgð eða synja þeim. 1.2.2010 20:19
VG vinnur á og helmingur styður ríkisstjórnina VG vinnur á hjá kjósendum ef marka má nýjan Þjóðarpúls Gallup sem RÚV sagði frá í kvöldfréttum. Stjórnarflokkarnir eru nú jafnstórir með 25 prósenta fylgi. Helmingur aðspurðra styður því ríkisstjórnina en stærsti stjórnmálaflokkurinn er Sjálfstæðisflokkurinn sem fengi um þriðjung atkvæða færu úrslit kosninga á sama veg og könnun Gallup. 1.2.2010 19:43
Segir Íslendinga hafa logið að Hollendingum Fyrrverandi stjórnarformaður hollenska fjármálaeftirlitsins segir að Íslendingar hafi logið að hollendingum trekk í trekk þegar þeir síðarnefndu óskuðu eftir upplýsingum um ástand íslenska fjármálakerfisins, misserin fyrir hrun. Þetta kom fram máli Arnolds Schilder sem í dag bar vitni fyrir rannsóknarnefnd á hollenska þinginu sem rannsakar fjármálakreppuna sem gengið hefur yfir heiminn. 1.2.2010 19:24
Strákarnir okkar fengu höfðinglegar móttökur Strákarnir okkar voru hrærðir og þreyttir þegar þeir lentu síðdegis í dag með bronsmedalíuna um hálsinn. Þeirra beið móttökuathöfn í Laugardalshöll þar sem tekið var vel á móti þeim. 1.2.2010 18:25
Hæstiréttur fyrirskipar héraðsdómi að taka mál Ramosar fyrir aftur Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnist að staðfesta beri úrskurð dómsmálaráðherra um að framselja Hosmany Ramos til Brasilíu. Héraðsdómur staðfesti úrskurðinn í síðustu viku en verjandi Ramos hélt því fram að framsalskrafan hafi ekki verið gerð af réttum aðila í Brasilíu, en þar er Ramos eftirlýstur fyrir að flýja úr fangelsi. 1.2.2010 17:16
Skipulagsbreytingum vegna neðri Þjórsár synjað staðfestingar Umhverfisráðherra hefur synjað staðfestingar á skipulagsbreytingum varðandi virkjanir í neðri Þjórsá en í úrskurðum ráðuneytisins segir að þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu stangist á við skipulags- og byggingarlög. 1.2.2010 16:52
Með andláti Steingríms lýkur merkum kafla í þjóðmálasögu Íslendinga Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent frá sér tilkynningu vegna andláts Steingríms Hermannssonar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, en hann lést á heimili sínu í Garðabæ í morgun. 1.2.2010 16:11
Útgefandi Morgunblaðsins brotlegur við lög um persónuvernd Útgefandi Morgunblaðsins, Óskar Magnússon, hefur verið úrskurðaður brotlegur við persónuverndarlög þegar hann fór í leyfisleysi inn í einkapóst Jóhanns Bjarna Kolbeinsson, sem þá var blaðamaður Morgunblaðsins. 1.2.2010 15:54
Falin myndavél yfir rúmi BBC stjörnu Framleiðandi hjá BBC sjónvarpsstöðinni er á leið í fangelsi eftir að upp komst að hann hafði tekið hvílubrögð sín með meira en tugi sjónvarps- og útvarpskvenna upp á myndbönd. 1.2.2010 15:51
Steingrímur Hermannsson látinn Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands er látinn á 82. aldursári. Greint er frá þessu á vefsíðu Framsóknarflokksins. 1.2.2010 15:26
Annar maður féll í jökulsprungu á Langjökli Lögreglan á Selfossi barst tilkynning á þriðjudag í síðustu viku um vélsleðaslys austan til á Langjökli en þá féll maður ofan í sprungu og handleggsbrotnaði. 1.2.2010 15:23
Ríkissaksóknari kærir meiðyrði gegn SS Ríkissaksóknari hefur ákært fyrrverandi starfsmann Sláturfélags Suðurlands (SS) fyrir meiðyrði og rógsherferð gegn SS og verður málið tekið fyrir á næsta miðvikudag í Héraðsdómi Reykjavíkur. 1.2.2010 14:34
Greið leið á dauðalista Mossad Ísraelar segja að háttsettur foringi í Hamas samtökunum sem var myrtur á hóteli í Dubai í síðustu viku hafi átt stóran þátt í að smygla eldflaugum frá Íran til Gaza strandarinnar. 1.2.2010 14:29
Lést á Langjökli Konan sem lést eftir að hafa fallið ofan í jökulsprungu á Langjökli um helgina hét Halldóra Benediktsdóttir. Hún var fædd 8. október 1964 og til heimilis að Brekkubyggð 28, Garðabæ. 1.2.2010 14:12
Jakob eignast enn eitt barn Jakob Zuma forseti Suður-Afríku er sagður hafa eignast sitt tuttugasta barn í október síðastliðnum. Móðirin er þrjátíu og níu ára gömul dóttir vinar forsetans. 1.2.2010 14:06
Vill að heilbrigðisnefnd Alþingis fundi með landlækni Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fer fram á fund í heilbrigðisnefnd vegna framkvæmdar fjárlaga. 1.2.2010 13:59
Unglingur handtekinn fyrir að stela upplýsingum um Eið Smára Karlmaður á tvítugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í síðustu viku vegna gruns um að hafa stolið trúnaðargögnum frá lögfræðingi Karls Wernessonar, eiganda Milestone ehf., og Eiðs Smára Guðjohnsen. Pilturinn á að hafa selt þær fjölmiðlum samkvæmt heimildum Vísis. Yfirlögregluþjónninn Friðrik Smári Björgvinsson staðfestir að mál af þessum toga sé til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 1.2.2010 13:52
Tekið til starfa að nýju á Kastrup Starfsmenn á Kastrup flugvelli hafa tekið upp störf að nýju, en um 500 manns lögðu niður störf þar í morgun. 1.2.2010 13:23
Skipar vinnuhóp til að fjalla um veggjöld Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað vinnuhóp til þess að fjalla um veggjöld. Tilgangurinn er að reifa hugmyndir og ábendingar um hvaðeina sem tengist fjármögnun samgönguframkvæmda til frambúðar. 1.2.2010 13:06
Ákærður fyrir vopnalagabrot og að hóta lögreglumanni Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa haft í eigu sinni táragasbrúsa og í vörslum sínum stóran veiðihníf þann 7. janúar í fyrra. 1.2.2010 13:00
Enn fjöldamorð í Bagdad Kona með sprengjubelti varð yfir fjörutíu manns að bana þegar hún sprengdi sig í loft upp í Bagdad í dag. Yfir eitthundrað manns særðust. 1.2.2010 12:36
Ísraelar viðurkenna fosfórsprengjur Ísraelar hafa viðurkennt að tveir hátt settir herforingjar hafi látið skjóta fosfórsprengjum úr fallbyssum í innrásinni á Gaza ströndina á síðastu ári. 1.2.2010 12:26
Sameining Lýðheilsustofnunar og Landlæknis gæti orðið til bóta Sameining Lýðheilsustofnunar og Landlæknisembættisins gæti orðið til mikilla hagsbóta og hagræðingar fyrir samfélagið. Þetta segir Geir Gunnlaugsson landlæknir. 1.2.2010 12:04
Strákunum okkar fagnað í Laugardalshöll Það verður fagnaðarfundur í Laugardalshöll klukkan hálfsex í dag, en þá verður tekið á móti íslenska handboltalandsliðinu sem kemur frá Austurríki. 1.2.2010 11:51
Búið að telja að nýju í Hafnarfirði Kjörnefnd hefur lokið við endurtalningu atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði eins og boðað var. Niðurstaðan er óbreytt. 1.2.2010 11:43
Hnífamaður ógnaði lögreglunni Karlmaður vopnaður búrhníf var handtekinn af lögreglunni á Suðurnesjum á fimmta tímanum í nótt. Maðurinn reyndi að komast inn í hús á Hringbrautinni í Reykjanesbæ og lamdi það að utan með skiptilykli. Hann ógnaði síðan lögreglumanni sem hafði af honum afskipti. Maðurinn var nokkuð ölvaður og gistir nú fangageymslur lögreglunnar. Hann verður yfirheyrður á eftir en líklegast sleppt eftir það. 1.2.2010 10:46
Hætt við bækistöð á tunglinu Búist er við að Barack Obama tilkynni í dag að hætt verði við tunglferðaáætlun geimferðastofnunarinnar NASA. 1.2.2010 10:41
Enn saumað að reykingafólki Heilbrigðisráðherra Bretlands ætlar að sauma enn frekar að reykingafólki þar í landi. Markmið hans er að fækka reykingamönnum úr átta milljónum niður í fjórar á næstu tíu árum. 1.2.2010 10:14
Ár liðið frá myndun vinstri stjórnar Ár er liðið í dag síðan að fyrsta vinstri stjórn var mynduð á Íslandi með þátttöku Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. 1.2.2010 09:59
Sinna ekki hjónum á valdi sjóræningja Öryggissamtök sæfarenda hafa krafist þess að fá að semja við sómalska sjóræningja um lausnargjald, fyrir fullorðin bresk hjón sem var rænt 23 október síðastliðinn. 1.2.2010 09:55
Eiginkona Terrys vill skilnað Eiginkona breska knattspyrnumannsins Johns Terry hefur farið fram á skilnað og flúið til Dubai með börnin þeirra tvö. Breska blaðið Daily Telegraph segir að eiginkonan, sem heitir Toni Poole, hafi verið niðurlægð eftir að fréttir bárust af því Terry hafi haldið framhjá henni með kærustu Waynes Bridge, sem var liðsfélagi Terrys í Chelsea. 1.2.2010 08:49
Nota hunda til að þefa uppi peninga Dönsk skattayfirvöld ætla að taka í sína þjónustu sérþjálfaða hunda sem geta þefað upp peningaseðla. Samkvæmt fréttum í Danmarks Radio er tilgangurinn sá að stöðva fólk sem reynir að flýja úr landi með peninga í handfarangrinum eða innanklæða. 1.2.2010 08:31
Nauðsynlegt að fræða foreldra um skaðsemi ofeldis Yfirvöld ættu að leggja áherslu á að fræða foreldra og verðandi foreldra um skaðsemi þess að offæða börn sín, samkvæmt niðurstöðum breskrar rannsóknar sem Daily Telegraph segir frá. 1.2.2010 08:23
Kínverjar æfir yfir vopnasölu til Tævan Dagblöðin China Daily og Global Times segja að kínversk stjórnvöld muni beita Bandaríkjamenn refsiaðgerðum hætti þeir ekki við fyrirhugaða vopnasölu til Tævan. 1.2.2010 08:17
Glæpagengi lét greipar sópa um Akureyri Lögregluna á Akureyri grunar að glæpagengi hafi heimsótt bæinn á laugardagskvöldið, gagngert til að láta greipar sópa í bílum heimamanna. 1.2.2010 08:14
Stoðtækjaframleiðandinn Össur gefur vörur til Haítí Stoðtækjaframleiðandinn Össur ætlar að gefa vörur til jarðskjálftasvæðanna á Haítí, þar sem margir eiga um sárt að binda. Gefnar verða vörur sem læknar á Haítí telja sérstaklega þörf á, meðal annars gervilimir, en margir misstu útlimi í hamförunum. Staðið verður að þessu í samstarfi við Project Medishare samtökin, sem hafa aðgang að flugvellinum í Port au Prince.- 1.2.2010 08:09
Endurtalning atkvæða breytti engu Engin breyting varð á tveimur efstu sætum á lista sjálfstæðismanna í prófkjörinu Hafnarfirði, eftir endurtalningu atkvæða í gærkvöldi. Það var gert þar sem aðeins tvö atkvæði skildu að frambjóðendur í fyrsta og annað sæti, við fyrri talningu. Nýliðinn í bæjarstjórn, Valdimar Svavarsson mun því skipa fyrsta sætið og Rósa Guðbjartdóttir annað sætið,en hún hefur setið í bæjarstjórn allt þetta kjörtímabil.- 1.2.2010 07:32
Brown kom ekki nálægt ákvörðun um Íraksstríðið Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, kom hvergi nærri ákvörðunum um þátttöku Breta í innrásinni í Írak og hafði ekki skoðanir á henni. Þetta sagði Clare Short, fyrrverandi þróunarmálaráðherra Breta, á BBC fréttastöðinni í gær. 1.2.2010 07:30
Vill Guantanamo fangana til Íslands Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ætti að opna herstöð að nýju á Íslandi og koma þar fyrir föngum úr hinum illræmdu Guantanamo fangabúðum. Þetta segir David Hale, stjórnarformaður bandaríska fyrirtækisins, Global Economics, í grein sem birtist í Financial Times. 1.2.2010 07:25