Fleiri fréttir

Sjö vilja hanna nýjan Landspítala

Alls bárust sjö umsóknir í forval vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspítala og eru stærstu verkfræðistofur landsins meðal þátttakenda. Ábyrgðaraðilar hönnunarteymanna sjö, sem skiluðu inn umsóknum í forvalið, eru allir íslenskir: Mannvit, TBL Arkitektar, VSÓ Ráðgjöf, Efla, Verkís, Almenna verkfræðistofan og Guðjón Bjarnason.

Fræðsla betri vörn gegn slysum en reglur

Aukin fræðsla og opin umræða getur fækkað slysum á hálendinu en reglur hafa lítið að segja, er mat Kristins Ólafssonar framkvæmdastjóra slysavarnafélagsins Landsbjargar. Kristinn segir nauðsynlegt að þeir sem bjóði upp á skipulagðar ferðir upp á jökla og björgunarsveitir þurfi nú að rýna í slysið uppi á Langjökli í sameiningu og reyna að læra af því.

Allt nautakjötið selt jafnóðum

landbúnaður Framleiðsla á nautakjöti í janúar var 332 tonn, sem er 1,9 prósentum meira en á sama tíma í fyrra. Sala á nautakjöti í mánuðinum var 330 tonn, 4,5 prósentum meiri en í janúar 2009.

Skjalaverðir og biskup safna

Biskup Íslands og Félag héraðsskjalavarða á Íslandi standa fyrir sameiginlegu átaki í söfnun og varðveislu skjalasafna sóknarnefnda í landinu.

Kynjaskipting er áberandi

Karlar eru tveir þriðju hlutar starfsmanna á almennum vinnumarkaði en konur einn þriðji. Karlar vinna líka lengur en þeir skila 71 prósenti vinnustunda á almennum vinnumarkaði en konur 29 prósent.

Afstaða til lóðaskila er óbreytt

Reykjavíkurborg hyggst ekki fara eftir úrskurði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og taka aftur við við einbýlishúsalóð hjóna í Úlfarsárdal og atvinnulóð Brimborgar á Esjumelum.

Telur að fjölga megi spilavítum

Dómsmálaráðuneyti Danmerkur hefur sent út tilkynningu um að rúm sé fyrir allt að fjögur ný spilavíti í landinu. Kæmu þau til viðbótar við þau sex leyfi stjórnvalda fyrir rekstrinum.

Íran að verða herstjórnarríki

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Íran sé á góðri leið með að verða hernaðarlegt einræðisríki.

Yfirmenn biðjast afsökunar

Mannfall almennra borgara varpaði skugga á innrás Natóherja og afganska hersins á þorpið Marja í Helmand-héraði í Afganistan.

Héldu kyrru fyrir og lifðu af

Björgun skoskra mæðgina í vonskuveðri á Langjökli í fyrrinótt var kraftaverki líkust, segir björgunarsveitarmaður sem fann þau. Rétt viðbrögð urðu þeim til lífs. Fararstjóri segir óveður hafa komið fyrr en spáð var.

Á þriðja tug biðu bana

Tvær farþegalestir rákust harkalega á skammt frá Brussel, höfuðborg Belgíu, þegar annarri þeirra var ekið áfram á móti stöðvunarmerki.

Móri: „Ég startaði ekki þetta sjitt“

Rapparinn Móri segist ekki hafa átt upptökin að átökunum sem urðu á milli hans og tónlistarmannsins Erps Eyvindarsonar en Móri lagði til hans með hnífi í húsnæði útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 síðdegis í dag.

Eigandi mexíkanska smáhundsins fundinn

Eigandi Chihuahua hunds, sem lýst var eftir á vefnum fyrr í kvöld, er kominn í leitirnar. Hundurinn fannst á Baldursgötu seinni partinn í dag.

Fundað um Icesave í Lundúnum

Samninganefnd íslenskra stjórnvalda átti í dag fund með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda í Lundúnum samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Móri gaf sig fram til lögreglu

Tónlistarmaðurinn Móri, eða Magnús Ómarsson, gaf sig fram til lögreglunnar í Reykjavík um klukkan hálf sex í kvöld. Þá hafði lögreglan leitað hans vegna hnífaárásar þar sem Móri á að hafa lagt til Erps Eyvindarsonar, tónlistarmanns, með hnífi. Erpur hlaut skrámur við árásina en slapp furðu vel, meðal annars vegna þess að útvarpsmaðurinn Frosti Logason gekk á milli þeirra.

Bræðslan fékk Eyrarrósina

Áskell Heiðar og Magni Ásgeirssynir, forsvarsmenn Bræðslunnar tóku við viðurkenningunni úr hendi Dorrit Moussaieff, verndara Eyrarrósarinnar. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar fluttu Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson tónlist við góðar viðtökur gesta. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík fluttu ávörp.

Rappstríð í Reykjavík: Útvarpsmaður kom til bjargar

„Þetta er einn æsilegasti þátturinn sem ég hef verið í,“ segir Frosti Logason, annar umsjónarmanna þáttarins Harmageddon á útvarpsstöðinni X-inu en hann lenti í átökum við rapparann Magnús Ómarsson, eða Móra eins og hann er kallaður, þegar hann lagði til Erps Eyvindarsonar með hnífi.

Réttað yfir hnífsstungumönnum

Aðalmeðferð fór fram í máli gegn fjórum litháískum karlmönnum sem réðust að manni með hnífi á Spítalastíg aðfararnótt sunnudagsins 4. október í fyrra.

Grindvíkingum hugsanlega gefinn kostur á námi í heimabyggð

Til greina kemur að stofna framhaldnámsdeild í Grindavík, að sögn Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Katrín segir að horft sé til svipaðs fyrirkomulags og á Þórshöfn. Þar hefur Framhaldsskólinn að Laugum starfrækt framhaldsdeild frá síðasta hausti.

Flugvallarhlaupari fær 60 daga fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi mótmælendurna Hauks Hilmarsson og Jason Thomas Slade í fangelsi í dag fyrir að hafa hlaupið inn á flugbraut við Flugstöð Leifs Eiríkssonar sumarið 2008. Þeir voru ákærðir fyrir húsbrot og almannahættubrot með því að hafa farið í heimildarleysi inn á flugvallarsvæðið.

Fórnar pólitískum frama fyrir fótboltastrákinn sinn

Ellý Erlingsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, baðst lausnar frá störfum sem bæjarfulltrúi í síðustu viku. Það er óhætt að fullyrða að afsögnin sé komin til af góðu því að hún ætlar að fylgja ungum syni sínum til Englands. Syninum, Kristjáni Gauta Emilssyni, hefur boðist samningur við fótboltaakademínua í Liverpool.

Stór dagur fyrir Suðurland, segir bæjarstjóri Ölfuss

Hönnun kísilverksmiðju í Þorlákshöfn og nýrrar virkjunar á Hellisheiði eru komin á fulla ferð en samningsrammi var undirritaður síðdegis. Bæjarstjóri Ölfuss segir þetta stóran dag fyrir Suðurland og Reykjavíkursvæðið enda muni verkefnið hafa gífurleg áhrif.

Þarf tvöfalt meiri niðurskurð ríkisútgjalda á næsta ári

Ríkisstjórnin þarf að skera fimmtíu milljarða króna af ríkisútgjöldum til viðbótar til að halda ákvæði stöðugleikasáttmálans. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins kveðst engin teikn sjá um að ráðherrar séu með uppbrettar ermar að undirbúa slíkan niðurskurð.

Móri reyndi að stinga Erp

Magnús Ómarsson, betur þekktur sem Móri, reyndi að stinga rapparann Erp Eyvindarson í húsakynnum útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 í Skaftahlíð í dag. Móri og Erpur hafa deilt harkalega að undanförnu. Erpur lýsti til að mynda yfir í útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu á dögunum að hann hefði uppgvötað Móra á sínum tíma. Móri sagðist aftur í móti í viðtali við Fréttablaðið fyrir helgi vera búinn að rappa síðan Erpur var í bleyju.

Sjö umsóknir í forvali nýs Landspítala

Alls bárust sjö umsóknir í forvali vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspítala og eru allar stærstu verkfræðistofur landsins meðal þátttakenda. Forvalsnefnd metur nú umsóknirnar og verður tilkynnt eftir viku hvaða teymi öðlast þátttökurétt í hönnunarsamkeppninni.

Um 90% ferðuðust innanlands

Níu Íslendingar af hverjum tíu hafi ferðast innanlands á árinu 2009 og er um að ræða nokkuð hærra hlutfall en fyrri kannanir Ferðamálastofu hafa sýnt.

Ríkissaksóknari kærir til Hæstaréttar

Ríkissaksóknari hefur kært til Hæstaréttar þann úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur að hafna þeirri kröfu Ríkissaksóknara að Andra Ólafssyni og Breka Logasyni, fréttamönnum af Stöð 2, yrði gert að sæta réttarfarssekt.

Nýr framkvæmdastjóri SAMFOK

Bryndís Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Hún tekur við starfinu af Guðrúnu Valdimarsdóttur sem sagði starfi sínu lausu en hún skipar 2. sætið á lista Framsóknarflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Grunur um íkveikju á Selfossi

Lögreglu grunar að kveikt hafi verið í kjallara húss á Selfossi síðastliðið föstudagskvöld. Skömmu fyrir klukkan átta barst tilkynning um að að mikinn reyk legði frá fjölbýlishúsi við Austurveg 34. Reykkafarar fóru inn í húsið og fundu eld í þvottaherbergi í kjallara. Eldurinn var slökktur og húsið í framhaldinu reykræst. Engum varð meint af, að sögn lögreglu. Á jarðhæð hússins er verslun Tölvulistans og hárgreiðslustofa.

Stjórn Orkuveitunnar samþykkir að ganga til samninga um kísilver

Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi nú í hádeginu að heimila stjórnarformanni og forstjóra að ganga til samninga um sölu rafmagns til kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Einnig voru drög að orkusamningi samþykkt. Þetta var samþykkt með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og atkvæði fulltrúa Akraneskaupstaðar. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu málsins. Stefnt er að því að fulltrúar Orkuveitunnar og hins erlenda fyrirtækis undirriti samningsdrögin síðdegis í dag.

Ók óvart á tvær stúlkur

Tvær stúlkur á tvítugsaldri urðu fyrir bifreið í Háengi á Selfossi fljótlega eftir miðnætti á laugardag. Atvikið varð með þeim hætti að ökumaður, sem ekki var kunnugur bifreiðinni og einnig er á tvítugsaldri, ætlaði að aka aftur á bak út úr innkeyrslu við hús. Bifreiðin fór þá skyndilega áfram og á stúlkurnar sem stóðu fyrir framan bifreiðina.

Efast um lögmæti niðurskurðar

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi, efast um lögmæti niðurskurðar ríkisstjórnarinnar sem ákvað nýverið að loka fyrir nám grunnskólanemenda í framhaldsskólaáföngum. Auk þess sé verið að velta kostnaði yfir á sveitarfélög.

Vonskuveður á Vestfjörðum

Slæmt ferðaveður er á Vestfjörðum og biður Vegagerðin vegfarendur um að kynna sér vel ástand á þeim leiðum sem þeir hyggjast fara.

Rúmlega 80 manns á þjóðfundi á Sauðárkróki

Rúmlega 80 manns sóttu þjóðfund á Sauðárkróki á laugardag en hann var sá þriðji í röð slíkra funda sem haldnir eru um landið vítt og breitt. Næsti fundur verður á laugardaginn kemur í Borgarnesi. 110 manns voru á þjóðfundi í Bolunarvík fyrr í mánuðinum og 80 manns á Egilsstöðum í lok janúar.

Engin ákvörðun í máli Ásbjörns

Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort hafin verði rannsókn hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra á ólögmætri arðgreiðslu Ásbjörns Óttarssonar, alþingismanns, út úr eigin félagi. Þá hefur deildin ekki skoðað lánveitingar Tryggva Þórs Herbertssonar alþingismanns úr einkahlutafélaginu Varnagla.

Skemmtileg sleðabrekka

Snjókoman sem verið hefur á austurströnd Bandaríkjanna undanfarna daga hefur verið flestum til ama enda truflað samgöngur og valdið miklu rafmagnsleysi.

Báðir enn á gjörgæsludeild

Báðir mennirnir sem misstu meðvitund um borð í fjölveiðiskipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði í gærmorgun er enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Annar er laus úr öndunarvél og á batavegi. Hinum er haldið sofandi í öndunarvél.

Stefnt að undirritun samninga um kísilver síðdegis

Stefnt er að því að skrifað verði undir samninga um kísilver í Þorlákshöfn síðar í dag, svo fremi að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fallist á orkusamnig á fundi sínum nú í hádeginu, en með fyrirvara um að fjármögnun takist. Bæjarstjóri Ölfuss segir þetta það jákvæðasta sem gerst hafi lengi í atvinnumálum.

Funda með breskum og hollenskum embættismönnum

Það ræðst á næstu dögum hvort Bretar og Hollendingar séu tilbúnir að ganga til nýrra viðræðna um Icesave. Íslenska samninganefndin fundar með breskum og hollenskum embættismönnum í dag.

Kannað hvers vegna hópurinn fór á Langjökul

Sýslumaðurinn í Árnessýslu segir að rannsakað verði af hverju farið var með ferðamannahóp á Langjökul í gær, þrátt fyrir afleita veðurspá. Skoska ferðakonan, sem björgunarsveitarmenn fundu á jöklinum í nótt er til aðhlynningar á Landsspítalanum, en sonur hennar hefur náð sér eftir hrakningana.

Lagastofnun býr til kynningarefni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið Lagastofnun Háskóla Íslands að semja hlutlaust kynningarefni fyrir almenning vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave lögin sem fram fer laugardaginn 6. mars 2010. Einstaklingar sem hafa tekið þátt í umræðum á opinberum vettvangi um það efni sem kosið er um í þjóðaratkvæðagreiðslunni koma ekki að verkefninu.

Sjá næstu 50 fréttir