Fleiri fréttir

Fjöldi tilkynninga vegna aukaverkana

Tilkynningar um aukaverkanir lyfja voru meira en tvöfalt fleiri á árinu 2009 en árið 2008, samkvæmt nýbirtum tölum Lyfjastofnunar. Í fyrra bárust 203 tilkynningar um aukaverkanir en 92 á árinu 2008.

Ræddi við erlendu ráðherrana í gær

„Ég tel við séum í aðalatriðum búin að ná utan um þetta af okkar hálfu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um fund forsvarsmanna stjórnar og stjórnarandstöðu um Icesave-málið.

Sendi þjóðþing landsins heim

Mahinda Rajapaksa, nýkjörinn forseti á Srí Lanka, hefur leyst upp þing landsins og hyggst boða til þingkosninga.

Tefja fyrir nýjum samningi

Flugskeytavarnar­áform Bandaríkjanna eru ógn við öryggi Rússlands, segir Nikolai Makarov, yfirmaður rússneska heraflans. Hann segir þessi áform, jafnvel í þeirri breyttu mynd sem Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur gefið þeim, hafi tafið fyrir viðræðum ríkjanna um nýjan afvopnunarsamning.

Hafa leiðrétt kynjahlutfallið

Sjö konur og átta karlar verða í fimmtán manna stjórn VR eftir kosningu trúnaðarráðs og trúnaðarmanna, sem lauk í gær.

Fær ekki að gefa einkaskýrslu

Heimildarmaður fréttastofu Stöðvar 2 fær ekki að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í meiðyrðamáli fjögurra útrásarvíkinga á hendur starfsmönnum fréttastofunnar. Héraðsdómur kvað upp úrskurð þess efnis í gær.

Uppbyggingarstarf næstu ára skipulagt

Þau Sigríður Þormar, Hrafnhildur Sverrisdóttir og David Lynch ganga til liðs við 24 manna alþjóðlegan hóp sérfræðinga á vegum Rauða krossins sem skipuleggur uppbyggingarstarf hreyfingarinnar á Haítí næstu þrjú árin.

Snjór fluttur í brekkurnar

Vegna snjóleysis í Vancouver og fjöllunum í kringum borgina hefur þurft að flytja snjó í brekkurnar og hafa bæði trukkar og þyrlur verið notaðar til verksins. Alls hafa um 300 tonn af snjó verið flutt í brekkur Cypress-fjalls í útjaðri borgarinnar þar sem meðal annars verður keppt í snjóbrettagreinum á Vetrarólympíuleikunum.

Rafræn skráning brýtur blað

Evrópusambandið (ESB) hefur tekið gilda rafræna hestapassa sem Bændasamtök Íslands hafa komið á fót í samstarfi við Alþjóðasamtök íslenska hestsins. Skráning gagnabankans er á www.worldfengur.com, eða WF.

Trefillinn jafnlangur jarðgöngunum

Á Siglufirði er í gangi óvenjulegt prjónaverkefni en listakonan Fríða Björk Gylfadóttir stendur fyrir því að prjónaður sé 17 kílómetra langur trefill, sem ná á frá miðbæ Siglufjarðar yfir í miðbæ Ólafsfjarðar, og er þá jafnlangur jarðgöngum þeim sem þar munu koma á milli.

Ekki aukning í fyrsta sinn

Starfsemi Landspítala jókst ekki á síðasta ári og er það í fyrsta sinn frá sameiningu árið 2000. Þetta kemur fram í nýjum starfsemisupplýsingum LSH sem birtast í heild á næstu dögum.

Sveitarfélögum settar fjármálareglur

Unnið er að endurskoðun laga og reglna um fjármál sveitarfélaga í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Stefnt er að því að setja sveitarfélögum fjármálareglur þar sem fram koma viðmiðanir um leyfilega skuldsetningu.

Hunsa allar viðvaranir og hótanir

Leiðtogar valdamikilla Vesturlanda hafa nú árum saman reynt að hemja kjarnorkuvinnslu í Íran og óttast fátt meira en að Írönum takist að koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Brá þegar hann tók upp brúðina

Arabiskur sendiherra sótti um skilnað eftir að hann komst að því að á bak við slæðu sína var brúður hans bæði skeggjuð og kolrangeyg.

Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell

Héraðsdómur dæmdi í dag karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell auk fjölda annarra brota. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga systur sinni í júní í fyrra auk þess sem hann útvegaði henni ofskynjunarlyfið LSD. Maðurinn bar við minnisleysi en DNA rannsókn þótti sanna að hann hafi haft mök við systur sína.

Meira en 270 milljónir renna frá Actavis til Haítí

Actavis hefur ákveðið að styrkja hjálparstarfið í kjölfar jarðskjálftans í Haítí um meira en 270 milljónir króna, í formi fjárstyrkja og lyfja. Í fréttatilkynningu frá Actavis kemur fram að lyfin séu send frá ýmsum löndum þar sem fyrirtækið starfi, meðal annars Íslandi, Búlgaríu, Tyrklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Hluti framlagsins sé þegar kominn til viðtakenda.

Ný Boeing 747

Ný útgáfa af Boeing 747 breiðþotunni fór í sitt fyrsta flug í gær. Það er Beoing 747-8 sem er fragtvél.

Undirbúa stórárás í Afganistan

Þetta er fyrsta stórárásin sem gerð verður í Afganistan síðan Barack Obama sendi þrjátíu þúsund manna liðsauka til landsins um áramótin.

Í gæsluvarðhald grunaður um fíkniefnainnflutning

Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, er grunaður um aðild á innflutningi fíkniefna til landsins en um er að ræða amfetamín í fljótandi formi. Lögregla segir að málið sé rannsakað í samvinnu við tollyfirvöld en ekki er tilgreint um hver mikið magn sé að ræða.

Hvar er úrið mitt?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda nokkurra hluta sem sýnt þykir að séu stolnir, meðal annars forláta vasaúrs sem sést á meðfylgjandi mynd. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Dalvegi 18 í Kópavogi í síma 444-1130.

Ljós á mótum Njarðargötu og Hringbrautar endurbætt

Í fyrramálið, miðvikudaginn 10. febrúar, verður stýribúnaður umferðarljósa á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar uppfærður. Vegna tengivinnu verða ljósin gerð óvirk tímabundið frá kl. 09:30, en áætlað er að verkið taki um þrjár klukkustundir.

Sjúkrabílstjóri sektaður fyrir brot á umferðarlögum

Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í forgangsakstri gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að annar bíll ók á sjúkrabílinn sem valt. Áreksturinn varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu en sjúkrabíllinn var á leið í útkall á Hagamel og var í forgangsakstri vestur Hringbraut.

Tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju á Leifsgötu

Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára óskilorðisbundið fangelsi fyrir að leggja eld að bíl á Leifsgötu í Reykjavík í október 2008. Eldurinn breiddist út með þeim afleiðingum auk bifreiðin brann og önnur til sem stóð við hlið hennar. Dómarinn kemst að þeirri niðurstöðu að með íkveikjunni hafi maðurinn skapað almannahættu en auk tjónsins á bílunum urðu sótskemmdir á þriðja bílnum auk þess að sprungur komu í rúður hússins sem bílarnir stóðu við.

Abbaðist upp á ranga flugfreyju

Kinman Chan er þrítugur og vel á sig kominn. Hann taldi sig því ekki myndu eiga í vandræðum með hina fimmtíu og eins árs gömlu þriggja barna móður sem sagði honum að setjast í sæti sitt og þegja, þegar hann var með uppsteit um borð í flugvél US-Air frá Filadelfíu til San Francisco.

Eyrarrósin afhent á Bessastöðum í næstu viku

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.E

Hafnar ásökunum um okurlánastarfsemi

Árni Páll Árnason gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hann sagði að lán til ungmenna á þúsund prósenta vöxtum væru siðlaus sjóræningjastarfsemi. Jafnframt hyggst ráðherrann beita sér fyrir lagasetningu til að takmarka starfsemi fyrirtækja eins og Kredia. Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist ekki geta tekið undir orð ráðherrans.

Ógn við samfélagið

Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áður Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glæpasamtakanna sem og fyrirhuguð innganga íslenska hópsins í samtökin skapar hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi og felur því í sér ógn við samfélagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni vegna ákvörðunar yfirvalda að senda Leif Ivar Kristanssen, foringja Hells Angels samtakanna í Noregi, sem var stöðvaður við komuna til landsins í gær aftur til Noregs með flugi í morgun.

Tólf ára vill skilnað frá áttræðum eiginmanni

Stjórnvöld í Saudi-Arabíu hafa fallist á að aðstoða tólf ára telpu sem vill fá skilnað frá áttræðum eiginmanni sínum. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt er gert og þetta gæti orðið prófmál.

Sumarlokanir leikskóla lengja biðlista

Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar furðar sig á að meirihlutinn hyggist lengja biðlista eftir plássi enn frekar með því að spara sér að ráða afleysingafólk í sumar. Hún efast um að sparnaðurinn skili sér.

Andmælabréfin hafa verið send út

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sent út andmælabréf til þeirra einstaklinga í stjórnkerfinu sem nefndin telur að hafi hugsanlega sýnt vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins.

Telur Svandísi brjóta gegn stjórnsýslulögum

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi brotið gegn stjórnsýslulögum þegar hún hafnaði skipulagi Þjórsárvirkjana. Dæmi eru um að sveitarfélög séu með ákvæði um gjaldtöku fyrir aðalskipulag í sérstökum samþykktum, sem ráðherra hefur staðfest.

Selja fasteignir án réttinda

Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir allt of algengt að sölumenn komi fram sem fasteignasalar án þess að vera það. Slíkt sé grafalvarlegt líkt og nýlegt dæmi frá Danmörku sýni þegar rúmlega 70 sölumenn á fasteignasölum voru kærðir til lögreglu af eftirlitsaðilum fyrir að sigla undir fölsku flaggi.

Enn fundað um Icesave

Nú stendur yfir fundur stjórnar og stjórnarandstöðu um Icesave, í fjármálaráðuneytinu. Rætt er við erlenda ráðgjafa, þar á meðal Bandaríkjamanninn Lee Buchheit sem fenginn hefur verið Íslendingum til aðstoðar í málinu.

Umboðsmaður ætlar að fylgjast með kynningarefni Icesave-kosninga

Umboðsmaður Alþingis ætlar ekki að hefja sérstaka athugun á því hvort kynningarefni sem gert er af stjórnvöldum í tengslum við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave-málinu sé í samræmi við réttmætisreglu og að þar sé gætt að því að öll framsetning sé eins hlutlæg og kostur er. Umboðsmaður mun hins vegar fylgjast með því áð næstu dögum og vikum hvernig kynningarstarfsemi stjórnvalda verði háttað í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar.

Enn ein innköllun hjá Toyota

Toyota verksmiðjurnar hafa kallað inn yfir 430 þúsund eintök af flaggskipi sínu Toyota Prius vegna galla í bremsukerfi.

Mótmæla bílalánum Íslandsbanka

Samtökin Nýtt Ísland boða til mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Íslandsbanka við Kirkjusand í hádeginu vegna bílalána bankans.

Norskur stjörnulögfræðingur í mál við Ísland

Norski lögfræðingurinn Morten Furuholmen hefur í nógu að snúast. Hann er nú á Íslandi til að undirbúa málshöfðun gegn íslenskum stjórnvöldum fyrir að neita norskum Vítisenglum um landgöngu.

Lásu um dauða bróður síns á Facebook

Ástralskar tvíburasystur komust að því að bróðir þeirra hefði dáið í hræðilegu bílslysi í grennd við Sydney þegar þær lásu heimasvæði sín á samskiptavefnum Facebook síðastliðinn sunnudag. Lögreglan hafði þá ekki tilkynnt fjölskyldunni að bróðirinn Bobby Vourlis hefði lent í bílslysi. Fjögur önnur ungmenni voru í bifreiðinni og dóu tvö þeirra.

Sjá næstu 50 fréttir