Ræddi við erlendu ráðherrana í gær 10. febrúar 2010 06:00 Bandaríski lögfræðingurinn Lee Bucheit mætti á fund með forsvarsmönnum stjórnar og stjórnarandstöðu. Fréttablaðið/GVA „
Ég tel við séum í aðalatriðum búin að ná utan um þetta af okkar hálfu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um fund forsvarsmanna stjórnar og stjórnarandstöðu um Icesave-málið. Í framhaldi af fundinum kveðst Steingrímur hafa átt símtöl við bæði Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, og Lord Paul Myners, bankamálaráðherra Bretlands. „Ég upplýsti þá um stöðuna og við ræddum um framhaldið,“ segir Steingrímur sem ekki vill upplýsa hvað erlendu ráðherrarnir sögðu. „Við skulum vona að það geti orðið framhald á en það kemur í ljós á næstu dögum. Eins og ég segi þá áttum við ráðherrarnir símtöl í dag og það er væntanlega til marks um að það er hreyfing á málunum.“ Steingrímur vill ekki upplýsa útgangspunkt Íslendinga í væntanlegum viðræðum við Breta og Hollendinga. „Markmiðið er að ná árangri og velja sér þær aðferðir sem eru líklegastar til að duga í þeim efnum,“ segir hann. Don Johnston, fyrrverandi ráðherra í Kanada og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá OECD, og bandaríski lögfræðingurinn Lee Bucheit hafa verið íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar að undanförnu. „Ég geri ráð fyrir því að við munum njóta þeirra krafta,“ svarar fjármálaráðherra um hlutverk þessara tveggja manna í komandi viðræðum við Breta og Hollendinga. - gar
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira