Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kveikt í ruslagámi við Skipholt Eldur var kveiktur í ruslagámi við Skipholt í Reykjavík í nótt. Töluverður eldur var í gámnum þegar slökkvilið kom á vettvang, en hann stóð ekki hættulega nálægt byggingum við götuna. Þrátt fyrir að eldurinn hafi verið slökktur á skammri stundu, skemmdist gámurinn talsvert. Brennuvargurinn er ófundinn. 9.2.2010 07:56
Þungum áhyggjum lýst á fjölmennum fundi á Eskifirði Þungum áhyggjum var lýst vegna fyrirætlana stjórnvalda um að fyrna núgildandi kvótakerfi, á fjölmennum fundi á Eskifirði í gærkvöldi. 9.2.2010 07:54
Fáein loðnuskip að veiðum Fáein íslensk loðnuskip eru að veiðum út af ósum Rangánna, á milli lands og Vestmannaeyja, en síðasta norska loðnuskipið hélt heimleiðis í gær eftir löndun á Fáskrúðsfirði. 9.2.2010 07:51
Júlía hefur ekki viðurkennt ósigur sinn Nú er ljóst að Viktor Janukovitsj, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, sigraði í síðari umferð forsetakosninganna sem fram fóru í landinu á sunnudag. Búið er að telja 99% atkvæða og hefur Janukovitsj rúmlega þriggja prósenta forskot á Júlíu Tímósjenkó, forsætisráðherra. Hún hefur ekki viðurkennt ósigur sinn og þess í stað sakað andstæðing sinn um kosningasvik. Búist er við að hún boði til blaðamannafundar síðar í dag. 9.2.2010 07:49
Biðlistar lengjast að óbreyttu Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í leikskólaráði, telur víst að biðlistar eftir leikskólavist hjá Reykjavíkurborg muni lengjast mikið á næstu mánuðum vegna þeirrar ákvörðunar að breyta 9.2.2010 06:45
Leiðtogi norskra Vítisengla handtekinn í Leifsstöð Leiðtogi norskra Vítisengla var handtekinn í Leifsstöð við komuna til landsins í gær. Hann verður líklegast sendur aftur til Noregs nú á áttunda tímanum. 9.2.2010 06:30
Ákærðir fyrir að oftaka fé Fjórir breskir þingmenn verða ákærðir og eiga jafnvel fangelsi yfir höfði sér fyrir að hafa þegið greiðslur úr ríkissjóði vegna útgjalda, sem ýmist voru tilbúningur eða óviðeigandi. 9.2.2010 06:00
Er sáttur eftir krefjandi ár „Staðan er mjög góð og mun aðeins batna á næstunni,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel. Hann bætir við að alþjóðlega fjármálakreppan hafi gert flestum fyrirtækjum erfitt fyrir á síðasta ári. Geti Marel vel við unað. „Ég er sáttur,“ segir hann. 9.2.2010 06:00
Óttast verðfall verði jörðin Nauteyri seld Nokkur óánægja mun nú vera meðal landeigenda í innanverðu Ísfjarðardjúpi með að sveitarstjórn Strandabyggðar virti viðlits 15 milljóna króna tilboð Hraðfrystihússins Gunnvarar í jörðina Nauteyri á Langadalsströnd með því að ákveða að gera fyrirtækinu gagntilboð. 9.2.2010 06:00
Vonast eftir 140 listamönnum „Íbúum Skagastrandar fjölgaði um 21 prósent á síðasta ári miðað við þá 108 listamenn sem bjuggu í bænum á vegum Ness listamiðstöðvar. Miklu munar um þá 173 listamenn sem til Skagastrandar hafa komið frá upphafi,“ segir á skagastrond.is. 9.2.2010 06:00
Stofna samtök Evrópusinna Stofnfundur nýrra samtaka Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu á föstudag. Samtökin bera nafnið Sjálfstæðir Evrópumenn. 9.2.2010 06:00
Flokkarnir hafa fengið 130 milljónir í styrki frá borginni Styrkir Reykjavíkurborgar til stjórnmálaflokkanna, sem eiga kjörna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur, nema samtals 129,5 milljónum króna á árunum 2007-2010. 9.2.2010 05:00
Sveitarfélögin ráða við flutning stofnana Flutningur á rekstri heilbrigðisstofnana frá ríki til sveitarfélaga er að mati forsvarsmanna sveitarfélaganna og forstjóra heilbrigðisstofnana vel gerlegur og jafnvel til bóta. Hins vegar virðist þessi hugmynd ekki hafa verið rædd af alvöru víðar en á Suðurnesjum. 9.2.2010 05:00
Ísland með 93 af 100 stigum Ísland er í fararbroddi í mengunarstýringu og nýtingu náttúruauðlinda og því efst landa á lista yfir góða frammistöðu í umhverfismálum, segir í skýrslu sem bandarísku háskólarnir Yale og Columbia hafa nýverið sent frá sér og gefin er út á tveggja ára fresti. 9.2.2010 05:00
Útboð á mötuneyti Landspítala ógilt Bjóða þarf aftur út rekstur á mötuneyti Landspítalans segir kærunefnd útboðsmála sem kveður Ríkiskaup hafa brotið á Sláturfélagi Suðurlands með því að vísa frá tilboði fyrirtækisins í útboði í fyrra. 9.2.2010 04:00
Skutlar fólkinu heim í kojuna „Þetta er nú aðallega vinna um helgar,“ segir Jóhann Unnar Guðmundsson, sem fengið hefur jákvæða umsögn hreppsnefndar Hrunamannahrepps um starfsemi leigubílaþjónustu í hreppnum. 9.2.2010 04:00
Japanar segja bílinn verða innkallaðan Fréttir frá Japan herma að bílaframleiðendur Toyota þurfi að innkalla nýjustu útgáfu Prius vegna hugsanlegs galla í bremsubúnaði bifreiðanna. 9.2.2010 04:00
Nýstárleg leið til að fá karla á fund Fundur Ódýrara er fyrir karl og konu að mæta saman á morgunverðarfundinn Fjölbreytni í forystu en fyrir einstakling að skrá sig til leiks. Á fundinum verður greint frá leiðum sem viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar. 9.2.2010 04:00
Vegurinn liggi um Varmahlíð Skipulagsnefnd Skagafjarðar er andvíg áformuðum flutningi hringvegarins þannig að hann liggi ekki lengur um Varmahlíð heldur frá Arnarstapa að Sólheimagerði. 9.2.2010 03:45
SÁÁ er of stór biti fyrir okkur „Auðvitað eru það vonbrigði að þeir skuli ekki finna aðrar leiðir til að fást við sinn niðurskurð,“ segir Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, um þá ákvörðun SÁÁ að loka göngudeild samtakanna á Akureyri í vor. 9.2.2010 03:30
Kosningin í samræmi við reglur „Niðurstaðan er sú að þessi kosning hafi verið í samræmi við reglur. Úrslitin standa því óbreytt,“ segir Stefán Pálsson, formaður kjörnefndar VG í Reykjavík. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi og frambjóðandi í prófkjöri VG fyrir sveitastjórnarkosningarnar, sem fram fóru í gær kærði 8.2.2010 23:28
Jarðkjálftar við Eldey Hrina jarðskjálfta hefur fundist við Eldey á Reykjaneshrygg í kvöld. Stærsti skjálftinn var um 3,9 á Richter en hann fannst þegar klukkan var átta mínútur gengin í ellefu. Að minnsta kosti fjórir aðrir minni skjálftar hafa mælst í kvöld. 8.2.2010 22:57
Viltu kaupa flottasta símanúmer í heimi? Símafyrirtækið Nova fór um helgina af stað með uppboð á símanúmerinu 777 7777, sem stjórnendur fyrirtækisins telja að sé flottasta símanúmer í heimi. Lágmarksboð í númerið var 10 þúsund krónur en hæsta boð stendur nú í 112 þúsund krónum. 8.2.2010 20:41
Læknir Jacksons ákærður fyrir manndráp Dr Conrad Murray, sem var læknir Michaels Jackson, var í dag ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna andláts popparans. Andlát Jacksons hefur verið rekinn til deyfilyfja. Murray hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu og segist ekki hafa útvegað lyf sem hafi valdið andlátinu. Fjöldi lyfja fannst í líkama Jacksons en talið er að hið sterka deyfilyf Propofol hafi átt stærstan þátt. 8.2.2010 22:33
Möguleikar Húsavíkur aukast Ákvörðun umhverfisráðherra að stöðva Þjórsárvirkjanir styrkir stöðu Norðurlands í samkeppni um iðnaðaruppbyggingu og gæti dregið úr líkum á því að álver rísi við Húsavík. 8.2.2010 18:37
Hæsta turni heims óvænt lokað Lokað hefur verið fyrir gesti í hæstu byggingu heims Burj Khalifa turninum í Dubai. Engin skýring hefur verið gefin á þessari lokun. 8.2.2010 14:46
Segir smálán „siðlausa sjóræningjastarfsemi“ Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, hyggst beita sér fyrir lagasetningu sem kemur böndum á starfsemi fyrirtækja sem veita smálán. Hann segir lánveitingar til ungmenna með mörg þúsund prósenta vöxtum siðlausa sjóræningjastarfsemi. 8.2.2010 18:45
Bloggið kemur upp um tryggingasvindlara Dæmi eru um að upp komist um íslenska tryggingasvindlara í kjölfar gáleysislegra skrifa þeirra á bloggi og öðrum netsíðum. Einn svikarinn gekk svo langt að gorta sig á alheimsnetinu af vátryggingasvindli sem hann hafði kokkað upp. Talið er að tryggingafélögin tapi milljörðum á tryggingarsvikum árlega. 8.2.2010 18:29
Leiðindaskjóða fékk á kjaftinn Tveir sextán ára piltar voru handteknir í Reykjavík í fyrrinótt eftir að hafa látið dólgslega og ógnað vegfarendum. Piltarnir heimtuðu fjármuni og áfengi af fólki sem þeir mættu á förnum vegi. Annar þeirra var vopnaður hnífi sem lögreglan lagði hald á. 8.2.2010 16:59
Sex gefa kost á sér hjá Samfylkingunni í Árborg Sex frambjóðendur gefa kost á sér í forvali Samfylkingarinnar í Árborg, fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. 8.2.2010 16:49
Skipar fjárhaldsstjórn yfir Álftanes Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Sveitarfélagsins Álftaness 8.2.2010 16:33
Fyrrverandi umhverfisráðherra vill verða forstjóri Útlendingastofnunar Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, er á meðal 10 umsækjenda um embætti forstjóra Útlendingastofnunar. Umsóknarfrestur rann út á fimmtudaginn síðasta en embættið var auglýst laust til umsóknar þann 15. janúar. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn frá og með 1. apríl 2010. 8.2.2010 16:01
Beitti dóttur vatnspyntingum Bandarískur faðir hefur verið handtekinn fyrir að beita fjögurra ára gamla dóttur sína vatnspyntingum vegna þess að hún vildi ekki fara með stafrófið fyrir hann. 8.2.2010 15:22
Þorleifur kærir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna Þorleifur Gunnlaugsson sem lenti í öðru sæti í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík hefur kært utankjörfundaratkvæðagreiðsluna. 8.2.2010 14:59
Mikill erill hjá gæslunni í tengslum við loðnuveiðarnar Mikill erill hefur verið hjá Landhelgisgæslunni undanfarna daga vegna loðnuveiða Norðmanna djúpt undan Austfjörðum. Varðskip hefur verið við eftirlit á miðunum en gefinn var út loðnukvóti fyrir norsk skip upp á 28.431 tonn. Öll norsku skipin hættu veiðum í gær sunnudag og tilkynntu þau alls 27.745 tonna afla að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. 8.2.2010 14:46
Vegleg gjöf sem bragð er að Krabbameinsfélagið Framför hefur gefið öllum 40 almenningsbókasöfnum á landinu eintak af bókinni Bragð í baráttunni: Matur sem vinnur gegn krabbameini auk DVD disks sem félagið gaf nýlega út. Það var söfnunarátak hárgreiðslustofunnar 101 Hárhönnun sem gerði félaginu kleift að veita þessa gjöf en starfsmenn stofunnar söfnuðu alls 330.000 krónum þann 6. nóvember sl. með því að láta allan ágóða af klippingum renna til Krabbameinsfélagsins Framfarar. 8.2.2010 14:42
87 þúsund árásir með bjórglösum árlega Breska innanríkisráðuneytið hefur kynnt tvær nýjar tegundir af bjórglösum sem ekki brotna þegar þeim er lamið eða kastað í andlit manna. 8.2.2010 14:12
Jafnmargir Bretar hafa fallið í Afganistan og á Falklandseyjum Tveir breskir hermenn létust í Afganistan í dag og hafa því 255 breskir hermenn fallið síðan herleiðangurinn í landinu hófst árið 2001. Nú hafa því jafnmargir Bretar fallið í Afganistan og féllu á sínum tíma í Falklandseyjastríðinu sem stóð yfir árið 1982. Þar börðust Bretar við Argentínumenn um yfirráð yfir Falklandseyjum. 8.2.2010 13:39
Indverskir hermenn fórust í snjóflóði Ellefu indverskir hermenn létust hið minnsta í dag þegar snjóflóð féll á herflokk sem var við æfingar í Kashmir héraði. Tæplega hundrað hermenn grófust í flóðinu en 80 þeirra komust lífs af. Þriggja er enn saknað og fimmtán eru lífshættulega slasaðir. 8.2.2010 13:26
Fannst meðvitundarlaus Karlmaður á fertugsaldri fannst meðvitundarlaus í blóði sínu aðfaranótt laugardags á Bárugötu á Akranesi. Þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn kominn til meðvitundar en mikið blæddi úr höfði hans og því var hann fluttur á sjúkrahús með sjúkrabifreið. 8.2.2010 12:40
Líflegt undir Eyjafjallajökli Jarðskjálftavirknin undir Eyjafallajökli frá áramótum er sú tíðasta sem mælst hefur í eldstöðinni frá upphafi stafrænna skjálftamælinga Veðurstofunnar árið 1994, að því er fram kemur í janúaryfirliti stofnunarinnar. Skjálftarnir eru skýrðir með því að svokallað kvikuinnskot sé í gangi en sérfræðingar Veðurstofunnar hafa ekki túlkað hræringarnar þannig að eldgos sé í uppsiglingu. Athygli vekur að skjálftavirkninn hefur færst ofar í jarðskorpuna, á eins til fjögurra kílómetra dýpi, en Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir það ekki þýða að svo grunnt sé orðið niður á glóandi kviku. Hún sé talin vera á fimm til sex kílómetra dýpi. Steinunn telur að kvikan kunni að vera að safnast þar í kvikuhólf og segir ekki útlokað að ef þrýstingur byggist þar upp geti það leitt til eldgoss. Því verði áfram fylgst náið með þróun mála undir Eyjafjallajökli. 8.2.2010 12:17
Þórarinn Tyrfingsson ekki hrifinn af spilavítum Formaður SÁÁ segist finna fyrir miklum þrýstingi varðandi opnun spilavítis hér á landi. Allar helstu stofnanir landsins fjalla nú um spilavíti sem Icelandair vill opna við Suðurlandsbraut. 8.2.2010 12:07
Sérfræðingur í samningatækni fenginn til ráðgjafar Stjórn og stjórnarandstaða eru að ná saman um það á hvaða forsendum nýjar viðræður verða við Breta og Hollendinga, ef þær verða að raunveruleika. Lee Buchheit, bandarískur sérfræðingur í samningatækni og alþjóðalögum kemur væntanlega til landsins á morgun til ráðgjafar. 8.2.2010 11:55
Mikilvægur stuðningur við hjálparstarfið á Haítí Barnaheill, Save the Children, fengu nýverið fimm milljóna króna fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til neyðaraðstoðar á Haítí. Framkvæmdastjóri Barnaheilla á Óslandi segir að þetta sé mikilvægur stuðningur við hjálparstarfið á Haítí. 8.2.2010 11:50
Tiger kominn aftur til Elínar Tiger Woods er kominn aftur í faðm fjölskyldunnar eftir að hafa lokið nokkurra vikna dvöl á hæli til að ná stjórn á kynhvöt sinni. 8.2.2010 11:46