Hafnar ásökunum um okurlánastarfsemi 9. febrúar 2010 12:30 Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia.
Árni Páll Árnason gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hann sagði að lán til ungmenna á þúsund prósenta vöxtum væru siðlaus sjóræningjastarfsemi. Jafnframt hyggst ráðherrann beita sér fyrir lagasetningu til að takmarka starfsemi fyrirtækja eins og Kredia. Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist ekki geta tekið undir orð ráðherrans. „Við erum í atvinnurekstri sem felst í því að miðla fjármagn gegnum tölvukerfi. Við tökum fyrir það okkar kostnað til að hafa upp í laun og annað mál," segir Leifur. Af hverju er ráðherrann að halda því fram að þið séuð að taka þúsundir prósenta í vexti? „Hann er væntanlega að vitna til þess að þessi upphæð og kostnaður sem við erum að taka fyrir lánin er umreiknuð í ársvexti þá reiknast það upp í sex hundruð prósent samkvæmt umfjöllun sem hefur verið. Hann er væntanlega að tala um það." Fyrirtæki Leifs hefur verið gagnrýnt fyrir að höfða sérstaklega til ungs fólks, en þriðjungur allra sem nýta sér þjónustuna er á aldrinum 18-27 ára. Félagsmálaráðuneytinu hefur borist margar ábendingar frá fólki sem finnst þetta okurlánastarfsemi. „Það er ákveðinn misskilningur sem er í gangi um að ungt fólk og aðrir geti steypt sér í skuldir. Þú færð aldrei tíu þúsund krónur til að byrja með. Og þegar þú ert búinn að greiða það til baka geturðu fengið 20 þúsund króna lán. Þegar það hefur verið greitt geturðu fengið þrjátíu og endað í fjörutíu. Þú getur ekki fengið lán til að greiða annað lán. Viðskiptavinir Kredia geta mest skuldað fyrirtækinu fimmtíu þúsund krónur," segir Leifur. Leifur segir að starfsemi Kredia sé í fullri sátt við bæði Fjármálaeftirlitið og neytendastofu. Um sé að ræða löglega atvinnustarfsemi sem hafi fengið öll tilskilin leyfi hjá yfirvöldum. „Við fórum í mjög vandaðan undirbúning, lagalegan undirbúning, áður en við fórum af stað með reksturinn. Við sáum til þess að við fórum að öllum lögum og reglugerðum sem þarf til þess að uppfylla, þ.e vinna þessa starfsemi."
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fleiri fréttir Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Sjá meira