Fleiri fréttir

Craz-E Burger nýjasta sprengja Bandaríkjamanna

Í Massachusetts í Bandaríkjunum hefur nú litið dagsins ljós sú hitaeiningasprengja sem seint verður slegin út og sameinar að auki tvo vinsæla rétti þarlendra, hamborgarann og kleinuhringinn.

Brotist inn í leikskólann Hlíð

Brotist var inn í leikskólann Hlíð í Mosfellsbæ á fimmta tímanum í nótt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir engar upplýsingar liggja fyrir um það hvort einhverju hafi verið stolið í innbrotinu eða skemmdir unnar en það mun væntanlega skýrast þegar starfsmenn og leikskólabörn mæta í dag.

Rósin afhjúpuð við hátíðlega athöfn

Barnaheill á Íslandi afhjúpuðu minnisvarðann "Rósina" við hátíðlega athöfn í gær. Rósin er alþóðlegt minnismerki óþekkta barnsins um von og trú og er ætlað að vera sameiningartákn fyrir börn á Íslandi og um allan heim.

Óbreytt sala á áfengi

Þrátt fyrir verri efnahagsaðstæður er sala áfengis fyrstu 9 mánuði þessa árs nánast óbreytt frá því sem var í fyrra, samkvæmt tölum sem birtar eru á vef Vínbúðanna.

Boðar gríðarlegan niðurskurð í opinberum rekstri

George Osborne, fjármálaráðherra í skuggaráðuneyti breska Íhaldsflokksins, boðar afar strangar aðhaldsaðgerðir í opinberum fjármálum fari Íhaldsflokkurinn með sigur í næstu þingkosningum í Bretlandi. Samkvæmt þeim yrði niðurskurðurinn í ríkisrekstrinum sá mesti í 30 ár.

Festust í lyftu

Slökkviliðið var kallað að fjölbýlishúsi við Ásakór í Kópavogi um áttaleytið í gærkvöld en þar hafði fólk fest í lyftu. Greiðlega gekk að koma fólkinu úr lyftunni þegar slökkviliðsmennirnir voru komnir á staðinn en þeir hafa sérstaka lykla frá lyftuframleiðendum sem þeir beita í tilfellum sem þessu. Slökkviliðsmaður sem fréttastofa ræddi við segir að tilvik sem þetta sé mjög óalgengt nú til dags og rekur hann það til betra viðhalds á lyftunum.

Vilja endurskoða samstarfið við AGS

Samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn var í brennidepli í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um efnahagshrunið og endurreisnina á Alþingi í gær. Þá var ár liðið frá því að neyðarlögin voru sett en á þeim var yfirtaka ríkisins á bönkunum grundvölluð.

EES-samningurinn í hættu falli Icesave

Náist ekki niðurstaða í Icesave-málinu er hætta á að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) verði sagt upp, að mati sérfræðinga í Evrópumálum.

Rósin afhjúpuð í Laugardalnum

Samtökin Barnaheill á Íslandi afhjúpuðu í gær Rósina, alþjóðlegt minnismerki óþekkta barnsins um von og trú, við þvottalaugarnar í Laugardal.

Vill 2,4 milljarða úr þrotabúi Lehman

Íslenskur fyrrum yfirmaður hjá Lehman Brothers fjárfestingarbankanum hefur gert tæplega nítján milljóna bandaríkjadala kröfu í þrotabú bankans. Krafan jafngildir 2.355 milljónum króna.

Utandagskrárumræður og fyrirspurnir

Tvennar utandagskrárumræður verða á þingfundi í dag. Annars vegar verður rætt um nýtingu orkulinda til orkufreks iðnaðar og stöðugleikasáttmálann og hins vegar um stöðu heimilanna.

Útgáfustjóri las yfir póst blaðamanns

Óskar Magnússon, útgáfustjóri Morgunblaðsins, skoðaði tölvupóst blaðamanns sem hætti á blaðinu undir lok september. Blaðamannafélag Íslands hefur verið upplýst um málið.

Endurtekið efni í stefnuræðu

„Endurreisn bankanna er nú loks á lokastigi,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á mánudagskvöld. Hún hefur sagt þetta áður.

Upptaka heimil í leigubílum

Heimilt er að koma fyrir myndbandsupptökuvélum í leigubílum svo framarlega sem farþegar eru varaðir við því að upptaka sé í gangi. Þetta kemur fram í svari Persónuverndar við fyrirspurn frá leigubílafyrirtækinu Hreyfli-Bæjarleiðum.

Fagmenn gagnrýna Guð blessi Ísland

Guð blessi Ísland, heimildarmynd Helga Felixsonar um efnahagshrunið, gæti talist utan hefðbundinna viðmiða í blaðamennsku, miðað við það sem viðmælendur Fréttablaðsins hafa séð af henni.

Stóriðjan leggi sitt af mörkum

Er það til of mikils mælst að stóriðjufyrirtæki og stórnotendur raforku greiði lágt auðlindagjald eins og allir aðrir? Að þessu spyr Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í aðsendri grein um orku- og auðlindagjöld í Fréttablaðinu í dag.

Freista þess að bera klæði á vopnin

Þingflokkur Vinstri grænna mun funda seinnipartinn í dag, eftir að Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, kemur til landsins af ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Smáhækkun í september

Raungengi krónunnar hækkaði um 1,2 prósent í september á mælikvarða hlutfallslegs neysluverðs, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans.

Tugir manna handteknir

Lögreglan í Istanbúl beitti þrýstivatnsslöngum, táragasi og piparúða til að dreifa hundruðum manna sem komu saman til að mótmæla ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Lögguníðingur löngu kominn

Karlmaðurinn sem hefur verið í endurkomubanni í fimm ár, eftir árás á tvo lögreglumenn á Laugavegi á síðasta ári, hafði dvalið hér svo mánuðum skipti áður en lögregla handtók hann.

Horfa til aukinnar nýtingar

Írar ráða yfir 650 þúsund ferkílómetra svæði undir sjávarmáli, því mesta í Evrópusambandinu.

Hefja störf í næstu viku

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra skipaði í gær þrjá nýja saksóknara við embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins. Þremenningarnir munu hefja störf fyrir embættið 15. október næstkomandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Rannsóknir á hendi lögreglu

Lögregla fer með eftirlit með útlendingum hér á landi og tekur í tilviki EES-borgara ákvörðun um frávísun þeirra, ef tilefni til afskipta rís innan sjö sólarhringa frá komu til landsins.

Ráðherrarnir verða færri

George Papandreou, leiðtogi sósíalista á Grikklandi, tók í gær við sem forsætisráðherra eftir að hafa unnið frækinn kosningasigur á hægristjórn Costas Karamanlis um síðustu helgi.

Polanski tapaði fyrstu lotunni

Pólski kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski varð að láta í minni pokann í fyrstu lotu baráttu sinnar við svissneska réttarkerfið þegar dómsmálaráðuneyti landsins hafnaði beiðni hans um lausn úr varðhaldi.

Ekki meira en 24 bjóra á dag

Ástralskir kappakstursunnendur verða að láta sér nægja einn kassa, 24 dósir, af bjór á dag á meðan þeir fylgjast með þriggja daga kappakstri sem fram fer í landinu í vikunni.

Handtekinn í Úganda í gær

Fyrrverandi yfirmaður í leyniþjónustu Rúanda var handtekinn í Úganda í gær, grunaður um að hafa verið einn af höfuðpaurum þjóðarmorðsins í Rúanda árið 1994.

Borgin krefst hærri arðgreiðslna

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir að borgarstjóri hafi sent fulltrúum Reykjavíkurborgar í stjórnum B-hluta fyrirtækja borgarinnar bréf þar sem farið er þess á leit að fyrirtækin skili eigendum sínum auknum arði á næsta ári. Hún segir um sé að ræða orkuskatt meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

185 ökumenn myndaðir í Hafnarfirði

Brot 185 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag af lögreglunni. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, sunnan Arnarnesvegar.

Reykjavíkurborg verðlaunuð

Reykjavíkurborg hefur verið tilnefnd til verðlauna Eurocities fyrir nýbreytni við fjárhagsáætlunarvinnu Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009. Verðlaun samtakanna eru í flokknum nýsköpun (Innovation) og er Reykjavíkurborg ein þriggja borga sem tilnefndar eru í þessum flokki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Nýr veðurgagnagrunnur tekinn í notkun

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opnar í dag nýtt vefsvæði sem hlotið hefur nafnið Gagnatorg veðurupplýsinga. Á Gagnatorginu má með einföldum hætti nálgast allar veðurathuganir Veðurstofu Íslands sem skráðar eru í gagnagrunna hennar. Þessar athuganir taka til meira en 200 veðurstöðva víðsvegar um landið og ná í sumum tilvikum allt aftur til ársins 1931 að því er segir í tilkynningu en það eru fyrirtækin Reiknistofa í veðurfræði / Belgingur og DataMarket sem standa að þróun og rekstri Gagnatorgsins.

Fólki fleygt lifandi út úr flugvélum

Fyrrverandi Argentinskur herflugmaður sem nú er hollenskur ríkisborgari kom fyrir rétt á Spáni í dag. Hann er grunaður um þáttöku í dauðaflugferðunum svokölluðu í Argentínu.

Ragna skipar þrjá saksóknara

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, hefur skipað þau Arnþrúði Þórarinsdóttur, Björn Þorvaldsson og Hólmstein Gauta Sigurðsson í embætti saksóknara við embætti sérstaks saksóknara. Þau hefja störf 15. október við hlið Ólafs Þór Haukssonar, sérstaks saksóknara.

Undirbúningur Gerplu tók lengri tíma en gert var ráð fyrir

Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að víxla frumsýningardögum á leikritinu Gerplu og söngleiknum Oliver!. Til stóð að Gerpla yrði jólasýning leikhússins en eins og Vísir greindi frá fyrr í dag var það slegið af. Í tilkynningu frá leikhúsinu segir að ástæðan sé sú að undirbúningur Gerplu hafi tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir og þess vegna óskaði leikstjórinn Baltasar Kormákur eftir lengri undirbúningstíma.

Krókódíll í miðbænum

Lögreglan í Ástralíu handtók á dögunum tveggja og hálfs metra langan saltvatns krókódíl sem var að þvælast um götur í smábæ á norðurströnd álfunnar.

AGS ekki deginum lengur í landinu en þörf er á

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verði ekki deginum lengur í landinu en þörf er á. Hann segir fund sinn og Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, með Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í Istanbúl í dag hafa verið afar gagnlegan. Steingrímur telur að uppskeran af fundum undanfarinna daga verði sú að nú komist hreyfing á málefni Íslands.

Nauðungaruppboðum fjölgar í Danmörku

Nauðungaruppboðum á fasteignum í Danmörku hefur fjölgað um þrjátíu og eitt prósent á því ári sem liðið er frá því kreppan skall á. Og þeim á enn eftir að fjölga ef marka má spár.

Íslenskum lífeyrisþegum búsettum erlendis fjölgar

Íslenskum elli- og örorkulífeyrisþegum sem voru skráðir erlendis hefur fjölgað þrátt fyrir gengisþróunina en þeim fjölgaði um tæplega hundrað síðustu tíu mánuði. Bætur eru greiddar í íslenskum krónum til banka sem millifærir inn á reikninga viðkomandi í erlendri mynt. Gengið í þeim millifærslum er alfarið mál bankans og viðskiptavinarins.

Rauð andlit í varnarmálaráðuneytinu

Vegna tíðra leka á leynilegum upplýsingum lét breska varnarmálaráðuneytið semja leiðbeiningar fyrir starfsmenn sína um hvernig hægt væri að koma í veg fyrir slíkt. Þessu leyniskjali hefur nú verið lekið á netið.

Markmiðið ekki að fella ríkisstjórnina

„Ég er ekki í þessari vegferð til þess að fella ríkisstjórnina," segir Höskuldur Þórhallsson. Hann segir að ríkisstjórnin stjórni því sjálf hvort hún haldi áfram eða hætti. Vantrausttillaga á ríkisstjórnina hafi því ekki verið rædd á meðal framsóknarmanna.

Sjá næstu 50 fréttir