Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Svínin eru með svínaflensuna Staðfest var í gær að nokkur svín á svínabúinu að Minni-Vatnsleysu væru sýkt af svínaflensu. Ekki verður gripið til sérstakra ráðstafana vegna þessa, að öðru leyti en því að reynt verður að einangra pestina við þetta tiltekna svínabú. Ljóst þykir að svínin hafi sýkst vegna umgengni við veikt starfsfólk. Engar líkur eru á að veikjast við það að neyta svínakjöts. 28.10.2009 03:45
Ísland leysist upp og hverfur „Var þarna verið að lýsa stöðu þjóðarinnar um þessar mundir? Ísland bundið í klafa skulda og efnahagurinn harðfrosinn,“ segir Sigurður Sigurðarson, vefstjóri heimasíðu Skagastrandar, um listaverk brasilísku listakonunnar Renötu Padovan. 28.10.2009 03:45
Mótmæla fyrirhugaðri skerðinga til stofanna í Skagafirði Borgarafundur sem haldinn var á á Sauðárkróki samþykkti ályktun þar sem fyrirhuguðum skerðingum á fjárframlögum til opinberra stofnana í Skagafirði er harðlega mótmælt sem og fækkun þeirra starfa sem af þeim munu leiða. 27.10.2009 20:08
Tvö börn í hverjum grunnskólabekk lögð í einelti Tvö börn í hverjum einasta grunnskólabekk á Íslandi eru lögð í einelti og vísbendingar eru um að þessum börnum fari fjölgandi. Móðir drengs sem svipti sig lífi eftir að hafa verið miskunnarlaust lagður í einelti segir allt of lítið gert til að sporna við ofbeldinu. 27.10.2009 19:00
Fjármálaráðgjafi mælir ekki með leið ríkisstjórnarinnar Þeir sem þurfa ekki nauðsynlega að lækka greiðslubyrðina sína ættu ekki að nýta sér greiðslujöfnunarleið ríkisins segir fjármálaráðgjafi. Hann segir úrræðin dýr og sýnir með útreikningum að þau geti að endingu orðið kostnaðarsamari en ef haldið er áfram að borga af lánunum eins og þau eru í dag. 27.10.2009 18:52
Annað efnahagshrun blasir við Annað efnahagshrun gæti blasað við náist ekki að tryggja sátt á milli ríkisstjórnar og atvinnurekenda segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Framtíð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði ræðst á næstu klukkustundum. 27.10.2009 18:36
Peningaþvætti og tryggingasvik tengjast mansalsmálinu Fólkið sem situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við mansalsmálið, svonefnda, er jafnframt grunað um peningaþvætti, íkveikju og tryggingasvik. Fólkið er talið tengjast bruna í gamla fiskimarkaðnum við Sólvelli á Grundarfirði í lok ágúst. Þá var tugmilljón króna tjón þegar húsnæðið, tæki og veiðarfæri brann til kaldra kola. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 27.10.2009 18:08
Ísland beiti sér fyrir auknu lýðræði og gagnsæi innan ESB „Hvað varðar stofnanir ESB, þá mun Ísland í norrænum anda vinna með þeim aðildarríkjum sem vilja auka lýðræðisleg vinnubrögð og gagnsæi innan ESB. Við munum gefa mannréttindum og velferð allra sérstakan gaum, ekki síst þegar kemur að minnihlutahópum,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í ræðu á 61. þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í dag. 27.10.2009 17:55
Lögreglustjóri vísar orðum Sveins Andra á bug Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hafnar alfarið atvikalýsingu Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns, á handtöku eiginkonu Íslendings sem er í haldi vegna mansalsmálsins, svonefnda. Lögreglustjórinn segir að konan hafi verið ósamvinnuþýð og neitað að gefa upplýsingar sem óskað var eftir. Því hafi verið ákveðið að handtaka hana og færa til yfirheyrslu. 27.10.2009 17:12
Banaslys á Fljótsdalshéraði Karlmaður á sextugsaldri lést í umferðarslysi sem varð á Fljótdalshéraði á afleggjaranum að bænum Hlíðarhús við veg 917 í morgun eða í nótt. Ökumaður dráttarvélar ók útaf veginum og valt hún í Fögruhlíðará. Vélin var hálf í kafi þegar að var komið. 27.10.2009 17:09
Fjármálaráðherra er bjartsýnn á að lausn náist á atvinnumarkaði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist eiga von á því að hægt verði að finna lausn á stöðunni sem upp er komin á atvinnumarkaði. Úrslitatilraun hefur staðið yfir í dag til að bjarga stöðugleikasáttmálanum, en sáttmálinn rennur út á miðnætti. Þreifingar hafa verið á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda í dag. Stjórn Samtaka atvinnulífsins fundaði um málið í hádeginu og var þungt hljóð í mönnum að sögn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA. 27.10.2009 16:47
Skildi tæpt kíló af amfetamíni eftir á flugvélaklósetti Hæstiréttur Íslands hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir einstaklingi sem var handtekinn á Leifsstöð þann 23. október grunaður um að hafa reynt að smygla rúmlega 700 grömmum af amfetamíni inn til landsins. 27.10.2009 16:44
Börnum bjargað úr kynlífsþrælkun Alríkislögreglan lét til skarar skríða í þrjátíu og sex borgum Bandaríkjanna eftir ítarlega rannsókn og söfnun sönnunargagna. 27.10.2009 16:39
Innbrotafaraldur herjar á íbúa Suðurnesja Innbrotafaraldur hefur herjað á íbúa á Suðurnesjum nú í mánuð en á annan tug innbrota hafa verið tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum. Að sögn Skúla Jónssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, þá hófst faraldurinn í lok september og náði hámarki fyrir stuttu. Hann segir faraldurinn þó í rénum nú. 27.10.2009 16:30
Vantar sjálfboðaliða til þess að safna fyrir Rebekku Maríu Pétur Sigurgunnarsson, sem safnar fé fyrir Rebekku Maríu Jóhannesdóttur í Hafnarfirði en hann vantar sjálfboðaliða til þess að aðstoða sig við að selja styrktarmerki í hennar nafni víðsvegar um landið. Eins og flestir vita þá berst Rebekka fyrir því að fá að ættleiða tvo bræður sína 8 og 2 ára eftir að móðir þeirra lést úr heilaæxli í ágúst síðastliðnum. Faðir Rebekku lést í bílslysi í ágúst 2007. Sjálf á Rebekka María von á barni í byrjun nóvember. 27.10.2009 16:01
Skjalasafn Ólafs Thors afhent Reykjavíkurborg Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri mun á morgun taka formlega við einkaskjalasafni Ólafs Thors, fyrrverandi forsætisráðherra, sem varðveitt verður í Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Af sama tilefni mun borgarstjóri opna vefsíðu um Ólaf Thors. Ólöf og Guðrún Pétursdætur gefa safnið í minningu foreldra sinna Mörtu Thors og Péturs Benediktssonar, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. 27.10.2009 15:27
Undirbjuggu hryðjuverkaárás á Jyllandsposten Bandaríska alríkislögreglan hefur handtekið tvo menn í Chicago sem voru að undirbúa hryðjuverkaárásir í Danmörku, meðal annars á ritstjórn Jyllandsposten. 27.10.2009 15:23
Nítján ára trúbador býður lénið Metro.is til sölu Trúbadorinn Baldvin Sigurðsson keypti lénið Metro.is í júní síðastliðnum en nafnið Metro var samheiti yfir þrjá trúbadora sem spiluðu á hinum ýmsu knæpum á Íslandi. 27.10.2009 15:11
Vísindakirkjan sektuð fyrir svik Vísindakirkjan í Frakklandi hefur verið sektuð fyrir fjársvik. Dómstóllinn féllst þó ekki á þá kröfu saksóknarans að banna kirkjuna í landinu. 27.10.2009 14:47
Ákærður fyrir að hóta lögreglukonu ítrekað Tvítugur piltur hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórn þegar hann á að hafa hótða lögreglukonu, sem var við skyldustörf, ítrekað ofbeldi. 27.10.2009 14:25
Eldur í blaðagámi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að verslunarkjarnanum í Suðuveri um tíuleytið í morgun vegna elds í blaðagámi. Að sögn slökkviliðsmanns sem fréttastofa talaði við skemmdist gámurinn það mikið að nauðsynlegt þótti að fjarlægja hann af staðnum. 27.10.2009 14:19
Ók undir áhrifum fíkniefna og fékk piparúða í augun Karlmaður á þrítugsaldri var stöðvaður af lögreglunni í Hafnarfiri aðfaranótt sunndags. Hann brást hinn versti við afskiptum lögreglunnar og lét ófriðlega að hennar sögn. Fór svo að hann var yfirbugaður með piparúða. 27.10.2009 14:14
Aralhaf smámsaman að endurnýjast Aralhafið í Kazakstan er smámsaman að endurnýjast eftir að Alþjóðabankinn og ríkisstjórn landsins reistu stíflu sem veitir vatni í það á nýjan leik. 27.10.2009 14:07
Í akstursbann á öðrum degi Ungur piltur var stöðvaður á 128 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunnium helgina en hann var búinn að vera með ökuréttindi í tvo daga. 27.10.2009 14:07
Húnabjörgin sótti aflvana bát Húnabjörgin frá Skagaströnd, eitt af björgunarskipum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var kallað út á níunda tímanum í morgun vegna aflvana báts. 27.10.2009 14:06
Leikskóli sprengdur í tætlur í Bagdad Tuttugu og átta smábörn létu lífið í sprengjuárásunum í Bagdad á sunnudag. Samtök tengd al-Kaida hafa lýst ódæðinu á hendur sér. 27.10.2009 13:30
Skjóttu hundinn og bjargaðu heiminum Tveir nýsjálenskir arkitektar sem hafa sérhæft sig í umhverfismálum og gæludýrahaldi segja að gæludýr mengi á við bestu bensínháka. 27.10.2009 13:13
Hluti miðborgarinnar rafmagnslaus Fyrir stundu varð rafmagnsbilun og er hluti miðbæjar Reykjavíkur rafmagnslaus samkvæmt tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 27.10.2009 13:02
Dóttir Gunnars Birgissonar í meiðyrðamál við bæjarfulltrúa Frjáls Miðlun ehf., sem er í eigu Guðjóns Gísla Guðmundssonar og Brynhildar Gunnarsdóttur, dóttur Gunnars Birgissonar, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs, hefur stefnt þremur bæjarfulltrúum í Kópavogi fyrir meiðyrði. Alls krefjast hjónin auk Frjálsar miðlunar 11,4 milljóna króna vegna ummælanna. Bæjarfulltrúarnir eru Ólafur Þór Gunnarsson VG, Hafsteinn Karlsson Samfylkingunni og svo Guðríður Arnardóttur sem er einnig í Samfylkingunni. 27.10.2009 12:44
Úrslitatilraun gerð í dag Úrslitatilraun verður gerð í dag til að bjarga stöðugleikasáttmálanum. Þreifingar hafa verið á milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda í morgun en framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins fundar í hádeginu vegna málsins. 27.10.2009 12:11
Vilja að lögreglustjórinn biðjist afsökunar Farið verður fram á að lögreglustjórinn á Suðurnesjum biðjist opinberlega afsökunar á handtöku eiginkonu Íslendings sem er í haldi vegna mansalsmálsins, svonefnda. Talið er að handtakan hafi verið algerlega ástæðulaus, en konan var í haldi yfir nótt. 27.10.2009 12:04
Mótmælandi í mál vegna ólögmætrar handtöku Mótmælandinn Haukur Hilmarsson er búinn að stefna fjármálaráðuneytinu vegna ólögmætrar handtöku en fyrirtaka verður í málinu um klukkan þrjú í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það er mannréttindalögfræðingurinn Ragnar Aðalsteinsson sem sækir málið fyrir Hauk. Hann krefst skaðabóta vegna handtökunnar sem átti sér stað í nóvember á síðasta ári. 27.10.2009 11:07
Svínin voru með svínaflensu Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur nú staðfest að sýking í svínum á svínabúinu á Minni-Vatnsleysu er af völdum inflúensuveirunnar A(H1N1) samkvæmt heimasíðu Matvælastofnunnar. 27.10.2009 10:02
Íslendingar sáu í gegnum loftsteinsgabb í Lettlandi Vísindamenn segja að loftsteinslending í Lettlandi sem skýrt var frá í gær hafi verið gabb. Rússneska fréttastofan Itar Tass birti mynd af stórum gíg sem sagður var vera eftir loftsteininn. 27.10.2009 10:01
Sýknaður af ölvunarakstri - dæmdur fyrir kókaínakstur Karlmaður á fimmtugsaldri var sýknaður af ölvunarakstri í Héraðsdómi Suðurlands í morgun en hann var dæmdur fyrir að aka undir áhrifum kókaíns í öðru tilviki. Fyrra tilvikið átti sér stað í júlí árið 2008. Þá ók maðurinn norður Vaðnesveg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Maðurinn ók forlátri Mercedez Benz CL bifreið út af veginum inn í runna þar sem hann var vart sjáanlegur frá veginum. 27.10.2009 09:53
Flugmennirnir lágu yfir fartölvum sínum Tveir flugmenn hjá bandaríska flugfélaginu Northwest lágu yfir fartölvum sínum þegar þeir flugu framhjá Minneapolis, þar sem þeir áttu að lenda. 27.10.2009 09:38
Minnsta kynjabil heims á Íslandi Ísland er í fyrsta sæti í vísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins um jafnræði kynjanna í heiminum samkvæmt nýrri skýrslu ráðsins. Noregur, sem áður vermdi fyrsta sætið, er hins vegar dottinn niður í það þriðja en Finnland er í öðru sæti og Svíþjóð í því fjórða. 27.10.2009 09:03
Þriðjudagar til þrautar Mánudagar eru alls ekki svo slæmir en versti tímapunktur vikunnar er klukkan 11:45 á þriðjudagsmorgnum ef marka má nýja breska könnun. 27.10.2009 08:41
Chavez sakar Kólumbíumenn um njósnir Stjórnvöld í Venesúela ásaka nágranna sína í Kólumbíu um njósnir auk þess að leyfa Bandaríkjamönnum að koma upp herstöðvum sem nota megi til að gera árás á Venesúela. 27.10.2009 08:40
Hið íslamska ríki í Írak lýsir tilræði á hendur sér Hópur sem tengist al-Qaeda-hryðjuverkasamtökunum hefur lýst sprengjutilræðinu í Baghdad á sunnudaginn á hendur sér. 27.10.2009 08:09
Hvalfjarðargöng lokuð næstu nætur Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna viðhalds aðfaranótt miðvikudags 28.október, fimmtudags 29. október og föstudags 30. október frá miðnætti til klukkan sex að morgni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 27.10.2009 07:34
Ares-flaugin á loft í dag Tilraunageimflauginni Ares 1-X verður skotið á loft frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni í dag og er þetta í fyrsta skipti í marga áratugi sem annars konar geimfar en geimskutla stendur á skotpalli 39-B þar á bæ. 27.10.2009 07:19
Lítið þokast í póstverkfallinu Enn er allt í járnum milli yfirmanna konunglegu póstþjónunnar og verkalýðsfélaga starfsmannanna og stendur verkfall þeirra enn þá. 27.10.2009 07:12
Innbrot í söluturn í Hafnarfirði Brotist var inn í söluturn í Hafnarfirði um klukkan hálfþrjú í nótt. Ræningjarnir, sem voru þrír, forðuðu sér af vettvangi í bifreið en lögregla stöðvaði för þeirra skömmu síðar og handtók þá. 27.10.2009 07:09
Prófessor seldi mörg hundruð höfuðkúpur Kínverskur prófessor hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi fyrir að ráða tvo bændur til þess að grafa upp jarðneskar leifar manna í Qinghai-héraðinu í Vestur-Kína og selja höfuðkúpur þeirra á Netinu. 27.10.2009 07:07