Fréttablaðið verður fáanlegt um allt land 10. október 2009 02:00
Stefnt er að því að Fréttablaðið verði aðgengilegt um land allt eftir breytingar á dreifingu þess í lok mánaðarins. Blaðinu hefur ekki verið dreift svo víða áður. Miðað við núverandi upplagstölur verður samdráttur í frídreifingu um þrjú prósent af upplaginu en miðað við undirtektir við hugmyndir um lausasölu á kostnaðarverði má búast við að heildaráhrifin verði þau að upplagið aukist nokkuð frá því sem nú er. Fréttablaðinu verður dreift frítt á helstu þéttbýlisstöðum suðvesturhornsins: á Reykjanesi, Akranesi, í Borgarnesi og Árborg og áfram borið í hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Frídreifing Fréttablaðsins mun því áfram ná til um 85 prósent landsmanna. Á öðrum stöðum verður hægt að fá blaðið í lausasölu á kostnaðarverði. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í fyrradag eru breytingarnar á dreifingu blaðsins gerðar vegna efnahagsþrenginganna sem nú ganga yfir. Auglýsingamarkaðurinn hefur dregist það mikið saman að hann stendur ekki undir jafn stóru upplagi og jafn víðtækri dreifingu og áður, auk þess sem staða krónunnar hefur aukið pappírskostnað til muna. Söluaðilar Fréttablaðsins á landsbyggðinni munu fá hvert blað á kostnaðarverði. Eins og fram hefur komið hefur verið gengið frá samningum við N1 um að bjóða viðskiptavinum Fréttablaðið. Fleiri sölustaðir munu bætast við áður en breytingarnar koma til framkvæmda og verða kynntir jafnóðum í blaðinu. Þeim sem hafa áhuga á að taka Fréttablaðið til dreifingar á landsbyggðinni er bent á að setja sig í samband við Pósthúsið í síma 585 8300. Áfram verður hægt að fá Fréttablaðið í fullri áskrift utan hefðbundins dreifingarsvæðis. Það kostar 2.890 krónur á mánuði . Blaðið fæst frítt í rafrænni áskrift í tölvupósti, auk þess sem það er aðgengilegt ókeypis á Vísi.is.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira