Fleiri fréttir

Vitlaust veður víða

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa farið í 30 útköll það sem af er degi og fjölgar þeim ört. Útköllin eru víða um höfuðborgarsvæðið og á Kjalarnesi þar sem meðal annars. þak er að fjúka af kjúklingabúinu Móum. Fjölmennt lið var sent á staðinn en í ljós hefur komið að það dugar ekki til. Verið er að kalla út stórvirkar vinnuvélar til að fergja þakið.

Óljóst með fasteignalánin hjá Kaupþingi

Fólk með erlend fasteignalán hjá Landsbankanum getur fengið lækkun á höfuðstól við skuldbreytingu í óverðtryggð krónulán, líkt og hjá Íslandsbanka. Enn er óljóst hvort Kaupþing býður viðskiptavinum sínum upp á að leiðréttingu fasteignalána.

Vilja ekki olíuskip á hafíssvæðum

Landhelgisgæslan hefur óskað eftir því að olíuskip sem sigla frá Rússlandi til Bandaríkjanna, sigli ekki milli Íslands og Grænlands, vegna hafíss. Drekkhlaðið olíuskip fór vestur fyrir landið í vitlausu veðri á dögunum, en lét ekki vita um ferðir sínar.

Malarnáma formanns VG notuð við virkjanaframkvæmdir

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna er einn af eigendum jarðarinnar Miðhúsa í Gnúpverjahreppi. Þar fyrirhugar Vegagerðin námu í tengslum við virkjanaframkvæmdir í neðri Þjórsá. Vegagerðinni er heimilt að taka 12 þúsund rúmmetra í Miðhúsum en það telst lítil náma. Þar af leiðandi er framkvæmdin óháð umhverfismati.

Tóm steypa að Obama fái Nóbelinn

Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, er ekki hrifinn af þeirri ákvörðun að sæma Barack Obama friðarverðlaunum Nóbels en það var gert heyrinkunnugt í morgun. „Þetta er bara tóm steypa," segir Stefán.

Vilja fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 61

Allir þingmenn Hreyfingarinnar og Sigurður Ingi Jóhannsson þingmaður Framsóknarflokksins hafa sameiginlega lagt fram frumvarp sem kveður á um að sveitastjórnarfulltrúum verði fjölgað umtalsvert. Verði frumvarpið að lögum mun borgarfulltrúum í Reykjavík fjölga úr 15 í 61.

Vara við SMS-lánum á Íslandi

Kredia, sem skilgreinir sig sem fyrirtæki á sviði smálána, sms-lána og örlána, hefur nýlega byrjað að bjóða upp á svokölluð smálán. Framkvæmdin virðist einföld, allt sem þarf er að skrá sig á netinu og senda svo sms þegar mann vantar pening. Neytendasamtökin vara fólk eindregið við töku þessara lána og hvetja yfirvöld jafnframt til aðgerað er sporni við slíkum lánveitingum. Lánin geta verið að upphæð 10.000, 20.000, 30.000 eða 40.000 kr. og þau þarf að greiða upp innan fimmtán daga.

Grill fauk á rúðu

Níu beiðnir um aðstoð hafa borist björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Sex hópar björgunarsveitamanna frá Ársæli í Reykjavík og Kili á Kjalarnesi sinna þeim.

McCann hjónin snúa aftur til Portúgals

Eftir miklar vangaveltur hefur Gerry McCann nú upplýst að hann muni snúa til Praia da Luz ásamt Kate eiginkonu sinni á þessu ári. Foreldrar hinnar horfnu Madeleine McCann dvelja nú á Spáni en Kate hefur ekki komið til staðarins þar sem dóttir þeirra hvarf í meira en tvö ár. Það hefur Gerry hinsvegar gert.

Mælir með því að foreldrar sæki börnin í skólann

Veðurhæðin er við það að ná hámarki og það verður býsna hvasst á sunnan- og vestanverðu landinu fram til þrjú eða fjögur, segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Hann mælir með því að foreldrar sæki börn sín í skólann í dag, einkum ef um er að ræða ung börn.

Rútuferðum frestað

Öllum áætlunarferðum Bíla og fólks - TREX, frá Reykjavík, Akureyri og Snæfellsnesi var frestað í morgun. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að athugað verði í hádeginu hvort unnt verði að leggja af stað klukkan 13:00.

Segir Svandísi afþakka 15 milljarða

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lýsti því yfir í morgun að hún ætlaði ekki að sækja um undanþágur frá Kyoto-bókuninni fyrir mengandi stóriðju. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að þar með hafi umhverfisráðherra afsalað sér fyrir hönd þjóðarinnar fimmtán milljarða króna verðmætum.

Svínaflensusmit: Ástand sjúklings alvarlegt

Ástand karlmanns, sem liggur á gjörgæsludeild Landspítalans svínaflensu, er alvarlegt að sögn vakthafandi læknis. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Samkvæmt upplýsingum frá lækni er maðurinn á sjötugsaldri og með undirliggjandi sjúkdóma.

Þúsundir sjóðsfélaga eiga rétt á skaðabótum

Með nýuppkveðnum dómum Héraðsdóms Reykjavíkur í málum 18 sjóðsfélaga í peningamarkaðssjóði Landsbankans var fallist á sameiginlega bótaskyldu Landsbankans og Landsvaka vegna þess tjóns sem sjóðsfélagarnir urðu fyrir við slit sjóðsins. Eru þetta fyrstu dómarnir sem falla eftir bankahrunið þar sem einn af gömlu bönkunum er dæmdur bótaskyldur gagnvart viðskiptavinum sínum.

Barack Obama fær friðarverðlaun Nóbels

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár. Norska Nóbelnefndin sem úthlutar þessum verðlaunum tilkynnti um þetta í dag.

Óveðrið segir til sín í Reykjavík

Hvassviðrið hefur aukist í Reykjavík eftir því sem liðið hefur á morguninn og telur lögreglan líklegt að kalla verði eftir björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu þegar líður á daginn. Tjald sem staðsett var við Háskóla Íslands losnaði í morgun og fiskikör á Granda hafa fokið. Þá hafa vinnupallar hreyfst úr stað vegna óveðursins.

Ekkert ferðaveður í dag

Vegagerðin varar við stormi og slæmu ferðaveðri, sunnan og vestan til á landinu í dag. Vegfarendur eru beðnir um að kynna sér veðurspá og skilyrði til aksturs. Ekkert hefur verið flogið í dag samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands en athugað verður með flug klukkan hálfellefu. Þá sigldi Herjólfur ekki í morgun.

Samferðarmenn dauðans

Illa lyktandi, feitt og síhóstandi fólk eru verstu samferðarmenn í flugi sem fyrirfinnast. Að minnsta kosti ef eitthvað er að marka glænýja könnun vefsíðunnar Travelocity.

Barnabarn Stalíns stefnir dagblaði

Barnabarn rússneska einræðisherrans Josefs Stalin hefur höfðað mál gegn rússnesku dagblaði og fullyrðir að blaðið hafi lítilsvirt minningu hans.

Leysti þúsundir minka úr haldi

Það varð uppi fótur og fit í minkabúi í Fousing á Vestur-Jótlandi snemma í morgun þegar óþekktur aðili braust þar inn og hleypti minkunum út.

Tannfyllingar Hitlers úr gyðingum

Fyllingar í tönnum Adolfs Hitler, leiðtoga þýska nasistaflokksins á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar, voru gerðar úr gulli sem fjarlægt hafði verið úr tönnum gyðinga í útrýmingarbúðum nasista.

Styttist í tunglárekstur

Núna eru örfáar klukkustundir í að tveggja tonna þungt toppstykki eldflaugar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA skelli á tunglinu á 9.000 kílómetra hraða á klukkustund og þyrli upp rykskýi sem geimfarið L-Cross, eða Lunar Crater Observation and Sensing Satellite, mun svo mynda rétt áður en það flýgur í gegnum skýið og skellur sjálft á yfirborði tunglsins, þó ekki með sama krafti og fyrra skeytið.

Ljómandi borg hefst í dag

Reykjavíkurborg hleypir af stokkunum verkefninu Ljómandi borg í dag. Á sama tíma og kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey fagnar Reykjavíkurborg vetrinum með því að kveikja hvít ljós víða um miðborgina og á samkomustöðum í hverfum borgarinnar.

Fjórðungur jarðarbúa er íslamstrúar

Nú er talið að allt að 1,8 milljarðar manna í heiminum játi íslamstrú. Það þýðir að um það bil einn af hverjum fjórum jarðarbúum sé þeirrar trúar.

Aftakaveður í Vestmannaeyjum

Mjög hvasst er í Vestmannaeyjum þessa stundina og svo hvasst hefur verið þar að í nótt fauk sendibíll á hliðina við Stóragerði í austurhluta bæjarins. Að sögn lögreglunnar var bíllinn, sem er um 2,4 tonn að eigin þyngd, mannlaus þegar að hann fauk á hliðina. Lögreglan býst ekki við að bíllinn verði reistur við fyrr en veðrið lægir. Þá vill lögreglan í Vestmannaeyjum koma því á framfæri að þar fellur niður öll kennsla í grunnskólum í dag vegna veðurs.

Forsetinn vill strangari reglur um bankastarfsemi

Nauðsynlegt er að setja strangari reglur um bankastarfsemi og við verðum að styrkja stoðir seðlabankanna í reglugerðarverkinu, segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands í grein sem birtist á vef Forbes.

Orkuveitan bíður í ofvæni eftir svörum

Ef Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) afgreiðir ekki þrjátíu milljarða króna lán til Orkuveitu Reykjavíkur (OR) setur það áætlanir fyrirtækisins um virkjanauppbyggingu í fullkomið uppnám. Ef lánið fæst verður Hellisheiðarvirkjun kláruð en ákvarðanir um byggingu Hverahlíðarvirkjunar hafa hins vegar verið settar á salt þangað til fjármögnun verkefnisins er að fullu lokið.

140 milljarðar áætlaðir í lán vegna NBI

Ríkissjóður tekur alls 610 milljarða króna að láni á þessu ári, að frátöldum skuldbindingum Tryggingasjóðs innistæðueigenda vegna Icesave. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjáraukalaga 2009, sem lagt var fram á Alþingi í gær.

Óvissa um Helguvík bregðist lán til OR

Áætlanir Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um virkjanaframkvæmdir eru í uppnámi, fáist ekki þrjátíu milljarða króna lán frá Evrópska fjárfestingarbankanum (EIB) sem vilyrði er fyrir. Afgreiðslu lánsins var hafnað í júlí vegna óstöðugleika í efnahagslífinu.

Ræður Sudoku undir fjárlögunum

„Það er svo ljómandi gott þegar maður er að hlusta,“ segir Margrét Tryggvadóttir, alþingismaður Hreyfingarinnar, sem í gær sat í þingsal og réði japanskar Sudoku-talnaþrautir þegar umræður fóru fram um fjárlagafrumvarpið.

Fékk svar frá forsætisráðherra Dana

„Mér finnst gott að hann svari,“ segir Grímur Atlason, sveitarstjóri í Dalabyggð. Hann fékk í fyrradag svar við tölvupósti sem hann sendi Lars Lökke Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur. Þar gerði hann athugasemdir við yfirlýsingar ráðherrans vegna frétta um meðferð Dana á 22 grænlenskum börnum, sem voru tekin af foreldrum sínum og flutt til Danmerkur á sjötta áratugnum.

Venjulegar skuldir í hendur handrukkara

Handrukkarar eru farnir að banka upp á hjá fólki til að rukka það um skuldir sem stofnað er til með lögmætum hætti. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tvö slík mál til rannsóknar.

Ekki lengur ehf. ekki lengur til

Ekki lengur ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta en það var gert með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness uppkveðnum 21.apríl 2009. Skiptum á búinu var hinsvegar ekki lokið fyrr en 21.september síðast liðinn.

„You ain´t seen nothing yet“

Íslendingar eru djarfir, harðir í horn að taka og áhættusæknir. Þess vegna, meðal annars, hafa útrásarvíkingarnir unnið slíka sigra á erlendri grundu, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í ræðu í Lundúnum árið 2005 þar sem hann freistaði þess að útskýra hvað íslenskir athafnamenn hefðu framyfir útlenda.

Ördeyða í útboðum í vegagerð á næsta ári

Engin stór verkefni í vegagerð verða boðin út á næsta ári. Þá eru allar framkvæmdir, sem nefndar eru í stöðugleikasáttmála, ýmist í uppnámi eða óvissu. Vonir um að eitthvað færi í gang nú í haust hafa brugðist.

Lífeyrissjóðirnir svipað öflugir og olíusjóðir Norðmanna

Fjármálaráðherra mælti fyrir mesta kreppu fjárlagafrumvarpi lýðveldistímans á Alþingi í dag þar sem stefnt er að því að minnka hallann á ríkissjóði um hundrað milljarða króna. Ráðherrann segir allar forsendur til að Íslendingar vinni sig út úr vandanum á fjórum árum. Til að mynda séu sjóðir lífeyrissjóðanna svipað öflugir og olíusjóður Norðmanna.

Nær til 90% þjóðarinnar þrátt fyrir breytinguna

Ari Edwald útgáfustjóri Fréttablaðsins og forstjóri 365 segir fríblaðsformið síður en svo vera dautt þrátt fyrir að Fréttablaðið hafi dregið saman seglin í frídreifingu hér á landi. Um næstu mánaðarmót verður blaðinu dreift frítt á höfuðborgar­svæðinu og á suðvesturhorninu, Borgarnesi, Akranesi, Árborg og Reykjanesi, og Akureyri. Á öðrum stöðum mun Fréttablaðið fást í lausasölu á kostnaðarverði.

Komin úr öndunarvél

Konan sem varð fyrir alvarlegri árás í Hörðalandi í Fossvogi gærmorgun er á batavegi. Að sögn vakthafandi lækni á gjörgæsludeild er konan komin úr öndunarvél.

Tveggja ára dómi snúið við í Hæstarétti

Hæstiréttur sýknaði í dag karlmann sem ákærður var fyrir líkamsárás og rán með því að hafa í félagi við óþekktan mann slegið annan mann nokkrum sinnum í andlitið og rænt hann farsíma og seðlaveski sem í voru 100 þúsund krónur. Áður hafði héraðsdómur dæmt manninn í tveggja ára fangelsi og til þess að greiða stefnanda rúmar sjöhundruð þúsund krónur í bætur.

Nauðgaði barnsmóður sinni

Fjölskipaður Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni sem í febrúar á þessu ári var dæmdur í í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun og hrottalega líkamsárás gagnvart barnsmóður sinni. Honum var einnig gert að greiða miskabætur að upphæð 662 þúsund krónur.

Konur bannaðar á mótorhjólum

Mótorhjól og skellinöðrur eru þægilegur ferðamáti á þéttbýlli Gaza ströndinni. Góðar til að skjótast á milli bíla og hestvagna.

Sjá næstu 50 fréttir