Innlent

Lögmaður Færeyja til Íslands - hittir forsetann og skoðar útgerð

Kaj Leo Holm Johannesen.
Kaj Leo Holm Johannesen.

Kaj Leo Holm Johannesen, lögmaður Færeyja, kemur í opinbera heimsókn til Íslands dagana 12. - 14. október næstkomandi.

Hann mun meðal annars eiga fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur lögmanni kvöldverðarboð og hann heimsækir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands.

Lögmaðurinn skoðar Landnámssýninguna í Reykjavík, Þingvelli, Geysi, Gullfoss og Skálholt, auk þess sem hann kynnir sér fiskvinnslu hjá HB Granda og nýtingu jarðvarma í Nesjavallavirkjun. Þá heimsækir hann Alþingi og Háskóla Íslands, þar sem hann flytur ávarp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×