Innlent

Aðild að ESB gæti orðið hröð

Sótt um aðild Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á fundi með Carl Bildt utanríkisráðherra Svía eftir að hafa afhent formlega umsókn um aðild að ESB.Fréttablaðið/AFP
Sótt um aðild Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á fundi með Carl Bildt utanríkisráðherra Svía eftir að hafa afhent formlega umsókn um aðild að ESB.Fréttablaðið/AFP

Aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB) gæti gengið tiltölulega hratt fyrir sig.

Þetta kemur fram í árvissri skýrslu ESB um stækkunarferli sambandsins sem kemur út í næstu viku. Fréttastofa Reuters og írska útvarpsstöðin RTÉ birtu gögn úr drögum að skýrslunni í gær. Bent er á að Ísland sé þegar hluti af innri markaði Evrópu og Schengen-svæðinu.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir drögin ekki hafa borist í ráðuneytið, en afstaðan komi þó ekki á óvart.

„Ég hef kynnt málstað Íslands fyrir öllum ráðherrum Evrópusambandsins og átt mörg símtöl og fundi með sumum þeirra,“ segir hann og leggur áherslu á ekki sé farið fram á hraðferð í sambandið þótt landið vilji vera metið að verðleikum.

„Við höfum verið í fimmtán ára samrunaþróun við Evrópusambandið. Frá því við gengum í EES og til Schengen-samstarfsins höfum við tekið upp það sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins metur sjálf sem sjötíu prósent af því regluverki sem þar er að finna. Af þeim sökum teljum við að þetta formlega ferli eigi að geta tekið skemmri tíma.“

Össur segist þó vilja leggja á það áherslu að ekkert liggi fyrir um hversu hratt aðildarsamningarnir gangi. „Þar eru erfiðir kaflar sem þarf að taka og ég hef sjálfur alltaf gert ráð fyrir að ýmsir þættir þar, svo sem varðandi sjávarútveg og landbúnað, kunni að taka langan tíma og vera erfiðir.“- óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×