Fleiri fréttir

Finnst að dæma eigi kynferðisafbrot eins og morðtilraun

"Þetta eru glæpir gegn sál fólks og einstaklingar sem lenda í svona málum bera varanleg merki alla ævi," segir Særós Guðnadóttir, ein þeirra kvenna sem sakar fyrrverandi biskup um að brjóta gegn sér. Stefaníu Þorgrímsdóttir finnst að dæma eigi kynferðisafbrot eins og morðtilraun.

Hluti atkvæða endurtalinn í Íran

Byltingarráðið í Íran hefur ákveðið að endurtelja tíu prósent atkvæða í þeim tilgangi að róa mótmælendur sem halda því fram að niðurstöður kosninganna 12. júní síðastliðinn séu rangar. Tugir þúsunda mótmæltu í dag í miðborg Teheran í Íran.

Gunnar: FME á að sinna brýnni verkefnum

Það er ekki mikið að gera hjá Fjármálaeftirlitinu ef þeir eru að vegast í hlutum sem þessum segir Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi formaður stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Stjórnmálafræðingur telur að bæjarfulltrúarnir sem sátu í stjórn fari í tímabundið leyfi.

400 manns mótmæltu Icesave

Um 400 manns mótmæltu Icesavesamningnum á Austurvelli í dag. Öryrki sem segist ekki hafa efni á því að kaupa sér mat efnir til áframhaldandi mótmæla næstu daga.

Eyddu milljón í eitt sælgætisbréf

Breska unglisstúlkan Larissa Wilkinson slapp með skrekkinn þegar dómari bjargaði henni frá að greiða 75 punda sekt, andvirði tæplega 16.000 króna, fyrir að henda rusli út um bílglugga. Raunar gerði dómarinn gott betur en það – hann hellti sér yfir saksóknarann í málinu fyrir sóun á fé skattgreiðenda.

Hundruðir skáta í Viðey

Í Viðey er nú samankominn fjöldi skáta frá öllum landshornum en þar stendur nú yfir skátamót. Mótið hófst í gær föstudag og hefur það farið afar vel fram.

16.000 konur hlupu í dag

Góð þátttaka var í Kvennahlaupi ÍSÍ að sögn aðstandenda hlaupsins. Alls tóku um 16.000 konur þátt á 90 stöðum út um allt land og á um 18 stöðum erlendis. Um 5.500 konur hlupu í Garðabænum, 1400 í Mosfellsbæ, 700 á Akureyri og um 400 konur erlendis.

Heitir fundarlaunum fyrir ísbjörn

„Ég reyni alltaf að gera eitthvað gott fyrir fólk og gleðja það og þess vegna þoli ég þetta ekki,“ segir Sigurður Guðmundsson, verslunarmaður, sem varð fyrir því óláni að ísbjarnarlíki í hans eigu var stolið fyrir utan verslun hans, The Viking, við Laugarveg 1. „Skítt með hvað þetta kostar,“ bætir hann við.

SA gætu sagt upp kjarasamningum

Svartsýni gætir hjá aðilum vinnumarkaðarins um það takist að koma á þeirri stöðugleikasátt sem stefnt er að í viðræðum þeirra við ríkisvaldið. Heimildir fréttastofunnar úr viðræðuhópi Alþýðusambandins og Samtaka atvinnulífsins herma að töluverðar líkur séu á að Samtök atvinnulífsins segi upp núgildandi kjarasamingi fyrir mánaðamót, en þá rennur út frestur til að segja samningunum upp.

20 konur á kvennapókermóti

„Þetta er bara góðmennt, það eru hérna tvö borð í gangi og fleiri á leiðinni,“ segir Davíð Rúnarsson, knattspyrnumaður. Davíð skipulagði kvennapókermót á Gullöldinni í Grafarvogi og er staddur þar núna.

Rektor: HÍ nái öllum markmiðum sínum

„Horfur eru á að skólinn muni ná öllum þeim markmiðum sem sett voru og felld inn í afkastatengdan samning við ríkisvaldið,“ sagði Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, við brautskráningu háskólans í dag.

Fékk kærar kveðjur frá 1946

Hávarði Bernharðssyni, húsasmiði sem vinnur að framkvæmdum við gagnfræðaskólann á Ísafirði, varð undrandi í gær þegar hann fann flöskuskeyti undir gólffjölum hússins. Skeytið er dagsett 2. febrúar árið 1946 og er undirritað af smiðum sem greinilega unnu að gólfinu á þeim tíma.

Sameinuðu þjóðirnar rannsaka morðið á Bhutto

Óháð rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna kemur til með að rannsaka morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans. Bhutto var vegin í desember árið 2007 í aðdraganda þingkosninga landsins.

Mikill niðurskurður hjá utanríkisráðuneytinu

Varnamálastofnun Íslands verður lögð niður á þessu ári og framlög til þróunarsamvinnu og friðargæslu dregin verulega saman. Þá á að selja embættisbústaði og loka sjö sendiskrifstofum. Þetta er hluti af niðurskurði í utanríkismálum.

Borgarstjóralaxinn kominn á bakkann

Borgarstjóri Reykjavíkur, Hanna Birna Kristjánsdóttir, var ekki lengi að landa fyrsta laxi ársins úr Elliðaánum. Fimm punda hrygna var komin á bakka ánna laust fyrir klukkan hálf átta.

Kvennahlaup á 90 stöðum

Kvennahlaup Íþróttasambands Íslands fer fram í tuttugasta sinn á 90 stöðum hér á landi í dag. Einnig er hlaupið á 18 stöðum erlendis. Hlaupið hefst klukkan ellefu á Akureyri, Egilsstöðum og í Mosfellsbæ. Í Garðabæ verður ræst klukkan tvö, en þar hefur verið fjölmennast undanfarin ár.

Raddir fólksins á Austurvelli í dag

Samtökin Raddir fólksins undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu standa fyrir útifundi á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Þetta er þrítugasti fundurinn sem samtökin standa fyrir.

Steve Jobs fékk nýja lifur

Steve Jobs, yfirmaður Apple, þurfti á lifrarígræðslu að halda fyrir tveimur mánuðum ef marka má heimildir Wall Street Journal. Samkvæmt blaðinu mun Jobs snúa aftur til vinnu síðar í mánuðinum, en mun hugsanlega fara rólega af stað.

Bardagar í höfuðborg Sómalíu

Annan daginn í röð geysa miklir bardagar í Mogadishu, höfuðborg Afríkuríkisins Sómalíu. Íslamistar í landinu hafa gert uppreisn gegn ríkisstjórn lansdins og hertóku meðal annars lögreglustöð og aðrar opinberar byggingar í borginni.

Yfir 1500 manns að útskrifast úr HÍ

Vel yfir fimmtán hundruð manns útskrifast úr Háskóla Íslands í dag og hafa þeir aldrei verið fleiri í sögu háskólans. Útskriftin fer fram í Laugardalshöll og er fjöldinn slíkur að brautskráningin verður í tvennu lagi, klukkan 11 og síðan aftur klukkan 14.

Ökumaður gripinn með dóp

Lögreglan í Borgarnesi hafði afskipti af tveimur ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna í gærkvöldi. Annar ökumannanna var með 30 grömm af kannabisefnum á sér sem lögregla gerði upptæk. Einn var stöðvaður grunaður um ölvunarakstur.

Nóg að gera hjá lögreglu á Bíladögum

Það var nóg að gera hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna Bíladaga sem þar fara fram um helgina. Að sögn vakthafandi varðstjóra eru allir fangaklefar bæjarins fullsetnir. Mikil ölvun var í bænum og nokkuð um pústra, auk þess sem lögregla þurfti að hafa afskipti af nokkrum vegna ofurölvunar. Þó var lítið um meiðsl á fólki og engar kærur hafa verið lagðar fram.

Allir spá í það hvað gæti gerst í Kópavogi

„Ég hef sjálfur heyrt þennan orðróm,“ segir Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi vinstri grænna, spurður hvort sjálfstæðismenn hafi boðið honum sæti bæjarstjóra hefji hann meirihlutasamstarf með þeim.

Segir Íslendinga sjálfa hafa skert fullveldið

Guðmundur Hálfdánar­son sagnfræðingur segir að umræðan um Icesave-samninginn ætti fyrst og fremst að snúast um það hvort þörf væri á því að gera þennan samning eða ekki. Umræðan um að Íslendingar afsali sér að einhverju leyti fullveldi með samningnum sé á misskilningi byggð því afsal á fullveldisrétti sé ekki afleiðing af samningnum heldur afleiðing hegðunar stjórnvalda, bankamanna og þeirra sem ofurskuldsettu sig.

Síminn sagður beita klækjum

Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segir ákvörðun kærunefndar útboðsmála um að stöðva innkaupaferli Ríkiskaupa vegna fjarskiptaþjónustusamnings fyrir Landspítalann ekki taka til þess hvort tilboð Vodafone sé löglegt.

Innbrotum stórfjölgar

Um áttatíu prósent­um fleiri innbrot voru skráð hjá lögreglu í maí en á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra.

Lánuðu fimmtung sjóðsins til bæjarins

Lánveitingar stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar til bæjarfélagsins námu 500 til 600 milljónum króna. Hlutfall lánveitinga af eignum sjóðsins fór allt upp í tuttugu prósent. Málið hefur verið kært til efnahagsbrotadeildar.

Aðstandendur fórnarlamba fá bætur frá Air France

Aðstandendur þeirra sem létust í flugslysi Air France yfir Atlantshafinu þann fyrsta júní síðastliðinn koma til með að fá bætur greiddar frá félaginu. Þessu sagði yfirmaður Air France frá í dag.

Nýjasta tækni til að sigrast á flugþreytu

Ef draumar vísindamanna við nokkra bandaríska háskóla rætast mun það taka ferðalanga helmingi minni tíma að jafna sig eftir ferðalög á milli tímabelta. Þeir vinna nú að því að finna lausn á flugþreytu með aðstoð nýjustu tækni.

Önnur skjálftahrina við Krýsuvík

Talsverð skjálftavirkni hefur verið í grennd við Krýsuvík í kvöld. Skjálftahrina reið yfir klukkan 20:37, en þá mældust nokkrir skjálftar á bilinu 3 til 4,3 á Richter. Fyrr í kvöld mældist skjálfti um 4,2 á Richter sem margir fundu fyrir.

Öryrkjar óttaslegnir

„Fólk er óttaslegið um sinn hag,“ segir Guðmundur Magnússon, varaformaður Öryrkjabandalagsins. „Öryrkjar eru ekkert öðruvísi en annað fólk, þeir eru líka með heimili, lán og svo framvegis.“

Geta ekki valið sér eignir upp í Icesave

Hollendingar og Bretar geta ekki valið að hvaða eigum þeir ganga standi íslenska ríkið ekki við skuldbindingar sínar segir sérfræðingur í þjóðarétti. Þá eru ákveðnar eigur sem útlendingar og erlend ríki mega ekki eiga samkvæmt reglum um eignarrétt útlendinga.

Engin skelfing á elliheimilinu

Aðalheiður Guðmundsdóttir, íbúi á elliheimili í Grindavík, sagðist hafa fundið greinilega fyrir jarðskjálftanum sem reið yfir á Suðurnesjum fyrir tæpri klukkustund síðan.

Lögreglumaður lést í sprengjutilræði

Varðstjóri í spænsku lögreglunni lést í dag eftir að bílasprengja sprakk í borginni Bilbao í Baskalandi. Yfirvöld í sjálfsstjórnarhéraðinu kenna ETA, aðskilnaðarsamtökum Baska, um tilræðið.

Milljarður þjáist af matarskorti

Milljarður manna um allan heim þjáist af matarskorti. Sú tala hefur hækkað um hundrað milljónir vegna alþjóðlegs hruns á fjármálamörkuðum samkvæmt Sameinuðu þjóðunum.

Kvennadeginum víða fagnað

Það var bleikt þema á kvennadeginum í ár. Deginum var víða fagnað í dag, en þann 19. júní árið 1915 fengu konur kosningarétt og kjörgengi til Alþingis.

Hyggjast stoppa í 20 milljarða fjárlagagat á árinu

Um níu þúsund opinberir starfsmenn mega búast við lækkun heildarlauna, sælgæti og gos hækkar og margvíslegur niðurskurður verður í starfsemi ríkisins. Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins furðar sig á að ekki skuli farið út í að innheimta skatt af lífeyristekjum, sem gæfi nánast sama pening í ríkissjóð og allar skattahækkanir og aðhald á þessu ári.

Öflugur jarðskjálfti á Reykjanesi

Öflugur jarðskjálfti reið yfir klukkan 18:13. Upptök skjálftans voru við Kleifarvatn um tvo kílómetra vest-suðvestur af Krýsuvík. Jarðskjálftinn var 4,2 á Richter. Samkvæmt heimildum fréttastofu fannst greinilega fyrir skjálftanum í Hafnarfirði og víðar.

Viðbúnaðarsamningur upp á 300 milljónir dala

Landsvirkjun og íslenska ríkið hafa nú gert með sér viðbúnaðarsamning sem tekur til aðstæðna sem kunna að skapast ef Landsvirkjun hefur ekki nægjanlegt fjármagn til að mæta vaxtagreiðslum eða afborgunum erlendra lána.

Kirkjuráð harmar sársauka og vonbrigði Sigrúnar Pálínu

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði séra Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni á sínum tíma, kom á fund Kirkjuráðs í dag. Sigrún mætti á fund Kirkjuráðsins til þess að segja frá reynslu sinni af samskiptum hennar og Ólafs.

Innkalla grísagúllas

Ferskar kjötvörur ehf. hafa í varúðarskyni innkallað grísagúllas sem framleitt var af fyrirtækinu þann 5. júní 2009. Ástæða innköllunarinnar er að í sýnum sem tekin voru af vörunni greindist salmonella. Varan er ekki lengur á markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

Sjá næstu 50 fréttir