Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Opið í Hlíðarfjalli í dag Skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli verður opnað nú klukkan tíu og þar verður hægt að renna sér til klukkan fjögur í dag. 4.4.2009 10:07
Bandaríkjastjórn getur beðið fram á sumar Bandaríkastjórn sér ekkert því til fyrirstöðu að vali á næsta framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins verði frestað fram á sumar. 4.4.2009 10:01
Eldur í plasthúsgögnum í Hafnarfirði Slökkviliðið var kallað að húsi við Austurgötu í Hafnarfirði i gær þegar eldur kviknaði í plasthúsgögnum við skúr sem þar stendur. Að sögn slökkviliðsmanna tók skamma stund að slökkva eldinn. Lítið tjón hlaust af. Lögreglan segir að nóttin hafi verið erilsöm í gær. Tilkynnt hafi verið um nokkrar líkamsárásir í miðborginni en enginn hafi meiðst alvarlega í þeim. 4.4.2009 09:56
Enn karpað um stjórnskipunarfrumvarp Umræður um stjórnskipunarlög hafa nú staðið yfir í tvo daga á Alþingi. Tuttugu og tveir voru enn á mælendaskrá þegar þingfundi var frestað klukkan eitt í nótt. 4.4.2009 09:49
Talibanar ábyrgir fyrir árás í New York Talíbanar í Pakistan hafa lýst á hendur sér morðárás á þjónustumiðstöð innflytjenda í bænum Binghamton í New York ríki í Bandaríkjunum í gær. 4.4.2009 09:46
Darling rangtúlkaði orð Árna segir bresk þingnefnd Beiting hryðjuverkalaga gegn íslenskum fyrirtækjum er mjög gagnrýniverð aðgerð, segir rannsóknarnefnd breska þingsins. Alistair Darling er sagður hafa rangtúlkað orð Árna Mathiesen í frægu símtali 7. október. 4.4.2009 08:00
Sakar skilanefndina um að vinna fyrir MP Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Kaupþings segir skilanefnd SPRON starfa eins og markaðsdeild fyrir MP Banka. Fyrrverandi viðskiptavinur fékk tölvupóst frá SPRON með hvatningu um að skrá sig í viðskipti á vefsíðu 4.4.2009 07:00
Funduðu án foreldra fórnarlambsins Skólastjóri Hamraskóla í Grafarvogi fundaði í gær með foreldrum bekkjarsystkina drengs sem orðið hefur fyrir alvarlegu einelti í skólanum frá áramótum. Á fundinum var einnig yfirkennari skólans og fulltrúi menntasviðs Reykjavíkurborgar. Foreldrum drengsins var hins vegar ekki boðið á fundinn. Faðir drengsins, sem ekki vill láta nafns síns getið sonar síns vegna, segir að sér þyki afar undarlegt að hafa ekki fengið að sitja fundinn. Hann hafi rætt við fulltrúa menntasviðs, sem var á fundinum, og hann hafi tekið í sama streng. 4.4.2009 06:45
Samstaða bandamanna bætt Undir dynjandi fagnaðarlátum hét Barack Obama Bandaríkjaforseti því í gær að koma tengslum lands síns við Evrópu í samt lag. Sagði hann heimsbyggðina hafa sameinast um stund eftir hryðjuverkaárásirnar árið 2001 en síðan hefðum „við lent á röngu spori vegna Íraks“. 4.4.2009 06:30
Léttskýjað og létt lund um páska Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur segir von á hæglátu páskaveðri en þó ekki sérlega hlýju þar sem við siglum í næstu viku í kaldara loft eftir að hafa notið vorviðrisdaga. 4.4.2009 06:30
Engir enn sótt um aðlögun Enn hefur enginn sótt um greiðsluaðlögun til Héraðsdóms Reykjavíkur á grundvelli nýrra laga sem Alþingi samþykkti á þriðjudag. Eins og komið hefur fram telur dómsmálaráðuneytið að umsækjendur um greiðsluaðlögun byggða á þessum tilteknum lögum verði á bilinu 100 til 200. 4.4.2009 06:30
Sleppa við að taka samræmdu prófin Samræmd próf verða ekki haldin í tíunda bekk í vor og sleppur því árgangurinn sem nú er í tíunda bekk alfarið við samræmd próf. Framhaldsskólarnir hafa ekki lengur samræmdar einkunnir til að fara eftir við val inn í skólana. 4.4.2009 06:30
Félög mega kaupa einbýlishúsalóðir Þrátt fyrir að nýjar reglur um lóðaúthlutanir séu ekki enn tilbúnar verður komið til móts við lóðaumsækjendur í Reykjavík með gildistöku nokkurra undantekningaákvæða frá núverandi úthlutunarreglum. 4.4.2009 06:15
Krónan rúin trausti Viðskiptaráð segir gjaldeyrishöftin stefna þjóðinni inn á braut einangrunar. Sársaukafullt getur reynst að brjótast undan þeim, segir framkvæmdastjórinn. Ráðið telur haftastefnuna ekki duga til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta. 4.4.2009 06:00
Byggingarlóð fyrir landskika Hjón sem eiga 1.750 fermetra spildu í Úlfarsárdal fá henni skipt í byggingarlóð fyrir einbýlishús. Spilda hjónanna er nokkuð austan við íbúðarbyggðina sem Reykjavíkurborg hefur skipulagt og geta þau því ekki reist einbýlishús á sinni lóð. 4.4.2009 06:00
Kynning með plokkfisksveislu „Það ber að hneigja sig og beygja fyrir fyrirtækjum sem gleyma ekki mikilvægi menningarstarfsemi á tímum sem þessum,“ segir Jón Þór Þorleifsson, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem verður haldin á Ísafirði í sjötta sinn um næstu helgi. 4.4.2009 05:30
Sýking banar níu börnum Heilbrigðisyfirvöld í Kína hafa fyrirskipað að gerð skuli ítarleg rannsókn í Shandong-héraðinu í austurhluta landsins til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu handa-, fóta- og munnsjúkdóms sem geisað hefur á svæðinu og dregið að minnsta kosti níu börn til dauða á tveimur vikum. Sjúkdómsins hefur ekki áður orðið vart á svæðinu. 4.4.2009 05:30
Tveir hafa sagt sig úr stjórninni Veruleg uppstokkun á sér stað á stjórn Íslenskrar ættleiðingar þessa dagana. Formaður félagsins náði ekki endurkjöri á aðalfundi sem haldinn var nýlega. Þá hafa tveir stjórnarmenn sagt sig úr stjórn og öllum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Annar stjórnarmaðurinn segir af sér þar sem hún sér sér ekki fært að starfa innan hinnar nýju stjórnar, samkvæmt fundargerð félagsins, og telur sig ekki njóta trausts félagsmanna, hinn segir af sér af persónulegum ástæðum. 4.4.2009 05:00
Ráðuneytið of viðamikið Karen Jespersen, ráðherra velferðarmála í Danmörku, hefur dregið sig í hlé þar sem of margir og mismunandi málaflokkar heyra undir ráðuneytið. Þetta hefur hún tilkynnt Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, að sögn Berlingske Tidende. 4.4.2009 05:00
Langholtskirkju gefnar 17 milljónir króna Langholtssöfnuði verða gefnar eftir 16,7 milljónir af 49,8 milljóna eftirstöðvum skuldar við Reykjavíkurborg. Borgarráð staðfesti samkomulag þess efnis á fimmtudaginn. 4.4.2009 05:00
Samræmd úrræði í greiðsluerfiðleikum Hætt hefur verið við að koma fasteignaveðlánum í skjól hjá Íbúðalánasjóði. Í staðinn er búið að samræma úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Unnið er að samræmingu vegna myntkörfulána og verður hún kynnt á næstu dögum. 4.4.2009 04:45
Gæludýrin fá nýtt heimili Í Garðheimum geta dýravinir orðið sér úti um gæludýr um helgina en Dýrahjálp Íslands stendur þar fyrir Ættleiðingardögum. 4.4.2009 04:45
Fáir fengu þúsundir milljarða Útlán til hundrað stærstu skuldara föllnu viðskiptabankanna var um helmingur heildarútlána þeirra. Því er ljóst að um 300 aðilar hafa fengið að láni þúsundir milljarða í því ljósi að heildareignir bankanna, sem að stórum hluta eru útlán, námu tífaldri landsframleiðslu þegar mest var. Rannsóknarnefnd Alþingis vinnur nú að frekari greiningu á útlánum bankanna og þróun þessara lána með tilliti til trygginga og í hvað verið var að lána. 4.4.2009 04:30
Málningu skvett á hús Hannesar Rauðri málningu var í gær skvett á hús Hannesar Smárasonar á Fjölnisvegi. Sjálfur var Hannes ekki heima þegar spjöllin voru unnin en starfslið hans kallaði skjótt til málara til að lagfæra skemmdirnar. 4.4.2009 04:30
LÍÚ mun bregðast við með aðgerðum Framkvæmdastjóri LÍÚ trúir ekki að stjórnarflokkarnir láti verða af hugmyndum sínum um afturköllun aflaheimilda. Geri þeir það grípi útvegsmenn til aðgerða. Samfylkingin hefur ekki útfært hugmyndir sínar en vill ná sátt um kerfið. 4.4.2009 04:30
Táragasi beitt Lögregla beitti í gær táragasi til að dreifa grjótkösturum í liði mótmælenda, sem safnast hafa til Strassborgar við landamæri Frakklands og Þýskalands í tilefni af leiðtogafundi NATO sem þar fer nú fram. 4.4.2009 04:30
Lögreglan drap 13 skæruliða Yfirvöld á Srí Lanka segja að lögreglumenn hafi ráðist gegn hópi Tamíltígra og drepið þrettán þeirra í skotbardaga sem braust út í austurhluta landsins í gær. 4.4.2009 04:15
700 fleiri konur á kjörskránni Á kjörskrá vegna alþingiskosninganna í apríl eru 227.896 kjósendur, þar af eru konur 114.295 en karlar 113.601. Konur eru því 694 eða 0,6 prósentum fleiri en karlar, að því er fram kemur í tölum frá Hagstofunni. Í kosningunum 2007 voru 221.330 á kjörskrá. Fjölgunin nemur 3,0 prósentum. 4.4.2009 04:15
Ekki fallið frá máli Króata Dómari hjá stríðsglæpadómstólnum í Haag hefur hafnað því að falla frá máli er snýr að þremur króatískum hershöfðingjum sem eru sakaðir um að hafa myrt, ofsótt og hrakið Serba úr Króatíu árið 1995. 4.4.2009 04:00
Segir forseta Alþingis taka við fyrirmælum frá Jóhönnu Björn Bjarnason heldur áfram að gagnrýna Guðbjart Hannesson, forseta Alþingis, og segir hann ósjálfstæðan og hafa sýnt að hann eigi ekki síðasta orðið sem forseti heldur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. 3.4.2009 23:01
Obama efnir kosningaloforð varðandi Kúbu Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hyggst efna eitt af kosningaloforðum sínum og afnema höft á fjármagnsflutningi og ferðaleyfi fjölskyldna til Kúbu. Hann mun þó ekki afnema 47 ára gamalt viðskiptabann Bandaríkjmanna. Frá þessu er greint í Wall Street Journal. 3.4.2009 23:31
Brennuvargarnir í Eyjum játuðu Þrír menn sem hafa verið í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna rútubruna í fyrrinótt hafa allir játað aðild að íkveikjunni. Einn mannanna er í Slökkviliði Vestmannaeyja og annar hefur sótt um inngöngu þar. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 3.4.2009 22:34
Nagladekk óleyfileg eftir 15. apríl Nagladekk eru óleyfileg undir bifreiðum eftir 15. apríl 2009. Nagladekk spæna upp malbik hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og eru áhrifamikill valdur að svifryksmengun í Reykjavík, að fram kemur í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar. 3.4.2009 22:13
21 sjálfstæðismaður vill ræða stjórnarskrárfrumvarpið Frumvarp um breytingar á stjórnarskránni er enn til umræðu á Alþingi en þingfundur hófst klukkan 11 í morgun. Málið var rætt fram yfir miðnætti í gær og lauk þingfundi ekki fyrir enn á þriðja tímanum í nótt. 21 sjálfstæðismaður auk Kristins H. Gunnarssonar eru nú á mælendaskrá og bíða þess að taka til máls. 3.4.2009 21:35
Ástþór: Rifist um plástra sem passa á meiddið „Ég verð að segja það í fyrsta lagi þá líður mér hérna eins og ég sé kominn á Borgarspítala og nýbúið sé að draga mig úr einhverjum rústum eftir stóran jarðskjálfta og hjúkkurnar á sjúkrastofunni eru að rífast um það um það hvaða plástrar passi á meiddið,“ sagði Ástþór Magnússon, talsmaður Lýðræðishreyfingarinnar. 3.4.2009 21:11
Árásarmaðurinn sagður dáinn Byssumaðurinn sem drap að minnsta kosti þrettán í bænum Binghamton í New York ríki í dag er sagður dáinn. Enn eru fregnir af atburðarásinni óljósar. Heimildir herma að maðurinn hafi verið einn af verki en um stund var talið að árásarmennirnir væru fleiri en tveir. 3.4.2009 20:25
„Bíðið bara þangað til græningjarnir koma líka til Íslands“ Olíuútboð Íslendinga eykur þrýsting á ríkisstjórn Noregs að leyfa olíuleit á norska hluta Jan Mayen-svæðisins. Andstaða er innan norsku stjórnarflokkanna gegn nýjum vinnslusvæðum á norðurslóðum. 3.4.2009 19:30
300 aðilar fengur 4000 milljarða að láni Um 300 hundruð aðilar fengu yfir 4000 milljarða króna að láni hjá stóru bönkunum þremur. Lán til þessara aðila nema gervöllum skatttekjum ríkisins í meira en áratug. 3.4.2009 18:33
„Öll svona mál eru gríðarlega viðkvæm“ Eineltismál eru í ólestri í Hamraskóla þar sem sex ára drengur var nýlega stunginn og barinn. Þetta segir móðir drengs sem beittur var einelti í skólanum í mörg ár. Meðal annars af starfsmanni skólans sem áminntur var fyrir að beita son hennar ofbeldi. 3.4.2009 19:12
Rasmussen gefur formlega kost á sér Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, gaf í dag formlega kost á sér í embætti framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Hann nýtur stuðnings Evrópuveldanna og Bandaríkjanna. Tyrkir eru alfarið á móti því að hann taki við embættinu og gæti það tafið ákvörðun fram á mitt sumar. 3.4.2009 19:16
Rannsaka hýðingu á öskrandi konu Pakistönsk yfirvöld hafa fyrirskipað rannsókn á upptöku sem sýnir mann hýða öskrandi konu fyrir framan áhorfendaskara vegna meintra hjúskaparbrota. 3.4.2009 19:00
Þrettán fallnir í árás byssumannsins í Bandaríkjunum Þrettán hið minnsta féllu þegar byssumaður hóf skothríð í þjónustumiðstöð fyrir innflytjendur í bænum Binghamton í New York ríki í Bandaríkjunum síðdegis. Tuttugu og sex munu hafa særst. 3.4.2009 18:28
Sjö bændur á framboðslista Frjálslyndra Búið er að samþykja framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Sem fyrr mun formaður flokksins, Guðjónar Arnar Kristjánsson, leiða framboðið í kjördæminu. Athygli vekur að sjö bændur eiga sæti á framboðslistanum en 18 frambjóðendur skipa listann. 3.4.2009 17:50
Fullveldissinnar hætta við framboð L-listi fullveldissinna hefur ákveðið að bjóða ekki fram í komandi alþingiskosningum eins og ætlunin var að gera. Í tilkynningu frá L-listanum kemur fram að ákvörðun þessa efnis hafi verið tekin á fundi í dag. Hreyfingin muni hinsvegar starfa áfram sem frjáls framboðs- og sjálfstæðishreyfing. 3.4.2009 16:57
Fjórir skotnir -gíslar teknir Að minnsta kosti fjórir hafa verið skotnir og margir gíslar eru í haldi í bænum Binghamton í New York fylki. 3.4.2009 16:29