Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sonur Davids Camerons lést í morgun Ivan Cameron, sonur Davids Cameron, leiðtoga íhaldsmanna á Bretlandi lést í morgun. Ivan var sex ára gamall og þjáðist hann af alvarlegri flogaveiki og heilalömun. Cameron og kona hans Samantha báðu breska fjölmiðla í morgun um að virða einkalíf sitt og hefur fyrirspurnatíma í breska þinginu þar sem Gordon Brown átti að sitja fyrir svörum verið aflýst. 25.2.2009 11:28
Samkomulag um háhraðanet til allra landsmanna Fjarskiptasjóður og Síminn undirrituðu í dag samning um uppbyggingu háhraðanets um allt land. Með samningum er öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010. Um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar. Samningurinn er til fimm ára. 25.2.2009 11:28
Viðskiptanefnd kölluð saman vegna seðlabankafrumvarps Viðskiptanefnd Alþingis hefur verið kölluð saman til fundar. Seðlabankafrumvarpið er eina málið á dagskrá. ,,Forseti skipuleggur dagskrá þingsins, ekki ég. Ég boða bara fundi í viðskiptanefnd og hef gert það," sagði Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, aðspurð hvort hún eigi von á því að frumvarpið verði tekið til umræðu á þingfundi sem hefst klukkan 13:30. Hún á von á því að fundurinn standi stutt. 25.2.2009 11:02
Alvarlegt flugslys á Schiphol Tyrknesk farþegaflugvél brotlenti á Schiphol flugvelli í Amsterdam í morgun með 135 farþega innanborðs. Óljóst er um hvort eða hve margir hafa látist í slysinu en tyrkneskir miðlar segja að einn farþegi sé látinn hið minnsta og 20 slasaðir. Forstjóri flugfélagsins segir hins vegar að enginn hafi látist í slysinu. 25.2.2009 10:48
Valgeir Helgi gefur kost á sér fyrir Samfylkinguna Valgeir Helgi Bergþórsson, formaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfjarði, hefur ákveðið að gefa kost á mér í 3.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Með framboði mínu segist hann vera svara kalli kjósenda um endurnýjun á Alþingi. 25.2.2009 10:37
Bifreiðastyrkir til hreyfihamlaðra hækka Fjárhæðir styrkja og uppbóta vegna bifreiðakaupa hreyfihamlaðs fólks hækka um 20% og ýmis skilyrði fyrir styrkjum verða rýmkuð samkvæmt nýrri reglugerð sem Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti fyrir fulltrúum Öryrkjabandalags Íslands og Sjálfsbjargar á fundi í gær. 25.2.2009 10:31
Fundur viðskiptanefndar ekki á dagskrá Ekki hefur verið boðað til fundar í viðskiptanefnd Alþingis vegna seðlabankafrumvarpsins. Staðan er óbreytt og frumvarpið er enn fast í nefndinni eftir að Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, myndaði á mánudaginn meirihluta með sjálfstæðismönnum og studdi tillögu þeirra um að fresta málinu. 25.2.2009 10:20
Yahoo kynnir leitarvél handa auglýsendum Netveitan Yahoo verður æ harðsnúnari í baráttunni um að tryggja auglýsendum aðgang að nákvæmlega rétta markhópnum á Netinu. 25.2.2009 08:07
Obama segir efnahagslífið munu rétta úr kútnum Bandarískt efnahagslíf mun rétta úr kútnum á ný sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði sameinað þing Bandaríkjanna í nótt. 25.2.2009 07:36
Sjálfsvígsvarnir á brautarpöllum í S-Kóreu Alþekkt er að sjálfsvígum fjölgar þegar skórinn tekur að kreppa efnahagslega og Asíubúar finna nú fyrir þeirri tölfræði sem aldrei fyrr. Í Suður-Kóreu og Japan er hæst tíðni sjálfsvíga í þróuðum löndum, um 24 á hverja 100.000 íbúa. 25.2.2009 07:22
Fá peninga og vopn fyrir að passa hverfið Unglingar fá greitt í peningum og skotvopnum fyrir að sinna eins konar varðstöðu í hverfinu Norðurbrú í Kaupmannahöfn en þar geisar hálfgerð styrjöld milli vélhjólasamtakanna Vítisengla og innflytjendaklíka sem vilja hafa töglin og hagldirnar á fíkniefnamarkaði hverfisins. 25.2.2009 07:18
Straw bannar upptöku af ríkisstjórnarfundi Breski dómsmálaráðherrann Jack Straw hefur bannað að nokkurra mínútna upptaka af ríkisstjórnarfundi árið 2003, þar sem ráðherrarnir ræða um þátttöku Bretlands í innrásinni í Írak, verði gerð opinber. Segir ráðherrann að það sem ráðherrunum fór á milli sé hreinlega hættulegt lýðræðinu. 25.2.2009 07:15
Sjö særðir eftir skotárás í New Orleans Sjö manns, þar af tæplega tveggja ára gamalt barn, særðust þegar tveir menn, 18 og 19 ára gamlir, hófu skothríð í sprengidagsskrúðgöngu í New Orleans í gærdag. Barnið er ekki alvarlega slasað en byssukúla straukst við það. 25.2.2009 07:13
Breskir sparifjáreigendur tæma reikningana Breskir sparifjáreigendur telja fé sínu betur varið annars staðar en í bönkum eftir að stýrivextir Englandsbanka voru lækkaðir úr fimm prósentum niður í eitt frá miðju síðasta ári. 25.2.2009 07:11
Töluverð snjókoma á Akureyri í nótt Töluvert snjóaði á Akureyri í nótt og má búast við þæfingsfærð þar í grennd. Á Ísafirði var úrkoma sáralítil, þrátt fyrir spá um annað, og hlutust engin vandræði af óveðrinu. Aðstoða þurfti fólk í bíl sem fór út af veginum á Holtavörðuheiði í gærkvöldi og fyrr um kvöldið valt þar bíll, án þess að nokkur meiddist alvarlega. 25.2.2009 07:10
Eldur í gróðrastöð í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í geymsluhúsnæði við gróðrastöð í Mosfellsbæ á tólfta tímanum í gærkvöldi. Þegar slökkvilið kom á vettvang logaði í plastkassastæðu og lagði mikinn reyk frá henni, meðal annars inn í gróðurhúsið, þar sem rósir eru ræktaðar. Slökkvistarf gekk vel og var gróðurhúsið reykræst en óvíst er hvernig rósunum reiðir af. 25.2.2009 07:06
Fjögur innbrot í höfuðborginni í nótt Fjögur innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt og komust allir þjófarnir undan. Farið var inn í verslunina Vísi við Laugaveg, brotinn var upp sjálfsali við þvottastöðina Löður við Stekkjabakka 25.2.2009 07:02
Björn: Samfylkingarráðherrar töfðu fyrir frumvarpi um sérstakan saksóknara „Bloggkenndar spurningar Sigmars ristu of grunnt," segir Björn Bjarnason ,þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á vef sínum um viðtal Sigmars Gumðundssonar Kastljóssmanns við Davíð Oddsson seðlabankastjóra. „Hafi þetta átt að vera einvígi, lá Sigmar í valnum," segir Björn jafnframt. 24.2.2009 22:31
Fjölmiðlamenn áberandi fyrir næstu kosningar Fjölmiðlamenn eru býsna áberandi í hópi þeirra manna sem sækja eftir sæti á Alþingi fyrir komandi þingkosningar. Þeir Sigmundur Ernir Rúnarsson og Róbert Marshall hafa báðir 24.2.2009 22:21
Varaði við bankahruninu á ríkisstjórnarfundi Davíð Oddsson varaði ríkisstjórnina við því að allt íslenska bankakerfið yrði komið á hausinn innan tveggja til þriggja vikna á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var 30. september, eða daginn eftir að tilkynnt var um að ríkið myndi taka yfir meirihluta í Glitni. Þetta staðfesti Davíð Oddsson í Kastljósinu á RÚV nú undir kvöld. 24.2.2009 20:31
Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu áhrif á ákvörðun um hryðjuverkalög Davíð Oddsson seðlabankastjóri telur að það hafi haft mikil áhrif á bresk stjórnvöld að fé var flutt úr dótturfélagi Kaupþings, sem var undir bresku eftirliti. Þetta sagði Davíð þegar að hann var inntur eftir svörum í Kastljósi við því hvað hefði orðið til þess að Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn Íslandi. 24.2.2009 20:59
Tíu sjálfstæðismenn gefa kost á sér í Norðausturkjördæmi Tíu manns gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi vegna framboðslista við alþingiskosningarnar í vor. Prófkjörið verður haldið laugardaginn 14. mars næstkomandi. 24.2.2009 19:32
Hvalur 8 í slipp eftir 20 ára stopp Gamlir hvalskutlarar flykktust niður á Reykjavíkurhöfn í dag þegar Hvalur átta var tekinn upp í slipp til að undirbúa stórhvalaveiðar í sumar. 24.2.2009 19:13
Borgin biðst vægðar en sýnir sjálf enga miskunn Reykjavíkurborg, sem nú biðst vægðar vegna hækkandi húsaleigugjalda, hefur sjálf enga miskunn sýnt við hækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði og tvöfaldað tekjur sínar af þeim skatti á fáum árum. Þá helltu sveitarfélögin margvíslegum gjaldahækkunum á landsmenn nú um áramótin. 24.2.2009 18:56
Ungir framsóknarmenn á Akureyri styðja Höskuld Ungir framsóknarmenn á Akureyri lýsa yfir fullum stuðningi við Höskuld Þórhallsson vegna seðlabankafrumvarpsins. Segja þeir að Höskuldur hafi marglýst því yfir að hann vilji breytingar á stjórn Seðlabankans en breytingar þær sem gerðar verði þurfi að ná tilskyldum árangri. 24.2.2009 18:21
Krónprinsessa Svía á leiðinni að altarinu Viktoría krónprinsessa Svía hefur trúlofast Daniel Westling kærasta sínum, samkvæmt tilkynningu frá Konunglega Réttinum í Svíþjóð. 24.2.2009 17:43
Geðheilsuvefur opnaður við HÍ Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, opnar sérstakan vef um geðheilbrigði við Háskóla Íslands á morgun klukkan tvö í Háskólatorgi. 24.2.2009 17:03
Spyr um verktakagreiðslur í ráðherratíð Guðlaugs Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra, um verktakavinnu fyrir ráðuneytið á því tímabili sem Guðlaugur Þór Þórðarsson gegndi embætti ráðherra. 24.2.2009 16:56
Staðinn verði vörður um sérþekkingu í hjúkrun Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vill að staðinn verði vörður um sérþekkingu í hjúkrun samhliða niðurskurði á fjárveitingum til heilbrigðismála og endurskipulagningar í heilbrigðiskerfinu. 24.2.2009 16:24
65 ára gamall maður dæmdur fyrir kynferðisbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær 65 ára gamlan karlmann í fimmtán mánaða fangelsi fyrir nauðgun með því að hafa haft samræði við konu sem ekki gat spornað við þeim sökum andlegra annmarka sinna. Maðurinn hafði ekki samræði við konuna og krafðist því sýknu. Hann sagðist einnig fyrir dómi ekki hafa vitað að konan væri haldin andlegum annmörkum. 24.2.2009 16:23
Guðrún Inga vill fjórða sætið hjá Sjálfstæðisflokki Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur, vill svara kalli um endurnýjun og gefur því kost á sér í fjórða sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hún er 36 ára Reykvíkingur með reynslu af félagsstörfum og pólitísku starfi innan Sjálfstæðisflokksins. 24.2.2009 16:03
Leiga stúdenta á Bifröst lækkar um 10 prósent Ágúst Einarsson, rektor Hákólans á Bifröst, hefur tilkynnt nemendum um fyrirhugaða lækkun á húsaleigu á háskólasvæðinu. Húsaleigan lækkar um 10%. 24.2.2009 15:35
Seðlabankastjóri skammar forsætisráðherra Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, skammar Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra í bréfi sem hann sendi henni í dag. Þar lýsir hann furðu sinni á vinnubrögðum og yfirlýsingum i sambandi við stjórnskipulagsbreytingar á Seðlabankanum. Í stað þess að sinna brýnum verkefnum í peningamálum og gjaldeyrismálum hafi miklum tíma verið eytt í óþarfa síðustu vikur að hans mati. 24.2.2009 15:15
Fréttaskýring: Hver lætur eftirlýstan mann flytja inn 200 kg af fíkniefnum? Ákæruvaldið fer fram á 10 ára fangelsisdóm hið minnsta yfir Þorsteini Kragh og Jacobi Van Hinte fyrir að skipuleggja og flytja inn tæplega 200 kíló af kannabisefnum og tæpt 1 ½ kíló af kókaíni. Verjandi Þorsteins fer fram á að hann verði sýknaður en verjandi hollendingsins telur hæfilega refsingu vera 6-7 ár hið mesta. Hann segir ennfremur að 10 ára fangelsisdómur yfir rúmlega sjötugum manni sé í raun lífstíðardómur. Vísir fylgdist með aðalmeðferð í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 24.2.2009 15:10
Stórbruni í Kínahverfinu á Manhattan Slökkviliðsmenn í New York berjast nú við mikinn eldsvoða í sex hæða húsi í Kínahverfi borgarinnar. Að minnsta kosti einn hefur látist í brunanum og 28 manns eru slasaðir. 24.2.2009 15:01
Gylfa líst illa á hugmyndir framsóknarmanna Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að leita verði annara leiða til þess að koma til móts þá verst stöddu í þjóðfélaginu en þá leið sem Framsóknarflokkurinn kynnti í gær. Framsóknar menn vilja að 20 prósent íbúðalánaskulda almennings verði felldar niður. Gylfi segist ekki geta fallist á að svigrúm sé til þess að fella niður skuldir allra um 20 prósent. 24.2.2009 14:15
Hrafnhildur kjörin í landskjörstjórn Hrafnhildur Stefánsdóttir, hæstaréttarlögmaður, var kjörin í landskjörstjórn af Alþingi í dag. Hún tekur sæti Gísla Baldurs Garðarssonar í stjórninni en hann sagði af sér sem formaður landskjörstjórnar eftir að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð. 24.2.2009 14:11
Sextán þúsund án atvinnu Atvinnuleysi heldur áfram að aukast hröðum skrefum og nú eru 16.046 manns atvinnulausir á landinu öllu. Sem kunnugt er af fréttum var gert ráð fyrir að atvinnulausir yrðu orðnir 10% af vinnuafli í vor en nú eru líkur á að það hlutfall komi jafnvel fyrr á árinu. 24.2.2009 13:49
Seðlabankafrumvarpið tekið af dagskrá Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, tilkynnti í upphafi þingfundar í dag að seðlabankafrumvarpið hafi verið tekið út af dagskrá en upphafleg dagskrá gerði fyrir að málið til umræðu í dag. 24.2.2009 13:32
Guantanamo í samræmi við Genfarsáttmálann Bandaríkjaher segir að aðbúnaður og meðferð fanga í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu sé í samræmi við ákvæði Genfarsáttmálans. Obama Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að búðunum skuli lokað innan árs. Einum Guantanamofanga var sleppt í gær og hann sendur til Bretlands. 24.2.2009 13:22
Tillögum um stjórnlagaþing vísað til þingflokka Hugmyndum ríkisstjórnarinnar hefur verið vísað til þingflokka stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi. Eitt af skilyrðum Framsóknarflokkssins fyrir því að verja ríkisstjórnina falli var að komið yrði á stjórnlagaþingi sem semja myndi nýja stjórnarskrá. 24.2.2009 13:14
Óli Björn býður sig fram í Suðvesturkjördæmi Óli Björn Kárason blaðamaður hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi vegna komandi alþingiskosninga. Hann óskar eftir stuðningi í 4. sæti. 24.2.2009 13:09
Innbrotahrina í nótt Innbrotahrina gekk yfir höfuðborgarsvæðið í nótt. Að minnsta kosti fimm innbrot voru framin og talsverðum verðmætum stolið. 24.2.2009 12:38
Framsóknarmenn vilja sekta auðmenn Framsóknarflokkurinn vill sekta auðmenn neiti þeir að gefa upp óskattlagðar eignir erlendis. Framsóknarflokkurinn kynnti í gær tillögur sínar til að bregðast við fjárhagsvanda heimila og fyrirtækja. 24.2.2009 12:28
Íslendingar voru 319.368 í byrjun árs Íslendingar voru rúmlega þrjú hundruð og nítján þúsund í byrjun janúar samkvæmt upplýsingum sem að Hagstofan birti í morgun. Þeim hefur fjölgað um hátt í fjögur þúsund frá því fyrir ári eða um eitt komma tvö prósent. 24.2.2009 12:25