Innlent

Fjölmiðlamenn áberandi fyrir næstu kosningar

Sirrý gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Sirrý gefur kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Fjölmiðlamenn eru býsna áberandi í hópi þeirra manna sem sækja eftir sæti á Alþingi fyrir komandi þingkosningar. Þeir Sigmundur Ernir Rúnarsson og Róbert Marshall hafa báðir lýst því yfir að þeir hyggist gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar, Sigmundur í Norðausturkjördæmi en Róbert í Suðurkjördæmi.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var fréttamaður á RÚV og dagskrárgerðarmaður í Kastljósinu um skeið, en hann mun bjóða sig fram í Reykjavík. Þá tilkynnti Óli Björn Kárason ritstjóri fréttavefjarins AMX um framboð sitt í morgun og gefur hann kost á sér á lista sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi.

Þá sagði Sigríður Arnardóttir, eða Sirrý, frá því í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að hún gæfi kost á sér í fimmta sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Loks má nefna að Egill Helgason hefur greint frá því að hann hafi verið beðinn um að taka sæti á lista Framsóknarflokksins. Hann þekktist hins vegar ekki á boðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×