Ljón á vegi Rauða ljónsins á Nesinu 23. febrúar 2009 05:00 Útlit er fyrir að Eiðistorg verði ljónalaust enn um sinn en bæjarstjóri segir marga hafa saknað þess rauða.
Þrír af fjórum samflokksmanna Jónmundar Guðmarssonar, bæjarstjóra Seltjarnarness, í bæjarstjórn greiddu atkvæði gegn tillögu hans um að veita Rauða ljóninu rekstrarleyfi á Eiðistorgi þar í bæ. Lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu fór fram á að bæjarstjórnin veitti umsögn um hugsanlegt rekstrarleyfi. Bæjarstjórinn lagði fram tillögu um að leyfið yrði veitt að uppfylltum fjórum skilyrðum. Afgreiðslu var frestað fram á næsta fund sem var 11. febrúar en þá lagði Guðrún Helga Brynleifsdóttir frá Neslistanum tillögu um að rekstrarleyfið yrði ekki veitt. Samflokksmaður Guðrúnar Helgu og þrír samflokksmenn Jónmundar greiddu atkvæði með tillögu hennar. „Það er hreinlega sögulegt að svona nokkuð gerist á Nesinu," segir Guðrún Helga Brynleifsdóttir, fulltrúi Neslistans, sem er í minnihluta bæjarstjórnar Seltjarnarness. „Þetta veikir vissulega hans stöðu. En þetta er einnig óskiljanleg málsmeðferð hjá honum því annaðhvort á að hafna umsókn eða verða við henni. Það að breyta henni eins og bæjarstjórinn gerði þótti mér afar undarlegt." Hún segir enn fremur að það hafi í hennar huga verið óhugsandi að heimila rekstur skemmtistaðar sem er opinn til þrjú að nóttu í húsnæðinu á Eiðistorgi sem er einnig íbúðarhúsnæði. „Ég lít alls ekki svo á að þetta veiki mína stöðu," segir Jónmundur. „Þetta er eitt af þeim málum sem fylgir ekki neinni flokkslínu þannig að bæjarfulltrúar hafa einfaldlega sína skoðun á því alveg óháð því hvort þeir eru í meiri- eða minnihluta." Hann segir enn síður nokkuð athugavert við það að skilyrði séu sett fyrir því að heimild fáist samþykkt. „Það sjáum við til dæmis í Reykjavík þar sem borgarráð og slökkvilið setja skilyrði fyrir slíkum veitingum," segir hann. „Mér fannst einfaldlega, sem talsmanni athafnafrelsis, ekki stætt á öðru en að leyfa umsækjanda að spreyta sig og til að tryggja að það væri með viðunandi hætti lagði ég fram þessi skilyrði. Ég taldi, og reyndar fleiri bæjarbúar, að þannig væri hægt að tryggja að þessi starfsemi, sem margir bæjarbúar hafa saknað, auðgaði mannlífið á ný en í sátt við íbúa á svæðinu." Guðrún Helga segir ekki loku fyrir það skotið að viðhorf gagnvart starfseminni yrði annað ef afgreiðslutími yrði styttur. jse@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira