Grænmetisumbúðir bannaðar af neytendastofu 22. febrúar 2009 20:44 Íslenskt meðlæti þarf að breyta umbúðunum sínum. Mynd tengist ekki frétt beint.
Neytendastofa hefur bannað fyrirtækinu sem rekur Íslenskt meðlæti hf að nota umbúðir sínar utan um fryst grænmeti óbreyttar. Íslenskt meðlæti selur útlenskt grænmeti með íslensku fánalitunum. Umbúðirnar eru villandi að mati Neytendastofu. Fréttastofa hefur að undanförnu fjallað ítarlega um merkingar á matvælum eftir að Samtök iðnaðarins tóku að hvetja landsmenn til að velja íslenskt. Lögum um merkingar á matvælum er þannig háttað að fyrirtæki gætu flutt inn tilbúnar vörur frá Kína með íslenskum miða án þess að þurfa að greina kaupandanum frá því að varan sé í raun kínversk. Þó er skýrt í lögum að merkingar mega ekki vera villandi. Fréttastofan lagði fyrir Neytendastofu pakka af frystu grænmeti frá Íslensku meðlæti hf. Grænmetið er erlent en því er pakkað á Íslandi. Fréttastofa taldi umbúðirnar villandi þar sem fyrirtækjaheitið er áberandi og fánalitirnir íslensku sem gæti villt um fyrir neytendum. Neytendastofa fellst á þetta og segir að útlit umbúðanna gefi ótvírætt í skyn að uppruni grænmetisins sé íslenskur. Niðurstaða Neytendastofu er skýr: Eggert Kristjánsson, sem rekur Íslenskt meðlæti, hefur með notkun þessara umbúða brotið gegn þremur greinum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Því bannar Neytendastofa fyrirtækinu að nota umbúðirnar.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira